Vísir - 26.04.1963, Side 12
Föstudagur 26. apríl 1963.
Veitt heið-
/
ursdoktors-
nafnbét
Á miðvikudaginn veitti dr. Þórð-
ur Eyjólfsson hæstaréttardómari
viðtöku heiðursdoktorsnafnbót frá
Helsingforsháskóla. Var það við
hátfðlega athöfn í háskólanum. Dr.
Þórður Eyjólfsson er annar islend-
ingurinn sem Helsingforsháskóli
veitir heiðursdoktorsnafnbót. Ólafi
prófessor Lárussyni var veitt sú
nafnbót árið 1955.
Færð þyngist
Vegir spillast ört með hverjum
deginum sem Iíður.
Sumir vegir, eins og t. d. Vaðla-
heiðarvegur, eru orðnir ófærir litl-
um bílum, og ekki er fyrirsjáan-
legt annað en Vaðlaheiðin verði ó-
fær öllum bílum þegar líður á dag-
iim.
VETUR KONUNGUR KVEDUR
i
™' t,-
mSiM f'ííss:!i5*s
■
iTÍSMffll -ikíÆif toSæK k
uæZíL ' {Qy. (Mfy '*&+r~4 Sjlífcgr.' ■■ jf||J88i> 11
Geymír SkeiBarársandur gull?
Um tvö eða þrjú undanfarin ár
hefur Bergur Lárusson forstjóri
og bræður hans á Kirkjubæjar-
klaustri haft forgöngu um það að
að leita að merkum skipsfarmi
sem talinn er að sé grafinn ein-
hversstaðar í Skeiðarársandi.
Herma ýmsir annálar frá því að
eftir miðja 17. öld hafi hollenzkt
Indíafar strandað á Skeiðarársandi
og hafi dýrmætur farmur verið í
því. Nýlega fengu Klausturbræður
þá hugmynd að gaman væri að
hefja leit að skipinu í sandinum og
um tvö undanfarin ár hafa verið
f gangi undirbúningsathuganir, en
enn ýtarlegri athuganir og mæling-
ar voru gerðar austur þar fyrir
fáeinum dögum. Voru þær athug-
anir gerðar í samráði við Gunnar
Böðvarsson verkfræðing.
I morgun leitaði Visir til Gunn-
ars Böðvarssonar og innti hann
eftir þvf hvernig þessum rannsókn-
um væri háttað. Hann sagði að
mælingar á svæðinu væri allmikið
verk, tæknilega séð, og það tor-
veldar rannsóknir nokkuð að ekki
verður komið við nógu fullkomn-
um leitartækjum. Slík tæki væru
svo dýr að ekki kæmi til mála að
búa þau til í þessu skyni og enn
síður að kaupa þau erlendis frá.
Þarna mun um að ræða málm-
leitartæki, en þau eru til af mis-
munandi gerðum, eftir þvf til hvers
þau eiga að notast. Mest er til af
tækjum til að leita í grunnum
jarðvegi, m. a. eru þau mikið not-
uð f styrjöldum við leit að jarð-
sprengjum og öðru slíku. Þá eru
líka í notkun tæki til að Ieita að
stórum málmgrýtisleifum úr flug-
vélum, en þar er einkum miðað
við leit á stórum landsvæðum.
Hvorug þessara tækjagerða henta
hér.
Þrátt fyrir þetta sagði Gunnar
að leitarmenn hafi nú á dögunum
fundið við mælingar á sandinum
eitthvað sem bendir til þess að
málmur sé þar grafinn á ákveðnum
Frœgur kjarnorku-
muBur í heimsákn
Þúsundir barna í fylgd með
I foreldrum sfnum fögnuðu sumri
í gær með þátttöku f skátaguðs-
1 þjónustu og í skrúðgöngum og
I hátiðahöldum barnavinafélags-
I ins Sumargjafar, sem eru orðinn
. fastur liður f bæjarlffinu á sum-
ardaginn fyrsta. Hátíðahöld
1 dagsins fóru fram f hefðbundn-
| um stíl. Geysifjölmenn útisam-
I koma var f Lækjargötu og sam-
. komur og skemmtanir fyrir börn
' f hinum ýmsu samkomuhúsum
I bæjarins. Veðrið var ekkl sem
| hagstæðast, sólarlaust og nokk-
. uð hvasst, en vfst er um það að
börnin létu ekki sitt eftir liggja.
stað. Um hvað þarna er að ræða
er þó enn ekki unnt að fullyrða
neitt og fæst ekki úr þvf skorið
nema með borunum eða uppgreftri.
Staður sá sem mældur hefur
verið út, er við mynni Skeiðarár
að austanverðu. Mjög erfitt er að
Framh. á bls. 3.
