Vísir - 10.05.1963, Qupperneq 2
2
V1S IR . Föstudagur 10. maí 19Cf3f.
Svíamir hefðu mátt heyra
meira í fíauta dómarans
Fram vann hörkuEeik við Hellas með
aðeins tveggja marka niun — 18:16
Stokkhólmsliðið Hellas
barðist af fítonskrafti gegn
íslandsmeisturum Fram í
gærkvöldi, oft svo að úr
íslenzkur
dómuri í
leik Noregs
og Skotlunds
Norska knattspyrnusamband-
ið hefur farið þess á leit við
Knattspyrnusamband íslands,
að það tilnefni dómara til að
dæma landsleik milli Noregs og
Skotlands, sem fram fer 4. júní
n. k. í Bergen.
Er þetta í fyrsta sinn sem is-
lenzkur dómari er kvaddur til
dómarastarfa erlendis.
Nánar mun tilkynnt síðar,
hvaða dómari verður valinn.
hófi keyrði og hefði dóm-
arinn mátt nota flautu sína
meira en hann gerði. Fram
vann þó sigur yfir liðinu
með 18:16, en mest allan
leikinn var hann skemmti
legur áhorfs.
Svíar byrjuðu vel og skoruðu
3:1 áður en varði. Fram jafnaði en
Svíar höfðu frumkvæðið í leikmun
og komust í 6:4 og 7:5 yfir Fvam
en tókst að jafna 8:8 rétt fyrir
hálfleikslok.
1 síðari hálfleik byrjuðu Fram-
arar með boltann og léku mjög
vel, og náðu strax forystunni með
fallegu marki Karls Benediktsson-
ar af línu. Framarar náðu 2ja
marka mun í 12:10 en Svíar jafna.
Enn komast Framarar yfir 2 mörk
14:12 og 4 mörk yfir ( 16:12 en
þá voru 11 mínútur eftir af leik.
Framarar fengu fjölmörg tækifæri
en voru einstaklega óheppnir. Tóm-
as átti gott færi á lfnu en mistókst,
Framarar fengu stangarskot og
hinn ötuli línuleiksmaður, Sigurður
Einarsson fékk tvö færi sem mis-
tókust, óvenjulegt það! Svíar kom-
ust næst að jafna 16:15, en Fram-
arar skoruðu fyrst 17:15 þegar
Ingólfur skoraði fallega gegnum
vörn Hellas. Thelander skoraði
| 17:16 fyrir Svía en rétt á eftir mun-
| aði litlu að dómarinn, Frímann
Gunnlaugsson eyðilegði fyrir Fram,
or hann var of fljótur með dóm;
! Framari var I skotfæri, en flautan
gall og Framarar fengu aukakast
fyrir utan teig.
Er tvær mínútur voru eftir skor-
aði fyrirliði Fram, Hilmar Ólafs-
son 17:16 og Framarar voru hólpn-
ir.
Framarar léku nú einn sinn lak-
asta leik, enda er liðið komið út úr
allri þjálfun. Ingólfur var góður í
fyrri hálfieik, en markvörður Svía
var góður í síðari hálfleik og átti
oft í fullu tré við skot Ingólfs.
Guðjón lét hafa sig út í alls kyns
vitleysu og eyðilagði skap hans
le.ikinn mikið. Sigurður Einarsson
hafði hins vegar keppnisskapið í
lagi og skoraði falleg mörk. Karl
Benediktsson átti ágætan leik.
HELLAS lék nú mun betur en í
fyrri leikjum sínum en jafnframt
mun harðar og ólöglegar. Dómar-
inn hefði átt að láta þá heyra
meira frá sér en hann gerði, og
fleiri en einn maður hefði mátt yf-
irgefa leikvöllinn I þessum leik.
Beztu menn HELLAS voru þeir
Dannell, sem hefur verið valinn í
landslið Svía sem leikur í Rúss-
landi eftir 2 vikur, R. Johansson,
Hodin og markvörðurinn Friborg,
sem varði vel.
MAÐURINN SEM BREYTTI
STOKE CITY í STÓRLIB
Stanley Matthews róðinn framkvæmda-
stjóri og hyggst nú brótt leggja
skóna á hilluna
Nafnið Stanley Matthews, er lík
lega eitthvert bezt þekkta nafn á
knatspyrnumanni í heiminum í dag.
