Vísir - 07.09.1963, Síða 7
V í SIR . Laugardagur 7. sept. 1963.
(■HBMBœi
i tamMrrs■ wwKMg.’gWM
- n i ru
i .< v//y//A
ir «3*.
r \__________ f_________,
r\ 'V&LJ~n r1 n c±L
*n d ) „
Líðin / landsleiknum
Liðin sem leika í dag
BRETLAND
J. Martin
Winmbledon
J. Ashworth
British Navy
H. M. Lindsey
Wealdstone
M. Candey
Maidstone Utd.
í S L A N D
Sigurþór Jakobsson
KR
Ellert Schram
KR
Björn Helgason
Fram
Bjarni Felixson
KR
(eða e. t, v. á morgun) líta þannig út:
M. Pinner
Leyton Orient
R. K. Law
Wimbledon
T. Lawrence
Enfield
©
Gunnar Felixson
KR
William Neil
Queens Park
R. Townsend
Wealdstone
P. G. Buchanan
Queens Park
B. Harvey
Walthamstow Av
Axel Axelsson
Þrótti
Ríkarður Jónsson
Akranesi
Sveinn Jónsson
KR
Jón Stefánsson
Akureyri
Helgi Daníelsson
Akranesi
Árni Njálsson
Val
Lið íslands er skipað mjög góð-
um og leikvönum einstaklingum. 1
markinu er Helgi Daníelsson —
hann er rúmlega þrítugur að aldri
og hefur að baki 13 ár í markinu
í meistaraflokksleikjum. Landsleik-
irnir eru 23 og allir vita að Helgi
er geysilegur keppnismaður og á
fáa sína lika í því tilliti. Minnast
margir Helga frá leik hans gegn
írum í Dublin í fyrra. — Árni
Njálsson er hægri bakvörður liðs-
ins. Lágvaxinn, sterkur og fljótur
bakvörður, sem flestir útherjar ótt-
ast. Árni leikur nú sinn 15. lands-
leik fyrir ísland. Bjami Felixson,
sem er vinstra megin, hefur einnig
komið við sögu landsliðsins og fjór-
um sinnum hefur hann klæðzt bláu
skyrtunni með tölunni „3“ á bak-
inu. Bjarni er kappsmaður mikill
og gefur sig hvergi þótt á sé sótt.
í framvarðalínunni er fyrst fyr-
ir að finna Svein Jónsson, sem kem
ur í stað , Garðars Árnasonar.
Sveinn er mjög leikvanur maður og
ætti að gera þessari erfiðu stöðu
góð skil. Hann er ekki maður með
„yfirferð" fremur en Garðar Árna-
son, en hann „hefur höfuðið í
lagi“. Miðvörður er Akureyringur-
inn Jón Stefánsson. Hann hefur áð-
ur leikið með landsliði, kom inn í
fyrra í stað Harðar Felixsonar og
átti ágætan leik eins og*‘ menn
muna. Jón hefur undanfarið átt
mjög sterka leiki og má búast við
traustum varnarleik á morgun. —
Björn Helgason, vinstri framvörð-
ur, lék til skamms tíma með Isa-
firði en flutti til Reykjavíkur í vor
og leikur nú með Fram. Hann á
einn landsleik að baki, lék gegn
Norðmönnum 1959. Björn er róleg-
ur og fer ekki hratt yfir, hugsandi
leikmaður og byggir vel upp. Báð-
ir, hann og Sveinn Jónsson, eiga
til að fara of framarlega, nokkuð
sem ekki má koma fyrir á morgun,
það gæti haft afdrifaríkar afleið-
ingar.
Framlínan hjá landsliðinu ætti að
geta verið sterk, ef menn komast
á annað borð í gang. Hægri útherji
er Axel Axelsson, — eini nýliði
liðsins, 21 árs gamall og mjög snjall
leikmaður, fljótur og mjög laginn
að fást við knöttinn. Hann leikur
við hlið fyrirliða landsliðsins, hins
ódrepandi Ríkharðar Jónssonar sem
er hægri innherji. Ríkharður hefur
geysimikla reynslu í landsliðið, —
hefur komið við sögu í flestöllum
landsleikjum íslands og lengst af
verið fyrirliði. Ríkharður hefur til
þessa ekki gengið heill til skógar,
slæm meiðsl virtust lengi vel ætla
að gera fót hans lamaðan, en með
þrautseigju sinni tókst honum að
vinna bug á meininu með hjálp
góðra manna hérlendis og erlendis.
