Vísir - 13.09.1963, Page 4

Vísir - 13.09.1963, Page 4
VlSIR • Föstudagur 13. september 1963. Samtal við ,ballettdansari‘, þ.e. fór að fá lítil hlutverk, smám saman þýðingarmeiri, þangað til ég var gerður ,sólódansari‘ árið 1949, nýorðinn tuttugu og þriggja ára. Úr þvf fór ég að fá aðalhlutverk“. „Og í hvaða balletti dansað- irðu fyrst aðalhlutverk?" „Það var í ,Slaraffenland‘ eða .Cockaigne' eftir Ha-rald Land- er“. „Fórstu í annan skóla sam- hliða ballettnáminu?“ „Við lærum allar venjulegar námsgreinar f ballettskóla leik- hússins — hann einskorðast ekki við ballettkennslu, heldur fá nemendurnir lfka almenna menntun". „Áttu nokkur eftirlætishlut- verk?“ „Ja, það er erfitt að taka eitt fram yfir annað. Hlutverkið, sem ég dansa hverju sinni, er alltaf eftirlætishlutverkið mitt þá stundina. Maður lifir sig inn í þetta; meðan ég dansa, er ekkert til í heiminum utan við sviðið — ég veit ekki af neinu öðru á meðan“. Maður verður að gefa alit, sem maður á „Hvað myndirðu segja, að væru nauðsynlegustu eiginleik- ar,\ sem dansari þarf að hafa?“ „Fyrir utan rétt líkamshlut- föll er góð tækni undirstöðu- atriði. Og dansarinn verður að hafa yndi af starfinu, það þarf að vera allt hans líf, þannig að hann geti ekki án þess verið og njóti þess áð dansa. Maður verður að leggja sig allan fram, gefa allt, sém maður á, lifa sig kvenlegastar, en þá þurfa líka karlmennirnir að vera karl- mannlegir, til þess að þær njóti sín“. „Svo þurfa dansarar að vera músfkalskir og geta leikið“. „Já, mikil ósköp, það er svo voðalega margt, sem dansarar þurfa að vera, að maður getur verið allan daginn að telja það upp“. 150 nemendur „Hvernig er nú starfsdagur dansarans?“ „Hroðalegt strit. Við byrjum kl. 10 á morgnana á eins og hálfs tfma æfingum til að liðka alla vöðva og hita okkur upp. Svo eru æfingar í leikhúsinu frá 12.30 til 4. Eftir það förum við heim, en ef sýning er um kvöldið, æfum við aftur þrjú kortér til að hita okkur upp. Ég kenni líka fjóra daga vik- unnar frá 5—7 og hef 150 nem- endur“. „Svo að þú lifir ekki beinlínis f iðjuleysi?" „Nei, það væri synd að segja, en þess vegna er líka nauðsyn- legt að elska starfið. Það gerir ekkert til, þó að það sé erfitt, ef manni þykir nógu vænt um það. Og konan mín hjálpar mér mikið við kennsluna. Þau kvöldin, sem ég dansa, kennir hún fyrir mig“. Friðbjörn er giftur Kirsten Ralov, sem til skamms tíma var ein af ballerínum Konunglega ballettsins eða „sólódansmær“, eins og þær eru kallaðar f Danmörku, en kennir nú mikið og setur á svið balletta. Frh. á bls. 7. Við eigum ekki íslenzk- an ballett enn sem kom- ið er, en við getum þó alltaf státað af að eiga íslenzkan ballettdansara og hann heimsfrægan. Friðbjörn Bjömsson hef- ur lengi verið ein af skæmstu stjömunum á himni Konunglega danska ballettsins og stendur nú á hátindi frægðar sinnar sem ein- hver bezti demi-carac- tére dansari, er komið Á svölunum á Hótel Sögu. „íslenzka loftið er dásamlega styrkjandi“, segir Friðbjörn og rásar í gönguferðir, þegar hann má vera að milli æfinga og sýninga. hefur fram í heiminum á síðustu áratugum. í fyrra var hann sæmdur riddarakrossi Danne- brogsorðunnar fyrir störf sín í þágu danskr- ar listar, lofgjörðum hefur rignt yfir hann úr öllum heimshomum jafnt frá gagnrýnendum sem hrifnum áhorfend- um, og þessa dagana er hann að dansa í Þjóð- leikhúsinu og fær í fyrsta sinn