Vísir


Vísir - 22.04.1963, Qupperneq 4

Vísir - 22.04.1963, Qupperneq 4
4 VÍSIR . Mánudagur 22. apríl 1963. ALLTAF -FiÖLGAR VOLKSWAGEM PA3NTTIÐ VORIÐ TIMANLEGA ER I NAMD Volkswagen er einmitt framleiddur fyrir yður >rBREYTINGAR‘' til þess eins „AÐ BREYTA TIL“ hefir aldrei veriff stefoa VOLKSWAGEN og Þessvegna getur Volkswagen élzt aff árum en þó haldist í báu endursöluverði. — Engu aff síffur er Volkswagen í fremstu röff tsekni- lega, því síðan 1948 hafa ekki faerri en 900 gagnlegar endurbætur fariff fram á honum og nú síffast nýtt hitunarkerfh ★ Gjöriff svo vel aff líta inn og okkur er ánægja aff. sýna yffur Volkswagen og afgrciða hann íyrir voriff. VOLKSWACEN EK ÆTÍÐ tJNGUR HEILDVERZLUNIN HEKLA H F Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275. 247 MÁL TIL MEÐ- FERÐAR ALÞINGIS Þinglausnir fóru fram á laug ardaginn. Allir þingmenn, utan tveir, voru til staðar í Samein- uðu þingi er forseti, Friðjón Skarphéðinsson, setti fund. Las hann fyrst úrslit þingmála, en beindi siðan orðum sínum sér- staklega tii þingmanna, þakk- aði þeim góða samvinnu, og árnaði þeim velfarnaðar í kom andi kosningabaráttu. Þeim, sem ekki eru aftur í framboði, þakkaði hann góð störf í þágu þings og þjóðar. Eysteinn Jónsson (F) ávarp- aði fyrir hönd þingmanna og þakkaði honum góða og örugga stjóm. Tóku þingmenn undir þau orð með því að rísa úr sæt um. Að því búnu gekk Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirs- son, í þingsal og las upp for- setabréf sitt, sem gjörði kunn- ugt að Alþingi, 83. löggjafar- þingi, hefði lokið störfum. Fórust forsetanum síðan orð á þessa leið: Samkvæmt þessu bréfi sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi sem nú hefur lok ið störfum, er slitið. Ég óska þingmönnum velfarnaðar. Ég óska þjóðinni allra heilla í þeim kosningum sem nú fara í hönd og ævarandi blessunar, og ég bið þingmenn að minn- ast fósturjarðarinnar, Islands, með því að rísa úr sætum. Þingheimur stóð upp, og for sætisráðherra, Ólafur Thors, mælti: Heill forseta vorum og fósturjörð, ísland lifi. Var tekið undir orð forsætisráðherra með ferföldu húrrahrópi. Úrslit þingmála. Samkvæmt skýrslu þeirri er forseti las upp, hafa þingfundir í deildum þingsins verið 215 á alls 154 dögum. Framborin stjórnarþingmannafrumv. 146. Af þeim voru 70 afgreidd sem lög, 49 stjórnarfrumvörp, 21 þingmannafrumvörp. Þingsálykt unartillögur hafa verið 90, en samtals hafa 247 mál verið tek- in til meðferðar í þinginu alls í vetur. Er hér um mikinn fjölda þing mála að ræða, og ber hann at- hafnasömu þingi gott vitni. Hér í blaðinu mun á næstu dögum gerð grein fyrir þeim málum helztum sem fyrir þingið' hafa komið og afgreiðslu hlotið. Þriðja óperan eftir Verdi II Trovatore frumsýnd í maí Holienzki fólksbíllinn d a f er aliur ein nýjung. — Hann er framleiddur fyrir þá, sem vilja þægilegan, sparneytinn, fallegan sjálfskiptan, lítinn bil. — I byrjun maí kemur fyrsta sendingin af daf bílnum, en verksmiðjan hefir ekki viljað afgreiða fyrstu sendinguna fyrr vegna þess að hún hefur krafizt þess að faglærðir viðgérðarmenn úr verksmiðju- skóla sínum væru til staðar áður en fyrsta sending- in kæmi, en