Vísir - 01.04.1963, Qupperneq 1
53. árg. — Mánudagur 1. aprfl 1963. —'75. tbl.
Unglingstelpa stór
slasast / Keflavík
Það slys varð um kl. 9 í gær-
kvöldi, fram undan húsinu nr. 79
við Hringbraut í Keflavík, að 14
ára telpa úr Gagnfræðaskóia Kefla
víkur, Kolbrún Árnadóttir að nafni,
til heimilis að Birkiteig 14, varð
fyrir fólksbifreiðinni Ö 756 og
meiddist mjög mikið. Kolbrún höf-
uðkúpubrotnaði, fótbrotnaði og
skrámaðist töluvert og liggur nú
í sjúkrahúsi. Stúlkan var meðvit-
undarlaus i nótt, en mun hafa verið
að koma til meðvitundar í morgun.
Bílstjórinn, sem ók á stúlkuna,
segist ekki hafa orðið hennar var
fyrr en hún stóð á götunni rétt
framan við bílinn, og varð árekstur
þá ekki umflúinn. Stúlkan var ein
á ferð og var ekki vitað til þess
í morgun að nokkrir sjónarvottar
hefðu orðið að þessu slysi. En bíl-
systir drengsins, sem lézt af voða-
skotinu í Keflavik í fyrrinótt, eins
og getið er um 1 annarri frétt hér
í blaðinu í dag.
Listi Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi
Kjördæmisráð Sjálfstæðismanna í Austurlandskjördæmi
hefir gengið frá framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu al-
þingiskosningar. Er hann þannig:
1. Jónas Pétursson alþingismaður, Lagarfelli.
2. Sverrir Hermannsson viðskiptafræðingur, Reykjavík.
3. Pétur Blöndal vélsmíðameistari, Seyðisfirði.
4. Benedikt Stefánsson bóndi, Hvalnesi, A-Skaftafellssýslu.
5. Axel Tulinius sýslumaður, Eskifirði.
6. Helgi Gíslason verkstj., Helgafelli, N-Múlasýslu.
7. Páll Guðmundsson bóndi, Gilsárstekk, Breiðdal.
8. Helgi Guðmundsson bóndi, Hoffelli, A-Skaftafellssýslu.
9. Sigurjón Jónsson verkstj., Vopnafirði.
10. Ingólfur Hallgrímsson, framkvæmdastj., Eskifirði.
14 ára drengur deyr af voða-
skoti í Kefíavík
sem þeir voru að leika sér með.
Er ekki að orðlengja
það, að fyrir óvarkárni hljóp
skot úr rifflinum í brjóst Freys
með þeim afleiðingum er fyrr
segir. Drengirnir höfðu ekki að-
gætt að öryggislásinn væri á
skotvopninu.
Mikil skelfing greip drengina
þegar þeir sáu hvað orðið var
og varð þeim fyrst fyrir að leita
að símanúmeri næturlæknisins í
Keflavík, en svo vildi til að blað
með þessu númeri vantaði i
símaskrána. Þeir hringdu þá á
lögregluna, sem kom samstund-
is, og símaði eftir lækni og
presti, en þá var Freyr dáinn.
Freyr Sverrisson var sem fyrr
segir nemandi I Gagnfræðaskóla
Keflavíkur. í morgun var minn-
ingarathöfn um hann í skólanum
og kennsla fellur niður í dag
vegna þessá sorglega atburð-
4>-
Kolbrún Árnadóttir, sem slasaðist
í gær.
stjórinn á Ö 756 segist hafa verið
nýbúinn að mæta vörubíl á Hring-
brautinni, er slysið varð, og óskar
lögreglan í Keflavík eftir því að
hafa tal af bílstjóranum á vöru-
bílnum.
Kolbrún Árnadóttir er bekkjar-
Sá sorglegi og svip-
legi atburður gerðist í
Keflavík laust fyrir kl.
