Vísir - 26.04.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 26.04.1963, Blaðsíða 10
22 7 V í S I R . Föst ídagur 23. a?rí! 1963. Framh. af 21. slðu. mikið. Hvorttveggja kemur fram í verulegri aukningu innflutnings. Nú stefnir því bersýnilega í þá átt, að sá afgangur, sem verið hefir á viðskiptajöfnuðinum hverfi og vöxtur gjaldeyrisforð- ans minnki eða hætti um sinn. Þessi þróun kemur berlega fram í þeim tölum, sem birtar eru I þjóðhags- og framkvæmda- áætlun rikisstjórnarinnar. Þær sýna, að á árunum 1960—1961 óx neyzlan hægar en þjóðarfram- leiðsla og þjóðartekjur og fjár- gerði það að verkum, að hallinn festing minnkaði verulega. Þetta á viðskiptajöfnuðinum hvarf. Á árinu 1962 uxu þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur hins vegar um 5—6%, en neyzlan um tæp 8% og fjáríjesting um 14%. Á árinu 1963 gerir áætlunin ráð fyrir mik- illi aukningu fjárfestingar tii við- bótar, eða 19% aukningu, sam- fara þvf, að neyzla aukist svipað og þjóðarframleiðsla. Til þess að þetta geti átt sér stað, er gert ráð fyrir aukinni notkun erlends lánsfjár jafnframt þvl, að gjald- eyrisforðinn hætti að mestu að aukast. Þessi þróun er möguleg vegna þess árangurs, sem náðst hefir á undanförnum árum I þvl að styrkja stöðu landsins út á við. Af þessum sökum er lánstraust þjóðarinnar nú mikið og gjald- eyrisforðinn tiltölulega öflugur. Hættan er hins vegar sú, að aukn ing neyzlu og fjárfestingar verði enn meiri en gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætluninni og meiri en aukning þjóðarframleiðslunnar, og aukin notkun erlends láns- fjár geti staðið undir. Afleiðing- in af þessu myndi verða minnk- un gjaldeyrisforðans, er gæti orð ið mjög hröð, þegar inn á þessa braut væri komið. Þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að slík þróun hlyti bráðar að leiða til þess' að gera þyrfti öflugar ráðstafanir til þess að lcoma á jafnvægi. Ella lendum við aftur I fúafeni hafta og banna með öllu, sem af því leiðir. . Til þess að koma I veg fyrir slíka þróun, hafa ríkisstjórnin og Seðlabankinn haldið I aðalatrið- um fast við þá stefnu I peninga- málum, sem viðreisnin I önd- verðu markaði. Reglurnar um end urkaup afurðavlxla eru enn I að- alatriðum óbreyttar. Vöxtumhef ir ekki verið breytt síðan I árs- byrjun 1961, innlánsbindingu hef- ir heldur ekki verið breytt, að öðru leyti en því, að bindingin hefir verið lækkuð úr 30% 1 25% af innlánsaukningu, jafnframt því sem bankarnir og stærstu spari- sjóðirnir hafa samþykkt að leggja fram 15% af innlánsaukn- ingu vegna fjáröflunar til fram- kvæmda á vegum hins opihbera og til fjárfestingarlánasjóða á ár- inu 1963. Með þessu er ætlunin að hamla gegn því, að of mikil þensla verði I peningamálum. Veltur á miklu að það takist. Það er þessi stefna og þessi úrræði, sem við eigum það að þakka, að gjaldeyrisaðstaðan hef- ir batnað um 1409 millj. króna á rúmum þrem árum og sparifé Iandsmanna aukizt um 1850 millj- ónir króna. Það er þessari stefnu, sem við eigum það að þakka, að þjóðin hefir flutt sig um set, frá neðri hluta hins óæðri bekkjar til virðu- legs sess meðal velvirtra skila- þjóða. Það er gegn þessari stefnu og þessum úrræðum, sem stjórnar- andstæðingar frá öndverðu hafa barizt hatrammlega. Og það er þessi stefna og þessi úrræði, sem andstæðingarnir lofa að hætta að hafa I heiðri, en taka þess I stað upp alveg þveröfuga stefnu og úrræði, fái þeir að ráða eftir kosningar. Það, sem andstæðingarnir lofa að framkvæma, er þetta: 1) Lækkun vaxta. 2) Rýmkun reglna um endur- kaup afurðalánavíxla. 3) Afnám innlánsbindingar. Allt hljómar þetta vel I eyrum. Það veit stjórnarandstaðan líka vel. En hvað leiðir svo af þessari stefnu andstæðinganna, komist hún í framkvæmd? Það hljóta þeir líka að vita, en treysta því, að fjöldi manns átti sig ekki strax á því. En hver er þá sannleikurinn? 