Vísir


Vísir - 10.10.1963, Qupperneq 8

Vísir - 10.10.1963, Qupperneq 8
8 V1SIR . Fimmtudagur 10. október 1963. Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði. í lausasólu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Hlutur verkamannsins Um síðustu helgi þingaði Alþýðusamband Norð- urlands á Akureyri og ræddi kaupgjaldsmálin, en verk- lýðsfélögin hafa sagt upp samningum 15. október, eins og kunnugt er. Þing þetta lýsti yfir að „óhjákvæmi- legt sé að verkalýðshreyfingin hefji án tafar aðgerðir og beiti öllu valdi sínu“ til þess að ná fram kaup- hækkunum, sem svari til eðlilegrar hlutdeildar í auk- inni þjóðarframleiðslu og launahækkana betur laun- aðra starfsstétta. Hér er með öðrum orðum boðað það sama stríð og Hannibal blés til eftir kosningarnar í vor. Úr því að ekki tókst að vega viðreisnina í frjálsum kosning- um, þá ætla kommúnistar að beita „öllu valdi sínu“ til þess að knýja fram kröfur sínar. Því verður ekki hjá því komizt að skoða kröfur hinna norðlenzku verkalýðsfélaga niður í kjölin, svo ljóst verði hvort þær eru á rökum reistar eða einungis innlegg í styrj- öld Hannihals gegn viðreisninni. Norðlenzku verkalýðsfélögin krefjast eðlilegrar hlutdeildar verkalýðsins í aukinni þjóðarframleiðslu. Það er í hæsta máta eðlileg krafa. En hver er hlutdeild verkalýðsins í framleiðslunni? Hefir hún vaxið eða minnkað á síðustu árum? Raunverulegar atvinnutekjur verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna, byggðar á skattaframtölum þeirra, jukust um 5.2% meðan þeir Hannibal og Lúðvík stjórnuðu landinu. En í tíð nú- verandi stjómar hafa þær hækkað um 11%. Og vísi- 4ala hlutdeildar vinnustéttanna í þjóðartekjunum hækkaði úr 100.2 árið 1958 í 103.1 árið 1962. Þetta sýnir, að núverandi ríkisstjórn hefir aukið hlutdeild launþega í þjóðarframleiðslunni og aukið verulega raunverulegar atvinnutekjur vinnustéttanna. Með sanngimi verður því ekki annað sagt en við- reisnin hafi gert mun betur við verkafólk en vinstri stjómin — því þessar tölur verða ekki véfengdar. Þess vegna kemur stríðsyfirlýsing verkalýðsfélaganna norð- lenzku óneitanlega dálítið spánskt fyrir sjónir. Hún vekur gmnsemdir um að þar ráði meira flokkspekt við kommúnista en hagur verkamannsins. Það er hins vegar hárrétt, að það þarf að stytta hinn óhóflega langa vinnudag. Og það þarf líka að hækka kaup hinna lægst launuðu. En þær hækkanir verða að byggjast á rökum en ekki pólitískri skemmd- arfýsn. EHa verða þær ekki meira virði en pappírinn, sem þær em skráðar á. Timinn og skattarnir Tíminn f jasar mjög fyrir nokkrum dögum um skatta- hækkanir ríkisstjómarinnar. Bent var hér á firrumar í þeim málflutningi. Skattamir hafa lækkað hátt í 400 millj. síðan skattabreytingin var gerð. Síðan hefir Tím- inn ekki minnzt á skattamálin. Það talar sínu máli. Kvenhetjan sem fór til Balik Papan Hún las norrænu við Háskóla íslands Brezk blöð kalla hana „kven- hetjuna, sem fór til Balik Papan, að beiðni Gilchrists sendiherra Breta í Jakarta í Indonesiu, en I Balik Papan, afskekktum stað f þeim hluta Bomeo, sem Indo- nesar ráða yfir, voru á annað hundrað brezkar konur og börn, sem ekki var um vitað. Þetta var á dögunum, þegar æstur múgur bar eld að sendiráði Breta í Jakarta. Kvenhetjan er dr. Grace Thornton, sem var vara ræðismaður Breta hér í Reykja vík á undan Brian Holt eða á árunum 1947 — 1951. Nú er hún ræðismaður í Jakarta. Grace Thornton er kona um fimmtug, ógift. Hún lauk mag- isterprófi við háskólann i Cam- bridge, og las þar næst norrænu við Hafnarháskóia og Háskóla Islands og lauk þar norrænu prófi. Á hún hér marga vini frá þvf hún dvaldist hér. Þegar mest gekk á skipaði Gilchrist svo fyrir, að hún skyldi fara til Singapore af öryggisástæöum, ásamt öðrum konum og börnum, sem flogið var með þangað. En daginn eftir fól Gilchrist henni all áhættu- samt hlutverk, þ. e. að fljúga til oiíustöðvarinnar Balik Papan á suður Borneo, en þar voru 152 brezkir þegnar, sem ekkert var vitað um. Ólu Bretar miklar á- hyggjur vegna þessa fólks, þar sem ekkert fréttist frá