Vísir - 07.12.1963, Blaðsíða 3
V í S I R . Laugardagur 7. desember 19GS. 3
Sigríður 10 ára sýndi blágræna plusskápu og hvíta húfu, og Ásdís
4 ára sýndi bláa slákápu og hvíta húfu við.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
hélt hinn árlega jólafund sinn
í Sigtúni s. 1. miðvikudag. Var
þar að vanda margt til skemmt-
unar og fróðleiks, en hápunktur
jólafundarins var nýstárleg
tízkusýning. í þetta skiptið voru
það ekki tízkuskóiameyjar sem
sýndu föt, heldur voru það börn
á aldrinum tveggja til 10 ára,
sem sýndu barnaföt.
MYNDSJ
Ásdís 4 ára sýndi svarta leður
slá samkvæmt nýjustu barna-
tízkunni og köflótta húfu og
trefil við.
Yngsta sýningardaman var Ánna litla Birgitta 2 ára og sýndi hún
hér rauða vattstungna úlpu. Hún var dálítið ringluð í öllum fólks-
fjöldanum og þurfti að hafa fylgd er hún gekk um meðal gestanna.
Myndsjáin var viðstödd tízku
sýninguna og birtir nokkrar
myndir frá henni.
Þorbjörg 6 ára sýndi blágrænan
jólakjól með hvítum blúndum.
Lokaatriðið á sýningunni var
náttfatasýning og sýndi þar all-
ur hópurinn náttföt og sloppa.
Hér er frú Jónína formaður
Húsmæðrafélagsins með allan
hópinn. (Ljósm. VIsis I.M.)
nutstseBKcxis.. x.