Vísir - 25.06.1963, Blaðsíða 1
■
■
VISIB
„Bezt að passa í sólskini"
Eftir kuldakast og rigningaskúrii brauzt blessuð sólin fram úr
skýjunum f morgun og vermdi Reykvíkingum á nýjan leik. Fátt 'er
yngstu kynslóðinni kærkomnara en sólskinið, enda sáust nokkrir
fuiltrúar hennar á kreiki, borubrattir og lffsglaðir í Hljómskála-
garðinum snemma í morgun. í fylgd með þeim voru bamfóstrumar
sem nutu góðs af lffsgleðinni og sólskininu. (Ljósm.: I. M.).
Steypuvinna á Kefía-
víkurvegi að hefíast
Nýr vegur oð Gullfossi
Stærsta vegagerðarframkvæmd
in á islandi á þessu ári er Kefla
víkurvegurinn, en þar veröur
unnið fyrir nokkra tugi milljóna
króna f ár.
Einhvern næstu daga hefst
steypuvinna þar að nýju og I
sumar er ráðgert að fullsteyptir
verði 1114 km. til viðbótar þeim
vegspotta sem steyptur var aust
an við Hafnarfjörð í fyrra, þann
ig að f haust verði búið að
steypa og taka í notkun 15 km.
af þeim 37 km., sem steyptir
verða.
Unnið hefur verið að undir-
búningi undir steypuvinnuna
undanfarna daga og nú er hon-
um svo langt komið, að hægt
verður að byrja að steypa hve-
nær sem er úr þessu. Fyrir vet-
urinn á steyptur vegur að vera
kominn suður í Kúagerði og
verður hann um leið tekinn f
notkun í haust.
Af öðrum vegaframkvæmdum
f nærliggjandi byggðalögum við
Reykjavík má geta þess að hald
ið verður áfram við Þrengsla-
veginn í sumar, en ekki kvaðst
vegamálastjóri búast við að tak-
ast myndi að fullgera hann á
þessu ári.
í sumar verður nýi vegurinn
fyrir ofan Þingvelli tekinn f
notkun. Vegargerðinni sjálfri er
að mestu lokið að því undan-
skildu, að eftir er að leggja síð-
ustu hönd á veginn, þar sem
hann liggur niður f Almannagjá
Framh. á bls. 5
Baldur
stefnir
Baldur Óskarsson, rithöfund-
ur hefur ákveðið að stefna
Snorra Hjartarsyni, forstjóra
Borgarbókasafns Reykjavíkur
fyrir að hafa látið rffa mynd-
skreytingu úr bókinni HÍta-
bylgja, sem út kom eftir Baldur
fyrir nokkru. — Krefst Bald-
ur miskabóta og refsingar.
Stefnan verður Iögð fram í borg
arþingi á fimmtudag. Vfsir hef-
ur áður skýrt frá einstökum
málavöxtum.
Hljómleikum Askenazys hér Irestað
Þau hjónin komast ekki til
'lslands að svo stöddu
BLAÐIÐ
í DAG
Á næstunni
tiun Sigur-
ión Björns-
ion .sálfræð-
ngur, rita
aokkrar
?reinar um
jppeldismál
ag vandamál
bama og ung
linga fyrir
Vísi. Birtist
fyrsta grein-
in í dag á bls. 7 og fjallar um
sumardvalir barna, en næsta
þriðjudag mun önnur grein Sig-
urjóns koma á prent. Sigurjón
er forstöðumaður geðvemdar-
deildar barna við Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur.
Nýlega fór einn af blaðamönn
um Vísis, Þorsteinn Jósepsson,
í nokkurra daga ferðalag norður
í Drangey. Var hann þar við
eggja og fuglatekju f eynni með
sigmönnum. Hann mun rita 4
greinar fyrir blaðið um þessa
för sína, og einnig drepa á ýms-
ar sagnir um Drangey fyrr og
sfðar. Fyrsta grein Þorsteins
birtist á fjórðu síðu Vísis í dag.
Myndimar, sem fylgja, tók
hann í förinni.
—
Hinum áætluðu hljóm-
leikum Askenazy hefur
nú verið frestað um ó-
ákveðinn tíma, og óvíst
er hvenær úr þeim get-
ur orðið, þar sem ekki
er vitað í dag, hvenær
Askenazy og kona hans,
Þórunn, koma til ís-
lands. Askenazy hringdi
sjálfur til Péturs Péturs-
sonar, sem sér um hljóm
leikana, í gærdag alla
leið frá Moskvu og sagði
„að sér þætti það leitt,
en hann gæti ekki hald-
ið þeirri áætlun, sem
gerð hafði verið, hann
gæti ekki komið til ís-
lands í þessari viku“.
Þessar fregnir tjáði Pétur Pét-
ursson fréttamanni blaðsins í
morgun. Taldi Pétur allsendis
óvfst, hvenær þau hjónin kæmu
til íslands og væri ekkert hægt
um það að segja að svo stöddu.
„Býst þó Askenazy frekar við
því fljótlega", sagði Pétur. —
Ekki er Pétri kunnugt um, hvað
veldur töfinni, en heldur að Ask
enazy sé enn við hljómleikahald
í Moskvu.
Áætlunin um hljómleikana,
sem auglýstir hafa verið á
fimmtudaginn, var gerð sam-
kvæmt tilmælum Askenazy og
Þórunnar, enda hafði verið gert
ráð fyrir því, að þau kæmu til
London á miðvikudag og þaðan
beint til Reykjavíkur.
Miðasala var þegar hafin að
hljómleikunum og var mikil að-
sókn.
SILDARVERKSMIÐJAN
Á RAUFARHÖFH BILUB
— engri síBd landoð þar á meðnn
Síldarverksmiðjan á Raufar-
höfn, sem tók til starfa nú um
helgina ,hefur nú aftur stöðv-
azt vegna bilunar, sem komið
hefur fram í aðalaflvél verk-
smiðjunnar. Af þessum sökum
mun engri síld verða landað á
Raufarhöfn, þar til vitað er um,
hversu alvarleg bilunin er. Þeg-
ar blaðið fór í pressuna, hafði
það enn ekki verið kannað.
Eins og kunnugt er, hefur sfld
arverksmiðjan á Raufarhöfn
ekki verið starfhæf f vor, vegna
viðgerðar sem fram hefur far-
ið á henni. Var það ekki fyrr en
nú um helgina, sem hún tók til
starfa, og gekk bræðslan þá
sæmiiega.
Framhald á bls. 5.