Vísir - 07.09.1963, Page 9

Vísir - 07.09.1963, Page 9
V1SIR . Laugardagur 7. sept 1963, 9 Kenneth sést hér vinna viö reytingarvélina. Jón bóndi Guðmundsson sést hér rota kjúkling með herlögreglukylfu. Ljósm. Vísis, B. G. 100 kjúklingum síátraB á klst. Fyrir um það bil 17 árum var skýrt frá því í Vísi, að stofnað hefði verið nýtízku hænsnabú að Reykjum í Mosfells- sveit. Var hér um að ræða hlutafélag, en fyr- ir nokkrum árum keypti Jón bóndi Guðmunds- son allt búið og fyrir skömmu hóf hann rækt- un holdafugla, sem ger- ast æ tíðari á matarborð um okkar og matseðlum veitingahúsanna. — Og ekki alls fyrir löngu setti Jón upp nýtízku- legt sláturhús, sem mikla athygli hefur vak- ið. 1 gær brugðum við okkur upp að Reykjum í Mosfellssveit og vildi svo vel til, að slátrun stóð yfir, er okkur bar þar að garði. Stuttu eftir að við komum var gert hlé á slátruninni og við notuðum því tækifærið og ræddum við Jón um holdafugla ræktina og fleira. Byrjaði 1946. — Hvenær tók búið til starfa Jón? — Upphaflega var stofnað hér að Reykjum hlutafélag um hænsnaræktarbú til framleiðslu á ungum og eggjum og var fað- ir minn Guðmundur Jónsson, meðal stofnenda. Þegar búið var stofnað var ég við nám erlendis, en kom hingað upp sumarið eft- ir fullur af áhuga á alifugla- rækt. Tók ég þá við ungafram- leiðslu fyrir eggjaframleiðend- ur og meiningin var að reyna að halda við góðum kynstofni. Eitt af verstu vandamálunum á þessum tfmum var að kyngreina ungana. Fór ég til Svíþjóðar til að kynna mér þetta. — Þetta tókst, og óneitanlega var hér um byltingu að ræða f þess- um atvinnuvegi. Erfið ár fyrir hænsnræktarbúið — Nú, svo fljótt sé farið yfir sögu. Árin frá 1955 til 1959 urðu nokkuð erfið fyrir búið og í sannleika sagt stóð það á tæpu að búið bæri sig. Það varð úr að meðeigendurnir buðu mér búið til kaups og tók ég þvf bðði. Þá voru hér 800 hænsni og fljótlega fjölgaði ég þeim upp í 1000. Mér varð ljóst að ekki var hægt að reka hænsna- búið eins og verið hafði, því að þetta hafði verið nokkurs kon- ar vertfð frá febrúar og fram í júlf. Varð það því úr að ég fór út í holdafuglarækt og skap- aði því mér meira öryggi. Árið 1961 byrjaði ég svo að undir- búa byggingu uppeldishúss og sláturhúss. Næst sýnir Jón okkur upp- eldishúsið, sem er stór og glæsi leg steinsteypubygging. Fyrst er komið inn f stóran sal, þar sem útungunin fer fram. Eftir að henni lfkur eru ungarnir færðir inni í stórt herbergi með mjög fullkominni loftræstingu og síðan yfir í annað herbergi eftir því sem þeir eldast. 100 ungum slátrað á klukkustund Brátt er komið að því að Jón fari að slátra, svo við höldum inn í sláturhúsið sem er í ein- um enda byggingarinnar. Salur inn er bjartur og þrifalegur. í Ioftinu er færiband, sem krókar hanga á, en fyrir neðan standa vélar og flest það sem til verk- unar þarf. — Vélarnar eru sett- ar í gang og fimm manns raða sér kringum færibandið og taka til starfa. Fyrsta hænan er tek- in úr strigapoka. Jón reiðir her- löreglukylfu til höggs. Kjúkl- ingurinn steinrotast, síðan er hann hengdur upp á færiband- ið og skorið er á hálsæðarnar. Eftir að því líkur fer kjúkling- urinn á færibandi eftir blóð- rennu, þvf næst niður f ker fullt af 52° heitu vatni, þar sem hann „kalónast". í kerinu er gegnum rennsli af heitu vatni. Eftir að kjúklingurinn hefur verið í kerinu í 3 mínútur, er fuglinn settur í reytingarvélina. í henni eru rúllur sem gúmmffingur eru á. Snúast rúllumar hvor á móti annarri og er fuglinum stungið inn á milli. Eftir það er kjúkl- ingnum stungið á færibandið. Og næst eru innyflin tekin úr. Þegar því er lokið er kjúkling- urinn tekinn og snöggkældur. Að síðustu er kjúklingnum stungið inn f trekt og síðan er honum pakkað inn f snyrtilegar plastumbúðir. — Hvað eru kjúklingarnir yf- irleitt gamlir, þegar þeir eru teknir til slátrunar? — Svona um það bil 10 vikna. — Og hvað er hver kjúkling- Framh. á 10. síðu. Að síðustu er kjúklingunuin pakkað inn í plastumbúöir, Heimsókn oð Reykjum, þar sem Jón Guðmundsson rekur fuglakynbótabú

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.