Vísir - 25.06.1963, Qupperneq 15
15
VlSIR
PBHHOBB
Þriðjudagur 25. júní 1963.
ERCOLE PATTI:
ÁSTARÆVINTÝRI
í RÓMABORG
eldunartæki. Vegna þess, að Anna
jiafði leikið í kvikmyndum, var
hennar getið í auglýsingum flokks-
jns, hún átti að draga að. Á aug-
lýsingarspjöldunum stóð: Anna
Padoan, stjaman í kvikmyndinni
DÖTTIR SVÁRTSKEGGS og öðr-
um frægum kvikmyndum. Hún las
upp eitthvað, sem flokkstjórinn
hafði sett saman, og söng með
ungum manni, en hann var í raun-
inni bezti skemmtikraftur flokks-
ins.
Þessi ungi söngvari hafði ann-
iars stundað það mestan hlut æv-
innar að aka hjólbörum fullum af
ávöxtum á Piazza Vittorio, en
hætt því til þess að gerast söngv-
ari. Hann hafði sannast að segja
mikla rödd, og söng af hlýju og
innileik, og í seinustu ferð flokks-
ins hafði honum verið klappað ó-
spart lof í iófa. Hans var getið í
auglýsingunum með enn stærra
letri en Önnu. Hann hafði tekið
sér listamannsnafn og kallaði sig
Nello d’Amore.
Með tilliti til útlits og líkams-
' vaxtar var hann ágætt sýnishorn
hinna rómversku ungu manna, sem
hafa miður gott orð á sér. Hann
,var vel vaxinn og hvatlegur, en
tilgerðarlegur. Hann lét sér vaxa
j„barta“... Hárjð, kolsvart, greiddi
,hann áftur á hnakka, þar senTþað
stóð út sem stél á önd, en lét það
bylgjast dálítið uppi á hvirflinum,
svo að minnti á hanakamb. Hann
var sér þess vel meðvitandi, að
Jjhann var aðalskemmtikrafturinn,
Tfann mikið til sfn og hafði á sér
brag sjálfsöryggis. Hann krafðist
þess að bumbur væru barðar
hverju sinni áður en hann gekk
,inn á sviðið, og þar næst kallað í
gjallarhorn: Nello d’Amore.
Þá hljóp hann inn á sviðið klædd
ur smokingjakka og við dynjandi
lófatak áhorfenda að magnaranum.
En þótt Nello d’Amore væri
hrokafullur og tillitslaus gagnvart
samstarfsfólki sínu í flokknum að
meðtöldum leikstjóranum, var ein
manneskja, sem hafði traijst taum-
hald á honum og sleppti honum
ógjarnan úr augsýn sinni. Þessi
manneskja var fyrrverandi söng-
kona, nú feitlagin nokkuð og ekki
lengur upp á sitt bezta og ákaf-
lega afbrýðisöm, en hún hafði
gerzt fylgikona Nello, þótt miklu
eldri væri. Hún var ekki í flokkn-
um, en ferðaðist með honum hvert
sem hann fór. Framkoma Nello
d’Amora var svipuð framkomu
þeirra, sem reyna að hafa fé út
úr mönnum með hótunum. Hann
lét ávallt skína í það, að hann væri
svo sem ekki tilneyddur að vera
í þessum flokki, það væri sótzt eft-
ir sér, og hann myndi ekki hika
við að fara sína leið og láta allt
fara í rúst fyrir flokknum, ef hann
fengi ekki vilja sínum framgengt.
Leikstjórinn var gamall og bugað-
ur orðinn, átti konu og marga
krakka, og þorði ekki annað en
sjá fylgikonu Nello fyrir ókeypis
húsnæði og fæði.
í leikhúsinu úti á landsbyggðinni
átti Nello það til að vaða inn í
búningsherbergi kvenna, klæddur
slopp aðeins, og lét þá skfna í
nakinn barm sinn, en Nello gekk
jafnan með festi um háls sér, sem
lafði niður á bringu, og var pen-
ingur í festinni með mynd af hinni
helgu móður frá Pompeji. Og þá
masaði Nello, gerðist oft hávær,
og stundaði það mjög að klípa kon
urnar.
Terenzi, skopleikarinn, en hans
sérgrein var að herma eftir, varð
einnig að sætta sig við að vera
viðurkenna eins og aðrir, að Iófa-
takið, sem Nello fékk, var ferfalt
sterkara en það sem aðrir fengu.
Það var eina huggun Terenzi að
geta nöldrað um þetta við kerlu
sína, er þau neyttu saman sinna
fátæklegu máltíða.
Anna varð líka að sætta sig við
hrokafulla framkomu Nello, —
hann kom iðulega inn í búnings-
herbergi hennar, en hún og feit-
lagin „karakter“-leikkona höfðu
sama búningsherbergið. Kyssti
hann þá Önnu eða stakk hendinni
innan klæða hennar, og hún, snort
in beyg vegna valdsmannslegrar
og öruggrar framkomu hans, þorði
lítt að mótmæla.
Anna skammaðist sín hálft f
hvoru fyrir starfið og félagsskap-
inn, Hún hafði ekki enn skrifað
eða hringt til Marcello eða reynt
að ná fundi hans.
Kvöld eitt hafði flokkurinn sýn-
ingu í Battipaglia. Flokkurinn hafði
fengið inni í litlu gistihúsi. Hann
hafði þar öll herbergi undir. Fylgi-
kona Nello varð eftir í Salerno og
ætlaði að vera þar um nóttina ein-
hverra orsaka vegna, en ætlaði að
sameinast flokknum daginn eftir.
Sá þá Nello d’Amore sér leik á
borði.
