Vísir - 11.09.1963, Blaðsíða 3
Ví SIR . Miðvikudagur 11. sentemoer
raiiHSi
:a
3
Snemma í gærmorgun safn-
aðist hópur manna, þeirra á
meðal nokkrir lögregluþjónar,
saman í Vatnsmýrinni, rétt fyr
ir neðan Háskólasvæðið. Þeir
voru að vinna að óvenjulegu
björgunarstarfi. Þeir höfðu með
sér kaðla og gengu þar að ein-
um skurðinum, skammt frá
nýju andatjöminni.
Þar lá hestur ofan í skurð-
inum. Hann var orðinn blautur
og kaldur, hann var sokkinn
svo djúpt niður f dýið, að vatnið
náði yfir herðakambinn. En
skurðurinn var sv,o þröngur, að
vesalings skepnan gat ekki
komizt af sjálfsdáðum upp. Var
þó sýnilegt að hún hafði brot-
izt þar um, en var nú mjög af
henni dregið.
Mennirnir, sem þarna komu,
unnu að þvf að koma köðlum
undir kvið hestsins og drógu
hann sfðan upp. Ljósmyndari
Vísis kom þar að og tók mynd-
irnar, sem birtast í myndsjánni
í dag.
Hestur þessi heitir Kolur og
er sjö vetra. Hann er eign Guð-
jóns Teitssonar, forstjóra Skipa
útgerðarinnar, annar af tveim-
ur hestum hans, sem geymdir
voru þarna. Þriðji hesturinn,
eign annars manns, var einnig
hafður í geymslu í girðingu.
Guðjón er vanur að aka þarna
framhjá á morgnana til að sjá,
mm
Bjórinn —
Famh. af 4. síðu.
flösku á æfi sinni, hvað þá
drukkið bjór. Að vfsindamenn
og læknar Svþjóð og öðrum
löndum skuli vera á annarri
skoðun en eitthvert kvenfélag
úti á annesjum virðist ekkert
hafa að segja.
En öllu má ofgera og fáir
óska sér sjálfsagt þýzkrar bjór-
menningar til íslands. Er ölið
þjóðardrykkur og neyzlan næst
hæst í heimi. Má jafnvel sjá
heilu fjölskyldurnar sitja á
krám kvöld eftir kvöld þamb-
andi björ. Hin öfgastefnan er
að banna bjórinn.
Bjórfrumvarpið, eins og það
var lagt fram á alþingi, gerði
ráð fyrir því, að áfengi bjórinn
yrði aðeins seldur fullorðnu
fólki eins og annað áfengi. Er
það sama og framkvæmdin er
í Svíþjóð. Þar er bjórinn alls
ekkert vandamál, heldur meðal
til þess að hemja ofdrykkju og
mjög áhrifaríkt meðal til þess.
V^onandi opnast augu ráða-
’ manna okkar fyrir því, að
ekkert er áunnið með afkára-
legum bönnum, sem ekki ná til-
gangi sínum Það er lítill til-
gangur í því að banna bjór, en
leyfa brennivfn og ætla með því
að hemja drykkjuskap. Það er
þvert á móti hreina sjálfsmorð-
ið fyrir unglinga, sem af kjána-
skap álpast út í það að neyta
áfengra drykkja. Menn ættu að
kynna sér nánar reynslu ann-
arra þjóða í þessum efnum, sér-
staklega Svíþjóðar, sem hefur
lagt mikið í rannsóknir áfengis-
vandamála. Sú kynning vanda-
málanna hefur án efa aðra nið-
urstöðu en ályktun einhvers fé-
lagsskapar, sem ekkert vit hef-
ur á málinu. Því meiri ábyrgð
hvílir á þeim mönnum, sem af
hjartans sannfæringu berjast
gegn áfengisbölinu og ættu að
vita meira um þessi má! en
framkvæmdir þeirra sýna.
Að lokum vil ég vitna í um-
mæli dr. Konrads Adenauer,
kanslara Þýzkalands, úr löngu
sjónvarpsviðtali, sem sjónvarp-
að var um öll Bandaríkin: „Þið
Bandaríkjamenn ættuð að tala
varlega um lýðræði. Ekki fyrir
svo löngu síðan var algert vín-
bann í landi yðar. Það kalla ég
ekki lýðræði að geta ekki unnt
þreyttum manni þess að fá sér
einn lítinn eftir erfiðan
dag ...“ Þá vitum við það.
G. H. Ó.
hvort hestamir em á sfnum
stað. En þennan morgun tók
hann eftir því, að Kolur var
horfinn. Hélt hann í fyrstu, að
hann hefði strokið, en fór samt
inn í girðinguna, og kom að
honum niðri f skurðinum.
Eftir að Kolur hafði verið
dreginn upp, var reynt að hlúa
að honum. Hann fékk brauð-
mola og yfirbreiðsla var sett
á hann til að verja hann kulda.
MYNDIRNAR.
Á efstu myndinni sést hest-
urinn þar sem hann liggur f
skurðinum. Verið er að koma
köðlum undir hann.
Á næstu rriynd er verið að
draga hann upp og hesturinn
að koma fyrir sig fótunum.
Á neðstu myndinni er eigand
inn að gefa honum brauðmola.