Hvar sem er vita menn hver Stan-
ley er, enda ekki að undra því Sir
Stanley Matthews hefur að baki
furðulega reynslu á knatspyrnu-
vellinum. í vetur varð hann 48
ára en er samt enn talinn bezti
hægri útherji Bretlands, og al-
kunnugt að honum er það að þakka
að Stoke City er nú að vinna sig
upp í 1. deild í Englandi.
Þegar Mathews varð 48 ára í
febrúar s.l. leit Ieikjatafla hans
þannig út:
Leikir: Mörk.
Deildarkeppnin 675 70
Bikarkeppnin 82 11
Lansleikir 54 2
„Inter-League“leikur 13 8
Með liði Stóra-Bretlands 2
Samanlagt eru þetta 826 opin-
berir leikir og 91 mark. Matthews
er ekki stoltur af mörkunum. „Það
er ekki hlutverk útherja að skora“,
segir hann. „Miðjutríóið á undir
venjulegum kringumstæðum að
skora mörkin, en auðvitað geta
kringumstæðurnar hagað þvi svo
til að útherji eigi að skjóta að
marki.“
Fyrir tveim árum var talað um
að nú væri Stan ,,gamli“ að syngja
sitt síðasta vers í knattspyrnunni,
en hann var þá enn ieikmaður hjá
Biackpool. Um þetta leyti var
Stoke City í fallhættu I 2. deild
fjárhagur liðsins var afar lélegir'
skuldirnar hrúguðust upp og féla,;
ið skuldaði um 80.000 pund, félags
ándinn var lélegur og fólk var hæM
að sækja leiki liðsins og meðcl a
horfendafjöldinn langt undir
10.000 manns.
Það var þá sem undrið gerðist.
Stoke City keypti Stanley Matt-
hews fyrir ,,slikk“, aðeins 2.500
pund, sem eru ævintýralegustu
kaup, sem gerð hafa verið I ensku
knattspyrnunni og líklega þó víðar
væri leitað. Stoke fékk strax í
fyrsta leik 44.000 manns f niður-
nídd og ómáluð áhorfendastæðin
og smám saman fór Stoke City að
rétta úr kryppunni. Liðið vann
hvern ieikinn á fætur öðrum, leik-
menn sýndu nú mun betri leiki en
áður, áhorfendatalan jókst óðum
og er nú komin vel yfir 20.000 að
meðaltali, félagið gat greitt skuld-
irnar, lagað áhorfendastæðin og
grasvöllinn, svo hvort tveggja er
sérlega fallegt og smekkiegt. Að
auki eru nýjar framkvæmdir á döf-
inni: Ný áhorfendastæði eiga að
rísa, en ( þeim eiga að vera ný
búningsherbergi, fundarsalir og
skrifstofur félagsins. Þetta á að
kosta um 150.000 pund. Að auki
eyddi Stoke 50.000 pundum (
nýja leikmenri í fyrra. Stjörnur eins
••'t Denis Violet (Marich. U.), Eddie
'ituart (Wolves), Eddie Clamp
^Arsenal), voru keyptir.
Allt þetta gerðist þegar félagið
keypti Sir Stanley Matthews frá
Blackpool. Svo mikil áhrif hafði
Matthews á liðið með leik sínum,
enda er hann af fjölmörgum sér-
fræðingum talinn bezti hægri út-
herji Englands ennþá, þó lands-
Framh. af bls. 10
I H ■ ■ ■ ■ O I
Ingvar Asmundsson — Þórir Ólafsson
!■■■■■•
Frá Skákþingi íslands
Hér koma nokkrar skákir, sem
tefldar voru á nýafstöðnu Skák-
þingi íslands. Þótt þær séu að vísu
allar nokkuð gallaðar, sýna þær
greinilega, að hart var barizt og
alltaf brotið upp á einhverju til
að hleypa lifi í stöðurnar. Meðan
svona er teflt, ætti ekki að skorta
áhorfendur á skákmótum hérlendis.
Hvítt: Ingi R. Jóhannsson
Svart: Freysteinn Þorbergsson
Caro-Kann vörn
1. e4, d5 2. exd5, Rf6 3. c4, c6
4. d4, — Hvítur græðir ekkert á
að halda í peðið, t. d. 4. dxc6,
Rxc6 5. Rf3, e5 og svartur hefur
ágæta stöðu fyrir hið fórnaða peð.
Stanley Matthews.
