Vísir - 25.06.1963, Síða 16

Vísir - 25.06.1963, Síða 16
Þrlðjudagur 25. júnf 1963. Smyglað áfengi finnst | Fyrir síðustu helgi gerði lög- regia og tollverðir leit að áfengi í ákveðinni bifreið hér í borg. Við leitina fannst nokkurt magn af áfengi og þ.á.m. eitt- hvað af smygluðu áfengi, a.m.k. var það ekkl með merki Áfengis verziunarinnar. Við þennan áfengisfund féll grunur á samskipti bifreiðar- stjórans við ákveðinn skipverja á skipi sem Iá í Reykjavíkur- höfn. Var beðið um úrskurð til að mega leita hjá viðkomandi sjómanni í skipinu og var það gert. Hins vegar bar leitin ekki árangur. í klefa skipverjans fannst ekkert smyglað áfengi, aðeins ein tóm flaska, sem ekki var með merki Áfengisverzlun- arinnar. Mál þetta er að öðru ieyti í rannsókn, en henni mun ekki lokið að því er bezt er vitað. Góð se/ve/ð/ 1 stuttu viðtali við Vísi í morgun sagði Ragnar Stefáns- son, bóndi f Skaftafelii, að sel- veiði hefði gengið mjög vel og hafa þrfr Skaftafellsbændur veitt alls 275 seli á Skaftafells- fjöru. Skaftafellsbændur byrjuðu sel veiðar viku fyrir hvítasunnu og hafa þeir farið alls sex ferðir. Hjúskaparlöggjöfín endurskoðuð Víqsla Skálholfskirkju: fslenzkir og erlendir biskupar vígsluvottur Eins og Vísir hefur skýrt frá verður vígsia Skálholtskirkju 21. júlí n.k. Hefur sérstök nefnd starfað að undirbúningi vígsl- unnar með Þóri Kr. Þórðarsyni, prófessor í forsæti. Ekki hafa verið ákveðin ýmis atriði end- anlega, en ætlunin er að ekki verði um Skálholtshátíð að ræða, f lfkingu við það sem hún var fyrir nokkrum árum. Ákveðið er að tvær messur verði á vígsludaginn, vígslu- messan sjálf kl. 10,30 og önnur messa eftir hádegi. Biskupinn yfir íslandi, hr. Sigurbjörn Ein- arsson, framkvæmir vígsluna, en Drengur beið bana Tólf ára gamall drengur, Guðjón Broddi Björgvinsson tii heimilis að Digranesvegi 89 í Kópavogi, varð undir bifreið í gærdag og beið sam stundis bana. Guðjón var ásamt nokkrum starfsfélögum sínum í unglinga- vinnuflokki að hreinsa til á gagn- fræðaskólalóðinni f Kópavogi. Vöru bifreið flutti ruslið af lóðinni burt, en svo óheppilega vildi til, að Guð jón litli hrasaði við aftanverða bif- reiðina þar sem hún var á ferð, lenti undir öðru hjólinu og lézt á sömu stundu. Bifreiðarstjórinn hafði ekki veitt drengnum athygli fyrr en slysið hafði orðið. Tvö böm hafa, það sem af er árinu, orðið fyrir bifreiðum í Kópa- vogi með þeim afleiðingum að þau hafa beðið bana. Foreldrar Guðjóns Brodda eru hjónin Hulda Einarsdóttir og Björgvin Bjarnason verzlunarmað- ur (hjá Ellingsen) til heimilis að Digranesvegi 89. Guðjón Broddi var einn þriggja bræðra. vígsluvottar verða íslenzku vígslubiskuparnir sr. Bjarni Jónsson og sr. Sigurður Stefáns son, auk erlendra biskupa, sem boðið hefur verið til Islands þennan dag. Dr. Róbert Abra- ham Ottósson hefur verið að æfa kór sem mun syngja, en organleikarar verða dr. Páll ís- ólfsson og Guðmundur Gilsson. Önnur hátíðaratriði en messurn ar verða ekki. Eins og áður segir er nor- rænum biskupum boðið hingað auk þeirra, sem gefið hafa til kirkjunnar í Skálholti. Óvíst er hverjir þiggja boðið. Framh. á bls. 5 Þessa dagana halda hér nor- rænar samstarfsnefndir ráð- stefnu um endurskoðun á hjú- skaparlöggjöfinni. Ráðstefna þessi stendur yfir dagana 22. tii 27. júni og em fundir haldn- ir í Háskóianum. Nefndir þessar hófu störf 1959 og er þessi fundur hinn fimmti í röðinni. Ráðstefnuna sækja 3 fulltrúar frá Danmörku, 4 frá Noregi, 5 frá Sviþjóð og 1 