Vísir - 10.10.1963, Page 11

Vísir - 10.10.1963, Page 11
VÍSIR . Fimmtudagur 10. október 1963 landi. 21.45 ,,Ég kveiki á kerti mínu“, bókarkafli eftir Önnu frá Moldnúpi (Höfundur les). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Vinurinn í skápnum" eftir Hermann Kesten, 1 þýðingu Sigurlaug ar Björnsdóttur, fyrri hluti (Gestur Pálsson leikari). 22.30 I léttum dúr: 23.10 Dagskrálok. Sjónvarpið Fimmtudagur 10. október. 17.00 Mid-Day Matinee „Adventures of Casanova" 18.00 Aftrs News 18.15 The Telenews Weekly 18.30 The Ted Mack Show 19.00 Walt Disney Presents 1955 Afrts News Extra 20.00 Biography 20.30 The Dinah Shore Show 21.30 Willy 22.00 The Untouchables 22.55 Afrts Final Edition News 23.00 The Tonight Show Söfiiin Bókasafn Seltjamamess. Útlán: Mánudaga kl. 5,15 — 7 og 8 — 10. Miðvikudaga kl. 5,15 — 7. Föstu- daga kl. 5,15—7 og 8 — 10. Listasafn Einars Jónssonar er opið á sunnudögum og miðviku- dögum frá kl. 1,30 til 3,30. Þjóðminjasafnið og Listasafn Ríkisins eru opin þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnu daga. Frá kl. 1,30-4. GULLKORN. Eða lítilsvirðir þú ríkdóm gæsku Hans og umburðarlyndi, og veizt ekki að gæska Guðs leiðir þig til iðrunar. En með harðúð þinn; og iðrunarlausa hjarta safnar þú sjálfum þér reiði á reiðidegi og opinberunar Guðs réttláta dóms. Róm 2. BELLA SÍGARETTAN veldur orðið mikl- um áhyggjum, sem eyðileggjandi afl. — í Reykjavík eru skráð 23 tilfelli á þessu ári, þar sem elds- upptök má rekja til sígarettunn- ar og tjón af hennar völdum skipt ir milljónum króna. — Aðalástæð an er • kæruleysi manna, er þeir henda frá sér sígarettustubb í ruslafötu, bréfakörfu eða ösku- bakki er tæmdur í þessi ílát. — Þér skuluð varast að tæma úr öskubakkanum á kvöldin rétt áður en þér farið að sofa, skiljið þá heldur eftir á vaskborðinu til morguns, eða skolið úr þeim með vatni eða hellið úr þeim í salernið. — Reykingar í rúminu ættu allir að varast. Nokkur dæmi höfum við hér í Reykjavík, þar sem mönnum hefur verið bjargað á síðustu stundu frá því að brenna inni. — Hættuiegast . e.r þaíj. fyrir. þá sem: nota, svefn- meðul, ef þeir taka sér bók bg sígarettu á meðan þeir bíða eftir því að meðulin verki, meðvitund- in dofnar og maðurinn man ekki eftir hendinni, sem heldur á síga rettunni, en þá er voðinn vís. Samb. brunatryggjenda á íslandi Spáin gildir fyrir föstudaginn 11. október. Hrúturinn, 21. marz til 20. aprll: Þú ert, mjög vel fyrir kallaður til athafna og langsýnn yfir athafnastundir sólahrings- ins, en vonir þínar dvína nokkuð þegar kvölda tekur. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Láttu ekki öðrum upp skoðanir þínar þegar þú veizt að þú átt við harða samkeppni að stríða. Samstaða heima fyrir er mikils virði. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní: Það er oft nauðsynlegt að draga úr þátttöku manns í skemmtanalífinu, þegar þreyta fer að segja til sín. Þú ættir að gera ráð fyrir rólegri helgi. Krabbinn, 22. júní til 23.júlí: Vera má að þú komist að ein- hverjum hagkvæmum viðskipt- um, svo fremi að þú notfærir þér hinar skörpu gáfur þínar. Tefldu samt ekki á tvær hættur í neinu nú. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst: Þú ætir að gera þér ljósa grein fyrir tilfinningum þinna nánustu áður en ,þú, leggur spilin á borð ið. Áætlanir þínar gætu verið á loftköstulum byggðar og sær- andi fyrir aðra. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Sumt af því sem þú gerir þér áhyggjur út af getur hreinlega stafað út frá of miklu ímyndun- arafli. Ræddu við sérfræðinga um þær hliðar málsins, sem þú botnar ekki 1. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Fólk verður mjög skemmtilegt gagnvart þér í dag. Hins vegar væri hyggilegt af þér að hafna öllum tilboðum um þátttöku í áhættusömum leikjum eða spil- um í kvöld. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Það eru fullar horfur á því að þú munir hljóta hrósyrði fyrir góða frammistöðu á vinnustað. Taktu ekki þátt í skemmtunum, sem trufla heimilisfriðinn. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Láttu þá sem eru á önd- verðum skoðunum við þig ekki setja þig úr jafnvægi, þvl þú hefur raunverulega á réttu að standa nú. Hugleiddu það sem framundan er. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Það er þér sennilega of- vaxið fjárhagslega að standa hinum auðugri eða eyðslusamari vinum þínum á sporði. Heimilið er aðal skjól þitt. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Þú gætir farið úr jafnvægi geðsmunalega, sakir þess að þeir sem umgangast þig eru ekki vinsamlegir í garð skoðana þinna. Fiskamir, 20. febr. til 20. marz: Þú virðist vera fremur skeytingarlítill um atvinnu þína í dag. Þú þarft að gera þér ljóst að það er ávallt til mikils að vinna að vera athafnasamur. Kalli og kéng- y Það lá í augum uppi að Kalla líkaðj ekik allskostar við mat þann sem kóngurinn hafði búið til. Áhöfnin gerði því grín að öllu saman, og fór að leika sér með matinn á diskunum. Hof- meistarinn Friðrik horfði á það öskuvondur. Þetta skulið þið fá refsingu fyrir að mér heilum og lifandi strax og við komum til Kneez. Þetta er konungsmóðgun og slíkt verður ekki þolað. Þetta er einnig freklegt brot á reglu- bókinni og þið fáið einnig refs- ingu fyrir það. Síðan reigði Frikki sig og gekk út úr borðsalnum. Kóngurinn fylgdi á eftir honum einnig öskuvondur með ónýta matinn með sér. Kalii horfði á eftoir þeim og yppti öxlum. Það var ekki auðvelt að hafa jafn tigna persónu og konung, um borð í litlu skipi, þar sem engir voru nema óbreyttir sjómenn, og einn hundleiðinlegur hirðmaður. Ég verð líklega að reyna að tala við hann, andvarpaði Kalli og labbaði af stað. Hann bankaði kurteislega á dyrnar á hium kon unglega svefnklefa, og þegar eng inn svaraði, þá opnaði hann ró- lega hurðina og gekk innfyrir. Kóngurinn sat þöguli á rúm- stokknum og horfði þungbúinn fram fyrir sig. Fan stekkur á fætur. Ming, ó Rip, segir hún. Hann er farinn fyrir fullt og allt, segir Rip, og það eru gimsteinarnir lika, það gerir varla mikið til. En þú ert hérna ennþ'á, við getum byrjað upp á nýtt, segir Fan. Hm . . það hljómar ágætlega segir Rip. ‘/ou+t Opib ga>iNH«C(N Belia er að safna fyrir minkapels. FÓLK Salvador Dali Hinn frægi súrrelalsti Salvador Dali finnur upp á ýmsu. Það nýjasta er að hann hefur látið gera handa sér gleraugu með f jórum sér staklega útbúnum linsum. Hann fullyrðir að hann máli miklu betur þegar hann hef- ur þessi gleraugu. * Bandariskir sálfræðingar hafa fundið nýtt orð til að einkenna vissa „tegund“ bandarískra „bisiniss- manna“. Þeir kalla þá „hálf menn“. Og þeir skýrgreina „hálf- menn“ á eftirfarandi hátt: „Einstaklingur, sem drekk ur sig ekki beinlínis fullan í hinum mörgu kokkteilboð- um, sem hann þarf að vera í, en getur þó ekki unnið nema með hálfum afköstum daginn eftir, vegna timbur- manna og „afréttarans“, sem hann fékk sér með há- degismatnum“. Því miður, segja sálfræð- í ingarnir, fer „hálfmönnum“ * finlitorirlí í T TQ A

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.