Vísir


Vísir - 04.04.1963, Qupperneq 8

Vísir - 04.04.1963, Qupperneq 8
0~ V í S IR . Fimmtudagur 4. apríl 1963. s| '~.l I),' ,'IIHUI—IIBMIWl- m ' Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og sfgreiðsla Ingó'.fsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði. f lausasölu 4 kr. eint. - Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Aðildarbeiðni S./.S. Efnahagsbandalagsmálið kemur ekki aftur á dag- skrá fyrr en 1966, sagði Einar Olgeirsson á þingi fyrir nokkrum dögum. ■ Þótt Einar" sé yfirleitt ekki góð heimild í þjóðmál- um þá hafði hann þó í aðalatriðum rétt fyrir sér, þeg- ar hann mælti þetta. Kjarni málsins er sá, að Efna- hagsbandalagsmálið er úr sögunni í bili og verður ekki aftur á dagskrá fyrr en í fyrsta lagi eftir nokkur ár. Það leiðir af alkunnum alþjóðaatburðum. En fram- 'sóknarflokkurinn lætur s'íkár staðreyndir sig litlu 1 skipta og heldur því fram, að í sumar verði kosið um EBE málið. Það er auðvitað alrangt. Hitt er rétt, að síðar meir þarf Alþingi væntanlega að taka afstöðu til þessa bandalags, ef þróun mála verður slík, að Eng- land og Norðurlöndin telja sér fært að ganga þar til þátttöku. En það vita allir, sem með málinu hafa fylgzt, að á því verður löng bið. Þegar að því kemur mun nú- verandi stjórnarflokkum fullkomlega treystandi til þess að taka ábyrga afstöðu til málsins, ekki síður en þeir hafa gert hingað til. í þessu máli hafa þeir hvergi rasað um ráð fram, þrátt fyrir fimbulfamb framsókn- ar um hið gagnstæða. Þeir hafa kynnt sér allar hliðar Efnahagsbandalagsmá'sins og dregið að taka ákvörð- un um málið fyrr en frekari upplýsingar lægju fyrir. Og í þessum könnunum voru framsóknarmenn ríkis- stjórninni fullkomlega sammála. Jafnvél Eysteinn og Helgi Bergs töldu aukaaðild mjög koma til greina áð- ur en ríkisstjórnin hafði látið nokkuð uppskátt um það mál. Þess vegna mun kosningabomban springa í hönd- unum á Eysteini. Og hann ætti að minnast þess, að jafnvel S.Í.S. mælti með því í álitsgerð í fyrra, að send væri aðildarumsókn að EBE. Slíka beiðni sendi ríkis- ^ stjómin hins vegar ekki. Eysteinn ætti því að ræða ; við sína eigin menn í S.Í.S. um málið áður en hann veður með frekara fleipur inn í þingsalina. Græðum landið Nú nálgast tími skógræktarmanna. Innan skamms verður aftur hafizt handa við að klæða land- ið og þar tekið til sem hætt var í haust. Landið hefir mjög blásið upp á undanförnum öldum, en nú er mark- visst unnið að því að græða sárin. Það starf er mikið landnámsstarf og sem betur fer verður æ fleirum Ijóst mikilvægi landgræðslunnar og skógræktarinnar. En þar þurfa þó miklu fleiri að leggja hönd á plóginn Starf að skógrækt í leyfum og frístundum miðar ekki aðeins að því að gera landið fegurra og betra, heldur er það einnig tilefni til hollrar útiveru og heilbrigðs ‘íkamlegs starfs. Gerum því hóp skógræktarmannanna enn stærri á sumri komanda. Séra Kraft og Martens í anddyri Hótel Borgar. Æskufólk á að ferðast um og kynna land sitt Síðustu viku dvöldust hér tveir þýzkir æskulýðsleiðtogar frá Schleswig Holstein. Það eru þeir séra Kraft og Martens. Dvöl þeirra sér var í nokkru sambandi við hina þýzku sýningu sem haldin var hér á vegum æskulýðsráðs, og einnig í sambandi við gagn- kvæmar heimsóknir, sem æskulýðs félög í Þýzkalandi og á íslandi gangast fyrir. Fréttamaður Vísis hitti þá að máli, séra Kraft og Martens, og spurði þá nokkurra spurninga um æskulýðsmál erlendis, og um álit þeirra á starfseminni hér á landi. Það hafa alis staðar orðið mikl- ar breytingar á. sagði séra Kraft, og þær breytingar hafa áreiðanlega | verið til hins betra. Stjórnir og yfirvöld öll gefa nú hvers konar æskulýðsstarfsemi miklu meiri tækifæri og veita henni meiri at- hygli en áður. Það er okkur mikil ánægia að koma hingað, og við vonum að heimsóknin megi enn stuðla að velvild og skilningi milli