1) Lækkun vaxta um 2% rýrir hlut sparifjáreigenda um— 100 milljónir króna á ári, en leiðir auk þess til miklu meiri minnk- unar á sparnaði vegna þess að allir, sem farnir eru að kynnast lögmálum efnahags- og fjármála- lífsins, sjá fljótlega hvert þá er stefnt og óttast því réttilega um verðfall krónunnar. 2) Rýmkun á endurkauparegl- unum eykur að sjálfsögðu út- lánin að sama skapi. 3) Af afnámi bindingarinnar leiðir, að þær 600 milljónir króna, sem um síðustu áramót voru bundnar, fengju nú bankar ög sparisjóðir til frjálsrar ráðstöf- unar, sem fyrr en varir er hætt við að leiði til útlánsaukningar, ekki sízt þar sem vaxtalækkunin og fyrirsjáanlegt jafnvægisleysi I efnahagsmálum mundi stórauka eftirspurn eftir lánsfé. Það er þetta, sem stjórnarand- stæðingar segjast ætla að leiða yfir þjóðina. Minnkandi sparnaður og stór- aukin útlán, sem vegna þess að meir en nóg atvinna er í landinu og framleiðslutækin fulinýtt, gæti ekki leitt til framleiðsluaukning- ar, heldur kæmi fram I auknum innflutningi og þar með versn- andi stöðu út á við. Gjaldeyris- forðinn gæti með öðrum orðum étizt upp á mjög skömmum tíma. Þar með væri grundvöllurinn ■ úr sögunni fyrir heilbrigðu efnahags lífi, framförum og batnandi lífs- kjörum á næstu árum. Haftabú- skapurinn mundi halda innreið sína á nýjan leik. Erlend lán myndu ófáanleg. Árangur undan- farinna ára væri að engu orðinn. Við stæðum fljótlegá I sömu spor um, sem þegar viðreisnin hófst og yrðum að byrja á nýrri við- reisn, ef við þá bærum gæfu til að hefja nýja sókn áður en allt væri komið fram af gjábarmin- um. Þetta er það, sem framundan er, ef andstæðingarnir fá að ráða. Þetta er ekki það, sem þjóðin kýs sér. En þetta er samt það, sem þjóðin kýs sér, ef hún kýs stjórn- arandstæðinga þann 9. júní næst komandi. Þetta er það, sem því á að ráða, þótt ékki væri annað, að þjóðin kýs viðreisnarflokkana þann 9. júní. Óheiðarlegur íhaldsmaður. Mig langar til að skjóta þvt hér inn I, að I morgun las ég ræðu formanns Framsóknar á flokks- þingi þeirra. Ræðan er óheiðarleg að því leyti til, að ræðumaður gerir stjórnarflokkunum upp stefnu, sem þeir aldrei hafa haft og ræðst síðan á þá fyrir þessar tilbúnu sakir.Ræðan er aftur á móti heið- arleg að því leyti til, að Eysteinn Jónsson og Framsóknarflokkurinn koma þar fram eins og þeir eru I raun og veru. Enginn, sem þessa ræðu les, getur gengið þess dul- inn, að hér er íhaldssamur maður og íhaldssamur flokkur á ferðinni. Það örlar ekki I ræðunni á til- raunum til að brjóta til mergjar vandamál okkar tíma, né á stefnu- miðum fyrir framtíðina. Eysteinn Jónsson lítur bersýnilega þannig á, að það séu núverandi stjórnar- flokkar, sem muni móta framtíð- arstefnuna I íslenzkum þjóðmál- um. Þeirra hlutskipti muni verða að setja markmiðin, sem keppt skuli að, og finna leiðirnar til þess að leysa þau margvíslegu vandamál, sem örar breytingar okkar tlma fela I sér. Hlutverk Framsóknarflokksins á að vera annað. Það á að vera að hamla, að gæta þess, að breytingarnar verði ekki of örar, og umfram allt, að þær gangi ekki nærri þeim sérhagsmunum, sem flokk- urinn ber mest fyrir brjósti. Það, sem Eysteinn Jónsson bið ur um, er, að Framsóknarflokkn- um verði I næstu kosningum sköp uð aðstaða til þess að leysa þetta hlutverk af hendi. Stjórnarflokkarnir mega vera á- nægðir með það ábyrgðarmikla hlutskipti, sem Eysteinn Jónsson hefur valið þeim. Það hlutskipti, sem hann hefur valið Framsókn- arflokknum, er einnig í fullu sam ræmi við eðli og uppruna þess fiokks. En er Framsóknarflokkur- inn í raun og veru vel til þess fallinn að leysa jafnvel þetta hlut verk af