Vísir - 18.09.1963, Síða 16
VISIR
Miðvlkudagur 18. sept 1963.
Minningarathöfn
Minningarathöfn um Benedikt
S. Bjarklind, stórtemplar. sem lézt
í Kaupmannahöfn 6. þ. m., fer fram
í Dómkirkjunni á morgun, fimmtu-
dag, og hefst kl. 10.30. Athöfninni
verður útvarpað.
-----------------------
Slæm afkoma matvöruverzlana
Fundur í kvöld
Fyrir nokkrum vikum var
skipuð nefnd tii þess að rann-
saka rekstrargrundvöll og af-
komu matvöru- og kjötverziana.
Með nefndinni starfaði Ólafur
J. Ólafsson endurskoðandi. —
Rannsókn þessari er nú lokið
og verða niðurstöður hennar
lagðar fyrir fund matvöru- og
kjötkaupmanna í kvöid. Mun
þessi athugun hafa staðfest þá
almennu skoðun að afkoma mat
vöruverzlana sé slæm.
Umkvartanir matvörukaup-
manna voru tilefni þessarar
rannsóknar. Þeir hafa taiið og
telja stöðugt hag sinn fyrir borð
borinn af hendi verðlagsyfir-
valdanna. Er talið að leyfð á-
lagning á ýmsum vörutegundum
sé svo lág, að hún nægi hvergi
nærri til þess að standa straum
af beinum kostnaði við dreifing
una. Gildir þetta sérstaklega um
landbúnaðarafurðir og aðrar
vísitöluvörur, sem haldið er
niðri í verðlagi.
Nægileg síld — og
horfur ekki slæmar
sogðð Jakoh Jakobssoa í morgun
— Sem stendur eru horfumar
ekki slremar, það er nægileg síld
hér úti fyrir og hefur gengið vel
að finna hana, sagði Jakob Jakobs
son er Vísir átti við hann símtal £
morgun ,en Þorsteinn þorskabítur
liggur nú inni á Norðfirði.
— Ástæðan til þess hve lítið
hefur veiðzt undanfarna daga er
hve djúpt síldin stendur og hve
rysjótt veðrið hefur verið en á
; þessum árstíma má segja að síld-
veiðin sé að miklu leyti undir veðr
i inu komin. Það virðist vera nokkuð
mikil sfld hér úti af Austfjörðum,
100 — 150 mílur úti og einnig um
50 mílur út af sunnanverðum fjörð
unum. Einnig er nokkuð mikil síld
út af Þistilfirði og Langanesi. Fyrir
norðan eru torfurnar mjög óstöð-
ugar en þó hafa nokkur skip feng-
ið sfld í net.
— Hve lengi verður Þorsteinn
þorskabítur að sfldarleit?
— Nú sem stendur er ráðgert
að hann verði til septemberloka,
en það getur alltaf breytzt. Hin
leitarskipin, Fanney og Pétur Thor
steinsson verða líklega meðan flot-
inn er á sfldveiðum. Arinars fækk
ar skipunum nú óðum því að síld-
arvertíðin er orðin löng. — Um
120 mflur úti eru nú mörg hundruð
rússnesk skip með reknet og sömu
Frh. á bls. 5.
GóB reynsla af olíumðlinni
Eins og kunnugt er af
fréttum var olíumöl lögð
niður á götu í Garða-
hreppi og einnig á
Strandgötu í Hafnarfirði
hjá bátasmíðastöðinni.
Vísir átti í morgun stutt
samtal við bæjarverk-
fræðinginn í Hafnarfirði
og einnig sveitarstjór-
ann í Garðahreppi.
Ólafur Einarsson, sveitarstjóri
í Garðahreppi, sagði, áð sú litla
reynsla, sem komin væri á olíu-
mqlina, sem lögð hefði verið
niður á götu í Garðahreppinum,
væri góð. Blandan hefði tekizt
alveg skfnandi vel, Það eina
sem skyggði á þessar fram-
kvæmdir væri að áferðin væri
ekki nógu góð, en það væri
vegna þess að valtarinn hafði
bilað og hefði olíumölin því ekki
Framh. á bls. 5.
Stefnir Óiafsson var að virina við að taka upp kartöflur, er okkur bar
að garði. Ljósm. Visis, B. G.
Búskap hætt á fjór-
um bæfum í Laugardal
Fyrir nokkru samþykkti Borgar-
ráð að segja upþ samningum um
erfðafestuiönd á svæðinu milli Suð
urlandsbrautar, Reykjavegar, Sund
laugavegar, Laugarásvegar, Lang-
holtsvegar og Álfheima. Jafnframt
var samþykkt að búpeningshald
verði lagt niður hið fyrsta. Sauð-
fjárhaldi verði hætt í haust, hrossa
haldi fyrir 1. júní, alifuglahaldi í
haust, en nautgripahald leyft fyrst
um sinn, þó ekki lengur en til árs-
ins 1965.
Ofangreind samþykkt þýðir það,
að búskapur í Laugardal leggst
niður. Um þessar mundir er bú-
skapur á fjórum bæjum í Laug-
ardal: Reykjaborg, Múla, Laugar-
brekku og Laugarbóli. Einnig hef-
ur Hestamannafélagið Fákur hýst
nokkra hesta að Laugalandi. Um
leið og þessir bæir leggja niður
búskap, verða aðeins örfáir bæir
eftir innan lögsagnarumdæmis
Reykjavíkur sem stunda búskap.
Án efa er það nokkuð erfitt fyrir
fólkið að farga dýrunum og hætta
búskapnum, þó svo að hann sé
Mynd þessi af Sigrúnu S. Bjamar er tekin úti á túni á Laugarbrekku. aðeins 1 smáum stíl á flestum stöð-
unum, en flestir eru á sama máli
um það, að ótækt sé að vera með
sveitabúskap inni í miðri höfuð-
borginni, enda ber „sveitafólkinu"
flestu saman um það, að mjög erf-
itt sé að stunda búskap í Reykja-
vík.
í gær ræddum við lítillega við
tvo helztu búhölda 1 Laugardal,
Stefni Ólafsson, sem býr að
Reykjaborg og Sigrúnu S. Bjarn-
ar, sem rekur búskap að Laugar-
brekku.
Frh. á bls. 5.
Sólarhringsaflinn
rúml 10 þús. mól
S.l. sólarhring tilkynntu 20 skip
um síldarafla, samtals 10.900 mál.
Veiddist síldin á sömu slóðum og
undanfarna daga, um 100 milur
ASA af Dalatanga. Veður var óhag-
stætt fram eftir degi í gær en
fór þá batnandi.
Vindur var aust-norð-austlægur
en hefur nú snúizt í sunnan- og
suðvestanátt og er ekki veiðiveð-
ur sem stendur og hefur ekkert
veiðzt í morgun svo að vitað sé.
Þessi skip tilkynntu um 500 mál
eða meira £ gær:
Gullfaxi 500, Sæfaxi 850, Sæúlf-
ur 750, Húni II. 600, Guðmundur
Þórðarson 750, Haraldur 650, Sól-
rún 800, Gjafar 800, Víðir II. 700,
Eldey 600, Sigurpáll 900 og Helgi
Helgasón 550.
1
v •; •; V V I.iu