Vísir - 17.08.1963, Side 15
VÍSIR . Laugardagur 17.
rm—iimnii----
75
Konan, sem ekki brást
FRAMHALDSSAGA EFTIR MARY RICHMOND
Nick horfði á fallegu, ungu kon-
una í hvíldarstólnum, og veikt bros
lék um varir hans. Veslings litla
stúlkan, hugsaði hann, hún var enn
dálítið rugluð eftir allt sem gerst
hafði, og það var von.
Blanche langaði sárt til þess að
spyrja hann um dálítið en var samt
hrædd við að gera það.
— Þú ert ekki formlega gift mér
að brezkum lögum, sagði hann
rólega, en rússneska hjónavígslan
hefur samt sitt gildi. En ég sting
upp á því, að við kippum þessu
í rétt horf fyrr en seinna. Ég
ætla að fara með þig til Englands
og ég ætla ekki að láta neinn segja
að ég ferðist með ástmey minni.
— Þú getur ekki meint, að þú
viljir taka mig þér fyrir konu.
Hún lagði hendur yfir augu sín
til þess að hann sæi ekki það, sem
tillit hennar mundi gefa til kynni.
O, vertu nú svo væn, að... þú
mátt ekki halda, að þú sért skuld-
bundinn til að gera neitt vegna
þess, að þú gekkst að eiga mig í
Kína, það var bara til að bjarga
mér, og ég er þér þakklát, svo
hjartanlega þakklát, en þú þarft
ekki að fórna þér...
— Og hvers vegna skyldi það
vera fórn af minni hálfu að eiga
þig fyrir konu?
En það hlýtur það að vera, fyrir
mann eins og þig, þú — hvað
gæti ég verið manni eins og þér —
eða neinum, nema kannski börn-
■unum, ef Dorothy giftist aftur.
— Og hvað ætlarðu þér að gera?
spurði Nick.
— Ég — ég fer heim til Eng-
lands og reyni að fá mér eitthvað
að gera — og stofna heimili fyrir
bömin. Ef Dorothy giftist aftur
myndi hún og maður hennar
kannski styðja mig eitthvað vegna
þess að ég tæki að mér börnin,
þar til ég vinn mér nóg inn sjálf ...
— Og ég verð þá víst að á-
lykta, að hjúskapur sé ekki inni-
falinn í áætlunum þínum.
— Nei, sagði hún ekkaþrunginni
röddu, mig langar ekki til að gift-
ast — neinum.
— Nei, Blanche, það er ekki satt.
Hann beygði sig niður og greip
báðar hendur hennar og horfði í
augu hennar. Hlustaðu nú á mig.
Þú átt að verða konan mín, skil-
urðu það?
— Nei, ég ... get það ekki.
— Af því að þú elskar mig ekki?
— Spurðu ekki, vertu svo vænn
■að spyrja ekki, Nick ...
— En ég verð að gera það, því
að það er svo ákaflega mikilvægt
fyrir mig að fá vitneskju um það.
Ég vil ekki þvinga þig — að ef
þú elskar mig ekki. en ég held að
þú g'erir það — er það ekki svo,
Blanche.
Hún svaraði ekki og horfði á
hann tárvotum augum.
— Já, þú elskar mig, sagði hann
ánægður á svip. Og ég elska þig.
Ég vil, að þú verðir konan mín,
Blanche. Ég get ekki hugsað mér
framtíðina án þín ... Er það starf
mitt, sem gerir þig hikandi? Ég
ætla nú að taka mér langt frí, og
ég skal lofa þér því, að ég skal
aldrei taka að sér slíkt hlutverk
sem þetta, án þíns leyfis.
Hann beygði sig niður og lyfti
henni upp og tók hana 1 fang sér
og kyssti hana löngum, heitum
kossi. Þegar hann sleppti henni /ar
hún næsta óstyrk og hvíslaði:
— Er það ekki bara vegna þess,
að þú kennir í brjóst um mig, —
vegna þess að þér finnst þú vera
skuldbundinn til...
— Elsku litli unginn minn, ég
hefi næga lífsreynslu ti lþess að
láta mér ekki detta í hug að leggja
út í hjúskap, sem byggður er á
grunni slíkrar skuldbindingar. í
mínum augum er það höfuðatriði,
ef maður biður konu að giftast sér,
að hann geti ekki lifað án hennar.
Viltu giftast mér, elsku litla Blan-
che?
— Ó, Nick ég vil það, af öllu
hjarta — og svo faldi hún andlit
sitt við barm hans.
— Og að því er tvíburana varð-
ar, sagði hann eftir dáltla stund,
þá hefi ég ekkert á móti þvl, a'ð
þeir verði hjá okkur. Við skulum
reyna að bæta þeim upp föður-
missinn — og móðurmissinn líka
mætti segja, og ala þau vel upp.
En ég vona svo sannarlega, að við
eigum eftir að eignast börn.
— Það eru víst ekki líkur fyrir
því. Læknarnir sögðu eftir að ég
hafði fengið lömunarveikina ...
— Þeim getur skjátlast, og ég er
sannast að segja sannfærður um,
að þeim skjátlast í þessu, en tím-
inn leiðir þetta í ljós, og ef það
verður ekki, verðum við að bjarg-
ast með tvíburana.