hendi? Heilbrigð gæ+ni og varúð eru þýðingarmiklir eigin- leikar, og af þcim eiga stjórnar- flokkarnir sjálfir nóg innan sinna eigin vébanda. En sjúkleg tor- tryggni gagnvart öðrum mönnum, flokkum og þjóðum er háskalegur eiginleiki, og það er því miður þessa eiginleika, sem fyrst og fremst hefur gætt í fari Fram- sóknarflokksins á undanförnum árum. í ýmsum nágrannalöndum okk- ar hafa stjórnmálaflokkar skipt með sér verkum, þannig að sumir hafa beitt sér fyrir nýjungum og framförum, en aðrir hafa séð fyr ir nauðsynlegri aðgát. Það hefur orðið hlutskipti Sjálfstæðisflokks ins frá upphafi að gegna báðum þessum hlutverkum, að vera I far arbroddi I framfaramálum þjóð- arinnar, en skapa um leið þá kjöl festu, sem hverju þjóðfélagi er nauðsynleg. Það mun þjóðinni af- farasælast, að flokkurinn sé þess reiðubúinn að gegna báðum þess- um hlutverkum einnig I framtið- inni. Að nokkrum vikum liðnum fella kjósendur landsins sinn dóm. All- ir flokkar landsins verða að standa reikningsskil gerða sinna. Við Sjálfstæðismenn göngum ó- trauðir fyrir dómarann og biðjum þess að vera dæmdir af verkum okkar. Á þessu kjörtímabili hafa við- reisnarflokkarnir bjargað heiðr; Islendinga, forðað þjóðinni frá fjárhagslegu ósjálfstæði, atvinnu- leysi og hvers konar þrengingum. Það er viðreisnin, sem því hefur áorkað, að í augum umheimsins skipar ísland nú að nýju sinn forna sess á bekk með vel virtum skilaþjóðum, í stað þeirrar aumu vesældar, vanmáttar og niðurlæg ingar, sem vinstri stjórnin færði yfir land og þjóð. Sett hefur verið ný löggjöf, sem markar djúp spor á mörgum sviðum þjóðlifsins, skattar lækkaðir, óreiðan I stjórn fjármála ríkisins lagfærð, settar hömlur á taumlausar ríkisábyrgð- ir, greiðslur frá almannatrygging- um fjórfaldast, verzlunin verið að mestu gefin frjáls, aihliða fyrir- greiðslur fyrir öllum atvinnu- rekstri verið meiri og betri en nokkru sinni fyrr og mörkuð merk spor með margvíslegri laga- setningu varðandi dómsmál, kirkjumál, heilbrigðismál, mennta mál o. s. frv. Er þá ótalinn hinn mikli sigur í landhelgismálinu. Fyrir allt þetta, fyrir viðreisn- ina alla, biðjum við um að verða dæmdir. En engu minna óskum við að verða dæmdir af því, sem við nú höfum heitið að framkvæma, ef þjóðin vottar okkur traust við kosningarnar og gefur okkur með því færi á að brjóta á ný blað í stjórn íslenzkra efnahags- og fjár mála. Stórhuga áætlun. Á ég þar, eins og allir munu skilja, við framkvæmdaáætlunina. Er þar um stórmerka nýjung að ræða, sem án efa mun hafa víð- tæk áhrif á atvinnu- og efnahags- líf þjóðarinnar, öllum til mikilla hagsbóta, verði fordæmi okkar framfylgt þannig að slfkar fram- kvæmdaáætlanir verði föst venja hér á landi. Hafa andstæðingarnir ekki þorað að mæla gegn sjálfri hugmyndinni, en af vanmætti reynt að burðast við að finna okk- ur til foráttu hversu seint skýrsl an sé fram lögð og að ekki hefur unnizt tími til að leggja nú þegar fram sundurliðaða áætlun nema fyrjr 1963 og 1964 áðí nokkru leyti. Hefur þó ástæðunum fyrir þeim drætti, sem á hefur orðið, verið ekki síður vandlega í þá troðið en kverinu í tossana hér áður fyrr. 1 vandræðum sínum eru þeir svo lentir í þvl að halda því fram, að hér sé eiginlega um smámuni að ræða, en segja svo í sömu andránni, að áætlunin sé hreinasta kosningaplagg. Til þess að geta staðið undir kostnaðinum við „smámunina" hefur ríkisstjórnin orðið að út- vega lán að upphæð 477 milljónir króna og er þá ótalið viðbótarlán til Reykjanesbrautar, sem nú er í athugun að taka. Verður öllu þessu fé varið ým- ist til framkvæmda á vegum rík- isins, svo sem til vega, hafna, skóla o. s. frv. umfram og til viðbótar því, sem Alþingi ákvað á fjárlögum, eða til þess að efla þá sjóði, sem lána til