nú þegar eru tveir að ljúka námi hjá verksmiðjunni og koma heim aðeins á undan fyrstu sendingunni, en þá verður hér fyrir hendi viðgerða- og varahlutaþjónusta daf-bíllinn er með loftkældri vél, engan gírkassa eða gírstönd, aðeins bremsur, benzínpedala og stýri. — daf-bíllinn er falleur, kraftmikill og ódýr. — daf-bíllinn er þegar orðinn eftirsóttur af öllum þeim, sem hafa séð hann eða haft spurnir af honum. Allir dásama Bíllinn sem nú fer sigurför um ullu Evrópu 16 mm FILMA Laufásveg 25 Sír Sjö stúlkur á aldrinum 14—30 ára verða ráðnar. Þær stúlkur, sem ekki hafa komið til viðtals, eru beðnar að hafa tal af okkur kl. 7—10 í kvöld, þriðjudag og mið- vikudag. — Vinsamlegast athugið að stúlkur, sem ekki hafa náð 21 árs aldri verða undantekningarlaust, að hafa skriflegt leyfi foreldra eða forráðamanna, að öðr- um kosti eru umsóknir ekki teknar til greina. Um miðjan næsta mánuð verður væntanlega frumsýnd þriðja óper- an eftir Verdi, f Þjóðieikhúsinu. Það er óperan II Trovatore. Með aðalhlutverk fara, Guðmundur Guðjónsson, Guðmundur Jónsson, ngeborg Kjéllgren, Sigurveig Hjaltested, Jón Sigurbjömsson og Svala Nielsen. Leikstjórinn, er sænskur maður Lars Rönsten. Hann hefur um átta ára skeið starfað við Stokk- hólmsóperuna, og sett upp marg ar óperur þar. Einnig í Kaup- mannahöfn hefur hann sett á svið þrjár óperur. Hljómsveitarstjórinn, Gerhard Scheplern, er Dani ,og er tónlist- arráðunautur danska útvarpsins, og jafnframt starfar hann við Konunglega leikhúsið. Leiktjöld eru gerð af Lárusi Ingólfssyni, í samráði við leikstjór- ann. , Nokkuð langt er slðan byrjað var á tónlistaræfingum og sagði þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur Rós- inkranz, að söngvararn/r kynnu nú söngvana að mestu leyti, en eftir væri að sjálfsögðu að æfa þá til fullnustu. Raf Rafmótorvindingar og raf tæk j aviðgérðir. Viðgerðir á Thor-þvotta- vélum. Raftækjavinnustofan R A F. — Vitastíg 11 Sfmi 23621. SUMARGJAFIR ) Til sumargjafa: Sokkabuxur á börn og fullorðna, góð tegund, silki damaskdúkar. Til sængurgjafa í úryali. Hekiu- garn og mikið af smávöru. Verð við allra hæfi. Verzlun Hólmfriðar Kristjánsd., Kjartansgötu 8. Lars Rönsted. Óperan II Trovatore var frun sýnd í Róm 1853, og hefur veri vinsæl í leikhúsum um allan heir í meira en öld. Eins og áður va að vikið, er þetta þriðja ópera eftir Verdi, sem Þjóðleikhúsið sýr ir. Hinar tvær voru Rigoletto, o La Traviata, II Trovatore, er 1 söngleikur Þjóðleikhússins. 4 Fossar í höfninni Fjórir Fossar eru nú í höfninni, þeirr.a meðal Fjallfoss, sem fer til Finnlands annað kvöld, til þess að sækja timburfarm. Tvö leiguskip koma á miðviku- dagskvöld eða aðfaranótt fimmtu- dags, Anni Nöbel, með stykkja- farm og bifreiðar frá Hull, og Anne Bögelund frá Gautaborg. Bæði skipin lögðu af Stað 20. þ. m. Friðrik hraðskák- r melsfari Islaads Hraðskákmót íslands fór fram í gær. Hraðskáksmeistari Islands varð Friðrik Ólafsson með 19 vinn inga af 20 mögulegum. Annar varð Björn Þorsteinsson með 15y2 vinn- ing, þriðji Guðmundur Ágústsson, einnig með 15V2 og fjórði Ingi R. Jóhannesson með 14 vinninga.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.