Vísir - 18.09.1963, Síða 9

Vísir - 18.09.1963, Síða 9
V í S IR . Miövikudagur 18. septemoer 1963. 9 \ Hagkvæmur útvegur fyrir þú bóto sem nú þykjo of litlir til síldveiðu 15. september lauk humar; veiðunum, en rúmlega 100 bátar hafa stundað þær veiðar í sum- ar með mjög góðum árangri. Hæstu bátar munu vera með um 120 tonn af humar og um 100 tonn af fiski. Nokkru fleiri bátar munu hafa stundað þess- ar veiðar 1 sumar en í fyrra- sumar. Til marks um hversu mikill atvinnuvegur þessar veiðar eru orðnar, má geta þess, að um síðustu mánaðamót var upp- gefið framleiðslumagn hjá frystihúsum Sölumiðstöðvarinn- ar um 670 tonn af fullunnum humar. Til samanburðar má geta þess, að í fyrra var fram- leiðslan um 200 tonn á sama tima. Vafalaust eru hlutföllin svipuð hjá frystihúsum SÍS. Til þess að geta gert sér grein fyr- ir hversu mikla framleiðslu hér er um að ræða, verður að geta þess, að fullunninn humar er aðeins um 23% af humarnum upp úr sjó. tíumarveiðarnar hafa vissu- lega haft mikla þýðingu fyrir sjávarplássin, þar sem afl- inn hefir verið lagður upp, því að auk þess að veita 500—600 sjómönnum atvinnu við veið- arnar, hefir skapazt mikil vinna í frystihúsunum, aðallega fyrir skóiaæskuna, sem annars hefði lítið haft fyrir stafni. Ennfremur ber að hafa það í huga, að með humarveiðunum hefir skapazt hagkvæm veiði- aðferð fyrir þá stærð fiskiskipa, sem þykir nú miðað við nýjustu tækni og þann útbúnað sem henni fylgir, of lítil til að stunda sildveiðar. Er hætt við að mörgum þessara skipa hefði verið lagt ef þessar veiðar hefðu ekki komið til. Þegar svo á það er litið, að allt þetta aukna framleiðslumagn af hum- ar er seljanlegt á frjálsum markáði fyrir harðan gjaldeyri, fer ekki á milli mála, að hér hefir myndazt merkilegur og þýðingarmikill þáttur í sjávar- iðnaðinum. þegar rætt er við skipstjóra humarveiðiskipanna, kem- ur það fram, að flotinn hefir dreifzt. Ný mið hafa fundizt og á sumum þeirra hefir humarinn verið stærri, og þar með verð- mætari. T. d. fannst í sumar nýtt svæði suður af JÖkli, og var humarinn þar jafnstærri. Ennfremur fannst nýtt svæði 16—17 sjómílur í suður af Humaraflinn hefur verið góður, körfurnar fullar. Anmar fiskur fylgir með og er settur f sérstaka stíu. Flestir humrabátamir em um 25 tornn. Eldey og allt út á 120 faðma dýpi. Svæði þessi fundu veiði skipin. Virðast því víða liggja möguleikar á nýjum miðum með góðum humar. Vestmanna- eyingar sækja t. d. allt austur að Ingólfshöfða og fá þar góð- an humar. Annars virðast skipstjórar humarveiðibátanna sammála um að of lítið sé gert fyrir þessa grein fiskveiðanna. Það þyrfti að skipuleggja leit að nýjum miðum og hvar humarinn sé beztur, og hvaða veiðisvæði þoli bezt veiðar bátanna hverju sinni. Telja skipstjórarnir, að slíkar rannsóknir eigi fullan rétt á sér, og eigi að reka með sama myndarbrag og síldarlest- ina fyrir Norðurlandi. Telja þeir að kostnaður við slíka leit muni fljótt skila sér til þjóðar- búsinn í auknum og betri afla. XT umarinn er flokkaður í stærðir, og er stærsti hum- arinn frystur f skelinni og seldur mest til USA fyrir gott verð. Skelflettur og óskelflettur er humarinn seldur til Bretlands, Sviss og fleiri landa, og þykir hinn ísienzki humar hin bezta vara. Hjá eigendum hraðfrysti- húsanna kemur fram, að minni humarinn sé hagkvæmast að skelfletta, en skortur á vinnu- afli háir því, að slíkt sé hægt eins og þörf er á. Yfirleitt er stöðugur skortur á vinnuafli í fiskiðnaðinum. Er óhætt að slá því föstu að hagkvæmt muni vera fyrir þjóðarheildina, að þessi, svo til nýi möguieiki 1 fiskiðnaðinum, sé nýttur sem bezt, þar eð það hefir sýnt sig, að sildin getur verið brellin norðanlands sem Framh. á bls. 10. Útlit er fvrir að humarveiðar hafi þrefaldazt frá því í fyrra Humamum rótað inn f bátinn. Skrifstofutækni 1963: .v l Afsprengi frjálsrar verziunar SAMSÝNINGAR, hvaða vörur eða hlutir sem þar eru annars sýndir, eru alltaf skemmtilegar og venjulega vel vandað til þeirra. Sýningin, „Skrifstofutækni 1963“ er gott dæmi um slíkar sýningar eins og þær verða beztar. Er hún í alla staði glæsi- leg og vel skipulögð. Er aug- ljóst, að hún hefur kostað geysi lega vinnu og hugvit í uppsetn- ingu og skipulagningu, enda hafa margir okkar beztu manna átt þar hlut í. Slíkar sýningar er einn liður í samkeppni seljendanna um hylli viðskiptavinanna. Þær eru því nauðsynleg afleiðing af hag- kerfi því, sem við búum að nokkru leyti við og er kennt við „frjálst viðskiptalíf“ eða „frjálsa samkeppni". Þessi sýning er ein mitt gott dæmi um það. Undanfarna áratugi hafa inn- flytjendur skrifstofuvéla eins og fleiri aðrir innflytjendur, átt við ýmiss konar höft að stríða, s. s. gjaldeyrisskömmtun, bæði í magni og eftir tegundum. Þann ig var bæði löndum og fyrir- tækjum mismunað. Verzlun með þessa hluti hefur því alls ekki verið frjáls og samkeppni held ur engin verið á þessum mark- aði. Nú fyrir nokkrum árum var innflutningur þessara vara að mjög miklu leyti gefinn frjáls, og svo nú nokkuð nýskeð var verðlagsákvæðum létt af. Vegna þess er nú loks komin heilbrigð samkeppni á þessu sviði við- skiptalífs okkar. Þó eru enn nokkrar hömlur á viðskiptum með sumar þessara vara. Ritvél ar eru til dæmis að nokkru leyti háðar gjaldeyrisleyfum enn, sem hefur valdið því, að sum fyrirtæki hér hafa ekkert getað flutt inn frá sínum umboðum í mörg ár. Er það von mín, að þessi sýn- ing megi verða til þess, að hið opinbera létti af þeim fáu höml- um, sem enn eru eftir og með því örvi blóðrásina í þessari og öðrum greinum verzlunarinn ar f landinu. Þ. M.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.