4. —, cxd5 5. Rc3, e6 6. Rf3, Be7
7. Bg5, 0—0 Komið er upp algengt
afbrigði í Caro-Kann vörninni eftir
breytta leikjaröð. Hvítur á nú um
tvennt að velja, leið þá, sem hann
velur í skákinni eða framhald, sem
oft er kennt við Botvinnik 8. c5,
b6 9. b4, bxc5 10. bxc5, og svartur
hefur þröngt tafl. Leið sú, er Ingi
velur, gefur hvítum þægilegt og
rúmt tafl.
8. Bd3, dxc4 9. Bxc4, b6 10. De2,
Bb7 11. 0—0, Rc6 12. Hadl, Rd5
Svartur leitar uppskipta, enda mun
það rökrétt úrræði í stöðum sem
þessurn. Hvítur leikur ekki nú þeim
leik, sem svartur býst við (Bxe7)
og virðist það rugla hann nokkuð
í ríminu.
13. Bxd5?i, Bxg5? 14. Be4!, Bh6
Þessi ólánlegi leikur er framhald
fyrri afleiks. Svartur hyggst halda
í biskupaparið, en gerir sér ekki
grein fyrir, hve hættulegt það er.
Eðlilegast hefði verið að leika 13.
—, exd5 14. Bxe7, Dxe7 og ekki er
sjáanlegt að svartur eigi í miklum
erfiðleikum. Hvítur leggur nú undir
sig miðborðið og fyrirbyggir, að
svartur nái nokkurri mótssókn.
•Hvítt: Bragi Kristjánsson
Svart: Jón Kristinssbn
Sikileyjarvörn.
1. e4, c5 2. Rf3, Rc6 3. d4, cxd4
4. Rxd4, g6 5. Be3, Bg7 6. Rc3, Rf6
7. f3, — Byrjunarkerfi þetta krefst
mjög nákvæmrar taflmennsku af
beggja hálfu og allt hik er vara-
samt. Þessi leikur hvíts er of hæg-
fara og nær svartur fljótlega frum-
kvæðinu í sínar hendur.
7. —, 0—0 8. Dd2, — Hvítur
átti að koma í veg fyrir framrás
d-peðsins með öllum tiltækum ráð-
um, t. d. 8. Rb3, eða 8. Bc4. 8. —
d5! 9. Rxc6, bxc6 10. e5, Rd7, 11.
f4, Da5 12. Re4?. Drottningarleikur
svarts var ekki góður og hefði hvlt
ur nú átt að notfæra sér drottn-
ingarflanið og leika 12. a3!, svartur
á þá talsvert erfitt um vik, því að
framrás b-peðsins vofir alltaf yfir.
Reyni svartur að hindra hana með
12. —, Hb8 leikur hvítur samt sem
áður 13. b4!, Hxb4 14. Rxd5! og
vinnur.
12. — Dxd2f 13. Rxd2, e6 14.
R-b3, He8 15. Bd3, Bf8 16. c3, a5
17. Rd4, Ba6! Fallega leikið. Svart-
ur hefur tryggt sér frumkvæðið ör-
ugglega og eftir þennan leik verður
æ erfiðara fyrir hvítan að halda I
horfinu.
18. Bxa6, Hxa6 19. 0—0—0?, —
Hvítur gerir sér réttilega grein fyr
ir að úrslitaátökin verða á drottn-
ingarvæng, en ekki er ráðlegt að
etja fyrirliða orustunnar beina leið
I þann eld, a. m. k. ekki meðan
margir menn eru á borði.
19. — Hb8 20. Rf3, c5 21. Hhfl,
a4! 22. g4, c4! Auðséð er að ekki
var það nein tilviljun að stjórnandi
svörtu mannanna hreppti annað
sæti á Skákþinginu. Hann hefur
byggt upp yfirburðast.öðu og fylgir
markvisst þeirri áætlun, sem hann
hefur set't sér.
23. a3, Bc5 24. Bd4, Hab6 25.
Hf2, Hb3 26. Hc2, Bxd4 27. Hxd4,
Rc5 28. Rel, H3b7 29. Kbl, Re4
30. Kcl, Kg7 31. f5?, — Von er
að þolinmæði hvíts sé á þrotum.
Þessi örvæntingarfulla tilraun til
mótspils er andvana fædd og flýtir
aðeins fyrir úrslitunum. Hér var
síðasta von hvíts, að leika g5 og
bíða siðan átekta. Þótt svartur hafi
Framh. af bls. 10
esmbwcís&v.w' : í'jvrssmm