Hr. Gunnar Randers forstjóri
Kjamorkustofnunar Noregs (Insti
tutet for atomisk energi) kom hing
að í gær og flytur hér fyrirlestur á
vegum félagsins Ísland-Noregur
síðdegis í dag um kjarnorkuna og
vatnsorkuna.
Tíðindamaður frá Vísi átti stutt
viðtal við Randers í morgun, sem
sagði m.a.:
— Ég mun í erindi mínu ræða
um sambandið milli kjarnorku og
Gunnar Randers
vatnsorku eins og gera má ráð
fyrir að það verði á næstu árum,
með sérstöku tilliti til Noregs. —
Jafnframt mun ég ræða vatnsorku
Noregs, en hún er meiri á íbúa en
f næstum nokkru öðru landi og
mun hún verða nýtt að % árið
1975.
Verðlag vatnsorku-
og kjamorkurafmagns.
— Þá teljum við, að svo verði
komið, að verðlag á kjamorkuraf-
magni verði komið svo langt niður
að ekki verði mikill munur á verði
á því og vatnsorkurafmagni.
Við álítum því tíma til kominn
Framhald á bls. 3.
Einar bóndi f Mýnesi í Eiðaþing-
há hefir lagt fram framboðslista
Óháðra kjósenda á Austurlandi.
Einar f Mýnesi var upphaflega
kommúnisti og síðan alþýðubanda
lagsmaður og einhvers konar þjóð-
vamarmaður. Hefir hann nú fjar-
lægzt kommúnista svo mjög að
honum hrýs hugur við kommún-
istadekri Alþýðubandalagsins og
Þjóðvarnar og' má skoða framboð
ið sem gagnframboð móti sam-
bræðslu kommúnista og Þjóðvarn
ar, eða sem eins konar samfylkingu
þeirra vinstri manna, sem ekkert
vilja með kommúnista hafa, undir
hvaða flaggi sem þeir sigla. Talið
er mjög líklegt af kunnugum að
mikill meirihluti þjóðvamarmanna
á Austurlandi kjósi lista Einars, en
ekki Lúðvík Jósefsson, og vitað
er að Framsóknarmenn, sem eru
nú vonsviknir og hneykslaðir yfir
kommúnistaþjónkun Eysteins Jóns
sonar á undangegnu kjörtímabili,
muni mótmæla þeirri þjónkun með
því að kjósa þennan nýja lista
vinstri manna á Austurlandi. Lág
markstala meðmælenda framboðs-
lista við Alþingiskosninga er 50,
og varð lista Óháðra kjósenda á
Austurlandi engin skotaskuld úr
þvf að afla þeirra. Á listanum sjálf
um era 3 bændur og 3 verkamenn.
Bláa bandið ruddi brautina
Ríkið yfirtekur hjúkrunurstöðinu
Samkomulag hefir orðið um
það, milli heilbrigðismálaráðu-
neytisins og Bláa bandsins, að
hjúkrunarstöð þess við Flóka-
götu 29 og 31 verði rekin af á-
fengisvörnum ríkisins frá 1. júní
n. k., en yfiramsjón áfengis-
varna ríkisins hefir sjúkrahúsið
að Kleppi samkvæmt gildandi
lögum um meðferð ölvaðra
manna og drykkjusjúkra. Hins
vegar rekur Bláa bandið áfram
vistheimilið í Víðinesi á Kjalar-
nesi, en þar dveljast að stað-
aldri 15 menn, skemmsti dval-
artími er 6 mánuðir.
Bláa bandið hóf rekstur
hjúkrunarstöðvarinnar við
Flókagötu haustið 1955, þar var
þá eitt hús og rúm fyrir 18
sjúklinga en nú dveljast þarna
45 drykkjusjúkir menn í tveim-
ur húsum. Segja má með sanni
að Bláa bandið hafi verið braut-
ryðjandi á sviði lækningar og
meðferðar drykkjusjúkra og það
sé eðlileg þróun þessara mála,
eins og fleiri heilbrigðis- og
mannúðarmála, að ríkið taki við
af áhugamannasamtökum þegar
starfsemin verðu^ æ umfangs-
meiri. Jónas Guðmundsson hef-
ir verið formaður stjómar Biáa
bandsins og Guðmundur Jó-
hannsson framkvæmdastjóri
þess frá upphafi og hafa þeir
unnið mikið og óeigingjarnt
starf sem alkunnugt er orðið.
Jónas Guðmundsson sagði í
stuttu viðtali við Vísi f morg-
un að ástæðan til þess að ríkið
tæki nú við rekstri hjúkrunar-
stöðvarinnar væri fyrst og
Framh. á bls. 3.