Vísir - 17.04.1963, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 17. apríl 1963.
Askenasi og Þórunn Jóhannsdóttir komu í heimsókn til Islands í
desember s. 1. eftir hijómleikaför i Bandaríkjunum. Þessi mynd
var þá tekin á heimili ömmu Þórunnar.
Þórunn æ tlar að sækja
um ísl. ríkisborgararétt
Það hefur vakið f eyki-
lega athygli í Englandi
og raunar í öllum tónlist
arheiminum, að píanó-
leikarinn Askenasi og
Þórunn Jóhannsdóttir
hafa ákveðið að setjast
að í Englandi.
Þau hafa fengið að
gera þetta í friði við rúss
nesk yfirvöld, en þó þau
séu þannig ekki pólitísk-
ir flóttamenn, er ljóst af
öllu, að þau hafa eins og
svo margir aðrir rúss-
neskir ríkisborgarar kos
ið hið vestræna frelsi.
Endanlega ákvörðun um þetta
tóku þau, er þau komu bæði
til Englands og fengu að hafa
16 mánaða son sinn Vladimir
Stefán með sér. Það er Þór-
unn sem hefur sótt um og feng
ið landvistarleyfi fyrir sig og
barn sitt, og átti hún auðvelt
með að fá það, þar sem hún
hafði dvalizt svo lengi í Eng-
landi. Síðan fær Askenasi land-
vistarleyfið sjálfkrafa með
henni. Þórunn ætlar að sækja
um að fá aftur íslenzkan ríkis-
borgararétt.
Vísir átti í morgun símtal við
Jóhann Tryggvason í London,
föður Þórunnar. Hann sagði að
fregn þessi hefði vakið feyki-
lega athygli í London og hefði
enginn friður verið í gærkveldi
að heimili þeirra f Norður-
London, þangað hefðu komið yf
ir 20 blaðamenn og ljósmynd-
Framh. á bls. 3.
MIKILL AREKSTRADA GUR
1 gærmorgun myndaðist mikil
háika á götum Reykjavíkur, sem
orsakaði fjölmarga bifreiðáárekstra
þannig að þeir hafa ekki í annan
tíma orðið fleiri á vetrinum.
Talið er að árekstrarnir hafi orð
ið um 20 talsins, en fæstir þó þann
ig að þeir hafi valdið miklu tjóni
og hvergi slysum. í einu tilfellanna
lenti bifreið á ljósastaur á mótum
Garðastrætis og Öldugötu. Ein-
hverjar skemmdir urðu á bílnum og
hjálmur ljósastaursins brotnaði.
Ökumaðurinn tilkynnti sjálfur ó-
happið til lögreglunnar.
Fram til dagsins í gær hafa orðið
MACMILLAN í
um 640 bifreiðaárekstrar frá ára-
mótum í Reykjavík. Það er um 50
færri árekstrar heldur en á sama
tíma í fyrra. Það undarlega var,
að einn af mestu árekstradögum í
fyrra var 17. apríl, en í ár 16.
apríl.
Mikil ölvun var í Reykjavík í
gærkveldi og fangageymslur lög-
reglunnar fullar í nótt.
1 gær vildi það óhapp til að
roskinn maður datt í Lækjargötu
og meiddist eitthvað í andliti, hlaut
m. a. skurð á augabrún.
1
i' - :: V
i i;
ilÉÍl
IWH
' V •
NÝJUM
Brezka stjómin er í mikium
vanda stödd, vegna þess, að upp-
lýsingar, sem halda átti vandlega
leyndum, eru nú á allra vörum,
en þær eru úr leyniáætlun hennar
um borgaralegar vamir, ef til
kjamorkustyrjaldar kæmi, en þau
mái heyra undir innanríkisráðherr-
VANDA
ann — og öryggismálin alveg sér-
staklega undir forsætisráðherrann.
Þegar Harold Macmillan forsæt-
isráðherra Bretlands var kominn til
Lundúna í gær að aflokinni páska-
dvöl með fjölskyldu sinni á sveit-
arsetri sínu I Essex, lét Henry
Framhald á bls. 5
Vígsla Súðavíkur-
kirkju á páskadag
'*>
1 framhaldi af frásögn Vísis
í gær af hinni löngu og ströngu
ferð, sem biskupinn fór til að
vígja Súðavíkurkirkju á páska-
dag, birtist hér mynd af kirkj-
unni og safnaðarfólki, sem er
að flykkjast til vígslunnar í
páskasnjónum. Þetta er fyrsta
kirkjan, sem reist hefir verið í
Súðavík og eru viðir í henni úr
gömlu kirkjunni á Hesteyri,
sem tekin var ofan fyrir nokkru
eftir að byggð lagðist þar nið-
ur. Kirkjan rúmar um 100
manns í sæti en í Súðavík eru
um 150 íbúar.
Myndin sýnir ljóslega hina
iniklu fannkomu, sem var fyrir
vestan í dymbilvikunni. Þegar
biskupinn lagði af stað úr
Reykjavík var ætlunin að vígja
kirkjuna á skírdag, en vegna
veðrahamsins varð því ekki við
komið þar eð biskup- var teppt
ur á ísafirði og var þá vígslunni
frestað til Iaugardags.' En sök-
um mikillar fannkyngi á vegin-
um milli ísafjarðar og Súðavík-
ur varð aftur að fresta vígsl-
unni þar til á páskadag, og þá
rann upp hin langþráða og há-
tíðlega stund í þessu litla kaup
túni. Á annan í páskum var
fermt £ nýju kirkjunni.