— Já, veslingarnir litlu, sagði
Blanche. Og veslings John. Ef hon-
um aðeins hefði tekist að koma
leyndarmáli Stantons i réttar hend-
ur mundi hann hafa gert úrbót
fyrir föðurlandssvik sín. En það
heppnaðist ekki og hann fór með
leyndarmálið með sér í gröfina.
— Ó-nei, það gerði hann ekki,
svaraði Nick. Ég hafði bæði hylkið
og skjölin, skilurðu. Hann hafði
sett á minnið eins og hann gat,
og hann hélt, að ég hefði eyðilagt
gögnin, en það gerði ég samt ekki.
Ég var sannfærður um, að ég gæti
ekki reitt mig á hann, svo að mér
datt sannast að segja ekki neitt
slíkt íhug. Ég kom skjölunum til
Hong Kong með Blásóley. Ég veit
að veslings Marsden var iðrun í
huga og ég hefði gjarnan viljað
sýna honum fullt traust og segja
honum hver ég var, en það gat ég
ekki — því að ef ég hefði gert það
hefði ég teflt í hættu ekki aðeins
mínu eigin lífi, heldur líka þínu
lífi, konu hans og barna, Blásóleyj-
ar, og allra, sem unnu með okkur.
Ég ætlaði að koma honum frá Kína
og hefði hann farið að mínum
ráðum hefði það tekizt og hann
verið náðaður...
— Get ég sakað sjálfa mig um,
að svona fór fyrir honum, Nick?
Ef ég hefði ekki verið með honum.
— Hefði hann farið einn mundi
hann hafa verið tekinn og yfirheyrð
ur og hans beðið það sem verra
var. Þú skalt ekki áfellast sjálfa
þig fyrir neitt, sem gerðist elskan
mín, vefðu nú handleggjunum um
hálsinn á mér og sýndu mér, að þú
elskir mig ... svona ... þetta er
betra ... elsku, litla Blanche.
ENDIR
Bifreiðasýn-
ing í dng
BIFREIÐASALAN
BORGARTÚNI 1
Símar 18085 og 19615.
f gehöi
Bílaeigsndur
Höfum rafgeymahleðslu og hjólbarðaviðgerðir. Seljum
einnig nýja ódýra hjólbarða og rafgeyma. Höfum felg-
ur á margar tegundir bifreiða. — Opið á kvöldin kl.
19—23, laugardaga kl. 13—23 og sunnudaga frá kl.
10 f.h. til 23. e .h.
HJÓLBARÐASTÖÐIN
Sigtúni 57 — Sími 38315
V.iáíDí;
VÍSIR vantar börn til blaðburðar í nokkur
hverfi í bænum. — Hafið samband við
Afgreiðsluna.
Dagblaðið VÍSIR.
Hafnfirðingar
Kaupendur Vísis í Hafnarfirði eru vinsam-
lega beðnir að gera aðvart í síma 50641 ef
vanskil verða á blaðinu.
Afgreiðslan.
F ASTEIGN AS AL AN
Tjarnargötu 14
Simi 23987
Kvöldsími 33687
R
1
LISTEM TO «E A»OTO-AWTOS!
I SPEWC. AS YOUK. KISHTFUL
CHIEF ! FO KIOT HAKA <
OUR PRIEklP’v TAKZAn!)
Tarzan er snar í snúningum og Moto menn ættu að berjast eins ségir Tarzan. höfðingi ykkar. Gerið vini okkar,
afvopnar Oda, án þess þó að gera og MENN, en ekki eins og sja- „Hlustið á mig Moto-Moto Tarzan, ekki mein“.
honum nokkurt mein. „Moto- kalar. Leggið niður spjót ykkar“, menn. Ég tala sem réttkjörinn
[?□□□□□□ □□□□□□□ □□□□&□
i Hárgreiðslustofan
> HÁTÚNI 6, sími 15493.
> Hárgreiðslustofan
[SÓLEY
[ Sólvallagötu 72.
[sími 14853.
»Hárgreiðslustofan
’ P I R O L A
[Grettisgötu 31, simi 14787.
< Hárgreiðsiustofa
[VESTURBÆJAR
i Grenimel 9, simi 19218.
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
(Maria Guðmundsdóttir)
Laugaveg 13, sími 14656.
Nuddstofa á sama stað.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÖ
Laugaveg 18 3. hæð (lyfta).
Sími 24616.
Hárgreiðslustofan
Hverfisgötu 37, (horni Klappar-
stígs og Hverfisgötu). Gjörið
svo vel og gangið inn. Engar
sérstakar pantanir, úrgreiðslur.
P E R M A, Garðsenda 21, sími ]
33968 — Hárgreiðslu og snyrti- i
stofa.
Dömu, hárgreiðsla við alira hæfi ]
TJARNARSTOFAN,
Tjarnargötu 10, Vonarstrætis-
megin Sími 14662
Hárgreiðslustofan
Háaleitisbraut 20 Sími 12614
WVWVNiVWyVAAAAAAAAAi
Bílakjör
Nýir bílar,
Commer Cope St.
BIFREIÐALEIGAN,
Bergþórugötu 12 Simar 13660
34475 og 36598.
Ódýrar
Terrylene-
buxur ó
drengi
Hagknup