Vísir - 10.10.1963, Qupperneq 2
2
V í SIR . Fimmtudagur 10. októbBr 1963,
/////m/?'//áMi?/////l
z' %
\% u—1 [—11 ir—I I—l!
r it~d
y. /////my//////////M'//////////my//////'
Vinsæl vetraríþrótt
Nú um þessar mundir er
íþróttafólk að leggja til hliðar
sumaríþróttirnar, en undirbýr
vetrarstarfið af kappi. Hér á
íslandi verða handknattleikur
og körfuknattleikur eflaust vin-
sælustu greinarnar, en það eru
líka margar greinar aðrar, sem
verða vinsælar. Við rákumst á
bráðskemmtilegar myndir frá
heimsmeistarakeppni í borð-
tennis fyrir skemmstu, en borð-
tennis er talsvert mikið stundað
hérlendis, ekki þó í salarkynn-
um eins og heimsmeistara-
keppnin, heldur á einkaheimil-
um, félagsheimilum og víðar.
Enn sem komið er hefur keppni
í þessari skemmtilegu íþrótt
ekki verið skipulögð, en það
væri vonandi að áhugamenn um
borðtennis kæmu sér saman um
slíka keppni.
Erlendis eru keppnir í borð-
tennis vinsælar og heimsmeist-
arakeppnin vekur alltaf mikla
athygli og umtal. Síðast fór
hún fram í Prag og voru þar
fulltrúar frá 49 þjóðum. Leikið
var í mikilli listskautahöll og
var leikið á 16 borðum í einu.
Asíuþjóðirnar voru sem oftast
fyrr langbeztar og Japanir og
Kínverjar skiptu heimsmeistara-
titlunum með sér. Japanir hlutu
3 titla en Kínverjar tvo.
Hér eru nokkur af borðunum sem leikið var á þegar síðasta
heimsmeistarakeppni fór fram.
Japanska stúlkan Matsuzaki
vann öruggan sigur.
Tékkneski leikmaðurinn Svab á
skemmtilegri mynd. Þama stökk
hann upp og kýldi af alefli í
borð andstæðingsins.
Fram - bingo ti! að
byggja féiagssvæði
Eins og kunnugt er hefur knatt-
spyrnufélagið Fram fengið til um-
ráða landssvæði við Miklubraut,
þar sem félagið hyggst byggja fé-
lagsheimili og íþróttavelli. En þar
sem Framarar vaða ekki í fé frem-
ur en önnur íþróttafélög, hafa þeir
ákveðið að efna til Bingókvölda
í Háskólabíó í vetur og verður það
fyrsta annað kvöld.
Áformað er að byggingafram-
kvæmdir hefjist þegar næsta vor,
enda er aðstaða félagsins á gamla
vellinum fyrir neðan Sjómanna-
skólann alls ófullnægjandi.
Við iitum inn í Háskólabíóið f
gærkvöldi og hittum þar ýmsa
framámenn félagsins, þar sem
þeir voru í óða önn að raða upp
vinningum, sem verða til sýnis í
dag í fordyri Háskólabíós. Það var
| létt yfir Frömurum og þeir sögðu
l okkur að þeir byggjust við mik-
! illi aðsókn og er það ekki ótrú-
legt því vinningarnir eru óvenju
glæsilegir.
Ársþing KKI
17. nóvember
Ársþing Körfuknattleiks
sambands íslands verð-
ur haldið í KR-heimilinu
við Kaplaskjólsveg 17.
nóv. n.k. og hefst það
kl. 10 árdegis.
IR-INGAR fá
góðan liðsauka
Þrír beztu menn Hauku munu
keppu með l»R. eftir úrumót
Meistaraflokki ÍR í
handknattleik bætist
góður styrkur um næstu
áramót. Þrír handknatt-
leiksmenn úr Haukum í
Hafnarfirði hafa ákveð-
ið að ganga í ÍR, en
keppnisleyfi munu þeir
öðlast um áramót.
Handknattleiksmenn þessir
eru þeir Karl M. Jónsson, seni
er varamarkvörður íslenzka
landsliðsins, Viðar Símonarson,
unglingalandsliðsmaður og
margfaldur úrvalsliðamaður og
að lokum Ásgeir Þorsteinsson,
mjög harður handknattleiksmað
ur og mesta skytta 2. deildar
undanfarin ár.
Þetta er að sjálfsögðu þungt
högg fyrir Hauka, sem hafa
undanfarin ár gert góðar til-
raunir til að komast upp í 1.
deild, en ekki tekizt. Hafa
Haukar reynt að byrja með
meistaraflokki, en ekki tekizt
fremur en öðrum. Er greinilegt
að gæfulegra mundi að reyna
að byggja upp frá grunni og
byrja með yngri flokkunum.
Afstaða piltanna þriggja er
annars eðlileg, því þeir hafa
ekki komizt nógu vel fram í
sviðsljósið, fengið fáa leiki og
þar af leiðandi færri tækifæri
en reykvískir handknattleiks-
menn. Koma þeirra í ÍR verður
án efa mikill fengur fyrir liðið
og á æfingu í fyrrakvöld var
þegar hægt að greina það, enda
þótt allir væru þeir nær æfinga
lausir.
ÍR á von á sænskum þjálf-
ara í vetur, en enn er ekki vit-
að um hver hann verður. Seint
í þessum mánuði á ÍR von á
einu bezta handknattleiksliði
heims í heimsókn, en það er
tékkneska Iiðið Spartak Pilsen.
EYEQ,s og FRÉSH-UPS
KOMIÐ AFTUR.
TÍZKUSKÚLINN
LAUGAVEGI 133.
BOWMAN
MEGRUNARFATNAÐURINN ER KOMINN
AFTUR.
TÍZKUSKOLINN
LAUGAVEGI 133.
NÁMSKEIÐ
Innritun í skólann er þegar hafin, bæði fyrir
konur og karla. — Allar upplýsingar varðandi
starfsemi skólans gefnar eftir kl. 1 daglega í
Síma 20743.
TÍZKUSKÓLINN
LAUGAVEGI 133.
Sími 20743.
Straumbreytar
í bíla fyrir rakvélar, sem breyta 6, — 12 eða
24 voltum i 220 volt. Verð kr. 542.00.
S M Y RIL L . Laugavegi 170 . Sími 1-22-60