Vísir - 06.12.1963, Blaðsíða 1
VISIR
TOLL VÖRUGEYMSLAN
NÚ m/N TIL STARFA
53. árg. — Föstudagur 6. desember 1963. — 166. tbl.
Nýju prestamir
komi um áramót
Verður ef tiB vill einnig miðstöð skipaféluga
Samkvæmt viðtali, sem Vísir
átti við séra Ingólf Ástmarsson,
biskupsritara, í morgun, mun
biskupinn gera tillögur um það
til kirkjumálaráðuneytisins, að
nýju prestarnir í Reykjavík fái
veitingu frá áramótum. Tvo
þeirra sem voru löglegá kjörnir,
þarf að vígja, kandidatana
Frank Halldórsson og Felix
Ólafsson.
Þrjú prestsembætti losna nú
úti á landi, Oddi á Rangárvöll-
um, Sauðlauksdalur og Háls í
Fnjóskadal.
Kirkjur vantar í þremur hinna
nýju prestakalla í Reykjavík.
Komið mun hafa til orða að
messur í Ásprestakalli verði
haldnar í Hrafnistu, og jafnvel
hátíðamessur í Laugarneskirkju.
í Bústaðaprestakalli verður
messað á sama stað og verið
héfir í Bústaðasókn undanfarið,
þ. e. í samkomusal Réttarholts
skólans. í Grensásprestakalli er
engin kirkja og ekkert sam-
komuhús eða skóli ennþá. —
Næstu kirkjur aðaíbyggðinni
í því prestakalli eru Kirkja
Óháða safnaðarins og Fossvogs
kirkja.
Tollvörugeymslan tók til starfa
í gær. Var þá komið fyrir vör-
um f henni úr einu af skipum
Hafskips hf., en ætlunin er sú,
að Tollvörugeymslan taki að
sér geymslu og afgreiðslu á vör
um fyrir sltipafélögin, sem þess
óska. Er þar um þátt að ræða í
starfsemi Tollvörugeymslunnar,
sem ekki var ráðgerður í upp-
hafi en aðalþáttur starfsemi fyr
irtækisins verður að sjálfsögðu
sá að láta innflytjendum í té
rými fyrir tollvörur. Albert Guð
mundsson, form. stjórnar Toll-
vörugeymslunnar skýrði Vfsi
svo frá í morgun, að hann hefði
mikinn áhuga á því að Tollvöru
geymslan gæti tekið að sér fyrir
greiðslu fyrir skipafélögin, bæði
vörugeymslu og vöruafgreiðsiu.
Hafskip h.f. hefðu þegið boð
Tollvörugeymslunnar f þessu
efni og Jöklum h.f. hefði einnig
verið gefinn kostur á sams kon-
ar fyrirgreiðslu.
Albert sagði, að ef áætlun
stjórnar fyrirtækisins stæðist
um að koma henni upp að öllu
leyti næsta sumar, þ.e. 10 þús.
ferm. væri unnt að láta 3 — 4000
ferm. undir geymslur fyrir skipa
félögin en 6—7000 ferm. undir
hina eiginlegu tollvörugeymslu
fyrst í stað. Gæti þá risið þarna
upp nokkurs konar miðstöð fyr
ir skipafélögin einnig. Fyrsti inn
flytjandinn ,sem lætur vörur f
Tollvörugeymsluna, verður Rolf
Johansen ,sem á von á Bridge-
stone hjólbörðum um miðjan
mánuðinn.
Mynd þessi var tekin í Tollvörugeymslunni f gær, er fyrstu vörun um var komið þar fyrir. Talið frá vinstri: Helgi Hjálmsson fram-
kvæmdastjóri, Gustaf Bergmann Einarsson verkstjóri og Albert G uðmundsson formaður stjórnarinnar.
Lóðað á góð-
ar torfur
MetsaBa Seoientsverksmiðjunnar:
Sementsalan orðin 100þús.
Við erum búnir að selja tæp
100 þúsund tonn af sementi á
árinu á inanlandsmarkaði, sagði
Jón Vestdal, forstjóri Sements
verksmiðju ríkisins, f viðtali við
Vísi í morgun. Er þetta mun
meiri sala cn á s.I. ári en auk
þess höfum við flutt út 12 þús.
tonn f ár.
BSoðsð í dag
Bls. 3 Ræða borgarstjóra
um fjárhagsáætlun
Reykjavíkur.
— 7 Föstudagsgrein um
morðmálin í Dallas.
Jón sagði, að um siðustu mán-
aðamót hefði sementssalan hér
innanlands numið nákvæmlega
98.600 tonnum en á öllu árinu
—msas—B nam
1962 hefði hún numið 75.616
tonnum.
Fram til júlí þessa árs voru
flutt úr landi 12000 tonn af sem-
enti en þá .ar útflutningi hætt
vegna hinnar miklu eftirspum-
ar á innalandsmarkaði. í fyrra
Framh. á bls. 6.
Aðeins firnm síldarbátar voru á
miðunum í morgun .og fengu 3
þeirra sfld rétt fyrir birtingu, en
þangað til hafði síldin verið neðar
50 föðmum. Lóðað var á góðar
torfur.
Af þessum 3 var Loftur Baldvins
son aflahæstur með 1200 tn., Víðir
II. 400 og Helga 300.
Þrettán bátar komu inn f gær-
kvöldi, Haraldur með 150 tn., Sól-
faxi 150, en hinir með frá 40 — 60.
Síldin er ágæt og veiðist sem fyrr
um 40 — 50 mílur út af Öndverðar-
nesi. Veður var orðið gott á síldar-
miðunum í morgun.
Fleii7þjóðir en Bretarmunu
færa út fiskveiðilögsöau
Fiskimálaráðstefnu 16 þjóða,
sem Bretar boðuðu til lýkur í
kvöld og voru horfur ekki á
að verulegur árangur myndi
nást á ráðstefnunni, að minnsta
kosti ekki samstaða um fram-
tíðarmörk fiskveiðilögsögu land
anna, sem taka þátt í henni, en
líkur eru fyrir, að Bretar til-
kynni einhverja útfærslu land-
helgi sinnar innan tíðar, og þá
sennilega fleiri þjóðir, sem enn
halda i þriggja mílna landhelgi.
Þetta kemur allvíða fram og
m.a. hjá Lundúnafréttaritara
Oslóarblaðsins AFTENPOSTEN.
Fyrirsögn fréttar frá honum er
birt með stórri fyrirsögn, sem
er á þá leið, að fleiri þjóðir en
Bretar muni trúlega færa út fisk
veiðilögsögu sína.
í fréttinni segir, að brezkir
talsmenn á ráðstefnunni hafi
miðað að því, að samkomulag-
næðist um samræmda fiskimála
stefnu Evrópuþjóða, — Bret-
ar hafi með öðrum orðum til-
Framh. á bls. 6.
— 8 og 9 Samtöl við
nýju Reykjavíkur-
prestana.