Vísir - 18.09.1963, Page 2
2
V í SIR . Miðvikudagur 18. september 1963.
v//////////sm y//////////m'///////'
íþróttamálin rædd í Haukodal:
UNGUNGARNIR HAFA
OF MIKIL FJÁRRÁÐ
— og því er svo komið að þeir
snúa baki við íþróttunum
„A HVERN HÁTT ER HÆGT AÐ AUKA ÍÞRÓTTASTARFIÐ?"
heitir mál nr. 3, sem mikið var rætt á ráðstefnunni, sem ISÍ
hélt með formönnum sérsambandanna og héraðssambandanna
um síðustu helgi í Haukadai. Mái þetta er mjög aðkallandi og
krefst þess að verða leyst svo fljótt sem auðið er. Vitanlega
er þetta mál málanna hjá íþróttasambandinu því það er fyrst
og fremst ætlað til að efia og auka íþróttir í landinu.
félög um, að fyrirtæki og stofn-
anir, sem hafa mörg böm eða
unglinga 1 vinnu, séu skylduð
til þess að hafa í þjónustu sinni
starfsmann, sem annist líkam-
lega og félagslega heilbrigði
þeirra?"
Það er einmitt þarna, sem
skórinn kreppir að í íslenzkum
íþróttum. Fjölmörg dæmi um
vinnuhörku barna vekja bein-
Iínis óhug manna. Sem dæmi
má nefna 9—13 ára böm, sem
vinna frá kl. 7 á morgnana til
10 eða 12 á kvöldin erfiða vinnu
við framleiðslustörf. Algengt er
að börn og unglingar hafi 6—8
þúsund krónur í mánaðariaun.
Vasamir fullir af peningum. Þeir
litlu fritímar, sem verða aflögu,
fara f að sóa a. m. k. einhverj-
um hluta þessa fjár.
Danshús um 30 km. frá Hauka
dal, fundarstað ÍSl-fundarins
um helgina, var snarfyllt og vel
það um helgina af áberandi 'ölv-
uðum unglingum á aldrinum 13
—19 ára. Þama var einkennilegt
um að litast. Allt þetta unga
fólk, sem mun hafa verið um
1200 í 400 manna húsi(!) var að
eyða miklum peningum, sem
það hefur þrælað fyrir yfir vik-
una. Það var ekki margt Iþrótta
fólk í þessum hópi sunnlenzks
æskufólks, en þeir fáu sem þar
voru, vora til sóma heldur ca
hitt. Þannig er æskan, þvi mið.
ur, í allt of ríkum mæli f þeim
fáu frístundum sem gefast og
það, sem gerir, era allt of mikil
fjárráð.
Fjórar nefndir vora skipaðar
f Iok framsöguræðanna. Voru
fulltrúar allir látnir vinna í
nefndunum, en þær skiluðu álit
um sínum seinni dag fundarins
og þá var tekið til við að ræða
þau. Ekki voru neinar ákvarð-
anir teknar, enda ekki boðað til
fundaríns til að gera neitt bind-
andi, heldur einungis til að
ræða málin og fá álit fulltrú-
anna á aðkallandi málum. Ráð-
stefna sem þessi er í fyrsta sinn
haldim nú af ÍSÍ, en slíkar ráð-
stefnur eru haldnar af æðstu
samtökum fþróttamanna víðast
eriendis.
Á morgun segjum við frá
fleiri málum, sem tekin voru
fyrir og rædd í Haukadal.
—jbp—
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ,
hafði forsögu um þetta mál á-
samt Þorsteini Einarssyni, í-
þróttafulltrúa ríkisins. Gísli
benti á að fólk virtist fremur
kjósa ferðir í kvikmyndahús og
bílferðir en að eyða frístundun-
um í holla iðkun íþrótta, sem
hverjum manni er þó nauðsyn.
Taldi Gísli að áróður og aug-
lýsingar fyrir íþróttir yrðu að
aukast að mun til að draga
mætti fólkið til sín. Einnig að
fá læknastéttina í lið með íþrótt
unum. Einnig taldi Gísli að auka
þyrfti á fjölbreytni íþróttagrein
anna, þannig að sem flestir
gætu fundið „sína grein“. Gísli
benti og á vandamálin I sam-
þandi við útvegun hæfra kenn-
ara, en til stóð að samvinna
hæfist í þessu efni við íþrótta-
kennaraskóla Islands, en enn
sem komið er hefur ekki orðið
af þvf, ekki sízt vegna skorts á
húsnæði hjá skólanum. Iþrótta-
fræðslu fyrir böm og unglinga
taldi Gisli áhrifaríka, einkum
námskeið eins og ÍBR hefur und
anfarin sumur staðið fyrir.
Benedikt Jakobsson íþrótta-
keruiari ræddi sama málefni.
Taldi Benedikt að mark og mið
skólafþróttanna í landinu væri
ekki nægilega Ijóst hjá forystu-
mönnunum, með öðrum orðum,
skólaleikfimi væri leiðinleg og
þegar nemandinn kveddi skóla
sinn, yfirgæfi hann allt sem
heitir iðkun íþrótta. Benedikt
benti á að til þess að íþróttir
gætu náð til fleiri en „stjarn-
anna“, yrði að nota ný vopn og
nýjar leiðir, áróður og upplýs-
ingaþjónustu, fræðslu og kynn-
ingu á íþróttum, þetta hafi verið
vanrækt og bæri að bæta úr
því.
