Vísir - 11.09.1963, Page 13
VÍSIR . Miðvikudagur 11. septcmber 1963.
13
}
!
l
*
Burstasett
frá kr. 36.00.
Belair steinpúður
Belair varaliturinn nr. 7
kominn aftur.
SNYRTIVÖRUBÚÐIN
Laugavegi 76 . Simi 12275
HÚSNÆÐI - ÓSKAST
Vil táka 3—5 herb. íbúð á leigu frá 1. okt. Fyrirframgreiðsla. Sími
14925 og 17685.______
ATVINNA - ÓSKAST
Stúlka vön afgiéiðslustörfum óskar eftir atvinnu helzt f snyrtivöru-
verzlun. Hef góð méðmæli. Tilboð merkt „Atvinna 305“ sendist afgr.
Visis, serti fyrst.
HÚSNÆÐI - ÓSKAST
2 unfar stúlkur utan af landi óska eftir herb. og aðgangi að eldhúsi.
Uppl. í síma 37234.
STÚLKUR ÓSKAST
Okkur vantar stúlkur til ýmissa starfa nú þegar eða sem fyrst. Uppl.
f sfmum 35133, 38443 og 50528 eftir kl, 7 e. h. Hrafnista DAS.
ÍBÚÐ - ÓSKAST
Ung, reglusöm hjón óska eftir 2—3ja herb. fbúð frá 1. okt. Sfmi 20544.
HÚSNÆÐI - ÓSKAST
Stúlku með 3ja ára barn vantar herbergi með eldunaraðstöðu, eða litla
fbúð, nú þegar eða 1. okt. Uppl. í síma 17961 eftir kl. 7. í kvöld.
LAGHENTUR MAÐUR
Laghentur maður óskast, stöðug vinna. Sfmi 13492.
JÁRNSMIÐIR - ÓSKAST
Jámsmiðir óskast. Vélsmiðjan Jám h.f., Síðumúla 15, sfmar 35555 og
34200.____________________________________
HLIÐGRINDUR - SNÚRUSTAURAR
Smfðum hliðgrindur, snúmstaura og ýmiss konar barnaleiktæki,
rólur, sölt, rennibrautir o. fl. — Málmiðjan Barðavogi 31, sfmi 20599
ÍBÚÐ - ÓSKAST
Eldri kona óskar eftir lítilli íbúð, eitt eða tvö herbergi og eldhús.
Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 32057.
FATAEFNI - NÝKOMIN
Ódýr hollenzk fataefni nýkomin. Fljót afgreiðsla. — Hreiðar Jónsson
klaeðskeri, Laugavegi 18, 3. hæð. Gengið inn frá Laugavegi.
ÞVOTTAHÚSIÐ LAUG H.F.
Laugavegi 48 B, sfmi 14121, þvær þvottinn fyrir yður. Tökum skyrtur,
blautþvótt, stykkjaþvott og frágangstau. Vönduð vinna Fljót afgreiðsla.
Saékjum, sendum. Þvottahúsið Laug h.f., Laugavegi 48 B, sfmi 14121.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI - TIL LEIGU
neðarlega við Laugaveg, 3—4 herbergi til Ieigu. Þeir sem áhuga hafa
leggi nafn sitt og símanúmer á afgreiðslu blaðsins, merkt: „Skrifstofu-
húsnæði"._____________
LÓÐ EÐA GRUNNUR - ÓSKAST
Vil kaupa lóð eða gmnn undir einbýlis- eða tvíbýlishús f Réykjavík
eða riágrenni. Sfmi 10635 eftir kl. 7.
FIAT 1400 - TIL SÖLU
Til sölu ér Fiat 1400, árgerð 1958. Uppl. f sfma 38215 eftir kl. 7 á
kvöldin.
SÓFASETT - TIL SÖLU
Notáð danskt sófasett til sölu vegna þrengsla. Verð 3000 kr. Sími 32200.
ÍBÚÐ - ÓSKAST
Vuxhall ’58
Glæsilegur bíll.
Mercedes Benz 170 ’50
Verð 35 þús. útb. sam-
komulag.
Cherolet ’56
6 cyl. beinskiptur, útb.
samkomulag.
Ford ’55
Glæsilegur bíll.
Villys jeppi ’47
með stálhúsi. Verð 30
þús.
Sendiferðabílar
með og án stöðvarleyfa.