Ríkharður leikur á morgun sinn
29. landsleik í knattspyrnu, — of
sjaldan hefur hann getað fagnað
sigri með liði sínu, en vonandi
verður það á morgun. Miðherji
landsliðsins er Gunnar Felixson,
markheppinn og marksækinn, fljót-
ur og úrræðagóður leikmaður. —-
Vinstri innherji er félagi Gunnars,
Ellert Schram, en Ellert hefur sýnt
afburðagóða leiki undanfarið og er
ekki að efa að mikið mun á hann
reyna í leiknum. Ellert er 23 ára
gamall og frægur fyrir góða skall-
tækni. Hann leikur nú 6. landsleik
sinn. Sigurþór Jakobsson leikur á
vinstri kanti. Hann er að mörgu
leyti líkur Axel Axelssyni h„ úth.
Hár og grannur, fljótur og Ieikinn
leikmaður. Sigurþór lék sinn fyrsta
landsleik í fyrra, en leikur hans
nú er sá þriðji í röðinni. Það er
heldur ekki langt síðan hann hóf
að leika með meistaraflokki KR,
það var í fyrravor.
Við skulum því vona allt hið
bezta, þegar við förum inn í Laug-
ardal til að sjá landsleikinn. Það
getur margt gerzt. Kannski sjáum
við gleðilegan sigurleik, e. t. v.
verður þarna enn einn tapleikur-
inn. Við skulum fjölmenna og veita
olckar mönnum lið og hvetja þá
til hins ítrasta.
Hinn 25. ágúst s.l .var opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins sýning j
á 27 málverkum eftir Gunnlaug Blöndal listmálara. Er sýningin i
haldin í tilefni af því, að hefði listamaðurinn lifað, hefði hann .
orðið sjötugur þann dag. Myndimar eru allar í einkaeign, og
hafa sumar þeirra aldrei sézt á sýningu áður. — Nú eru að verða ‘
siðustu forvöð að sjá sýninguna, því að henni lýkur á sunnudag. (
Sýningin er opin frá kl. 14—22. Myndin er af ekkju Gunnlaugs, I
frú Elísabetu Blöndal, hjá myndinni „Við spilaborðið".
Sieimsendingar|t|óitusta
Eimskipafélagið hefur samið við
bifreiðastjórana Hallgrím Jónsson
og Einar Guðmundsson, hjá Sendi-
bíiastöðinni h.f., að taka að sér
heimkeyrslu minni vörusendinga
(allt að 500 kg) úr vörugeymsluhús
um félagsins til innflytjenda. Þjón-
usta þessi er látin í té frá og með
15. þ.m. og stendur til boða öllum
innflytjendum, er vilja notfæra sér
hana.
Gjald fyrir heimkeyrslu hverrar
sendingar er sem hér segir: Send-
ingar allt að 100 kg. Kr. 65,00, 100
-200 kg kr. 85,00, 200-300 kg
kr. 110,00, 300-500 kg kr. 140,00
og innheimtir bifreiðastjóri gjaldið
um leið og móttakandi tekur við
vörunni. Ef töf verður á því, að
móttakandi geti veitt sendingu við
töku, innheimtir bifreiðastjórinn
aukagjald fyrir biðtímann sam-
kvæmt gjaldskrá sendibílastöðv-
anna.
Óskir um heimsendingu á að til-
kynna aðalskrifstofu Eimskipafé-
lagsins (afgreiðslunni) hverju sinni
og skal frumrit farmskírteinis af-
hent um leið. Varan verður síðan
keyrð til móttakanda innan þriggja
daga.
í. s. í.
LANDSLEIKURINN
ísland
Bfetland
fer fram á íþróttaleikvanginum í Laugardal íí dag,
Laugardag, 7. september og hefst kl. 4 eftir hádegi.
Dómari: illing Rolf Olsen fró Noregi
Forsala aðgöngumiða hófst í gær í sölutjaldi okkar
á Ióðinni Austurstræti 1.
— Forðist troðning — kaupið miða tímanlega. —
Síðast seldust öll sæti í forsölu.
Knattspyrnusamband íslands.
.S.Í.
|