Vísir


Vísir - 10.10.1963, Qupperneq 4

Vísir - 10.10.1963, Qupperneq 4
4 V1S r. R . Fimmtudagur 10. október 1963 v íoDjoosiegt að vera ungur Aldurinn er eitt af því, sem enginn virðist fyllilega ánægð ur með hér á jörð. Ýmist eru menn of ungir eða of gamlir, unga fólkið vill eldast og gamla fólkið yngjast, sumir líta aftur með söknuði, aðrir bíða framtíðarinnar með slíkri eftirvæntingu, að þeir mega ekki vera að því að lifa í nútíðinni, og enginn er á- nægður með sinn eigin aldur fremur en veðrið. „Aldurinn er minn versti óvin ur“, segir Proinnsías O’Duinn og stynur þungan. Hann er of ungur, aðeins 21 árs, En það stendur þó til bóta; fáir eru 21 árs lengur en eitt ár, þó að margir séu grunsamlega lengi 29 ára. í kvöld stjórnar hann Sinfón- íuhljómsveitinni á fyrstu tón- leikum hennar þetta starfsár. Og reyndar á hann að stjórna öll- um hennar tónleikum fram til jóla. Hann er lítill og grannur með svart hár og getur helzt ekki setið kyrr lengur en fimm mín- útur f einu. Talar hratt og hef- ur nóg að segja. „Ertu kannske undrabarn?" spyr ég. „Nei, ég er fullorðinn", svar- ar hann hneykslaður. „Ég hef aldrei verið undrabarn. Það er viðbjóðslegt að vera svona ung- ur og þar að auki barnalegur í útliti. Nógu effitt er samt að láta bera virðingu fyrir sér“. ÆFÐI SIG í RÚMINU „Segðu mér eitthvað um sjálf an þig“. „Velkomið. Ég byrjaði að Iæra á píanó, þegar ég var 10 ára, og þegar ég var 11, veikt- ist ég og þurfti að liggja í rúminu 6 mánuði. Þá var píanó- ið flutt að rúminu mínu, og ég sat og æfði mig 8 tíma á dag, enda hafði ég ekkert annað að gera“. „En varstu ekki of veikur til þess?“ „Nei, ég mátti bara ekki ganga um; þetta var eitthvað í liðamótunum, sem gat versn- að við það. Jæja, eftir hálft ár fór ég á fætur og skipti um skóla“ „Meinarðu, að þú hafir farið í tónlistarskóla?“ „Nei, en í fyrri skólanum, sem ég var i, fannst kennurunum tónlistarnám ekkert annað en tímasóun. I" seinni skólanum mátti ég velja þær námsgreinar, sem ég vildi læra, sleppa hin- um og taka músíkina í staðinn. Ég hætti strax við mannkyns- söguna og æfði mig alla sögu- tímana — mannkynssaga fannst mér drepleiðinleg". BYRJAÐI AF SLYSNI „Ætlaðirðu þá að verða pían- isti?“ „Nei, alls ekki, bara hljóm- sveitarstjóri. Þegar ég var 14 ára, ákvað ég, að ég vissi nóg um píanóleik, svo að ég byrjaði að læra á celló í staðinn". „Af hverju celló?“ „Af því að hljómsveitarstjóri þarf að kunna á eitthvert strengjahljóðfæri og cellistarnir sitja á bezta staðnum í hljóm- sveitinni til að hlusta á hina. Ég æfði mig allan daginn, þeg- ar ég var ekki í skólanum, en þar hætti ég 17 y2 árs. Svo komst ég að við leikhúshljóm- sveit og spilaði í söngleikjum og óperettum. Það var góð reynsla". „Hvenær fórstu að stjórna hljómsveitum?" „Æ, það var nú hálfgerð slysni eða tilviljun eða hvað þú vilt kalla það. Æfingar voru byrjaðar á söngleiknum ,The Golden Years' í Gaiety leikhúsinu, og einn cellistinn forfallaðist, svo að ég kom í hans stað. Eric Rodgers, tónskáldið, stjórnaði sjálftiT hann kom frá London og ætlaði að vera hálfan mánuð, en sýn- ingarnar urðu fleiri en búizt var við, og hann gat ekki verið lengur. Þá vantaði hljómsveit- arstjóra, og ég bauð mig fram. Hann mældi mig út. ,Þú ert nokkuð ungur', sagði hann — hvað skyldi ég vera búinn að heyra þá andstyggðarsetningu oft? ,Ég get nú ekki að þvi gert', svaraði ég; þá var ég 18 ára. ,Nei, það er svo sem satt', sagði hann. Og féllst á að leyfa mér að reyna. Ég stjórnaði einni dagsýningu og fékk að halda áfram. Og þarna vann ég eitt ár sem hljómsveitarstjóri, stjórn aði heilmörgum söngleikjum og reifst við söngvarana, þessa til- finningaslátrara og sjálfselsku- seggi, sem vissu ekki, hvað músík var“. „Ósköp kemur söngvurum og hljómsveitarstjórum yfirleitt illa ' saman“. „Er það furða? Jæja, það eru til undantekningar, en þær eru ekki mar|ar“. EKKI HÆGT AÐ LÆRA HUÓMSVEITARSTJÓRN „Hvar lærðirðu hljómsveitar- stjórn?“ „Það er ekki hægt að læra hana. Ef maður hefur það í sér, er allt í lagi, ef ekki, þá getur enginn kennt manni það“. „Jæja, haltu áfram með ævi- söguna". „Nú, þegar ég var búinn að vinna við þetta heilt ár, þóttist ég vera kominn nógu vel inn í létta músík, svo að ég tók aftur cellóið mitt og réð mig hjá útvarpshljómsveitinni írsku til að Iæra af hljómsveitarstiór- unum. Það er eina leiðin — maður lærir mest á að fylgjast með öðrum, sem kunna sitt fag. Ég lærði a. m. k. hvað ég átti ekki að gera“. „Það var þó í áttina". „Já, en þó að maður viti upp á sína tíu fingur, hvað maður á ekki að gera, þýðir það ekki, að maður viti, hvað á að gera“. „Hvað leið langur tími, þang- að til þú vissir nóg um klassfska músík?“ „Nei, vertu ekki að stríða mér — hana veit maður aldrei nóg um“. „Sko til. Hvað gerðirðu næst?“ „Ég fékk styrk hjá The I'ish Arts Council, þeir sögðu mér að fara hvert sem ég vildi og læra það sem mig langaði til. En það átti að heita, að ég væri að læra tónskáldskap“. LÆRIR MEST A ÆFINGUM „Ertu tónskáld líka?“ „Já, já. Þeir sögðu mér að senda inn nokkrar tónsmíðar. ,Þýðir þetta. að ég verði að læra tónskáldskap?' spurði ég. ,Nei‘, svöruðu þeir. ,En þarf ég þá að læra hljómsveitarstjórn?' spurði ég. ,Nei‘, svöruðu þeir. .Jæja, þá er allt í lagi', sagði ég og þáði stvrkinn með þökk- um. £ 1750.0.0“. „Hvert fórstu?“ „Fyrst til Hollands og var þar fjóra mánuði og hlustaði á bliómsveitaræfingar við öll tæki færi“. „En ekki tónleika?“ „Nei, það er á æfingunum, sem maður lærir mest“. „Og svo?“ „Svo fór ég til London. Mig langaði að fylgjast með Antal Dorati, sem væntanlegur var þangað til að stjórna BBC hljóm sveitinni. Og Pierre Monteux, sem er fastráðinn hjá London Symphony Orchestra“. Framh. á 8. síðu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.