Vísir - 23.11.1963, Blaðsíða 6
\L
V í S I R . Laugardagur 23. nóvember 1963.
Sklðaráð Reykjavíkur hefur ákveöiO að nota snjóinn til skiðanámskeiða, sem haldin verða á Amarhólstúni, þegar vel viðrar. — í gær
fór fyrsta námskeiðið fram og hér sést kennarinn ásamt nemendum sínum í gærkvöldi. Skíðanámskeiðin verða auglýst nánar næstu daga.
Ný sjúkrasamlagsskírteini
Núna um helgina og næstu
daga verða borin út ný skír-
teini fyrir Sjúkrasamlag Reykja
vikur. Reynt verður að hafa sam
band við einhvem heimilismann
i hverri ibúð, og bannig fá vissu
fyrir að skfrteinin komist til
réttra aðlla. Á beim stöðum sem
póstkassar eru fyrir hverja
íbúð, með nöfnum allra heimil-
ismanna árituðum, munu skir-
teini þó lögð, án þess að heim-
iiisfriðurinn verði truflaður.
óskað er eftir upplýsingum
ium það, hvort vitað sé um ein-
hvern skírteinishafa, sem með
réttu ætti ekki að vera í sam-
laginu, vegna þess að hann sé
vistmaður á hæli til langframa,
vegna lögheimilis utanbæjar,
vegna þess að hann sé látinn,
eða vegna þess að hann sé flutt
ur úr bænum. Öll heimilisföng
á skírteinunum eru miðuð við
1. desember 1962, og munu skír
Nsinin því ekki berast þeim, er
flutt hafa síðan. Þau munu held
ur ekki berast þeim sem hinn
12. júli s. 1. voru taldir í van-
skilum við samlagið, eða þeim
sem um vantar vissar upplýsing-
ar varðandj fjölskylduhagi eða
annað slíkt.
Með skírteinunum mun einnig
berast bæklingur, 32 bls. að
stærð, sem sjúkrasamlagið hef-
ur tekið saman og hefur hann
að geyma ýmsar upplýsingar um
helztu atriði sem samlagsmeð-
limir þurfa að kunna skil á.
Bæklinginn fá meðlimir ó-
keypis.
1 hönum er meðal annars
fjallað um hlutverk og starfs-
hætti heimilislæknis og heim-
ilissérfræðings (en svo eru háls-,
nef- og eyrna læknar nefndir).
Einnig um skipan og verkefni
læknavarðar, þ. e. kvöldvaktar,
næturvaktar, helgidagavaktar og
neyðarvaktar. Þá er og lýst regl
um um sérfræðilega læknis-
hjálp og tilvísanir til sérfræð-
inga. Skýrt er frá því hvernig
samlagið greiði læknishjálp og
hvað sjúklingum ber sjálfum að
greiða, bæði heimilissérfræðing-
um og öðrum sérfræðingum. Af
öðru efni en því er snertir
læknamál, má sérstaklega benda
á kaflann um sjúkradagpeninga,
en frá næstu áramótum taka
gildi mjög breyttar reglur um
dagpeningaréttinn.
Þá eru kaflar sem snerta sam
bandið milli iðgjaldagreiðslu og
samlagsréttinda, og milli búsetu
og samlagsréttinda. Fram að
áramótum er heimilt að nota
hvort sem er gömul eða ný skír-
teini, og til sama tíma má til-
greina gamla númerið á reikn-
ingnum og tilkynningum til sam
lagsins, svo og á lyfseðlum.
Eftir áramót skal nýja núm-
erið alltaf notað.
Núna um helgina, og nokkra
næstu daga, munu um 160 skáta-
piltar og stúlkur setja svip sinn á
bæinn, þar sem þau fara hús úr
húsi með hin nýju skírteini sjúkra-
samlagsins.
Forstjóri samlagsins, Gunnar
Möller, sneri sér til skátanna fyrir
skömmu, og samdi við þá um að
bera út þessi skírteini. Kvað hann
það gert til þess að tryggja aiger-
lega að þau lentu í réttum höndum,
og færu ekki á flæking um bæinn.