hjóða okkar. Hver finnst vður munurinn vera í aðalatriðum á starfsháttum æsku 1 lýðsráðsins hér og í Þýzkaiandi? i Það er tæplega réttlátt að gera : ■ amanburð á þessum tveimur | iöndum. Þýzkaland er miklu fjöl- mennara. og hefur einnig mikið meira fé til afnota í bessu skyni heldur en ísland. Og með meiru fé er eðlilega hægt að gera miklu meira fyrir unglingana. Einnig eru fieiri tegundir af klúbbum, þar sem áhugamál eru miklu fjölbreytt ari. En æskulýðsstarfsemi hérna á íslandi á öruggiega mikla framtíð í vændum. Og sýnist yður að við hérna gerum okkur þetta ljóst, t.d. í sambandi við fjárhagshliðina? Áreiðanlega. Að vísu, eins og séra Kraft minntist á áðan, þá á íslenzk æskulýðsstarfsemi meira framundan en að baki. En þróunin er mjög ör á öllum sviðum. Ég kom hingað fyrir um það bil tveimur árum síðan, þá einnig með séra Kraft. Og breytingarnar og Stutf rahb við tvo þýzka æskulýðs- leiðtoga framfarirnar á þeim sviðum, sem ég hef haft einhver afskipti af, og svo því sem maður bara sér, eru undraverðar. Hafið þið heimsótt einhverja af klúbbum æskulýðsráðs? Já, við skoðuðum um daginn nokkra þeirra, flugmodelklúbb, frí- merkjaklúbb o.fl. Einnig komum við á sjóvinnunámskeið, og vorum sérstaklega hrifnir af því. Við vonum að einhvem tíma eigum við eftir að fá einhvern þessara ungu manna í heimsókn til Þýzkalands og ekki aðeins leið- togana, heldur einnig hópa af æskufólki. Þýzkir unglingar kæmu til íslands, og íslenzkir unglingar færu til Þýzkalands. Það er enn ein leið til þess að kynnast betur. Haldið þér að það líði á löngu unz slík skipti fara að vera al- geng? Það má alltaf búast við því að það verði nokkur tími. En ekki er gott að segja nákvæmlega um það. Það er eiginlega hið stóra tak- mark, að þetta gerist. Þegar svo langt er komið, að æskufólk ferð- ast milli landa, kynnir sína eigin þjóð, og kynnist um leið öðrum, verður gaman að starfa að æsku- lýðsmálum. Þessar ferðir geta leitt margt gott af sér. -K ' Að lokum sagði séra Kraft: . Eins og ég minntist á áðan, þá á starfsemi hins íslenzka æsku- lýðsraðs áreiðanlega mikla fram- tíð fyrir sér. Ég vona að í fram- tíðinni megi velvild, skilningur og samstarf verða sem mest milli þjóða okkar. Þeir séra Kraft og Martens héldu til Þýzkalands s.l. mánudag. Nýtt ættfræði rit -K Við snúum okkur nú að Mar- tens. ) Hvað er það að áliti yðar, sem er nauðsynlegast til þess að æsku- lýðsstarfsemi gangi vel, oe sé ár- angursrík? Þetta er nokkuð stór spurning, en svarið er í raun og veru ósköp einfalt. Það þarf mikia peninga, gott húsnæði, ýmis konar efni, góða leiðtoga, og svo auðvitað áhuga hjá unglingunum. En hann er oftast auðvelt að vekja, ef hitt er fyrir hendi. Nýtt ættfræðirit var að koma á markaðinn þessa dagana. Fjailar það um Vigfús Árnason lögmann og afkomendur hans. Jóhann Eiríks son ættfræðingur hefur safnað og skráð, en prentsmiðjan Leiftur h.f. gaf út. Ættfaðirinn, Vigfús Árnason var fæddur að Sölvholti í Flóa árið 1705 og dó að Stóru Vogum á Vatnleysuströnd 1763. Faðir Vig- fúsar var Árni bóndi. og síðar yfirbryti í Skálhollti, Ketilsson prests að Ásum í Skaftártungu. Frá Árna er kominn mikill og stór ættbálkur og er hér í framan- greindri bók gerð grein fyrir einum lið þessa ættbálks, þ.e. þeirri kvísl sem komið hefur frá elzta syni hans, Vigfúsi. Talið er að Vigfús hafi alizt upp hjá afa sínum, Oddi á Fitjum, en lögréttumaður varð hann í Þverár- þingi 1741 og síðar í Kjalarnes- þingi 1757. Vigfús var tvíkvæmtur. Átti fyrst Ingveldi Brynjólfsdóttur bónda og lögréttumanns að Ölfus- vatni í Grafningi og síðar átti hann Helgu Jónsdóttur lögréttumanns að Esjubergi. Höfundur bókarinnar, Jóhann Eiríksson er einn úr hópi kunnustu ættfræðinga landsins og hefur hann þegar gefið út nokkur ættfræðirit en önnur hefur hann í undirbún- Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.