tækiíæri til að sýna löndum sínum, hvemig list hans getur orðið, þegar hún fær að njóta sín í hinni réttu umgjörð. „í Kaupmannahöfn. Foreldrar mínir kynntust þar. En þegar ég var níu mánaða, fluttust þau til Vestmannaeyja, þar sem amma og afi bjuggu, og þar var ég fyrstu fimm ár ævinnar". „Og þá fóruð þið aftur til Kaupmannahafnar?" hvort hjartað sé nógu sterkt, o.s.frv. Vöxturinn verður að vera réttur, annars er þýðingar- laust að leggja fyrir sig ballett, og ót.almargt kemur til greina, eins og tilfinning fyrir músík og rytma og — æ, það eru hundrað hlutir“. Það ar ekki auðhlaupið að því að ná tali af honum. Líf ball- ettdansarans er ótrúlega eril- samt, það eru æfingar og aftur æfingar frá morgni til kvölds og þar á eftir sýningar. Eftir þriggja daga eltingaleik — Friðbjörn var alltaf annað tveggja, önnum kafinn á æfing- um eða sofandi — var þó hægt að klófesta hann uppi á Hótel Sögu og hefja yfirheyrslur. % íslendingur „Spurðu bara um hvað sem þú vilt, og ég skal reyna að svara“, segir hann og er auð- sjáanlega búinn að sætta sig við örlög sín. Hann skilur ís- lenzku ágætlega, en hefur ekki fengið mikla æfingu í að tala hana, frá því að hann var fimm ára. ^ „Ja, fyrst þarf ég að fá að vita um íslenzka blóðið í þér. Ertu ekki hálf-íslenzkur?“ „Nei, meira. Pabbi minn — Sigurður Björnsson — er ís- lendingur og mamma hálf- íslenzk. En ég er danskur ríkis- borgari". „Og hvar ertu fæddur?“ en sjö og hálfs árs var ég tek- inn f ballettskóla Konunglega leikhússins“. „Hvernig stóð á, að þú skyld- ir fara að læra ballett?" „Ég veit það varla. Ég hef alltaf verið rytmískur — haft gaman af rytma og dansi, og guðmóðir mín, sem var dönsk, vildi endilega, að ég reyndi að komast í ballettskólann“. „Eru inntökuskilyrðin ekki ströng?“ „Jú, hamingjan góða, maður er rannsakaður allur hátt og lágt, hver vöðvi í líkamanum, svo er læknisskoðun til að sjá, heltast úr lestinni, m.a. vegna þess að vöxturinn breytist stundum með aldrinum, sumir verða of hávaxnir, aðrir sam- svara sér ekki nógu vel, og sumir standa sig ekki við nám- ið“. „Hvað varstu lengi I ballett- skólanum?“ „Þangað til ég var sextán ára. Þá komst ég að sem ,aspirant‘ við Konunglega ball- ettinn og var það tvö ár, dans- aði í flokknum og hélt auðvitað áfram að læra — maður er aldrei búinn að þvi. Seinna var ég gerður það, sem kallað er algerlega inn í ballettinn — annars er ómögulegt að vera sannfærandi. Svo er viss per- sónuleiki óhjákvæmilegur ... án hans verður allt dautt, og jafnvel fullkomin tækni bjargar því ekki. Maður þarf lfka að vera sterkur og hraustur, hafa góð lungu og hjarta, vöðvarnir verða að vera mjúki-r og stælt- ir, en ekki of gildir. Já, og eitt enn finnst mér mikilvægt — að karlmenn séu karlmannlegir, en ekki eins og hálfgerðar dúkkur. Maður þarf að sjá mun á piltum og stúlkum á sviðinu. Það er gott, að dansmeyjamar séu sem ustu hlutverkum, og margir ballettgagnrýnendur hafa fullyrt, að enginn dansari í heiminum komist til jafns við Friðbjöm í því. „Já. Ég held, að pabbi og mamma hafi heldur viljað, að ég menntaðist í Danmörku“. „Ekki hefurðu þó byrjað að dansa fimm ára?“ „Nei, ég fór bara í venjuleg- an skóla, þegar ég var sex ára, Margir heltast úr lestinni „Svo eru auðvitað próf á hverju ári?“ „Já, miskunnarlaus próf, og það eru alltaf margir, sem

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.