Vísir - 01.04.1963, Blaðsíða 9
VÍSIR . Mánudagur 1. apríl 1963,
9
Eftir
Gretar H.
jr-
Oskars-
son
-K
y^rið 1946 hófu þjú norræn
flugfélög sameiginlegt áætl-
unarflug til Noröur- og Suður-
Ameríku undir nafninu Skand-
inavian Airlines System — SAS.
Þessi þrjú flugfélög voru DDL
— Det Danske Luftfartselskab
A/S, DNL — Det Norske
Luftfartselskab A/S og SILA
— Svensk Interkontinental
Lufttransport A/B. SILA sam-
einaðist svo síðar öðru sænsku
flugfélagi ABA — AB AERO-
TRANSPORT og hét eftir það
fulltrúi Svlþjóðar innan SAS
ABA. Gekk samvinna flugfé-
iaganna illa i byrjun og árin
1947—48 var mikill halll á
rekstrinum. Jókst samt sam-
starfið ár frá ári og þann 8.
febrúar 1951 voru undirritaðir
samningar milli Danmerkur,
Noregs og Svíþjóðar um algera
sameiningu hinna þriggja þjóð-
Iegu flugfélaga í eitt stórt
skandinavískt flugfélag, sem
væri verðugur fulltrúi Norður-
landanna á sviði flugmálanna.
SAS var þar með stofnað og var
eignarhlutum þess skipt þannig,
að ABA átti 3/7 hluta og DDL
og DNL 2/7 hluta hvort um sig.
Ríkið átti svo helming í hverju
þessara flugfélaga og þar með
helming f SAS.
Við sameininguna átti SAS
12 DC-6, 9 DC-4, 26 DC-3, 6
Skandia, 2 Ju-52 og 2 Short
Sandringham flugbáta, sem not-
aðir voru í norska strandflugið.
DC-6 voru notaðar í langflugið
og tók nú flugið til New York
frá Kaupmannahöfn 21 klst. á
móti 26 klst., er fyrstu flug-
ferðirnar voru hafnar 1946, þá
með DC-4.
p'n nú hófust uppgangstímar
fyrir SAS. Allt var gert fyr-
ir þennan frumburð norrænnar
flugsamvinnu og gat SAS sér
brátt gott orð um víða veröid.
Jafnvel negrarnir í svörtustu
Afríku gátu vitað heilmikið um
SAS, án þess að vita neitt ann-
að um Norðurlönd. Hefur SAS
alla tíð verið mikil landkynning
fyrir Skandinavíu.
Árið 1953 keypti SAS DC-
6B og styttist nú flugtíminn enn
og 1956 voru keyptar 14 DC-
7C flugvélar fyrir langleiðirnar1
og var þá flugtíminn til New
York kominn niður I 14 tíma.
1954 hóf SAS pólflug til Los
Angeles og gafst það vel. 1957
var svo hafið pólflug til Japan
um Anchorage f Alaska. Flaug
nú SAS um alla Evrópu, til
Norður- og Suður-Ameríku,
Austurlanda og Afríku. Sífellt
hærra og lengra flugu „víking-
arnir" (SAS flugvélarnar bera
víkinganöfn) og báru hróður
átthaganna um víða veröld. Var
þvf kannski auðveldara að
gleyma smá mistökum og sjá í
gegnum fingur sér með hluti,
sem betur 'hefðu mátt fara.
Tjann 15. maf 1959 hófst þotu-
öldin fyrir SAS. Þá hóf sig
á loft frá Arlanda f Stokk-
hólmi fyrsta SAS þotan af gerð-
inni Caravelie á leið til Kaup-
Mynd úr auglýsingabæklingi frá SAS.
þess stuðnings, sem ríki getur
veitt einu fyrirtæki, en samt er
fjárhagsleg útkoma þess með
hörmungum og skattgreiðend-
urnir verða að hlaupa undir
baggann. Á sama tíma blómstra
önnur flugfélög eins og Braat-
hens SAFE, Loftleiðir og Pan
American, sem eigi hafa skatt-
greiðendurna til þess að borga
hallann, heldur borga sjálf
mikla skatta til ríkisins. Hörð-
ustu gagnrýnina fékk SAS f Nor
egi. Var mönnum enn í fersku
minni framkoma SAS við Braat-
hens SAFE, þegar Braathen var
sviptur öllum sfnum utanlands-
flugleiðum og SAS fékk þær f
staðinn. Enn í dag fær hið al-
norska Braathens SAFE eigi að
fljúga beztu flugleiðir Noregs,
norðan Þrándheims, fyrir SAS,
sem hefur einkaleyfi á þeim flug
leiðum. Braathens SAFE rekur
samt innanlandsflug í Suður-
Noregi með glæsibrag og góð-
um hagnaði í harðri samkeppni
við SAS. Hefur Norðmönnum
líka oftast fundizt þeir vera sett-
ir hjá innan SAS og hafa feng-
ið lélegar flugsamgöngur við um
heiminn. Eru oft háværar radd-
ir innan Noregs um eigið utan-
landsflugfélag og eru Norðmenn
fljótir að minna á fslenzku flug-
félögin í því sambandi, sem
bæ'ði saman og hvort um sig
hafa sett algert heimsmet f flug-
samgöngum „pá den flygpigga
ön“, þ. e. íslandi. Meina Norð-
menn meira en maður kannski
heldur, þegar þeir segja, að SAS
sé skammstöfun á „Svenskt Allt
Samman".
