Vísir


Vísir - 16.05.1963, Qupperneq 8

Vísir - 16.05.1963, Qupperneq 8
8 VlSIR . Fimmtudagur 16. mai 1963. VÍSIK > • . * CJtgefandi: Blaðaötgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og ^greiðsla Ingóifsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Þögnin um viðreisnina í þessum kosningum velur þjóðin um það hvort hún rill áframhaldandi viðreisn eða vandræðaástand undir íýrri vinstri stjóm. Viðreisnin er höfuðmál kosninganna. Hún er þegar komin vel á veg. Hún hefir komið jafnvægi á í fjár- málunum og fært öllum launþegum landsins ómældar kjarabætur. Nú er það þjóðarinnar að segja til um það hvort hún vill að áframhald verði á uppbyggingu landsins og viðreisn efnahagslífsins, eða hvort aftur á að hverfa í skaut óðaverðbólgu og upplausnar. Frá slíkri upplausn hljópst vinstri stjómin 1958. Þá voru úrræðin þrotin og þjóðarskútan að stranda. Andstæðingar ríkisstjómarinnar viðurkenna það í skrifum sínum að viðreisnin hafi tekizt, þrátt fyrir móðuharðindaspádómana. Þeir viðurkenna það með því að neita að ræða viðreisnina, méð þögninni. Flúið er á náðir utanríkismálanna og reynt að gera viðkvæm utanríkismál að bitbeini. Hver trúir því að ríkisstjórnin ætli að semja um framlengd fiskveiðiréttindi við Breta eftir kosningar? Hver trúir því að hún hyggist opna landið fyrir er- Iendum auðhringum til fjárplógsstarfa? Enginn. Ekki einu sinni tryggustu fylgismenn fram- sóknar og kommúnista. Sigur rikisstjómarinnar er fólginn í velgengni við- reisnarinnar. Hann er sigur þjóðarinnar allrar. S/S óskaði aðildar Það er erfitt fyrir Framsóknarflokkinn að sverja það lengur af sér að hann hafi viljað aðild íslands að Efnahagsbandalaginu. Þeir Eysteinn og Helgi Bergs mæltu báðir með því í ágúst 1961, sem stjómarmenn SÍS, að íslendingar sæktu um fulla aðild að EBE. Þetta er skjalfest í bókum Viðskiptamálaráðuneytisins, þangað sem svar SÍS var sent. Þess vegna þýðir það ekki hætishót fyrir Framsókn- arflokkinn að halda því fram nú að ríkisstjómin hafi bruggað þjóðinni launráð í þessu máli gegn vilja Fram- sóknarflokksins. Að slíkum fullyrðingum er hlegið — þegar beiðni SÍS liggur skjalfest fyrir. En ríkisstjómin fór ekki að vilja SÍS. Hún sendi ekki aðildarbeiðni til Brussel. Hún beið og kannaði málið. En ef ráðum Eysteins og Helga verkfræðings hefði verið fylgt — eða Stéttarsambands bænda, þá hefðu aðildarviðræður hafizt í ársbyrjun í fyrra. Þessir tveir aðilar vildu ganga miklu lengra en ríkisstjómin í átt- ina til Bmssel. Það er ómótmælanleg staðreynd og því væri Tímanum réttast að hætta vaðli sínum um það að það hafi verið ríkisstjómin, sem vildi teygja sig lengst til samkomulags við EBE. Björn Laxdal með nýja bflinn fyrir framan háskölann. Ljósm. Vfsis B. G. ,Nýi Citroen erbesti vagn' — segir Björn Laxdhl leTabílstjóri Sjaldan hafa fleiri bifreiöir ofe af mismunandi gerðum verið fluttar til landsins, en nú eftir að bifreiðainnflutningurinn var gefinn frjáls. Svo að segja f hverjum mánuði sjást á götum borgarinnar bílar sem koma okk ur ókunnulcga fyrir sjónir. Með al þeirra eru tvær bifreiðir af Citroengerð, sem vakið hafa athygli margra vegfarenda. Citroen ID hefur farið mikla sigurför um Frakkland og einn ig hefur bíllinn náð vinsældum I Bretlandi og á Norðurlöndum. Það sem einkum hefur vakið at- hygli á bílnum hér, er hvað hann stingur í stúf hvað útlit snertir við lfestar aðrar bifreið- ar. TUTTUGASTI BÍLLINN. Fréttamaður blaðsins hitti fyr ir nokkru Björn Laxdal, leigu- bílstjóra á Hreyfli, sem er eig- andi annarrar Citröenbifreiðar- innar og spjallaði við hann um farkostinn. Bjöm hefur ekið leigubíl í um 30 ár. Fyrst á Akureyri og síðan hér í Reykjavík og sagði hann, að þetta væri tuttugasti bflinn, sem hann eignaðist. Hefur hann átt