1 aðfaranótt sunnudags-
ins að 14 ára drengur,
Freyr Sverrisson, Tún-
götu 13, Keflavík, varð
fyrir voðaskoti og beið
þegar bana. Freyr var
yngri sonur hjónanna
Sverris Matthíassonar
framkvæmdastjóra og
Fjólu Matthíasson.
Atvik voru sem hér segir: Á
laugardagskvöldið voru 4 dreng
ir, bekkjarbræður úr Gagnfræða
skóla Keflavlkur, staddir í húsi j
einu þar i bæ og engir fullorðnir j Bandarikjastjórn hefur hert eftir-1 árásir á Kúbu frá bandarísku landi.
heima. Drengirnir voru að ; lit við strendur Floridaskaga og Samtfmis hefur verið hert eftir-
hlusta á segulband, horfa á sjón j Puerto Rico til þess að hindra, að lit með forsprökkum útlaga í Miami
varp og fundu riffil f húsinu, i kúbanskir útlagar undirbúi eða geri I og ferðafrelsi 18 þeirra takmarkað.
Freyr Sverrisson skólapilturinn,
sem lézt af voðaskoti.
Bandaríkin kerða eftirlit
til að hindra árásir á Kábu
VORAFLAHROTAN MIKLA
B YRJUÐ í VESTM.EYM
Mikil aflahrota er nú í
Vestmannaeyjum og hef
ur því verið ákveðið að
gefa nemendum í Gagn-
fræðaskólanum frí til
þess að geta tekið þátt
í framleiðslustörfunum.
Fengu unglingarnir frí á
laugardaginn og hafa
þeir og Eyjaskeggjar
allir síðan unnið nótt
með degi að verkun
aflans.
Á sunnudaginn komu í land
1200 lestir af fiski í Eyjum, enda
var svo komið, að verið var að
landa fiski úr bátunum á öllu
því bryggjuplássi,' sem fáanlegt
var.alls staðar var unnið, hvergi
eyða við nokkra bryggju.
Það munu vera um 250 ungl-
ingar, sem fengið hafa frt f
Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja
og munar mjög mikið um þann
vinnukraft. Fara bæði stúlkurn-
ar og piltarnir til vinnu í frysti-
húsunum og með hjálp þeirra
er nú verið að vinna milljóna-
verðmæti úr sjó f Eyjum. Þau
munu fá frí fram eftir vikunni
svo lengi sem aflahrotan helzt.
Að lokum má geta þess, að
vertiðin í Vestmannaeyjum hef-
ur verið frábær og ágæt á allan
hátt í vetur. Heildarafli í Eyjum
í vetur er kominn upp í 1200
lestir og er það langtum rneiri
afli en þekkzt hefur áður í Eyj-
um. Er hér um mikla blómaöld
að ræða, aðeins eitt skortir, það
er vinnuaflið.
Þá hefur Bandaríkjastjórn beðið
brezku stjórnina um aukið eftirlit
með því að eyjar í Bahamaeyja-
klasanum verði ekki notaðar til
árása á Kúbu, og hefur brezka
stjórnin brugðizt vel við og skjótt
| og sent freigátuna Londonderry á
vettvang til eftirlits.
Ráðstafanir Bandaríkjastjórnar
1 eru í samræmi við fyrri yfirlýs-
ingar hennar, að hún sé andvfg
' slíkum árásum sem hér um ræðir,
Framh. á bls. 5.
Frestur til
15 þ.m.
Kjaradómur átti að byrja að
fjalla um launamál opinberra
starfsmanna nú um mánaðamót
in, en ákveðið hefur verið að
fresta því að málið komi fyrir
dórninn.
Sáttasemjari hefur að undan-
förnu unnið með samninga-
nefndum ríkisstjórnarinnar og
BSRB að Iausn málsins. Er nú
Iokið niðurröðun í launaflokka.
---i ...ii .i ii imh——