Vísir - 07.09.1963, Side 16
VISIR
Laugardagur 7. sept. 1963.
Orsakír
flugslyssins
Rannsóknarnefnd flugslysa í
Svisslandi hefur upplýst, að
skemmdir á hjólaútbúnaði hafi ver
ið orsök flugslysins fyrir þremur
dögum, þegar svissnesk Caravelle-
farþegaþota hrapaði átta mínútum
eftir að hún hóf sig á loft frá
ZUrich-flugvelli. Nefndin komst að
því, að hjólaútbúnaðurinn hafi bil-
að af því að á flugbrautinni fund-
ust gúmmíhlutar og glýcerin úr
vökvaútbúnaði. Ennfremur hefur
rannsókn leitt i ljós, að öryggis-
reglur voru brotnar, þegar flugvél-
in hóf sig til flugs. Skyggni var
aðeins 180 metrar, en samkvæmt
reglum verður það að vera 200
metrar til þess, að flugvél megi
fara af stað.
Rógskrifum um Búnuðurbunkunn hnekkt:
Hagur bankans fer sífellt batnandi
Bankastjórar Búnaðarbankans
sendu Vísi í gær greinargerð
um hag bankans, sem rituð er
í tilefni heiftarlegra árása
Frjálsrar þjóðar á bankann, sem
birzt hafa f sfðustu tveimur
tölublöðum blaðsins. Kemur
þar skýrt í ljós, að hagur bank
ans er góður og hefur mjög
farið batnandi sfðustu árin.
Greinargerð bankastjóranna
fer hér á eftir.
í tveimur síðustu tölublöðum
vikublaðsins Frjáls þjóð er Bún-
aðarbanki Islands borinn ýms-
um sökum. Uppistaðan í fyrri
grein blaðsins er kærubréf frá
manni, sem telur sig hafa lent í
höndum okrara. Það er að sjálf
sögðu ekki síður áhugamál Bún
aðarbankans en Frjálsrar þjóð-
ar, að það mál upplýstist til hlít
ar, þótt umræddur lögfræðingur
hafi aldrei haft víxla- eða verð
bréfaviðskipti við Búnaðarbank
ann.
Er eðlilegt og nauðsynlegt,
að það mál verði rannsakað af
ákæruvaldinu og mun bankinn
ekki eiga aðild að blaðadeilum
um það.
Óumflýjanlegar
leiðréttingar.
í síðasta blaði Frjálsrar þjóð-
ar er kæra verkamannsins hins
vegar horfin í skugga heiftar-
legra árása og rógsskrifa um
Búnaðarbanka íslands. Þar sem
þau skrif eru sýnilega til þess
ætluð að rýra álit bankans og
traust hjá þeim tugþúsundum
Þóttist eiga hjúskaparrétt
Árásarmálið í hótelherberginu, að vísu fyrir sig að hann hafi tap- til ráðstafana sem brutu í bág við
sem Vísir skýrði frá nú um miðja að minni og fyrir bragðið liggur lög og venjur.
vikuna hefur verið til rannsóknar
hjá rannsóknarlögreglunni undanfar
ið og verður nú sent Saksóknara
ríkisins til endanlegrar ákvörðun-
ar.
Að því er rannsóknarlögreglan
tjáði Vísi f gær virðist málið —
samkvæmt vitnaleiðslum — liggja
ljóst fyrir. Árásarmaðurinn ber þvf
BLAÐSÖLUBÖRN
VISIR greiðir kr. J,00
i sölulaun fyrir hvert
selt blað
ekki fyrir játning af hans hálfu.
Hann hefur hins vegar viðurkennt
að þegar hann verði mjög drukk-
inn, eins og hann var nú, þá kom-
ist hann úr „sambandi" eins og
það er orðað og veit þá ekki hvað
gerist.
Sami maður hefur jafnframt gef-
ið í skyn við yfirheyrslu að kona
sú, sem hann var með umrædda
nótt, og gift er öðrum manni, hafd
verið fús til að skrásetja sig sem
kona hans í gestabók hótelsins.
Þar af leiðandi hafi hann líka talið
sig eiga einskonar hjúskaparrétt
eftir að inn f herbergið kom. Við
andmæli hennar á þeim rétti telur
hann lfklegt að hann hafi snúizt
reiður við og gripið þá jafnframt
manna, sem við hann skipta, tel
ur bankastjórnin óumflýjanlegt
að leiðrétta staðhæfingar blaðs-
ins um hag bankans og við-
skiptahætti almennt. I sambandi
við skrif blaðsins um einstök
viðskipti bankans nýtur blaðið
þess, að bankanum er að lögum
óheimilt að gefa nokkrar upp-
lýsingar um viðskipti einstakra
aðila við bankann. Þeim róg-
skrifum blaðsins verður þvf eigi
af bankans hálfu svarað opin-
berlega.
I umræddri grein Frjálsrar
þjóðar eru þær fáránlegu stað-
hæfingar fram bornar, að spari-
sjóðsdeild bankans sé „gjald-
þrota“, að bankinn „fleyti sér á
okurlánum frá Seðlabankan-
um“, að bankinn kaupi „við-
stöðulaust" „vafasama papp-
fra“, að bankinn kaupi milljón-
um saman skuldabréf með 6-7%
vöxtum, og að verðbréfaeign
bankans sé „ískyggilega mikil“.
