Vísir - 11.09.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 11.09.1963, Blaðsíða 1
VISIR fondi lélegm Togaramir eru nú famir að hef ja sðluferðir til Bretiands og Þýzka- lands. Ekki em sölur.nar þó góðar. Fiskurinn var veiddur á heimamið- um og er afli rýr, svo að skipin Terða að sigla oftast með 100 til 150 tonn. Þá hefur veðrátta verið heit úti og er fiskneyzla þá yfir- leitt minni. Við Iöndun á fiskinum hefur verið mannekla. Hefur verið óvenjulega mikið um það, að hluti aflans seljist elcki, einkum karfinn, og það, þó fiskurinn væri í góðu á- sigkomulagi. Mest um þetta var þegar Marz kom til Þýzka- lamds með 215 tonn, mest karfa, og seldust þá ekki 74 tonn. Fisksölurnar hafa verið sem hér segir: í Þýzkalrndi: Freyr 21. ágúst 208 tonn, 167 þús. mörk. Fylkir 26. ágúst 138 tonn, 104 þús. mörk. Hvalfell 27. ágúst 138 tonn, mest karfi, 85 þús. mörk. Röðull 27. ágúst 164 tonn, 117 þús. mörk. Pétur Halldórsson 28. ágúst 140 tonn, 98,6 þús. mörk. Oranus 29. ágúst 199 tonn, mest karfi, 33 tonn óseld, 98 þús. mörk. Jón Þorláksson 30. ágúst 142 tonn, mest karfi, 36 tonn óseld, 60,4 þús. mörk. Marz 2. sept. 215 tonn, mest karfi, 74 tonn óseld, '100 þúsund mörk. Haukur 3. sept. 90 tonn, 74 þús. mörk. Víkingur 4. sept. 180 tonn, 113 þús. mörk. Júní 5. sept. 160 tonn, mest karfi, 52 tonn óseld, 76 þús. mörk. Gylfi 6. sept. 116 tonn, 85 þús. mörk. I Bretlandi: Skúli Magnússon 112 tonn, 6,841 pund. Geir 187 tonn, 13,200 pund. Þorkell máni 180 tonn, 14 þús. pund. Góð sala í morgufl Skömmu fyrir hádegi frétti Vísir, að togarinn Askur hefði náð góðri fisk sölu í Cuxhaven. Seldi hann 118 tonn á 107 þús. mörk. Framúrakstur hefur verið hannaður á Reykjanesbraut á Kópavogshálsi á 1200 metra löngum vegkafla, eða sem næst frá gatnamótum Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar og rett suður fyrir mót Fífuhvamms- vegar og Reykjanesbrautar. I gærmorgun, þegar ökumenn áttu leið um Reykjanesbraut yfir Kópavogsháls, sáu þeir ný umferðarskilti sem komið hafði verið upp báðum megin við hálsinn. Þessi skilti hafa ein- kennin B 4 í nýju umferðar- merkjunum og tákna bann við framúrakstri. Þau eru þannig gerð að tveir bílar eru málaðir í kringlóttan feld með rauðum jaðri, en hægri bíllinn er yfir- strikaður með rauðu striki og nær strikið svo til yfir þvert merkið. Þá hefur verið komið upp ferhyrningi fyrir neðan kringl- ótta merkið og í þann ferhyrn- Frh. á bls. 5. Ný umferðarskilti eru rism upp f Kópavogi. Framúrakstur bannaður! Harkalegur árekstur 1 nótt var ekið harkalega á mannlausa og kyrrstæða bifreið á Bergþórugötu, en sá sem árekstr- inum olli ók brott án þess að til- kynna atburðinn. Að því er rannsóknarlögreglan tjáði Vfsi í morgun hefur árekst- urinn skeð einhvern tíma á tíma- bilinu frá kl. 23.30 í gærkveldi til kl. 7.30 í morgun. Á þessum tíma stóð sex manna Chevroletbifreið — R 3557 — blá að framan, en kremuð að ofan og aftan, fyrir Framh. á bls. 5. 4 Bjórinn hindrar of- drykkju. 7 Kledfarvatn sem veiðivatn. — 8 íslenzkur nytja- skógur. _ 9 Keppti f fþróttum í 40 ár. Rætt við Glsla Sigurðsson. BRETAR HYSSJAST NA SKREIBARMÖRKUOUHUM Á grundvelli nýrrar uppfinníngar Hið mikilsvirta Lund- únablað Financial Times skýrir frá því 30. ágúst að nú séu góðar horfur á því að Bretar geti unnið ^ mikilvæga skreiðarmark aði, sem Norðmenn og íslendingar hafi hingað til verið nær einráðir Hin nýja þurrkunaraðferð er fólgin í því, eftir því sem blaðið skýrir frá, að hitastig loft- straums er smám saman hækk- að, en straumurinn látinn leika um fiskinn. Verður þá bezta skreið úr blautum fiski á 30 stundum. Vinna má fiskinn þannig annað hvort í landi eða um borð í togurunum. Blaðið segir að skreiðarmark- aðurinn sé mjög stór. Þannig kaupi Nígeria skreið fyrir meira en 8 millj. sterlingspund á ári. En fram að þessu hafi Norð- menn og íslendingar verið svo til einráðir á skreiðarmörkuð- Vísi hafa borizt fleiri brezk blöð i hendur með greinum um þessa nýju uppfinningu, sem ljóst er að brezki fiskiðnaðurinn bindur miklar vonir við. Islemkir öryggisverSir tilSÞ um. Byggist þetta á nýrri upp- finningu, sem gerir kleift að þurrka fisk á 30 klukkustund- um, sem venjulega tekur 6 vik- ur í skreiðarhjöllum. Aðferð þessi hefir verið fundin upp af rannsóknarstöð brezka iðnaðar- málaráðuneytisins, Torry Re- search Station, í samvinnu við Yarrow & Co £ Glasgow. Þrír lögregluþjónar úr Reykja- víkurlögreglunni hafa verið ráðnir sem öryggisverðir í aðalstöðvum Sameinuðuþjóðanna f New York. Eru þeir allir farnir utan og hafa þegar tekið til starfa. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íslenzkir lögregluþjónar hafa verið ráðnir til öryggisvörzlu hjá Samein i uðu þjóðunum, en það eru mörg ár | liðin frá því að það var. í sumar var íslenzkum lögreglu- þjónum — þrem talsins — gefinn kostur á að sækja um starf öryggis varða hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Voru stöðurnar auglýst ar innbyrðis meðal lögreglumanna og yfirménn lögreglunnar völdu að því búnu úr þeim umsóknum. Fyrir valinu Urðu þrír gamal- kunnir lögreglumenn í Reykjavík, þeri Axel Kvaran, Halldór Einars- son og Hilmar Þorbjörnsson. Þeir fóru utan rétt fyrir síðustu mánaða mót og eru þegar teknir við starf- inu. Ráðningartími þeirra er allt að einu ári. Þremenningarnir, sem utan fóru, eru allir fjölskyldumenn, en fóru þó einir síns liðs, enda nokkrum erfiðleikum bundið að útvega íbúð ir fyrir fjölskyldur, ekki síður í New York heldur en hér.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.