Hjá okkur em skráðir til
sölu yfir 700 bílar, með
hvers konar greiðsluskil-
rnálum og skiptlmöguleik-
RAUÐARÁ
SKÚLAGATA 55 — SÍ51I 15812
D.K.W. ’64 er kominn.
Sýningarbíll á staðnum
til afgreiðslu strax. -
Kynnið yður kosti hinn-
ar nýju DKW bifreiðar
1964 frá Mercedes Benz
verksmiðjunum.
Salan er örugg hjá
okkur.
ilBl
<WWWWSAAA^VNAAAA/V'
Bílakjör
Nýir bflar,
Commer Cope St.
BIFREIÐALEIGAN,
Bergþómgötu 12 Slmar 13660,
14475 og 36598
vws/v/wwvwwwwv^
Fjórði hyer miði vinnur að meðaltalil
Haestu’vinningar 1/2 milljón krónur.
tægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
Óska eftir að taka á leigu 3—4 herbergja íbúð. Er til viðtals á Gmnd-
árstfg 12 á daginn. Eftir kl. 8 f síma 1-39-55. Gunnar Gíslason.
ÍBÚÐ - ÓSKAST
Flugurtiferðarstjóri óskar eftir íbúð í 10—12 máriuði. Tvennt f heimili,
virina báíði úti. Uppl. f síma 17430 á skrifstofutíma.
ÍÍ^Memgemíngar « 1
I ... 'óí™; 05067 hm
Keppti í 40 ár —
Framhald af bls. 9.
mun hafa orðið einhvers staðar
í miðri röð. Við öðru var ekki
að búast.
— Hvernig voru afrek manna
í þá daga?
— Þau voru afar miklu lakari
heldur en þau eru í dag. Ég
man t.d. að Islandsmetið í kúlu
varpi var þá rúmir 10 metrar,
en enginn okkar storkaði því á
þessu móti
íþróttaáhugi
Hafnfirðinga glæðist
— Telur þú að þátttaka þín í
þessu móti í Reykjavík hafi
orðið til að glæða áhuga Hafn-
firðinga fyrir íþróttum í heild.
— Alveg tvímælalaust. Þessi
sperringur f mér varð til þess
að fyrsta íþróttanámskeiðið var
háð í Hafnarfirði. Það var árið
1925 og þá er það sem Hafn-
firðimgar komust í fyrstu kynni
við handknattleikinn, sem síðar
hefur orðið einskonar þjóðar-
fþrótt þeirra.
— Hvernig kemst þú sjálfur
í nánari tengsl við íþróttirnar?
— Það er með þátttöku minni
í íþróttanámskeiði sem íþrótta-
samband Islands efndi til í
Reykjavík veturimn 1926—27.
Það er skoðun mín að einmitt
þetta námskeið hafi valdið
hvörfum í íþróttasögu íslend-
inga. Þarna voru meðal þátttak-
enda menn sem síðar hafa helg-
að íþróttunum ævistarf sitt og
orðið þar að ómetanlegu liði.
Þarf ekki annað en nefna þá
Benedikt Jakobsson, Hallstein
Hinriksson í Hafnarfirði, Frið-
rik Jesson f Vestmannaeyjum,
Jóhann Jónsson á Norðfirði o.
fl. Undir handleiðslu þessara
manna hafa sumir beztu íþrótta
menn þjóðarinnar hlotið þjálfun
og tilsögn að meira eða minna
leyti. I heild voru góðir drengir
og mætir á þessu námskeiði. Ég
minnist þeirra ævinlega með
hlýhug og námskeiðsins í heild
sem einhvers bezta og örlaga-
ríkasta skeiðs ævi minnar. Fæst
ir þeirra sem námskeiðið sóttu
voru fjáðir, en áhuginn var þeim
mun meiri og fyrir bragðið held
ég að þarna hafi verið óvenju-
legt mannval samankomið. Sem
dæmi um erfiðleikana sem sum-
ir áttu við að stríða má nefna
að þeir urðu að lifa á skrínu-
kosti að meira eða minna leyti
um veturinn. Hvaða nemanda í
skóla yrði boðið upp á slfkt nú?
Var íþróttakennari um
margra ára skeið
— Þetta var námskeið fyrir
verðandi kennara. Hefurðu helg
að þig kennslustörfum að ein-
hverju leyti?