Allt eru þetta ákæruatriði,
sem sýndu svo botnlausa óreiðu,
ef sönn væru, að ætti að varða
tafarlausum stöðumissi stjóm-
enda bankans og opinberri rann
sókn.
Sem betur fer er hér um svo
dæmalausar fjarstæður að ræða,
að einhver annarleg sjónarmið
hljóta að stýra penna manna,
sem slíkar fullyrðingar láta frá
sér fara um opinbera peninga-
stofnun, sem þeir hljóta að
skilja að mikið veltur á að njóti
almenns trausts.
Um síðustu áramót var skuld
laus eign sparisjóðsdeilrar Bún
aðarbankans rúmar 28 millj. kr.
og bankans í heild 60 millj. kr.,
auk fasteigna.
Engin yfirdráttar-
skuld 1962.
Fyrir nokkrum árum lenti
bankinn f greiðsluörðuleikum,
sem er ekkert óalgengt um
banka hérlendis . Va r um þá
skuld samið með mun lægri
vöxtum en yfirdráttarvextir
Seðlabankans þá voru. Var nettó
skuld bankans við Seðlabank-
ann f árslok 1960 36 millj. kr.
Er þá ekki frádregin inneign
Framh. á bls. 6
Veríur landsleiknum
frestað tíl morguns?
Vera má að Iandsleik Stóra
Bretlands og Islands verði frest
að um einn sólarhring og fari
fram á morgun. Ákvörðun um
þetta mun verða tekin fyrir há-
degi f dag á fundi KSÍ, en ástæð
an er sú, að veðurguðimir voru
ekki mjög hliðhollir knatt-
spymukeppni í gærdag, eins og
menn vita, og að auki kom
brezka liðið mjög seint til
Reykjavíkur, áætlunarfluginu
frá Glasgow seinkaði og liðið
kom ekki fyrr en seint í nótt á
Reykjavíkurflugvöll. Eru menn
því beðnir að veita athygli aug-
lýsingum þetta varðandi í hádeg
isútvarpi í dag. Veðurstofan
tjáði okkur seint í gærkvöld, að
ekki væri von á veðurbreytingu
f dag.
Ekki er vitað með fullri vissu
hvemig iið Breta lítur út, þvf vel
getur verið að hinn frægl markvörð
ur liðsins, MIKE PINNER frá Ley-
ton Orient verði ekki með, — á-
stæðan er sú að hann mun hafa
leikið með Leyton gegn Plymouth
f vikunni án leyfis og gegn vilja
Mr. Creek, fyrirmanns OL-Iiðs
Breta. Ekki liggja staðreyndir fyrir
um þetta, svo ekki skal fullyrt
hvort Pinner sé í hópi landsliðs-
manna eða ekki, — en í öllu faili
mundi fjarvera hans létta fram-
linumönnum okkar leiðina með bolt
ann í marknet Breta!
Ovíst
um
úrslit
í gær fór fram almenn .leynileg
atkvæðagreiðsla i félögum háseta,
stýrimanna og vélstjóra á kaup-
skipaflotanum um samkomulag
samninganefnda þessara aðila og
skipafélaga.
Vel sóttur fundur háseta var
haldinn í Iðnó f gær og yfirmenn
héldu sína fundi á Bárugötu 11.
Þegar Vfsir fór í pressuna
snemma í gærkveldi voru úrslit
ekki kunn. Beðið var eftir skeyt-
um um atkvæðagreiðslur um borð
í þeim skipum sem eru úti á sjó.
En talið var mjög óvíst hvort sam-
komulag samninganefndanna yrði
staðfest, a. m. k. af hásetum.
Rafmagnsskömmtun úAusturlandi
Lyndon í
Svíþjóð
Lyndon B. Johnson varafor
seti Bandarikjanna ferðaðist
frá einum stað til annars í Sví
þjóðarheimsókn sinni. Hér er
hann að aka frá þyrilvængju
á næsta áfangastað. Hann er
hress og glaður að sjá. Allmargt
manna fylgist með varaforset
anum. (Mynd USIS).
Rafmagnsskömmtun
hefur nú verið tekin upp
á Austurlandi og stafar
hún af vatnsþurrð í
Grímsá. Er ástandið svo
alvarlegt þarna, að orku
framleiðslan í Grímsár-
virkjuninni er nú innan
við 18 þúsund kw-stund
ir á sólarhring, en hún
var gerð fyrir 60 þús-
und kw-stundir. En raf-
orkuþörfin er um 70
þús. kw-stundir.
Til uppbótar eru nú allar vara
aflstöðvar í gangi. Eru það dísil
stöðvar á Seyðisfirði, Neskaup-
stað og Fáskrúðsfirði og lítil
vatnsaflsstöð í Fjarðará i Seyð-
isfirði. Þessar varastöðvar fram
leiða 36 þús. kw-stundir.
Vatnsleysið stafar bæði af
snjóleysi s. 1. vetur og þurrkum
í sumar. Til þess að spara raf-
magnið. er Grímsárvirkjunin
ekki látin ganga frá miðnætti
til kl. 7 að morgni, og þá reynt
að safna vatninu saman. Ef ekki
fer að rigna, er hætt við að taka
verði upp enn strangari raf-
magnsskömmtun.