Vísir - 01.04.1963, Qupperneq 2
2
V í SIR . Mánudagur 1. aprfl 1963.
tí^Alj
/r 4i ____
pJ n r^L
y ////my////////m/'Zf^ZM^%"
Harka KR-inga eyðikgði
leikinn gegn Fram
Þórður Ásgeirsson skorar eitt af mörkum Þróttar í leiknum gegn Víking.
Harka og ruddaskapur
einkenndi viðureign KR
og Fram á Handknattleiks-
móti íslands í gærkvöldi.
Sökudólgarnir voru allir
úr KR, en yfir leik Fram-
ara var ró og spekt og í
rauninni má furðulegt telja
hve mikla sálarró Framar-
ar sýndu eftir hina hörðu
Dg þungu pústra, sem þeir
í sífellu fengu. Sigur Fram
var aldrei í vafa, þótt ekki
Hörð mótspyrna Þróttar
en Víkingur vann 30:26
Þróttur missti enn í gær-
ívöldi úr greipum sér tæki
iæri til að ná í stig í ís-
landsmótinu í handknatt-
leik, sem runnu bæði í
hendur Víkingum, sem
annu Ieikinn eftir nokkuð
harða baráttu við Þróttar-
ana, sem léku oft mjög
skemmtilega. Sigur Vík-
ings var 30:26.
Þróttarar byrjuðu vel og skor-
uðu fyrstu mörkin tvö, en Víkingar
glopruðu boltanum út af og urðu
síðar að sjá falleg og vönduð skot
varin af hinum snjalla markverði
Þróttar, sem sýndi einstakan leik
og sannaði enn einu sinni mikla
hæfileika sína, sem allir hafa komið
auga á, — nema kannski landsliðs-
nefndin, sem valdi síðasta landslið.
Þróttur tók öll vöid í leiknum
lengst af í fyrri hálfleik og komst
í 9:5, en þá var eins og meiri ró
og festa færðist yfir leik Víkings ;
og jafnframt eitthvert slen í Þrótt,
og eftir nokkrar mínútur voru skot
Jóhanns Gfslasonar og Rósmundar
búin að færa Víking forystuna 10:9,
en Helgi Árnason jafnaði. 1 hálf-
leik var staðan 13:12 fyrir Víking.
í síðari hálfleik voru Víkingarnir
öllu betra liðið, þó ekki væri mikill
munur á liðunum. Víkingar náðu
fjögurra marka forystu, 19:15, en
Þróttarar minnkuðu í 2 mörk og
enn eru Víkingar 4 mörk yfir í
21:17 og 23:19, en mest varð bilið
30:23, en síðustu þrjú mörkin komu
frá Þrótti.
Sigurður Hauksson var bezti mað
ur Víkings í gærkvöldi, en mark-
vörðurinn Brynjar Bragason átti
ágætan leik. Jóhann Gíslason skor-
aði mikið, en er orðinn fullþungur.
Af Þrótturum átti Haukur langbezt-
an leik, auk Guðm. Gústarfssonar,
sem fyrr er getið, en sjaldan hefur
gamla Hálogaland séð' aðra eins
markvörzlu og hjá honum. Ágætir
í Þróttarliöinu voru einnig Axel.
Axelsson og Þórður Ásgeirsson.
Dómari leiksins, Valur Benedikts
son, var heil „stúdia", greinilega
ekki í sem beztu „stuði" til að
dæma handknattleik. Ósamræmið
og ónákvæmnin voru einstök. Brot,
sem heita máttu meinlítil, voru
dæmd vítaköst, en ljót brot fyrir
opnu marki voru færð út fyrir
punktalínu. Var af þessu óhagur
fyrir bæði liðin, en sízt fyrir Þrótt.
— jbp —
TOTTENHAM með
sex í eidinum
Tottenham verður að sjá af 6
beztu leikmönnum sínum í lands-
leik Englands og Skotlands 6.
apríl n.k. England valdi 3 leik-
menn Tottenham í sitt lið og í
gær kunngerðu Skotar sitt lið, sem
einnig er með 3 leikmönnum
„Sporanna“. Lið Skota lítur þannig
út: Brown, Tottenham — Hamil-
ton, Dundec — Caldo;, Rangers —
Mackay, Tottenham, — Ure,
ton, Dundee — Caldew, Rangers —
Henderson, Rangers — White,
Tottenham — St. John, Liverpooi
— Law. Manch. United — Wilson,
Rangers.
Enska liðið lítur þannig út:
Banks, Leicester — Armfield,
Blackpool — Byrne 'Liverpool —
Moore, West Ham — Norman,
Tottenham — Flowers, Wolves -
Douglas, Blackburn — Greaves,
Tottenham — Smith, Tottenham
— Melia, Liverpool — Charlton,
Manch. United.
Tveir óþekktir leikmenn eru í
enska liðinu, þeir Jimmy Meiia og
Gerry Byrne. Leikurinn fer fram
á Wembley og er áhugi geysimik-
ill fyrir leiknum.
