Vísir - 14.05.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 14.05.1963, Blaðsíða 3
V1 SIR . Þriðjuöagur 14. maí 1963 3 9 Vorið er komið í Mosfells- sveitinni. Mesti annatími bænd- anna er byrjaður og það kemur nýtt Iff f bændur og búalið. Sauðburður er hafinn og á hverjum degi bætast við í heim- inn nýjar lifandi verur, fallegar gimbrar og stoltir hrútar, valtir á fótunum. En það er fleira en lömb sem fæðzt hafa að Hrfsbrú og Monfelli í Mosfelissveit s.l. viku, því hún Stjarna hans Ingi- mundar á Hrfsbrú kastaði og ein kýrin hans Bjama á Mosfelli eignaðist hinn myndarlegasta bolakálf. Við skruppum því uppeftir og tókum þessar skemmtilegu myndir, sem prýða Myndsjána í dag og boða komu vorsins í Mosfellsdalinn, Fyrst var haldið að Hrisbrú og rauðstjörnótta merin hans Ingimundar Ámundarsonar bónda mynduð með vikugamla folaldið sitt og gekk það vei þvf Stjama reyndist vera hin bezta „fyrirsæta“. Eftir að hafa myndað Stjömu héldum við yfir að næsta bæ og hittum þar bömin hans séra Bjama á Mosfelli, sem eru voða dugleg að hjálpa pabba við öll vorverk- in. Fylgdu þau okkur til Hiimis- kollu, sem var í túninu fyrir ofa.n bæ með tvflembingana sem voru fyrstu lömbin sem fæddust á Mosfelli. Eftir nokkurn eltingaleik voru lömbin handsömuð og eftir það reynd- ist ekki erfitt að fá móðirina á myndina. Síðan var haldið niður í fjós en þar var tveggja daga gamall boiakálfur, sem sá dagsins ljós í fyrsta sinn rétt um Ieið og hann var myndaður og auðvitað mátti ekki gleyma að hafa Snata með. ’ ' ~rrtv'l u-'kohH go ir^axetjrae' l ijokeinlión Jnssv (Ljósm. B. G.>- ; - - • ■ . Hk VOR I MOSFELLSSVEIT ‘ . , ‘r $ V:: mJ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.