Vísir - 10.05.1963, Page 4

Vísir - 10.05.1963, Page 4
4 V í SIR . Föstudagur 10. maí 1963. Bjarni Gíslason. Eins og Vísir hefur áður skýrt frá var Bjami Gfslason stöðvar- stjóri i Gufunesi ráðinn sem fjar skiptakennari við nýstofnaðan loftskeytaskóla f Thailandi i Austur-Asfu. 1 bréfi, sem nýlega hefur bor- izt frá honum til kunningja hans hér heima, segir hann ferðasög- una frá þvf hann lagði af stað með Pan American-flugvél frá Keflavík og þar til hann er kom- inn á áfangastað í Tailandi. Vís- ir hefur fengið leyfi móttakanda bréfsins til að birta úr því nokk- ur helztu atriði ferðasögunnar og fara þau hér á eftir. „Þá erum við komin á leið- arenda og allt gengið mjög vel. Við höfum aðeins veríð hér í Bangkok 1 dag, svo ég get lítið sagt frá Thailandi. Þess í stað get ég sagt þér ferðasöguna. Við flugum frá Keflavík með Pan American. Farþegar voru fáir og allir útlendir- nema við. Það kom okkur því skemmtilega á óvart, þegar við vorum ávörpuð á ís- lenzku í hátalarakerfi flugvélar- innar og boðin velkomin um borð. En þarna var þá komin Alda Guðmundsdóttir, sem starf að hefur hjá PAA um árabil. Hún hafði verið með vélinni frá New York og hélt nú áfram til London eftir 20 mínútna stopp á Keflavík. Ég spurði hana hvort henni fyndist ekki undarlegt að ,,tylla“ sér svona á ættjörðina 20 mln. í senn, án þess að hafa tækifæri til að hitta kunningja og vini. 1 fyrstu hafði henni fundizt svo, en nú var þetta löngu komið upp í vana. Alda er afar aðlaðandi stúlka og er áreiðanlega hvarvetna landi sínu til sóma. Hún kvaðst oft fljúga til Bangkok, svo við gerum okk- ur vonir um að sjá hana áður en langt um líður. Á FERÐ OG FLUGI Við höfum nokkurra daga við- dvöl í London í ýmsum erinda- gjörðum m. a. til þess að fá þar vegabréfsáritun í thailenzka sendiráðinu svo og til að kaupa okkur einhver föt, sem henta f hitabeltinu. Síðan aftur af stað með sama flugfélagi, sem leið liggur til Beirut, með viðkomu f Frank- furt, Munchen og Istanbul. Að- búnaður allur á þessu flugi er með eindæmum, rétt eins og á fínustu og dýrustu stöðum á jörðu niðri. Kampavfn og kavi- ar, hvftir dúkar, blóm og hvers kyns pjatt. Það lætur nærri að manni finnist dekrið fullmikið, varla tími til að fá sér lúr, sem væri þó tilvalið, þar sem ekkert er að sjá í 35 þús. feta hæð, og maður vansofinn. Að sjálf- sögðu er margur, sem tekur mat og drykk fram yfir svefn. Þetta var að vísu á 1. farrými, það er e. t. v. hægt að hvi'last á 2. Það var ekki fyrr en í Liban- on, sem manni fannst maður vera kominn í annan heim. — Strax á flugvellinum varð maður var við breytinguna. Allt virtist á tjá og tundri, losarabragur á öllu og fyrirgreiðsla umboðs- manna flugfélagsins öll f molum, þar sem hún hafði aftur á móti verið mjög til fyrirmyndar alls staðar í Evrópu. Þarna á flugvellinum sá ég skrftna sjón. Hópur fólks, karl- ar og konur, húkti þarna f und- arlegum stellingum. I fyrstu hélt ég að fólk þetta sæti á hækj- um sér, að það væri e. t. v. sið- ur hérlendra, en þegar það reis á fætur, kom í ljós að það hafði setið á nokkurs konar kjafta- stól, sem það braut kyrfilega saman og stakk undir hendi sér um leið og það labbaði sig út að flugvél, sem beið þess. Ég gat ekki stillt mig um að spyrja, hvaða fólk væri þarna á ferð og var mér þá sajt að þetta væru pílagrímar á leið tii Mekka. Þeir ferðast með sætalausum flutn- ingavélum, og þar með var kom- in lausn á stólagátunni. ÖRBIRGÐ OG AUÐUR 1 BEIRUT Þarna í Beirut dvöldum við í sólarhring. Okkur varð ekki um sel þegar þeir heimtuðu