Vísir - 06.12.1963, Page 16

Vísir - 06.12.1963, Page 16
ISIR F#stu <!?><"”• 0 ’f>63 ...jgur um milljóna- urf Undanfarna daga hafa verið á kreiki hér í höfuðborginni sögur um mikil auðæfi og eignir, sem ung stúlka á að hafa erft í Frakk- landi. Hafa blaðinu borizt margar þessar sögur til eyrna, en það hef- ur nú aflað sér upplýsinga um að engin þeirra er á rökum reist og munu þær vera uppspuni einn. ► Kosningar fóru fram nýlega í Senegal og brutust út óeirðir i Dakar og biðu 10 menn bana en 60 særðust. Leopold Seng- hor var endurkjörinn forseti. Einnig fóru fram þingkosning- ar. Gísli Sigurbjörnsson reynir nýja leið í vandamálum ellinnar Heimili samhjálpar gamla fólksins Fyrir nokkru var frá því skýrt að í ráði væri að koma á stofn í Hveragerði heimili fyrir eldra fólk, sem gæti séð um sig sjálft að öllu Ieyti. Hefur þetta heim- ili nýlega hafið starfsemi sína. Er hér um að ræða nýja leið í vandamálum ellinnar, og er lík legt, að þessi byrjun, sem er lttil í fyrstu, verði upphaf að öðru meiru, þegar fram líða stundir. Til starfseminnar hefur verið tekið eitt af húsum stofnunar- innar, fjögur herbergi, stór stofa eldhús, salerni, bað og geymsla. Verða þarna fjórar konur (þrjár eru þegar komnar), sem sjá um sig sjálfar að öllu leyti. Þvott- urinn verður þó þveginn fyrir þær. Fá þær frá stofnuninni allt til matartilbúnings sem og allar nauðsynjar aðrar til heimilis- halds, en öll heimilisstörf ann- ast þær sjálfar, sem fyrr segir. Vistgjaldið er því kr. 50,- lægra á dag fyrir hverja, eða kr. 80,- i stað kr. 130,-. Allar fá konurnar sér herbergi en stór setustofa er sameigin- leg. Eldhúsið er með öllum nauð synlegum áhöldum og ísskáp. Geymsluherbergið er rúmgott og allur aðbúnaður í húsinu vandaður, Hefur verið reynt að gera þetta fyrsta heimili sam- hjálpar eldra fólksins sem bezt úr garði. Vonandi heppnast þessi hug- mynd vel I framkvæmd og yrði þess þá ekki langt að bíða, að starfsemin yrði aukin, fyrst í Hveragerði og síðan tekin upp í Reykjavík. Verður á þann hátt vonandi hægt að veita nokkrum vistpláss til viðbótar, en á því er full þörf. Togbétartekinnað ólöglegam veiðum í gær var komið með togbátinn Gamm VE 57 til Vestmannaeyja, en hann hafði verið tekinn að ó- löglegum veiðum undir Ingólfs- höfða. Það var varðskipið Albert sem kom að v.b. Gammi innan fisk- veiðimarkanna rétt um miðnætur- leytið aðfaranótt s.l. fimmtudags, en þá var báturinn staddur undan Ingólfshöfða. Bæði varðskipið og báturinn komu inn til Vestmannaeyja í gær og þegar á eftir hófust réttarhöld í máli skipstjórans á v.b. Gammi. Rannsókn lauk í gærkv. og viður- kenndi skipstjórinn brot sitt. Dóm- ur verður væntanlega kveðinn upp í dag. Á þessu ári hafa allmargir tog- bátar verið teknir að ólöglegum véiðum við suðurströndl'na. Yfir súmurr. þeirra voru dómar kveðnir upp strax, en í málum annarra báta a.m.k. fjögurra hefur dómsupp- kvaðning dregizt. Ástæðan fyrir þeim drætti er sú, að það voru flugvélar sem stóðu báta þessa að veiðum naumt innan landhelgismarkanna, eða frá 0,2 og upp í 0,5 sjómílur. Dómsmálavald- inu fannst ástæða til í þeim málum að leita álits dómkvaddra manna um nákvæmni slíkra mælinga úr lofti, og að fresta skyldi dómsupp kvaðningu á meðan. Að því er bæjarfógetaembættið í Vestmannaeyjum tjáði Vísi í morg un liggur álitsgjörð þessara dóm- kvöddu