bíla af sjö gerðum, en aldrei fyrr Citroenbíll. — Þegar við spyrjum Bjöm irvernig honum hafi dottið í hug að festa kaup á þessum bíl svar ar hann: — Sennilega kom það til af því, að ég hafði fylgzt með þessum bíl undanfarin ár, að vísu aðeins af afspurn. Síðan vildi svo til að hingað til lajids ins komu tveir bílar, annar fór til franska sendiráðsins, en hinn var sýningarbíll. Ek ég nú á þeim síðarnefnda. LÆKKAR EKKI. — Og hverja telurðu helztu kosti bílsins? — 1 sem skemmstu máli sagt: Hvaða útlit snertir finnst mér bílinn vera stílhreinn. Hann eyð ir ekki miklu benzíni og það er okkur leigubflstjórum fyrir miklu. Á hverja 100 km. innan- bæjar fer hann með um 11 Iítra, en í akstri utanbæjar 8,4 lítra. Bíllinn hefur svokallaðar burðar magnsfjaðrir og er sama hversu mikill þungi er í honum upp að 1720 kg. hann lækkar ekki. Hægt er að hækka hann upp í fjórar mismunandi hæðir, eftir því á hvernig vegi er ekið. Og þessar fjaðrir hafa þá eiginleika að þær taka úr allan titring. Aðeins sex koppar eru á bfln- um til þess að smyrja. Allar járnplötur neðan á honum eru ryðvarðar. Stýrisendarnir eru mjög ofarlega og gefur bað þeim aukna endingu. Svo að síðustu get ég nefnt sætin sem eru al- veg sérstaklega góð. — Loftbremsur eru á bílnum. Enginn stýrishnúður er, sem margir hafa farið illa á. Bakið á framsætinu er sérstaklega vel stoppað, svo að farþegar geti ekki meitt sig ef þeir kastast fram, svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Finnst þér nógu gott rými f bflnum? — Já, t. d. er enginn hólkur í gólfinu fyrir drifskaft af því framhjóladrif er á bflnum og gefur það aukið rými fyrir fæt ur farþeganna og í aftursætinu geta með góðu móti rúmazt þrír fullorðnir karlmenn. En framsætið er þó í þrengra lagi. — Að síðustu Bjöm geturðu nefnt eitthvað sem hefur brugð izt þínum vonum? — Nei, það finnst mér erfitL Ég hef verið með bílinn á stöð- inni í rúman hálfan mánuð og það hefur ekkert komið fram sem valdið hefur mér vonbrigð um. Það eina sem ég gæti kvart að yfir er hvað fólk er forvitið og það vill fá mig til þes að leika alls konar „kúnstir", t. d. hækka hann upp og Iækka á vfxl. Já, nýi Citroen er bezti bíll. Kostir ógóðahlutans: 30 % hærra kmp i OFNASMIÐJUNNI Ofnasmiðjan er eitt þeirra fáu fyrirtækja, sem hafa tek ifl upp þann hátt afl greifla starfsfólki sínu ágóðahlut á fast kaup, í samræmi vifl aukin afkðst. Á síflasta ári nam ágóflahluti þessi 30% í viflbót við fasta kaupið, án þess þó að um lengingu vinnutímans væri að ræða. Þessar merkilegu upplýsingar koma fram I blaði Ofnasmiðj- unnar, Smiðjan, sem árlega kem ur úr á sumardaginn fyrsta. Þar er skýrt frá því að ágóðahluti 12 starfsmanna, sem unnu á. Iðjutaxta hafi á árinu numið um 20 þús. krónum. Er það 30% viðbót við taxtakaupið. Vinnu- vikan var hins vegar ekki nema 45 stundir (nettó). Er hér um raunúæfar kjarabætur að ræða, sem byggjast á auknum afköst- um við vinnuna, án lengingar vinnutíma. Það var árið 1955 sem Ofna- smiðjan fór inn á þá braut að leggja niður eftirvinnu en heita starfsmönnum fjárhagslegri þátt töku í þeim hagnaði, sem áynn ist við að leggja niður eftir- vinnu og með aukinni vinnu- hagræðingu. Ef framleiðslan minnkaði ekki frá þvl sem áður var, þá skyldi vikulega greiðast jafngildi 6 eftirvinnutíma. Fljót- lega kom í ljós, að ekki dró úr framleiðslunni við niðurfellingu eftirvinnunnar, heldur óx hún verulega. Segir forstjóri Ofna- smiðjunnar, Sveinbjöm Jónsson, í greininni, að flestum sé það ljóst, að það er starfsmaðurinn sjálfur sem ákveður með iðni sinni og hagsýni hvað hann og allir aðrir bera úr býtum. Eftir útliti fyrstu þriggja mán aða þessa árs n:á ætla að ágóða. hlutinn hækki nokkuð á þessu ári.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.