Ef skírteinin væru send eftir
Kona fEeygir sér út
úr brennandi húsi
Mikill eldsvoði varð að Steinnesi
á Seltjarnarnesi i gærdag, en það
sem verra var að kona slasaðist
illa, er hún stökk út um glugga til
að bjarga sér úr eldinum. Hún var
lögð inn í Landspitalann að athug-
un lokinni i slysavarðstofunni.
Eldsins varð vart um kl. hálf
fimm í gærdag og slökkviliðinu þá
gert aðvart. Þegar það kom á stað-
inn stóðu eldtungurnar út um
glugga á efri hæð hússins og öll
hæðin alelda að innan. Þetta hús
— Steinnes — er einlyft með risi
og kvistir á risinu bæði að porðan
og sunnan. Útveggir voru steyptir,
en timburklætt að innan og tré-
texklæðning á efri hæðinni.
Uppi á hæðinni var kona, Sol-
veig Andersen að nafni. Bar eldinn
svo brátt að að hún sá sér ekki
fært að komast niður stigann svo
hún átti ekki annars kost en kasta
sér út um glugga. Við fallið slas-
aðist hún illa, mun hafa beinbrotn-
að og var flutt f Landspítalann að
athugun f slysavarðstofunni lok-
inni.
Brunaskemmdir urðu mjög mikl-
ar á efri hæðinni, svo mjög að hún
má teljast eyðilögð að mestu eða
öllu. Neðri hæðinni var hægt að
forða frá eldsskemmdum, en talið
að mikið tjón hafi orðið þar af
vatni, og e. t. v. einnig af reyk.
Um eldsupptök er blaðinu ekki
kunnugt.
venjulegum Ieiðum, myndu póst-
arnir skilja þau eftir við það heim-
ilisfang sem á þau væru rituð, og
hafa svo ekki frekari áhyggjur af
því. Skátarnir aftur á móti munu
hringja, og tala við fólk, til þess
að fullvissa sig um að réttir aðilar
byggju þar. Ef svo reyndist ekki,
myndu þeir taka skírteinin með
sér aftur, og yrðu þá aðrar ráð-
þeir gætu ekki hugsað sér að
stafanir gerðar. Vísir innti Gunnar
eftir því, hvers vegna skátarnir
hefðu verið fengnir til þess að
vinna þetta verk, og sagði hann, að
með þessu vildi samlagið Iétta
undir með meðlimum þess.
Hann sagði einnig að þeir hefðu
frétt, að skátarnir væru I bygging-
arhugleiðingum, og því hefði sér
Sjénvsirp —
Framh. af bls. 16.
lendisins og Borgarfjarðar, eða
hvort samtímis yrði hugsað um að
koma upp endurvarpsstöðvum á
Skálafelli, við Esju og Norðanlands
til að koma sjónvarpinu þangað.
1 bréfi menntamálaráðherra er
óskað eftir nákvæmum áætlunum
um stofnkostnað sjónvarpsstöðvar
og hvort taka ætti þetta í áföngum,
byrja með litilli stöð og stækka
hana síðar. Þá æskir ráðuneytið
tillagna um starfrækslu slíkrar
sjónvarpsstöðvar, daglegan sending
artíma fyrstu starfsárin og skipu-
lag dagskrárstjórnar. Þá er sér-
staklega óskað eftir að athuguð
verði skilyrði til hagnýtingar sjón-
varps í þágu skóla.
Að lokum óskar ráðuneytið eftir
að gerð verði áætlun um árlegan
reksturskostnað og tillagna er ósk
að um fjáröflun til greiðslu stofn-
kostnaðar og árlegs rekstrarkostn-
aðar.
Guildhall —
Framn. af bls. 16.
19. nóvember 1963.
Þegar litið er inn í matseðil-
inn sést að fimmréttað hefur
verið í veizlunni. Réttirnir eru
þessir: Súpa var Creme St.