Eæri bilið milli liðanna mik
ið, en sigurinn hefði mátt
vera stærri en hann varð,
31:26.
Leikurinn var í byrjun jafn og
Framarar voru lengi að „hita upp“.
KR-ingar fylgdust alveg með og
höfðu jafnvel yfir í byrjun, en um
miðjan hálfleik eða laust eftir það
eru Framarar yfir I 8:5 og í hálf-
leik eru þeir búnir að auka við og
hafa 12:7 yfir.
í síðari hálfleik jók Ingólfur enn
við mörkin og skoraði tvö til við-
bótar bæði úr vítaköstum, 14:7. Eft
ir þetta var lítill vafi á hvor sigra
mundi, enda þótt KR virtist stund-
um ógna nokkuð með því að hafa
aðeins 4 mörk undir.
Leikurinn var annars heldur slak
Frh á bls. 7.
Knottspyrna í
eftir póskn
Knattspyrnu„vertíðin“ mun
hefjast að þessu sinni sunnudag
, inn 21. apríl n. k. með leik milli |
KR og Víkings og hefst leik- (
1 urinn kl. 14. Kvöldið eftir keppa
svo Fram og Þróttur.
Heyrzt hefur að Víkingar séu ‘
i að hugsa um að draga sig út
I úr keppni í meistaraflokki, en
lið félagsins í þessum flokki hef
ur verið mjög lélegt undanfarin
I ár og verið heldur til hnjóðs en
hitt. Hefur heyrzt I því tilefni I
að hætti Víkingur við þátttöku,
1 verði Reykjavíkurmótið leikið
i tvöfalt, þannig að félögin mæt-
ist I tveim leikjum I stað eins
áður.
Guöjón Jónsson, Fram.
Staðan
Staðan I 1. dcild eftir Ieikina
í gær er þessi:
★ Víkingur—Þróttur 30:26.
★ Fram—KR 31:26.
Fram 9 8 0 1 292:209 16
Víkingur 9 6 1 2 206:195 13
FH 8 6 0 2 226:179 12
KR 10 2 0 8 250:279 4
ÍR 9 3 2 4 243:248 8
Þróttur 9 1 0 8 195:275 2
Markahæstir f 1. deild:
Ingólfur Óskarsson, Fram 112
Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, 98
Karl Jóhannsson, KR, 74
Reynir Jóhannsson, KR, 73
Axel Axelsson, Þrótti, 59
Hermann Samúelsson, ÍR, 43
Guðjón Jónsson, Fram, 43
Rósmundur Jónsson, Víking, 38
Birgir Björnsson, FH, 36
Ágúst Oddgeirsson, Fram, 36
Haukur Þorvaldsson, Þrótti, 34
Öm Hallsteinsson, FH, 34.
Skíðalandsmótið
JIMMY MELIA.
Fyrsti landsleikurinn fyrir
England.
Skíðasamband íslands hefur á-
kveðið að Skíðalandsmót Islands
fari fram á Siglufirði nú um pásk-
ana, og hefst það þriðjudaginn 9.
apríl og Iýkur sunnudaginn 14.
apríl. Mótsstjórnina skipa: Helgi
Sveinsson, mótsstjóri, Guðmundur
Árnason, Baldur Ólafsson, Aðal-
heiður Rögnvaldsdóttir, Bragi
Magnússon og Jón Þorsteinsson.
Keppnistilhögun verður þannig
að keppnin hefst þriðjudaginn 9.
apríl með 15 og 10 km. skfða-
göngu. Miðvikitdaginn 10. apríl fer
fram stökk í öllum flokkum.
Fimmtudaginn 11. aprfl verður 4x
10 km. boðganga og flokkasvig.
Laugardaginn 13. apríl fer fram
30 km. ganga og stórsvig karla og
kvenna. Sunnudaginn 14. aprfl
verður svig karla og kvenna í öll-
um flokkum.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borizt fyrir þriðjudaginn 2.
apríl, þar sem útdráttur um rás-
röð keppenda fer frám miðviku-
daginn 30. apríl kl. 20. Þau íþrótta-
sambönd sem þátt taka f mótinu,
þurfa að hafa fulltrúa við útdrátt
um rásröð keppenda.
Frekar lítill snjór er nú á Siglu-
firði og mundu skíðamenn gjarnan
þiggja meiri snjó. Möguleikar munu
vera á að halda skíðamótið í
Skarðdal.
Tími til undirbúnings er naumur
þar sem nýlega var ákveðið að
halda skíðamótið hér (á Siglu-
firði), áður var ákveðið að lands-
mótið yrði á Norðfirði. Siglfirðing-
ar geta þó haft mikið gagn af góð-
um undirbúningi skíðamanna á
Neskaupstað.
Búizt er við mikilli þátttöku,
því að fjölmenni hefur ávallt ver-
ið á skíðalandsmótum á Siglufirði.
Þing Skíðasambands íslands fer
fram á Siglufirði um páskana f
sambandi við skíðamótið.
Ragnar.