að halda vegabréfum okkar á meðan við A dveldum f landinu, enda gekk f hálfgerðum brösum að finna þau, í öllu þessu skipulagsleysi, þegar við komum til baka. Þarna getur maður svo ekki þverfótað fyrir alls konar fólki, sem undireins vill fá að keyra mann, selja manni eitthvað o. s. frv. Það var líkast ævintýri úr 1001 nótt að koma á hótel Phoe- nicia, siíkt var skrautið og mun- aðurinn. Þetta er nýtt hótel, u. þ. b. 1 árs. Allir veggir og gólf neðstu hæðar úr marmara. Strax og við komum f anddyrið var tekið á móti okkur með þeim sérstaka hætti, að pilsklæddur þjónn bar okkur bakka, hvar á stóð gyllt kanna og bollar á stærð við eggjabikara. Látbragð hans gaf til kynna, að hann vildi fá okkur til að bragða á inni- haldi könnunnar fögru, hvað reyndist vera lútsterkt kaffi. Hann hneigði sig í sífellu og sagði: „Ah’ lan Wa Sah’ lan“ hvað útleggst „verið velkomin”. Annars tala hér flestir eitthvað f frönsku og áletranir og aug- lýsingar venjulega á frönsku og arabisku. Þegar við um kvöldið fórum f stutta kynnisferð um borgina komumst við brátt að þvf að ekki er allt f pelli og purpura hér í Beirut. Þarna f rökkrinu, en borgin er illa upplýst eins og margar borgir í Austurlönd- um, sáum við koma á móti okk- ur einhverja undarlega veru. Þeg ar hún nálgaðist kom f ljós að þetta var telpa á að gizka 5 ára, klædd furðulegustu tötrum. Hún rétti fram lófann og horfði á mig biðjandi. Augu hennar voru stór, brún og falleg og allt f einu minntu þau mig á önnur augu heima á Islandi. Ég hafði að vísu kynnzt svona löguðu lftils háttar í París og vissi mæta vel að maður mátti varast að gefa svona fólki, en þar sem telpan virtist ein á ferð og hafði slík augu, stóðst ég ekki mátið heldur seildist ofan í vasa minn og gaf telpunni skilding. Merci, sagði barnið og brosti. En þetta hefði ég ekki átt að gera þvf brátt fjölgaði brúnum augum. Litlu sfðar var börnum þessum svo smalað upp í bíl og ekið brott og jafn lfklegt að þau hafi sjálf ekki fengið neitt af þvf, sem þeim hafði áskotnazt. LITAZT UM Daginn eftir fórum við með leiðsögumanni um borgina. — Komst ég þá enn betur að raun um hve eymdin er þarna mikil. Hvarvetna blöstu við hin ótrú- legustu hreysi, sum ekki annað en staurabútar og skítugar teppa druslur strengdar milli þeirra eða þá einhvers konar hrúgöld, úr ryðguðu bárujárni, sem hrófl- að var upp án nokkurrar festing ar nema hvað raðað hafði ver- ið nokkrum steinum ofan á þak- ið til að halda þvf niðri. Moldar- gólf voru í húsum og fólk sat þar flötum beinum. Leiðsögu- maður okkar kvað fólk það er þama byggi vera Armena, sem væru fátækasta fólkið í Libanon en einnig það ríkasta. Einnig sá- um við þarna gömul súlnagöng, sem grafin höfðu verið úr jörðu og taldi leiðsögumaður okkar að margir fornleifafræðingar nú- tímans væru þeirrar skoðunar að þarna undir væru menjar gamallar borgar allt frá dögum Rómverja. Eins sáum við inn í eina Moskuna, þar sem fólk lá á gólfinu og tilbað Allah. Það er afar fallegt borgar- stæði þama. Borgin reist í fjalls- hlíð og öll byggð á stöllum, þannig að maður getur séð alla borgina í einu. Þama er þvf mjög auðvelt að rata. Götur all- ar hafa bæði nafn og númer. Verðlag er þarna mjög hátt og hefur á sfðustu 10—20 árum hækkað mjög mikið. T. d. má nefna að lóðir, sem fyrir 15 ár- um kostuðu 5 pjastra, kosta nú 500 libanönsk pund. Vinnubrögð virðast mjög frumstæð. Margar konur unnu þarna við bygging- ar og aðra erfiðisvinnu og báru þær á milli sín sandinn í steyp- una í nokkurs konar trogi, sem minnti helzt á saltfiskbörumar