Hann fór inn í búningsherbergi
Önnu og þuklaði á henni innan
klæða og sagði:
— Mér hefur dottið snjallræði í
hug. Moreno vantar herbergi. Hann
getur fengið þitt. Þú getur sofið hjá
mér. Það er tvöfalt rúm í mínu
herbergi.
Nello bar þessa tillögu fram sem
kröfu og af slíkum myndugleik, að
Önnu varð svarafátt.
— Ailt í lagi? sagði Nello.
Anna þagði — hún vissi ekki
hverju svara skyldi — og svo var
„karakter“-leikkonan þarna og
greiddi hár sitt þegjandi.
— Jæja, er það í lagi? Já eða
nei, hélt Nello d’Amore áfram og
mælti af nokkurri óþolinmæði.
— Allt í lagi, sagði Anna. Henni
fannst ekki hægt að neita manni,
sem talaði af slíkum myndugleik.
Þar að auki var ekki laust við að
henni fyndist það vera á við að
vera slegin gullhömrum, að hann
leitaði til hennar. Nello kyssti hana
á hálsinn og hafði hraðan á, því
að hann átti að fara inn á sviðið
næstum þegar f stað.
Þegar sýningunni lauk, fóru þau
öll í matstofu. Anna sat næst
Nello. Allir vissu, að þau ætluðu að
sofa saman.
Moreno, sem var staðgengill
skopleikarans Terenzi, þakkaði
Önnu mjög fyrir að láta hann fá
herbergi sitt.
— Ég hef líka tvöfalt rúm, sagði
hann, en ég verð nú að sofa einn.
Og þegar í gistihúsið kom, bjugg
ust flestir til að taka á sig náðir.
— Þú getur farið að hátta, sagði
Neilo d’Amore við önnu. Ég kem
til þín seinna.
kúgaður af^eyp^-’Am^re, og þóttj,4iv^a háttáði sig niður i stóra
illt við að búa, en hann varð að rumið og kúrði undir sænginni,
breiddi hana næstum upp yfir höf
uð. Henni leið ekki sem bezt, því
að kunningsskapur hennar og Nello
hafði alls ekki verið með þeim
hætti, að hún hefði getað búizt
við svo nánum kynnum. Þetta var
í rauninni ekki hægt að réttlæta
á nokkurn hátt. Hún heyrði, að
hann kom inn í herbergið, heyrði
hann ganga um, fara fram í bað-
herbergið og koma aftur, fara upp
f rúmið. Allt f einu sá hún andlit
hans yfir sér, andlit ókunnugs
manns, mjög nálægt sér, og henni
var nú fremur skemmt að því en
hitt, hvernig þetta bar til og lét
sér allt vel líka.
Um það bil klukkustund síðar,
er Nello d’Amore var að sofna1
sæll og ánægður og sneri baki að
Önnu, hljóp einhver upp stigann
og barði á hurðina. Það var vika-
drengur gistihússins.
— Konan þín er niðri! kallaði
hann til Nello. Hún var að koma
í bíl.
Mikill bölv.... klaufi getur þú verið. Það fór allur hádegismatur-
inn í gólfdð.
LAUGAVEGI 90-Q2
Salan er örugg hjá
okkur. — Við leysuni
ávallt vandann.
Höfum kaupendur að
öllum tegundum ný-
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
.Flestar gerðir sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
^WrrturB P
prentsmföja S. gúmmlstlmplagerð
Elnholti Z - Sfml 20960
R
l
A
N
Tarzan: Ég get ekki lofað að
hjálpa þér, fyrr en þú hefur sagt
mér alla söguna. Og þú hefur
ekki ennþá sagt hvað þú heitir.
Hinn ókunni svarar: Nafn
mitt, meðan ég dvaldist hjá vís-
MÝ hlAMEt AM0I4S THE EVIL ^
SCIENTISTS FOK 25 YEAES,
HAS 5EEN FEOFESSOE PETEK
FLANFOME... PIKECTOK-gENERAL
OF THEIK SECR.ET ACA7EIAY
' OF_A7VANCE7 SClENCES...
CIVILIZE7 SCIENTISTS
HAVE NO SUSPICION,
EVEN,OF THE 7EA7LY
HOKKORS INVENTE7
THEKE... P’ERFECTE7
FOR.THE CONQUEST
OF CIVILIZE7
MEN..
t-22-
61-55
Í...POZ TUKNINS S007
MEN AN7 WOMEN INTO
k rOCILE ANIMALS!
1 SECRETLY C0M7ILE7 THEIR
Y INVENTIONS AN7 PLAMS ...
MIÖK0FILME7 THEM... VOU
MUST HEL7 /,' E... LESS
THAN ONE 7ÖUN7 OF THglB.
AEROSOLS, SHOTINTO CC 4TKOLLE7
/ 'éOSFHEKE, WILL LI0UI7ATE
AN EN" 16 CIVILIZE7 NATION)
$au
tiiW
uOW
CilÁM
indamönnunum, var Plandome,
prófessor Peter Plandome. Ég
hef verið stjórnandi við hina
Ieynilegu vísindaakademíu
þeirra. Aðrir vísindamenn hafa
ekki hinn minnsta grun um
hvað frarfi fer innan veggja rann
sóknastofanna. Og þetta gas,
sem þeir hafa fundið upp, getur
gert menn og konur að vilja-
lausum skepnum. Mér hefur tek
izt að komast yfir leyndarmál
þeirra, og þú VERÐUR að
hjálpa mér. Ef einu pundi af
efninu værLdreift um andrúms-
loftið, væri það nóg til þess að
eyðileggja menninguna.
gjgj
Hef kaupanda að
góðum Scoda
Station og einnig
að góðum 6 manna
amerískum bll.
BILA OG
v/Mikiafor
Simi
n^Sonso':kar
kr. 25.H0