Vísir - 22.04.1963, Page 2
V í S I R . Mánudagur 22. apríl 1963.
jr %______, _____,
q~)J r~J 5T&
T“ T
v. /////^mzv///////ám/í//^
Markvörður mótmælir:
LiBsmenn ÍR voru
kallaBir blesar
Reykjavlk, 16. apríl ’63.
Ég vil leyfa mér að mótmæla
hinum ómerkilegu orðum, er
íþróttafréttaritari Tímans kastar
fram í grein, er hann skrifar um
leik K.R. og Þóttar þann 9. þ. m.
En í greininni kemst hann svo
að orði:
„Og þrátt fyrir lúalegar til-
raunir blesa óviðkomandi Þrótti til
að koma K.R. niður í aðra deild“.
Þessi orð, sem að framan eru rit-
uð hafa Í.R.-ingar tekið sem sneið
til sín þar eð þeir töpuðu seinni
leik sínum við Þrótt í nýafstöðu
íslandsmóti. En séu það lúalegar
aðfarir, ef lið tapar fyrir öðru liði
þá ætti hitt að vera engu minna
lúalegar aðfarir að vinna annáð lið.
Svo svo þá virðast öll lið mótsins
hafa komið ódrengilega fram, sér
í lagi Í.R. og Víkingur fyrir að
vinna F.H. og gera að engu vonir
þeirra um sigur á mótinu.
Annars var ekki ætlunin að
leggja dóm á hvað væri lúalegt og
hvað ekki, heldur hitt, að benda
háttvirtum greinarritara á, að skrif
eins og hann hefur í frammi eru
frekar til að skaða lþóttimar held-
DRENGIAHLAUP
ÁRMANNS
Hið árlega drengjahlaup Ár-,
I manns fer fram 1. sunnudag í'
I sumri þann 28. apríl n. k.
Keppt verður í 3ja og 51
1 manna sveitum. Kepþt verður i
I um 2 silfurblkara, sem Eggert .
| Kristjánsson stórkaupmaður og '
I Jens Guðbjörnsson hafa gefið {
og hafa sveitir Ármanns unnið |
I þá tvisvar í röð.
Þátttakcndur gefi sig fram'
I við Jóhann Jóhannesson,
Blönduhlíð 12, sími 19171 eigi {
' síðar en 25. apríl.
ur en hitt. Því að með því að
skrifa eins og hann skrifar, álítur
almenningur að annað liðið hafi
fyrirfram ákveðið að tapa, og þar
með hafi verið búið að ákveða
hver ynni, og sé svo, þá er ekkert
gaman að horfa á þessa íþrótt
lengur, og þar með fækkar áhorf?
endum.
Annars ætlaði ég að bera í
bætifláka fyrir Í.R. með þeim orð-
um að þeir hafa ætið síðan ég
byrjaði að spila með þeim, spilað
veikt í fyrri hálfleik, misjafnlega
þó, en svo sótt sig í seinni hálf-
leik, svo varð einnig raunin í þetta
sinn, þrátt fyrir að þeir töpuðu
leiknum. En þar sem tapið var
ekki alveg f samræmi við áætlan-
ir greinarhöfundar, þá var sjálf-
sagt að viðhafa ljótan munnsöfn-
uð, og kasta skít að Í.R.-ingum
fyrir. Annars ætla ég ekki að fara
fram á að greinarhöfundur biðji
.afsökunar þvf það hefur hann ef-
laust ekki ætlað sér, heldur hitt
að hafi K.R.-ingum þótt þá ó-
rétti beitta þá hefðu þeir án efa
kært leikinn, en svo langt hefur
greinarhöfundur ekki komizt f
hugsun sinni heldur viljað sjálfur
leika dómara öllum til skaða. Og
vil ég ljúka greininni með þeim
orðum, að betur er ekkert skrifað
um fþróttirnar, heldur en að kasta
skít að þeim þvf almenningsáhug-
inn er ekki það mikill, að búbót
verði að.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Finnur Karlsson.
Keflavík — Akranes 1:5
í fyrsta leik ársins
í knattspyrnunni
Skagamenn unnu fyrsta knatt-
spyrnuleik ársins, en han fór fram
í góðu veðri í Keflavík í gærdag.