landbúnað- ar, sjávarútvegs, iðnaðar og til húsnæðis, allt, umfram og til við- bótar því, sem Alþingi ákvað á fjárlögum. Lét þó formaður Fram sóknar sig hafa það að staðhæfa í umræðum á Alþingi, að í fram- kvæmdaáætluninni væri ekkert, alls ekkert umfram það, sem hann sjálfur og Alþingi væri búið að ákveða. Er þetta stórfengleg og gleði- leg nýjung og hitt einnig ánægju- legt fyrir þá, sem að viðreisninni standa, að það er óumdeilanlegur sannleikur, að það er hið endur- reista lánstraust þjóðarinnar, vegna sparifjáraukningar, bættrar gjaldeyrisstöðu og annarra afleið- inga viðreisnarinnar, sem nú veit- ir Islandi svo greiðan aðgang að fjárhirzlunum. Án viðreisnarinnar hefði ekkert lán fengizt erlendis og án viðreisnarinnar hefðum við heldur ekkert handbært fé haft innanlands til þessara fram- kvæmda. Hitt er svo annað mál, að stjórnin hefir vandlega gætt þess að allar áætlanír séu byggðar á varfærnu mati. Þar eru engar gyllingar gerðar, enda tilgangur stjórnarinnar ekki sá að fegra sig í augum þjóðarinnar, heldur að leggja fram skynsamar og sem traustastar áætlanir um meðferð þjóðarteknanna. Áætlun- in er ekkert kosningaplagg, held- ur alvarleg tilraun til meiri fyrir- hyggju og betri búmennsku en verið hefir að undanförnu. Held ég, að þjóðin væri hundruðum eða heldur þó þúsundum millj- óna ríkari, ef við hefðum tekið upp þessi vinnubrögð upp úr 6- friðarlokum, m. a. af því að þá y,hefðum við miklu fyrr tekið upp ‘ viðreisnarstefnuna, en horfið frá höftum, bönnum, útflutningsupp- bótum og skökku gengi krónunn- ar. Skal ég ekki skýra þetta stór- mál frekar hér, en vísa til skýrslu stjórnarinnar og ræðu þeirrar, er ég flutti um málið á Alþingi 16. þ.m. sem birt hefir verið í blöð- um Sjálfstæðisflokksins. Það er af viðreisninni og okk- ar þætti í framkvæmdaáætlun- inni, sem við biðjum um að verða dæmdir. En áður en dómur fellur lítum við einnig lengra um öxl og minn um á, að í nær aldarfjórðung hefir Sjálfstæðisflokkurinn verið langstærsti og valdamesti flokkur þjóðarinnar. Á þessum aldarfjórð- ungi hafa íslendingar endurheimt fullt þjóðfrelsi og alla stjórn allra málefna sinna. Og á þessum sama aldarfjórðungi hefir fram farið fullkomin bylting á öllum sviðum 1 þjóðlífsins, jafnt varðandi mennt- un og menningu þjóðarinnar sem á öllum sviðum atvinnu og fjár- málalífsins. Um þetta tala verk- in, hvert sem augum er rennt, jafnt á landi, legi sem lofti. Samfara þessu hefir verið svo á málum haldið, að ísland er nú heimur betri, en einkum þó jafn- ari kjara allra manna og allra stétta en dæmi eru urh. Það væri óréttmætt að eigna Sjálfstæðismönnum allan heiður- inn af afrekum þessa aldarfjórð- ungs. En hitt væri þó meiri fjar- stæða að ætla, að þræta fyrir, að stærsti flokkur þjóðarinnar, flokkurinn, sem verið hefir skap- andi máttur, sem lengst af hefir haft forystuna á ferð þjóðarinnar frá fátækt til bjargálna og bættra lífskjara, eigi ekki öflugan þátt í íslenzka ævintýrinu. Fram að þessu hefir Sjálfstæð- isflokkurinn verið dæmdur af verkum sínum og þess vegna allt af verið langstærsti flokkur þjóð- arinnar. Við biðjum enn um að verða dæmdir af verkum okkar og á- huga okkar og innri þörf á að veita þjóðinni dygga þjónustu og djarfa forystu. Nú sem fyrr munum við gjalda traust þjóðarinnar með verkum okkar. Sjálfstæðismenn. Bardaginn er hafinn. Við vitum, að fortiðin varðar miklu, nútíðin meiru, en mestu þó framtíðin. Þess vegna stefnum við alltaf andans sýn fram á veginn í leit að nýjum leiðum, að nýjum lindum, sem ausa megi af, til vel- farnaðar þjóðinni allri, en einkum þó æsku landsins. Við leggjum nú til atlögu með fangið fullt af stórhug, öflugri og orustuglaðari en nokkru, sinni fyrr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.