Hubert og með henni annað
hvort Sherry — Paladar Misa
Amontillado eða Madeira —
Old Trinity House Bual.
Fiskréttur var koli — Dover
Sole Bagration, Sauce, Vérte
og Elsassvín með — Vin
d’Alsace: Gewurztminer Chateau
de Mittelwihr 1959.
Kjötréttur var kindakjöt.
Double Mutton Cutlets, Red-
currant Jelly og Lyonnaise
Potatoes, en vín var Claret:
Chateau Pontet Canet (French
bottled) 1955.
Ávaxtaréttur var Pineapple
Haroun E1 Raschid Gavootes og
vín með Champagne: G. H.
Mumm 1953 (Magnums).
Eftirréttur var rækjur Bou-
chées of Curried Shrimps og
vín með Portvín Dow 1943. Að
iokum var kaffi og brandy.
dottið í hug að spyrja þá, hvort
krækja sér í dálítinn aukaskilding.
Ekki treysti Gunnar sér til þess
að nefna ákveðna upphæð, en sagð
ist reikna með að það yrðu rúm 80
þúsund.
Drer.gur slasast alvarlega
við að hanga aftan íbifreið
í gær slasaðist drengur verulega
við það að hanga aftan í bifreið.
Þessi atburður skeði vestur á
Kaplaskjólsvegi um klukkan 3 e. h.
í gærdag.
Atvikin að slysinu voru í aðal-
atriðum sem hér segir: Stór sendi-
ferðabifreið var að flytja sig milli
sambýlishúsa á Kaplaskjðlsvegin-
um, og þurfti áður að snúa við til
að komast þangað sem hún ætlaði.
Áður en bifreiðarstjórinn fór inn í
bifreiðina veitti hann athygli
krökkum sem gerðu sig líklega til
að hanga aftan í bifreiðinni og
reyndi hann eftir megni að stugga
beim frá. Er hann hafði hreyft bíl-
inn eitthvað til leit hann út um
bíldyrnar og sá þá dreng framan
við afturhjól bllsins og virtist hon-
um sem drengurinn væri að skríða
undan bifreiðinni.
Nú er mjög óljóst hvað þarna
1 hefur skeð, hvort drengurinn hef-
ur orðið milli afturhjóla bifreið-
arinnar, eða hvort annað hjólið
hefur farið yfir hann. Er þýðingar-
mikið’ fyrir rannsóknarlögregluna
að fá frásögn sjónarvotta að slys-
inu og biður þá að koma til viðtals.
Drengurinn, sem slasaðist er sex
ára að aldri. Hann heitir Ríkarður
Sverrisson og er til heimilis að
Kaplaskjólsvegi 29. Hann var flutt-
ur í slysavarðstofuna og þaðan í
sjúkrahús. Visir hefur óljósar
fréttir af meiðslum hans, en veit
þó að hann hlaut heilahristing,
fann til eymsla fyrir brjósti og
víðar um llkamann og hafði hlotið
höfuðmeiðsli.
Lögreglan vill nota tækifærið og
benda foreldrum barna á að brýna
fyrir þeim hættuna, sem stafar af
því að hanga aftan I bílum. Krakk-
ar hafa Iöngum leikið það er snjóa
tekur að hanga aftan í bifreiðum,
en það er stórhættulegur leikur og
hefur hvert slysið á fætur öðru
hlotizt af því.
Úr því að minnzt er á umferðar-
hættu í sambandi við snjóalög er
líka rétt að benda á hættuna sem
skíðaferðir barna og unglinga hafa
í för með sér. Lögreglan í Reykja-
vík hefur þegar lokað allmörgum
götum borgarinnar fyrir annarri
umferð en sleðum og ætlast jafn-
fram til að krakkar noti einmitt
þær götur til sleðaferða, en ekki
aðrar umferðargötur.
>! « " i
t f V ■’#
’í í 3-í
f *' f. \
■ \ . ./
'í