íþróttafulltrúi rikisins, Þor-
steinn Einarsson, ræddi einnig
í framsöguerindi sínu þetta
sama spursmál og kom víða við.
Hann kom með 10 spumingar
fyrir nefndir þær, sem skipað-
ar voru til að vinna úr og var
mikið rætt um spumingamar,
enda má segja að hver einstök
gæti orðið efni í sérstaka ráð-
stefnu. Merkasta spuming Þor-
steins og jafnframt sú tímabær-
asta er, að dómi undirritaðs. 9.
spuming listans: „Er rétt að ÍSl
leiti samvinnu við önnur æsku-
lýðsfélög um athugun á því,
hvað unnt sé að gera til að
hindra, að börn og unglingar
vinni of langan vinnudag?" Og
10. spurningin var í svipuðum
dúr: „Væri rétt að ÍSl leitaði
samvinnu við önnur æskulýðs-
Það þarf að fræða æskuna um fþróttir, benda henni á hollustu þeirra og aðra kosti.
Frakkar unnu ísland 79:40
— enda langbezta lið keppninnar
FRAKKAR unnu ÍSLAND í gær
kvöldi í Unglingalandsleik í körfu-
knattleik með 79:40, sem er nokk-
|Gekk betur gegn 11 mönnumj
— segir Hörður Felix-
\
son um landsleikinn
Margir leikmanna íslenzka landsliðsins í knattspyrnu eru %
nú komnir heim. Við hittum Hörð Felixson í gærdag og spurð-
um hann tíðinda frá leiknum. I;
— Það er það furðulega, að okkur gekk mun betur þegar
Bretarnir voru allir 11 á vellinum. Þegar þeir voru aðeins 9
var eins og okkur gengi ekkert. Fyrstu 15 mínúturnar gegn
11 mönnum þeirra voru ágætir. Annars var framlína okkar •;
mjög bitlaus. Þeir léku vel að vítateig, en þar var líka draum-
urinn búinn.
— Ert þú þá búinn að leggja skó na á hilluna, Hörður?
— Nei, nú er bikarkeppnin eftir. Við leikum við b-lið
Akraness, sem skartar með 5 landsliðsmenn, ekki af lakari í;
endanum. En eftir bikarkeppnina býst ég við að hætta knatt-
spyrnunni. %
VAVMV.VVAV.%VAV.V.V.W,,,V/l:.W.VA%V.ViV.,.VA,A%V.V.,.V.V.,.V>V.V.V.V
uð mikill munur, enda vart við
öðru að búast, þar eð greinilegt
er að Frakkar vinna alla leiki sína
með yfirburðum.
ísiendingar byrjuðu leikinn all-
vel, héldu í við Frakka fyrstu 5
mínútur leiksins, voru aldrei meira
en 3 stigum undir, en eftir það
voru Frakkar mjög afgerandi og
juku við forskotið hröðum skrefum
— en urðu þó að berjast mikið
við hvert stig sem þeir skoruðu.
í hálfleik var staðan orðin 50:14.
Seinni hálfleikur var hins vegar
mjög jafn og spenna í leiknum tals
vert mikil, enda lauk seinni hálf-
leik með sigri Frakka 29:26, sem
er ckki ýkja mikill munur.
íslendingar hafa nú séð öll lið
keppninnar, en Frakkar léku ekki
í fyrstu umferð. Er sýnilegt að
Frakkar munu vinna þcnnnan riðil
Evrópukenpninnar og mjög senni-
lega úrslitin, sem fram fara næsta
vor á ítalíu.
Beztu menn íslands í gær voru
Kolbcinn Pálsscn (7 stig) og Anton
Bjarnason (12 stig), en bezti mað-
ur liðsins í fyrrakvöld, Agnar Frið
riksson, lék nú með reifaðan hand-
legg og- náði ekki nándar nærri
eins góðum leik og áður, hafði það
sín áhrif á allan leik liðsins.
Frakkar voru mun hærri, höfðu
3 menn sem voru yfir 2 metrar
á hæð, en meðaltal Ieikmanna er
1.90. Longueville heitir langbezti
maður liðsins, frábær leikmaður.
Dómarar í gær voru Lúxemborg-
armaður og Belgíumaður, og
dæmdu illa að dómi lslendinganna.
—h. sig.—
L'iquipe segir:
íslendingar bezta
Biðið i beppni
fyrra hvöldsins
L’EQUIPE — eitt frægasta í-
þróttablað í heimi — kom út í
París í gær og meðal annars efn
is í blaðinu var frásögn af
fyrstu leikjum Evrópukeppni
unglinga í körfuknattleik.
Það var skemmtilegt að lesa
þar, að af þeim fjórum liðum
sem þar hafi bitizt, hafi íslenzka
lrðið leikið langbezt. Leikaðferð
ir liðsins, boltameðferð leik-
manna og annað hafi verið langt
um betra hjá íslendingum en
Lúxemborgurum, Englendingum
og Svíum. —h. sig.—