frá Finnlandi. Flestir fulltrúanna eru löglært fólk úr ýmsum stétt um, m. a. prófessorar, hæsta- réttardómarar, deildarstjórar og einn fulltrúinn (kona) er borg- arstjóri í Kaupmannahöfn. Af hálfu íslands sitja fundinn rekt- or Ármann Snævarr, Auður Auðuns alþingismaður, Baldur Möller ráðuneytisstjóri og Ói- afur W. Stefánsson fulitrúi i dómsmálaráðuneytinu. Norrænir ráðuneytisstjór- ar á fundi í Reykjavík t-jmsm Ráðuneytisstjórar, og fleiri yfir-! menn viðskiptamálaráðuneyta Norð | urlanda, komu saman til fundar f Reykjavík í morgun til þess að ræða utanrikisverzlun landanna eins og venja er til á þess háttar fundum, sem haldnir eru öðm hverju. Fundinum stýrir Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri við- skiptamáiaráðuneytis íslands. i Aðrir fulltrúar Islands á fund- j inum eru Einar Benediktsson ! deildarstjóri, dr. Oddur Guðjóns- i son viðskiptaráðunautur ríkisstjórn arinnar og Niels P. Sigurðsson deildarstjóri í utanríkisráðuneyt- inu. Þrfr fulltrúar sækja fundinn frá hverju hinna Norðurlandanna, nema tveir frá Finnlandi. Fyrir sendinefndunum eru Erling Kristi- ansen utanríkisráð frá Danmörku, Olavi J. Mattila sendiherra frá Finnlandi, Jahn Halvorsen ráðuneyt isstjóri frá Noregi og Erik von Sydov utanrfkisráð frá Svfþjóð. Fundurinn mun standa tvo eða þrjá daga. Vaðandi síUartorfur sáust Snemma í morgun sá- ust vaðandi síldartorfur norð-austur af Langa- nesi og nokkur skip höfðu þegar nú fyrir há- degi fengið þar sæmileg- an afla. Veður fer nú og batnandi og er vonandi að nú komist verulegur fjörkippur í síldveiðam- ar, sem ekki hafa verið verulegar fram að þessu. Frá kl. 7 í gærmorgun til kl. 7 í morgun fengu 11 skip sam- tals 4900 mál og veiddist sú síid 60—70 mílur norðaustur af Raufarhöfn. Var þar mikið kast- að, en skipin fengu flest aðeins smáslatta. Eftir kl. 8 í morgun hafa þessi skip tilkynnt afla sinn: Fagriklettur 400, Gullver 550, Rán 350, Jón á Stapa 650. Til Seyðisfjarðar: Björgúlfur 800, Rifsnes 500. Til Siglufjarðar: Jón Finnsson 900. Þau skip, sem fengu afla s.l. sólarhring vom: Kópur 700, Kristbjörg 350, Skarðsvík 900, Sigurpáll 400, Steinunn 500, Oddgeir 400, Pétur Jónsson 300, Mummi Flateyri 400, Svanur 450, Auðunn 300, Hrafn Svein- bjamarson 300. Austangola var og ágætis veður. Uppbótarþingsæt- um áthlutað Nú loks hefur endanlega ver- ið gengið frá þvi, hverjir skuli skipa þingsætin á komandi kjör- tfmabili. Stafar drátturinn af þeim vafa, sem var á þvf, hver af þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins hlyti 11. uppbótarþing- sætið. Lék vafi þar á, þar sem ágreiningur var um atkvæði í Vestfjarðakjördæmi og Norður- landskjördæmi vestra. Lands- kjörstjóm kom saman til fund- ar í gær og úrskurðaði um upp- bótarþingsætin. Samkvæmt þeim úrskurði verður Matthfas Bjarnason, 3. frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins á Vestfjörðum, 11. uppbótar- maður flokksins. Aðrir uppbót- arþingmenn Sjálfstæðisflokksins eru: Davíð Ólafsson, Sverrir Júlí- usson, Bjartmar Guðmundsson. Röð hinna landskjörnu þing- manna er þannig: 1. Sigurður Ingimundars., Alþfl 2. Birgir Finnsson, Alþfl. 3. Eðvarð Sigurðsson, Alþband 4. Guðm. I. Guðmundss. Alþfl. 5. Ragnar Arnalds, Alþbandal. 6. Davíð Ólafsson, Sjálfstfl. 7. Sverrir Júlíusson, Sjálfstfl. 8. Bjartmar Guðm.ss., Sjálfstfl. 9. Jón Þorsteinsson, Alþfl. 10. Geir Gunnarsson, Alþbandal 11. Matthfas Bjarnas., Sjálfstfl.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.