Leikurinn er liður f Litlu bikar-
keppninni, sem er háð milli Akra-
ness, Hafnarfjarðar og Keflavíkur.
Úrslit leiksins voru ekki réttlát
að dómi áhorfenda, sem hlutlausir
gátu talizt, en Skagamenn græddu
mjög á óþéttri vörn Keflavíkur, en
leikur Keflavíkur var í engu verri
en Skagamanna.
Fyrstu tvö mörkin f leiknum
komu frá Skagamönnum, bæði ó
dýr og hefði markvörður átt aí
koma til sögunnar í bæði skiptin
Var staðan þannig í hálfleik ai
Akranes leiddi 2:0.
Lið Keflavíkur hefur sýnilega
lagt mikla rækt við þjálfun og
verður fróðlegt að fylgjast með
framgangi liðsins í sumar, er það
byrjar aftur í I. deild. Af Akur-
nesingum vakti Ríkharður Jónsson
mikla athygli, en hann er nýkom-
inn heim frá Þýzkalandi sem kunn-
ugt er af fréttum og vakti athygli
hve mikið honum hefur farið fram
frá í fyrra og er hann nú gjör-
samlega óhaltur. Nýliði í Akranes-
liðin, 3. flokks pilturinn Eileifur
vakti og verðskuldaða athygli í
i stöðu hægri útherja.
Frá leik Akurnesinga og Keflvikinga í gær. Ingvar Elísson setur annað
mark Akurnesinga.
Knötturinn átti som kunnugt er
að „rúlla“ f Reykjavík f gær, en
ekki varð neitt af því, þar eð ekki
var búið að koma vellinum 1 stand,
en veður var hið bezta og sem
sumar væri, og völlurinn góður að
sögn. Reykjavíkurmótið hefst
væntanlega á miðvikudaginn kem-
ur með leik KR og Vals.
Margir æfingaleikir hafa farið
fram að undanförnu, en í þeim
hefur Þróttur m. a. unnið KR og
Valur íslandsmeistara Fram, en
annars er varasamt að taka slíka
leiki of bókstaflega, því sjaldnast
er mikið tekið á í þeirri baráttu.
Meistararnir
töpuðu
Á föstudagskvöldið fór fram 1
að Hálogalandi * íþróttarevía í
fréttamanna og tókst í alla t
staði ágætlega. Fullt hús á- /
horfenda skemmti sér hið bezta, 1
en hundruð manna varð frá að t
hverfa. Hefur sjaldan verið í
annað eins mannhaf við Há- /
logaland og að þessu sinni. S
Stjómir ÍR og KR glenntu i
sig í hinni nýju íþrótt, sem í
þama var kynnt og lauk svo að /
jafntefli varð, enda dæmdi leik- /
stjórinn ágæti, Magnús Péturs- S
son að KR skyldi fá aukastökk, í
sem jafnaði metin. í
Körfuknattleiksúrval léku og í
lauk svo að A-landslið vann ;
U-landslið með 15 stiga mun i
61:46. í
Rúsínan f öllu saman var i
svo leikur fþróttafregnritara og /
íslandsmeistaranna í handknatt- 1
leik, sem höfðu fengið áskorun i
frá hinum fyrmefndu. Er ekki t
að orðlengja að fréttamenn /
unnu skjótan sigur og var dóm- 1
arinn svo velviljaður að flauta \
leikinn af meðan þeir höfðu yf- t
ir og stóðu enn allir. Var /
frammistaða blaðamanna góð, S
einkum Sigurðar Sigurðssonar í
sem kom heim frá skíðalands- í
mótinu hálftíma fyrir Ieik, og /
þjálfara liðsins Einars Bjöms- J
sonar (eb), sem svalaði liðinu »
á köldu vatni úr skolpfötu t
sinni. /
Myndimar sem hér fylgja 1
sýna Ásbjörn Sigurjónsson, sem \
keppti með blaðaliðinu ,en hann i
var tilkvaddur sélrega til að /
bjarga málunum en hin myndin i
er af einum stjórnarmanna ÍR i \j
glennu, en hann er Vignir Guð- k
mundsson, blaðam. Morgun- ?
blaðsins (vig.) og mun hafa J
verið „fúx“ liðsins í glennunni, \
má sjá að áreynslan hefur verið í
gífurleg. /