Vísir - 11.11.1963, Side 16
ffldsvoði hjá Agli Vilhjálmssyni
Mámidagur 11. nóvember 1963
Þessi mynd var tekin í morgun í brunarústum verkstæBisins að Laugavegi 118. Maðurinn til hægri á mynd-
inni er Valur Steingrimsson verkstjóri, og er hann að huga að mótorageymslunni, sem hafði að geyma 25
mótora. Veggurinn vinstra megin er milli verkstæðisins og klefans, þar sem gufuofninn er staðsettur.
Stóraukin starfsemi Loft-
Eldur í mótorverkstæði i
nótt — 25 aflmiklar hílvél
ar skemmdust mikió
Loftleiðir leggja nú mikla á-
! herzlu á að auka flugferðir til
Luxemborgar og njóta til þess alls
j atbeina og aðstoðar ferðamála-
| stjórnar þessa litla Evrópuríkis,
| sem gerir sér vonir um að ferða-
j mannastraumur um Luxemborg
j vegna AmeríkuferCa Loftleiða auk-
j Bróðkvaddur
jd rjúpuveiðum
Rjúpnaskytta var bráðkvödd aust-
ur f Gjábakkahrauni s.l. laugardag.
Maður þessi var Kristján Sólmunds
son, Hverfisgötu 37, starfsmaður
Morgunblaðsins.
Kristján hafði farið ásamt félaga
sínum austur f Þingvallasveit til
rjúpnaveiða. Þar skildu þeir félagar
skamma stund, en ákváðu að hitt-
ast á ákveðnum stað. Er þangað
kom fann maðurinn Kristján örend-
an. Hafði hann dáið af hjartaslagi,
en Kristján hafði um nokkurra ára
skeið kennt hjartaveilu.
Kristján var á 60. aldursári, vel
látinn maður og greindur. Hann
lætur eftir sig konu og ungan son.
ist. Þar suður frá eru ferðamála-
yfirvöldin farin að tala um það,
að Luxemborg geti orðið hlið
bandarískra ferðamanna að Evrópu
og þá jafnframt hlið evrópskra
ferðamanna að Ameríku. Nú er svo
komið, að Loftleiðir hafa sex viku
legar ferðir milli Reykjavíkur og
Luxemborgar.
1 slðustu viku buðu Loftleiðir
hópi íslenzkra fréttamanna til Lux
emborgar til þess að kynnast því
starfi sem þar hefur verið unnið.
Afgreiðslumaður Loftleiða þar,
Norðmaðurinn Einar Aakren hefur
unnið þar mikið starf á síðustu ár-
um við að ná samvinnu hundruð
ferðaskrifstofa víðsvegar í Evrópu.
Loftleiðir hafa svo sjálfir sett upp
ferðaskrifstofur m. a. í París og
Frankfurt am Main. Skipulagðar
hafa verið strætisvagnaferðir Loft-
Ieiða frá Frankfurt, Mannheim,
Kaiserslautern og Saarbriicken til
Luxemborgar og auk þess hefur
flugfélag Luxemborgar sem kallast
Luxair flugferðir frá Frankfurt,
ZUrich og París, er auðvelda fólki
ferðirnar. Streyma farþegar nú
að víðsvegar úr Evrópu eftir á-
bendingum ferðaskrifstofanna og
koma jafnvel austan frá Grikklandi
og nálægum Austurlöndum tii þess
að fá ódýrustu flugferðina til
Ameríku. Flestir farþegarnir koma
þó frá Þýzkalandi.
Meðal starfsmanna Loftleiða f
Luxemborg og ferðamálastjórnar
Luxemborgar ríkir hin mesta bjart
sýni um aukningu þessara ferða,
sérstaklega þó ef það leyfi fengist.
sem beðið hefur verið um að lækka
fargjaldið milli Luxemb,—Rvfkur,
sem Loftleiðir hafa óskað eftir.
Töldu þeir, að með því fengjust
mikii og örugg viðskipti.
Um miðnætti f fyrrinótt fór bíll
úr Hafnarfirði út af veginum við
Hárlaugsstaði f Holtum. Þrír far-
þegar voru f bílnum auk ökumanns
og slasaðist ekkert af fólkinu. Lög-
reglan á Selfossi fór á staðinn og
samkvæmt upplýsingum frá henni
er bíllinn, sem er af Volkswagen
gerð, talinn ónýtur.
Stórmiklar skemmdir urðu
í nótt í eldsvoða, sem varð
hjá Agli Vilhjálmssyni h.f.
í nótt, er eldur kom upp í
deild þeirri, sem fram-
kvæmir uppbyggingu bíl-
mótora. Eldur, reykur og
vatn eyðilögðu mjög mik-
ið. Mestur skaði varð í
geymslu þar sem 25 bíl-
mótorar, allir nýuppteknir,
skemmdust svo að þá verð
ur örugglega að taka alla
upp aftur.