manna nú fyrir og verða dómar kveðnir upp í málum við- komandi skipstjóra innan skamms. Hér er Sigurjón Einarsson, flugmaður, við hina nýju flugvél Flugmálastjómarinnar. Ný flugvél kom í nótt: Flugmálœtjómin hefur fest kaup á Bonanza-flugvél Ný flugvél bættist islenzka flugflotanum í nótt. Það er 2ja hreyfla Bechcraft Twin Bonanza Nýtt átibá frá Pósthásina opnað að Laugavegi 176 Póststofan í Reykjavik tekur innan skamms í notkun nýtt úti bú að Laugavegi 176 i Reykja- vfk, en innarlega við Laugaveg og við Suðurlandsbraut er mikið verzlunar- og skrifstofuhverfi risið og ekki vanþörf á að stofna póststofu i sambandi við það. Matthías Guðmundsson, póst meistari, tjáði blaðinu í morgun DAGAR TIL JÓLA að tekið hefði verið á leigu 130 ferm. húsnæði að Laugavegi 176 og væri unnið að innréttingu þess. Hefði verið vonazt til að hægt væri að nota húsnæðið í sambandi við jólapóstinn, en Matthías taldi allar líkur til að það mundi ekki takast, þar eð gler hefði ekki fengizt enn I húsið. Má því búast við að Lauga- vegs-útibú pósthússins opni ekki fyrr en eftir áramótin. Þess má geta að eitt útibú hefur verið starfrækt í Reykjavík, það er á Langholtsvegi. Að Laugavegi 176, sem er mikið verzlunarhús, er Ritfanga verzlunin Penninn að opna mikla verzlun, en síðar koma verzlanir Hansa og Raftækja- verzlunarinnar Blossa. sem Flugmálastjórnin hefur fest kaup á frá Bandaríkjunum. Það var bandarfskur flugmaður, er flaug vélinni hingað frá Banda rikjunum með millilendingu í Goose Bay í Labrador, en með honum var einn farþegi, banda- rískur félagi hans. Tók flugið frá Gæsaflóa aðeins 7x/2 klst., enda góður meðvindur. Flugmálastjórnin notar flug- vélar mikið við eftirlit með radíóvitunum, sem eru nú um allt land, viðgerðarferðir, og ekki sízt ratsjárprófun á ísa- firði, Egilsstöðum og í Reykja- vík. Þarf þá oft að,fljúga yfir sjó og stundum nokkuð langt út. Var því ákveðið að kaupa tveggja hreyfla flugvél til þessa, en til þessa hefur Flugmála- stjómin átt eins hreyfils Nav- ion flugvél, sem Flugsýn kaupir nú. Sigurjón Einarsson, flugmað- ur og flugumferðarstjóri hefur að undanförnu verið flugmaður á flugvél Flugumferðarstjómar- innar og mun hann taka próf á hina nýju flugvél og fljúga henni. Flugvélin er búin isvarn- artækjum en flughraði hennar er um 160 mílur á klst. Einkenn isstafir vélarinnar em TF-FFA. .w Urslit prestskosninganna Síðdegis í gær lauk talningu atkvæða I prestskosningunum f Reykjavík. I blaðinu í gær var skýrt frá fyrri hluta úrslitanna, kosningu séra Gríms Grímsson- ar í Ásprestakalli, séra Ólafs Skúlasonar i Bústaðaprestakalli og Felix Ólafssonar í Grensás- prestakalli. Næst var talið í Háteigspresta kalli. Þar voru 4 umsækjend- ur og dreifðust atkvæði svo milli þeirra að enginn náði lög- legri kosningu. Séra Arngrímur Jónsson í Odda hlaut flest at- kvæði, 941, séra Lárus Halldórs son 857, séra Yngvi Þórir Árna son, Prestsbakka, 747 og séra Ásgeir Ingibergsson, Hvammi, 521 atkvæði. 16 seðlar voru ó- gildir og 19 auðir, á kjörskrá voru 5791, þar af kaup 3101. Tveir sóttu um Langholts- prestakall og hlaut séra Sigurð- ur Haukur Guðjónsson á Hálsi í Fnjóskadal 1135 atkvæði og séra Magnús Runólfsson Reykja vík 317. En kosningin varð ekki lögmæt sökum ónógrar kosn- Framh á bls c cj

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.