17 n einhverjar orsakir hlutu
að iiggja fyrir hinu mikla
tapi SAS árin 1960—61. Ber
þess þá fyrst að geta, að SAS
keypti DC-8 þotur, en eigi Bo-
eing 706, sem t. d. Pan Ameri-
can og fjölmörg önnur flugfélög
Sagan afnorrænu flugsam-
mannahafnar og áfram suður á
bóginn, allt til Kairo. Nýtt
tfmabil var hafið fyrir SAS og
flugfarþega þess. Flugtíminn
styttist niður í 40 mínútur, ef
svo má segja. Nú tók það t. d.
ekki nema rúma 3 tfma að
fljúga frá Kaupmannahöfn til
Vínarborgar á móti tæpum 5
tímum áður. Caravelle var nýr
sigur tækninnar og stoltur full-
trúi evrópskar flugvélasmíði.
Caravelle er smíðuð af Sud
Aviation f Frakklandi og tekur
80 farþega, skipt f 1. farrými
og ferðamannafarrými. Hún er
samansett úr 400.000 ólíkum
hlutum og vegur 46 tonn. Tveir
hreyflar aftast á skrokknum
knýja hana áfram með 850 km.
hraða á klst. í 12 km. hæð.
Farþegarnir halla sér aftur i
dúnmjúkum sætum og hlusta á
tónlist úr litlum hátölurum við
sæti sfn og heyra ekki til
hreyflanna, né heldur verða þeir
varir titrings, sem svo mjög
getur verið hvimleiður farþeg-
um í flugvélum knúnum sýl-
inderhreyflum. — Caravelle
náði strax gífurlegum vinsæld-
um flugfarþega og 6 mánuðum
eftir að SAS tók þá fyrstu b
notkun höfðu 70.000 farþegar .
flogið með Caravelle. SAS
pantaði alls 17, en lánar Swiss-
air fjórar, sem er liður í heilla-
ríku samstarfi þessara flugfé-
laga. Notar SAS Caravelle á
Evrópuleiðum og til nálægari
Austurlanda og N.-Afríku. 1
marz 1961 flaug 500 þúsundasti
farþeginn með Caravelle og
flaug SAS þá til 32ja borga með
þessum frábæru flugvélum.
Hefur Caravelle reynzt sér-
staklega vei og hagkvæm í
rekstri. Var það þvf kaldhæðni
örlaganna, að fyrsta og hingað
til eina flugslys SAS, sem kost-
að hefur mannslff, skyldi orsak-
ast af Caravelle. Þann 19. jan-
úar 1960 fórst „Orm Viking“ f
nágrenni Ankara f Tyrklandi
og með flugvélinni 41 maður.
Fyrir langleiðir sfnar ákvað
SAS að kaupa 7 Douglas-
Commercial-Eight. DC-8 þotur
og 4 Convair Coronado. Síðar
hætti SAS við að kaupa eigin
Coronado, en hefur tvær að láni
frá Swissair. DC-8 þoturnar
skyldu notast á leiðunum yfir
N.-Atlantshafið, í pólflugið og
til fjarlægari Austurlanda. Cor-
onado skyldi notuð á Afríku-
og S.-Ameríku-leiðum. DC-8
tekur 130 farþega og flýgur
með 950 km. hraða á klst.
Coronado er aftur á móti minni,
tekur aðeins 99 farþega, en
fiýgur með 1030 km. hraða á
klst.
■jVTú mátti segja, að stórveldis-
draumar SAS hafi rætzt.
Flugvélaflotinn hafði aldrei ver-
ið stærri, aldrei fleiri farþegar,
aldrei flogið jafn langt og til
jafn margra staða. SAS gat
jafnvel auglýst sig „pure jet
airline world wide“, þar eð
hægt var að fljúga hringinn í
kringum hnöttinn með SÁS og
allar utanlandsleiðir flognar
með þotum.
En síðari hluta árs 1960 fór
að draga fyrir sðlu SAS og ár-
ið 1961 var skuggalegasta árið
í sögu þess. Þá brakaði f stoð-
unum, og mátti ekki mikið til að
allt hryndi í rúst. Orsakirnar
voru fjármálin. SAS tapaði 84
milljónum sænskra króna 1960
og 89.6 milljónum 1961. Almenn
ingsálitið og blöðin kröfðust
fulls uppgjörs í málum félags-
ins. Hvernig var þetta með SAS
eiginlega? Naut ckki SAS alls
keyptu. Var byrjað að taka Bo-
eing 707 í notkun þegar 1958,
en SAS fékk eigi sínar fyrstu
DC-8 þotur fyrr en 1960. Varð
þvf SAS tveimur árum of seint
með að selja eldri flugvélar
sínar og markaðurinn fyrir DC-
6B og DC-7C yfirfullur, þegar
SAS vildi selja. Tókst SAS samt
að selja DC-6B flugvélarnar á
góðu verði, einkum vegna hins
frábæra viðhalds á flugvélum
sínum, sem er viðbrugðið í flug-
heiminum. Þar á meðal keypti
Flugfélag íslands eina DC-6B.
En SAS situr enn uppi með
10 „skrúfuflugvélar" af gerðinni
DC-7C og hefur enga möguleika
á að selja þær. Kostuðu þær 12
milljónir sænskra króna stykkið
1956 og eru hvergi nærri full-
notaðar. Einungis afskriftir þess
ara flugvéla nema milljónum ár-
lega. Viðhaldskostnaður og vara
hlutahald vegna hinna fjölmörgu
flugvélategunda var einnig mjög
kostnaðarsamt.
En fleira varð til þess að
auka tap SAS. Um 50 milljðnir
töpuðust á viðskiptum við Guest
Framhald á bls. 7.
I
jl i
» H ;I
nuii
11