Slökkvilið Reykjavíkur fékk til-
kynningu frá lögreglunni kl. 4.16
f nótt um að eldur væri laus f
stórbyggingu Egils Vilhjálmssonar
h.f. að Laugavegi 118. Einhver mis-
tök munu hafa átt sér stað í að
tilkynna um eldinn, þannig að
slökkviliðið kom mun seinna á
vettvang en ella. Ætti fólk að var
ast að tilkynna lögreglu um elds-
voða, en hringja beint á slökkvi-
stöðina ,enda er hér um beina töf
að ræða og hver mínúta getur ver-
ið dýrmæt í tilvikum sem þessum.
Mikill eldur var kominn í þak
verkstæðisins er slökkviliðið kom
á vettvang og hafði eldurinn étið
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
ákveðið að taka tilboði Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar Kletts
h.f. f eign s.f. Faxa. Kaupverð var
ákveðið 44.5 millj. króna og greið-
ist þannig, að verksmiðjan tekur
við skuldum Faxa s.f. Áhvflandi
skuldir á Faxa eru 40 — 50 milljónir,
en gert er ráð fyrir að borgarsjóður
verði að afskrifa 3 millj. króna og
sig gegnum þekjuna. Ráða tókst
niðurlögum eldsins að mestu á
klukkustund, en f morgun þegcr
ljósmyndari og blaðamaður Vísis
skoðuðu verksummerkin, var brum
vakt enn f húsinu, en starfsmenn
frá Agli Vilhjálmssyni unnu við
að veita vatni af gólfunum. Mun
geysimikil vinna liggja í að þrífa
verkstæðið og vélamar eftir brun-
ann.
Að sögn Vals Steingrímssonar,
verkstjóra skemmdi e'durinn 25 bíl
mótora þannig að ekki kemur til
greina annað en rífa þá sundur og
endurbyggja upp á nýtt. Mótorar
þessir voru allir 6 strokka, í stóra
ameríska bfla, og kostar klössun
á þessum mótorum frá 12 — 15 þús.
kr.
„Þetta kemur sér að sjálfsögðu
afar illa“ ,sagði Matthías Guð-
mundsson fulltrúi hjá Agli Vil-
hjálmssyni hf. „Að vísu eru mót-
orarnir tryggðir og viðskiptavinir
okkar verða ekki fyrir fjárhags-
tjóni, en auðvitað verður seinkun
á afgreiðslu og það kemur sér
verst, en við því verður varla mik-
ið að gera". Við höfum líka orðið
varir við að menn hafa vantrú á
að mótorarnir verði eins góðir eft-
ir á og áður, en það mun ekki
eiga að hafa nein áhrif, sennilega
hafa hvftmálmar bráðnað f mótor-
unum en annað ætti að vera heilt
og mótorarnir jafngóðir eftir við-
gerð“.
Kveldúlfur 2 milljónir.
Itrekaðar tilraunir hafa verið
gerðar til að koma eignum Faxa s.f.
í verð, en fram til þessa höfðu ekki
borizt viðunandi tilboð. Taldi borg-
arstjóri, Geir Hallgrímsson, á borg-
arstjórnarfundi á fimmtudag, að
tilboðið væri gott eftir atvikum og
tóku tveir borgarfulltrúar minni-
hluta borgarstjórnar undir það.
Landsmólafélagið Vörður
heldur aðalfund sinn í kvöld kl. 8.30 i
Sjálfstæðishúsinu.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Pétur Sigurðsson alþingismaður flyt-
ur ræðu: Viðhorfið í Iaunamálum.
Félagsmenr. eru kvattir til að mæta og
sýna skírteini við„ igpgangign.
ðMH
Bankanir nnnsaka
ávísananotkunina
Eftir hádegi á laugardag sl.
fóru fram sérstök ávfsanaskipti
f öllum lánastofnunum á Suð-
Vesturlandi. Fór hún þannig
fram að allar ávísanir voru bók
aðar og pær ávísanir sendar aft
ur til bankans, sem upphaflega
tók við þeim, ef innstæða var
ekki fyrir hendi.
Er þetta liður f alvarlegri við
leitni bankanna að koma f veg
fyrir ólöglega útgáfu ávfsana og
þann leik að láta innstæðulaus-
ar ávfsanir af hendi f trausti
þess að hægt verði að leggja
inn á viðkomandi hlaupareikn-
ing áður en ávísunin berst þang
að.
Eru bankarnir með þessu að
skapa handhöfum tékkhefta að-
hald um rétta notkun þeirra.
Má búast við þvf að þessi ávfs-
anaskipti fari framvegis fram
öðru hvoru og án fyrirvara. —
Þeim, sem staðnir eru að ólög-
Iegri útgáfu ávísana verður
hegnt með sviptingu tékkheftis
og jafnvel ákæru, en strangar
refsingar liggja við útgáfu inn-
stæðulausra ávísana.
Mörg ár eru síðan ávísana-
skipti hafa farið fram með þess
um hætti. Hins vegar fara þau
fram á ófullkomnari hátt, tvisv-
ar á dag ,en það útilokar ekki a6
menn geti gefið út innstæðu-
lausar ávfsanir, án þess að það
komist upp.
1 þessari athugun bankanna
komu fram allveruleg misferli
f meðferð ávísana og er í at-
hugun hvort og hve margir
verði kærðir. Verður nú áhættu
samara og erfiðara að gefa út
falskar ávísanir „gúmmftékka“
en verið hefur.
Klettur kaupir
Faxaverksmiðjuua