heima. Á LEIÐARENDA Þarna var hitinn 80 stig svo maður var orðinn heldur þreytt- ur um kvöldið en þá yfirgáfum við Libanon og héldum áfram ferðinni til Karachi í Pakistan. Þar höfðum við 40 mfnútna við- dvöl og fannst okkur nú heldur vera farið að volgna en það var þó ekki nærri eins heitt og í Cal- cutta. Þegar ég steig út úr vél- inni þar, fannst mér eins og ég væri að fara í gufubað, svo mik- ill var rakinn og hitinn. Mistr- ið var svo mikið þarna að það þurfti að hafa kveikt á ‘öllum Ijósum flugbrautarinnar, þó um hábjartan dag væri. „Jæja, þarna getið þið nú séð, hvemig það er í Bangkok,” sagði samferða- maður okkar ertandi, „mjög líkt e. t. v. heldur verra." Þetta var gamansamur Ástralíumaður og ég vonaði að honum væri ekki alvara. Nú, og þá er komið að sfðasta áfanga. Flugið frá Calcutta til Bangkok tekur um 2 klst. Hér í Thailandi er nú heit- asti tfmi ársins, að vfsu nokk- uð erfitt til að byrja með, mik- il viðbrigði, en það er líka gott til þess að vita, að það muni fara batnandi.” frlandsferð vikulega í sumar Ferðaskrifstofan Lönd og leið ir efnir til írlandsferðar (hóp- ferðar) í sumar. Farastjóri verð ur Bryndís Schram. í ferðapistlum, sem birtir hafa verið hér í blaðinu, hefur verið vikið að því alloft, hvað ísland byggðist að nokkru frá írlandi, að þar býr skyld þjóð okkur Islqndingum og um margt lík, svo að margar stoðir renna undir það, að lslendingar kynn- ist írlandi og Irum af eigin reynd, jafn hagstætt og það auk þess er, að ferðast um Skot- land, Wales og England um leið. Tækifæri það, sem Lönd og leiðir bjóða upp á, er sem hér segir: Farið verður á Dettifossi 23. ágúst, sem fer beint til Dyfl innar. Siglt er um írlandshaf, þar sem í góðu veðri sér vel til fjalla á N-írlandi og Skotlandi, og.siglt er framhjá eynni Mön, sögulega frægri og fágurri ey. Þess ber að geta að aðbúnaður fyrir farþega er hinn ágætasti. Farþegaklefar eru fyrir 12 manns, Allir á fyrsta farrými, mjög rúmgóðir og þægilegir. Komið er til Dyflinnar á fimmta degi eða 27. ágúst. Dvalizt verður i Dyflinni í tvo daga ög búið í Ivanhoe- gistihúsi. Um ótal tækifæri til lengri eða skemmri ferða getur verið að ræða meðan þarna er dvalizt auk þess, se mborgin sjálf hefur upp á að bjóða. Hinn 29. ágúst er farið í járn- braut á fyrsta farrýmis .klefum til baðstaðarins Tramore á suð- urströnd landsins. Þar er nærri 5 km. sendin baðströnd og á- gætir skemmtistaðir í bænum sjálfum. Þarna verður dvalizt í 4 daga. Að kvöldi 2. sept verð- ur farið frá Tramore í járn- braut og ferju til Fishgard í Wales og komið til Lundúna kl. 10 að Tnorgni næsta dags. I London verður gist f Regent Palace gistihúsi við Piccadilly Circus og flogið heim með Flug félagi Islands 6. september. Lengd ferðarinnar er 15 dag- ar, verð kr. 14.735,00 á einstak- ling, allar ferðir innifaldar gist- ing alls staðar, fararstjó.rn og allar máltíðir (nema í Loþdon, þar sem aðeins morgunverður er innifalinn). Lönd og leiðir vekja athygli á ýmsu sem I'rland hefur upp á að bjóða sem ferðamannaland og ekki sízt að ferðalög þar eru að mörgu leyti ódýr“. Ferða skrifstofan hefur og í ferðaáætl- un sinni vikulegar ferðir. Verð- ur flogið (á mánudögum frá Glasgow til Dyflinnar og dval- ið þar í góðu gistihúsi, þriðju- dagur er frjáls dagur í Dyfl- inni, á miðvikudögum verður ferðast um Suður-Irland, fimmtudagar verða frjálsir dag- ar í Dyflinni, á föstudögum er flogið árdegis til Glasgow og flogið til Reykjavíkur að kvöldi laugardags. I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.