— Já ég hef fengizt talsvert
við kennslu í fþróttum í hjá-
verkum. Meira að segja á
framangreindu íþróttanámskeiði
kenndi ég Mullersæfingar. Við
Hvítárbakkaskóla kenndi ég fim
leika og íþróttir f þrjá vetur,
jafnhliða því sem ég stundaði
þar nám. Og öll árin frá 1930
og fram til 1944 kenndi ég í
Hafnarfirði meira og minna all-^
ar íþróttagreinar sem þar voru
stundaðar, fimleika, sund, frjáls
ar fþróttir, handknattleik og
knattspyrnu. Ég var ráðinn lög-
regluþjónn í Hafnarfirði frá 1.
júlí 1930 og hef gegnt því starfi
sfðan. 1 frístundum mínum gat
ég sinnt kennslustarfinu og í-
þróttaiðkunum og það þótti mér
vænt um.
Keppti í 40 ár.
— Þú kepptir sjálfur f íþrótt-
um um margra ára skeið?
— Samfleytt 40 ár. Tók þátt
í fyrstu opinberri keppni þegar
ég var 16 ára og var orðinn 55
ára þegar ég tók síðast þátt í
keppni. Ég keppti bæði í hlaup
um og köstum, keppti í 800
metra hlaupi og síðan öllum veg
arlengdum þar yfir, og í köst-
unum átti ég lengi vel Hafnar-
fjarðarmet.
En það sem máli skiptir er
hvorki mín eigin þátttaka í f-
þróttum né kennslustarf mitt,
heldur hitt að það hefur tekizt
að glæða áhuga fyrir íþróttum
í Hafnarfirði og það svo um
munar. Ég held að ég hafi átt
einhvern þátt í að það tókst, og
um það þykir mér vænna en
nokkuð annað. Hafnfirðingar
hafa á undanförnum árum átt
mjög góða íþróttamenn á ýms-
um sviðum í frjálsíþróttum t.d.
oft bæði I’slandsmeistara og
methafa. Geta má þess að árið
1945 urðu Hafnfirðingar íslands
meistarar í 4x100 m boðhlaupi
og tókst um leið að sigra
Reykjavíkurfélögin. Þetta sýnir
nokkuð „breiddina“ f íþróttalífi
Hafnfirðinga á þeim árum, enda
var það svo, að það varð ekki
ævinlega komið nafni á frjáls-
íþróttamót í Reykjavík nema
þátttaka Hafnfirðinga kæmi til.
Sundáhugi hefur löngum ver-
ið mikill í Hafnarfirði. Árið
1909 er fyrst byrjað að kenna
sund í HafnarfÍTði ,en úr því
hefur það verið kennt á hverju
ári. Sundhöll Hafnfirðinga var
vígð 1943 og hún hefur orðið
hin mesta lyftistöng undir sund
ið þar syðra. Hafnfirðingar
eiga góðum sundmönnum á að
skipa.
Þjálfari Hafnfirðinga
Hanknattleikurinn er samt
þjóðaríþrótt Hafnfirðinga. Á
því sviði hafa þeir verið nær
ósigrandi um margra ára skeið.
— Hvenær byrjuðu Hafnfirð-
ingar á þessari þjóðaríþrótt
sinni?
— Þa má rekja það aftur til
ársins 1925. Það ár var haldið
íþróttanámskeið 1 Hafnarfirði í
maí og júnímánuði og var Valdi
mar Sveinbjörnsson mennta-
skólakennari aðalkennari í því.
Árið 1927 keppa Hafnfirðingar
f fyrsta skipti við Reykvíkinga f
handknattleik bæði f karla- og
kvennaflokki. Hafnfirðingar sigr
uðu í kvennaflokki en töpuðu í
karlaflokki. Þremur árum
seinna kepptu sömu karlalið og
þá tókst Hafnfirðingum að
hefna fyrri ófara.
— Nokkuð sem þú vilt segja
að lokum?
— Helzt það ,að kynni mín
við íþróttamenn og íþróttaleið-
toga Iandsins hafa frá fyrstu tíð
verið hin ákjósanlegustu og ég
vil nota tækifærið til að þakka
þeim forna vináttu og alla þá
viðurkenningu sem þeir hafa
sýnt mér bæði fynr og síðar.
SMURSTÖÐIN
Sæfúni 4 - Sími 16-2-27
Bíllúm er smurður fljótt o; vel.
Seljum ailar tegundir af smnrolíu.