þessum stað, sem er afskekktur og á mörkum óbyggða Suður-Bomeo. Þurfti vissuiega hugrekki til þess að taka að sér það hlut verk, sem Grace Thornton var falið, en ótrauð mun þessi kjark mikla kona hafa faeið, og vfst er að engum treysti Gilchrist betur en henni til þess að reka þetta erindi. í olíustöð Shell f Balik-Papan voru 38 brezkar konur og 63 börn auk 51 karla, í ljós kom, að þama var allt með kyrrum kjörum. Þó mun fólk þetta ekki óttalaust um sig vegna atburð- anna í Jakarta. Eftir Gilchrist er haft: Ég er algerlega mótfallinn því, að kon ur séu starfandi í utanríkisþjón- ustunni, en é gundanskil Gracé Thornton, ella hefð; ég ekki val ið hana til þessa hlutverks. ☆ Viðbjóðslegt oð vero ungur Frh, af bls. 4: „Lærðirðu mikið af þeim?“ „Já, heilmikið. Eftir það fór ég aftur til Irlands og vann um tíma við sjónvarpið, raddsetti fyrir hljómsveit og stjómaði. Svo var ég fenginn til að sjá um uppfærslu á léttri músík fyrir útvarpið — þá var ég f upp- tökuherberginu og sá um tækni- legu hliðina". „Þú þurftir náttúrlega ekkert að læra til þess?“ „Ég fylgdist með fyrirrennara mínum í starfinu einn morgun, áður en hann hætti. Það er bezta Ieiðin“. „Ja, þig skortir ekki sjálfs- traust". „Hver á að trúa, að maður geti eitthvað, ef maður gerir það ekki sjálfur?" „Ég vil segja, að maður læri ekki eins vel af neinu og að horfa á þá, sem kunna verkið. Það er eins og t. d. að keyra — ekki er hægt að læra að keyra bíl“. „Ekki það? Keyrirðu kannske sjálfur?" „Já. Ég fylgdist bara með vönum bflstjórum, svo byrjaði ég, og það gekk ágætlega“. „Þurftirðu ekki að taka próf?“ „Nei, á írlandi getur hver sem er fengið ökuleyfi. Hann bara fer inn og kaupir það“. „Hvernig er umferðin hjá ykkur?“ „Ja, það stendur víst til að breyta þessu". ALLTAF Á FARTINNI Hann er farinn að iða í sæt- inu. „Fyrirgefðu, en ég hef aldrei setið kyrr svona lengi", segir hann. „Ég þarf alltaf að vera á fartinni". „Ertu farinn að kvíða fyrir konsertinum?" „Nei, ég er ekkert tauga- óstyrkur fyrir konserta — það er þá frekar fyrir fyrstu æfing- una“. „Það hlýtur að vera erfitt að stjórna gamalreyndum hljóð- færaleikurum, sem flestir eru eldri en þú“. „Já, og ég veit svo sem, hvað þeir hugsa, þegar ég kem — ,Þetta smábarn, hvað heldur hann eiginlega, að hann sé?‘ En ef maður stendur sig, skiptir ekki máli, hvort maður er tíu ára eða tíræður, gulur, rauður, grænn, blár, hvítur eða svart- ur“. „Hvernig gengur þér að gera þig skiljanlegan?" „Tónlistarmenn tala allir sama málið. Músíkin er aðalatriðið, og orð eru sem betur fer óþörf“. - SSB VsrSi-hit; V. Vmningw .<%: Viarcixlet * Btnx Í90Æ/ noíiivti’f sHi.ivi ri- sjá.i yss i.dss.fi.okksí.ns: TVEIR TÍMAR í HUÓMFRÆÐI „Þú sagðist vera tónskáld — hefurðu ekki lært hljómfræði eða kontrapunkt?" „Nei, nei, til hvers? Ég fór í tvo hljómfræðitíma. Sá fyrri fór í að tala um allt milli himins og jarðar nema hljómfræði, en I þeim seinni sagði kennarinn, að allt væri vitlaust hjá mér — samstígar áttundir og fimmund- ir og þess háttar. ,En það hljóm ar fallega', sagði ég. ,Já, en þú| ert að læra hljómfræði, ekki hvað hljómar fallega', sagði kennarinn. Ég hugsaði mig um. ,Heyrðu, heldurðu, að ég hafi nokkuð gott af þessu námi?‘ spurði ég. ,Nei, það held ég ekki‘, svaraði hann. Síðan hef ég aldrei litið 1 hljómfræði". „Þú vilt segja, að kennarar séu óþarfir menn i þjóðfélag- inu?“ Þannig lítur miðinn i Skyndi- happdrætti Sjálfstæðisflokksins út. Hann fæst fyrir aðeins hundrað krónur, en gefur eig- andanum möguleika til að eign- ast 320 — þrjú hundruð og tutt- ugu þúsund króna Mercedes Benz 190, sex manna lúxusbif- reið af einni fullkomnustu teg- und, sem lengi hefur verið fram- íeidd. „Það er skemmtun að taka þátt í happdrætti um svona bif- reið“, sagði einn, um leið og hann greiddi miðann sinn á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í gær. Tökum þátt i skemmtuninni. Skemmtum okkur meðan tími er til. Dregið 8. ncvember, eftir aðeins tæplega einn mánuð. i>styrkjum smmimmimmm

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.