Vísir - 07.12.1963, Blaðsíða 7

Vísir - 07.12.1963, Blaðsíða 7
V1SIR . Laugardagur 7. desember 1963. 7 Setberg í röð stærstu út gefenda á þessu hausti Gefur út samtals 23 bækur fyrir jólin Einn í hópi stórútgefenda bóka á þessu hausti er Arnbjöm Krist insson eigandi Setbergsútgáfunn ar á Freyjugötu 14, en hann gefur út samtals 23 bækur fyrir jólin, fleiri bæður en hann hefur nokk- ru sinni áður gefið út á einu ári. Meiri hluti bóka hans í ár er raunar ætlaður ungum lesendum, allt til 16 ára aldurs, en auk þeirra er hánn með 7 meiri háttar bækur ætlaðar fullorðnum, ævi- sögur, atburðasögur, þjóðsögur og þjóðlífslýsingar og eina skáld sögu. Stærst þessara bóka er ævisaga de Gaulle eftir Þorstein Thoraren sen fréttast.. De Gaulle er óþarft að kynna, hann er að heita má dagl. í heimsfréttum og stendur þar á sama þrepi og aðrir helztu forystumenn stórþjóðanna. De Gaulle á þó að vissu leyti sér stöðu í þessum hópi, jafnt sem yfirburðasnjall hershöfðingi, viljasterkur persónuleiki og fram- sýnn stjórnmálavitringur. Til hans leitaði franska þjóðin á ör- lagastund, þegar allt virtist kom- ið í öngþveiti bæði hvað stjórn mál og efnahagsmál snerti. Síðan hefur þessi maður Ijóslega sýnt hvað í honum bjó og hvers hann var megnugur. Bókin er á 4. hundrað síður að stærð, auk sér prentaðra mynda sem eru fjöl- margar. Jón Helgason ritstjóri skrifar alllanga bók um Tyrkjaránið, einn hroðalegasta atburð íslands sögunnar, og um leið einn hinn sérstæðasta, sem ekki á neinn sinn líka. Jón hefur gerkynnt sér öll gögn og heimildir, sem til hef- ur náðst. Bókin er 235 bls. með teikningum sem Halldór Péturs- son listmálari hefur gert. „Afreksmenn" heitir bók sem Jónas Þorbergsson fyrrv. útvarps- stjóri hefur skráð. Fjallar bókin einkum um tvo menn, Kristján ríka í Stóradal og sonarson hans, Jónas Sveinsson frá Bandagerði, sem er tengdafaðir höfundar. Þar er ennfremur skýrt frá draumum Jónasar Sveinssonar og dulræn- um fyrirbærum ýmsum. Bókin i tæpar 200 síður að stærð nokkrum ljósmyndum. Eftir Þorstein skáld á Ham gefur Setberg út Þjóðlífsþætti, I að tölu, sém höfundur nefn „Skuldaskil“. Margar þær persón ur og mörg þau atvik sem við sögu koma í þessari bók kannast lesandinn að vísu við, en engu að síður gæðir höfundurinn þær lífi á sinn persónulega hátt. Elzti þátt urinn fjallar um Svartadauða og úr því allar aldir aftur. Teikning- ar við efnið hafa Ragnar Lárus- son og Ágústa Sigurðardóttir gert. Bókin er röskar 200 síður að stærð. Vilhj. S. Vilhjálmsson blaða- maður hefur fært í letur viðtöl við 33 sjómenn og útvegsmenn. Ilöfundar Setbergsbóka. Sitjandi frá vinstri: Vilhjálmur S. Vil- hjálmsson, Þorsteinn frá Hamri, Einar Guðmundsson. Standandi frá vinstri: Þorsteinn Thorarensen, Jón Helgason, Jónas Þorbergss. Sýnisbók íslenzkr- ar sjómennsku Jónas Guðmundsson stýrimað ur sendi í fyrrahaust bók á mark aðinn, sem hann nefndi Sextán ár á sjó. Sú bók þótti um marga hluti mjög góð, varð vinsæl og mikið lesin. Nú hefur Jónas skrifað nýja bók, sem helguð er sjónum og sjómannalífi, nokkuð sundurlaus að vísu, en þeim mun fjölbreyti- legri og einkar skemmtileg aflestr ar. Bókin h'eitir „Skip og menn“ og er röskar 200 síður að stærð. Formála skrifar Helgi Sæmunds- son, en bókaútgáfan Hildur gef- ur bókina út. í formála að bókinni segir Helgi Sæmundsson svo, að hún sé „eins konar sýnisbók íslenzkrar sjómennsku frá árabát til gufu- skips". Þetta eru orð að sönnu, því þarna segir frá svipmyndum úr lífi sjómanna í blíðu og ströngu, slysfarasögur og háska- siglingar í ofviðri, nokkrir þættir fjalla um ýmsa menn, sem mikið koma við sögu útvegsmála eða þá skipstjórnar, þ. á m. um Pál í Selárdal og Eyvind duggusmið, Bjarna riddara Sivertsen og um skipstjórana Sigurð Símonarson, Geir Sigurðsson, Sigurð Sumar- liðason, Árna Gunnlaugsson og Elías Jónsson í bókinni eru frásagnir og end- Framh. á bls. 13 Bókina kallar hann „í straum- kastinu" og er tæpar 230 síður að stærð. Myndir eru af öllum, sem segja frá. Kennir þarna margra grasa frá mismunandi tímum í hinni hraðfara þróun sjávarútvegsins síðustu áratugina. Eftir Einar Guðmundsson kenn- ara og fræðaþul kemur á veg- um Setbergs 8. sagnakver höf- undar undir heitinu „Dulheimar“. I því eru þjóðsögur, sagnaþættir, þjóðlífsmyndir, alþýðukveðskap- ur o. fl., m. a. eru í kverinu ýms- ir þættir, sem „ljósvíkingurinn" Magnús Hj. Magnússon, skráði af Vestfjörðum og eru nú í geymslu í handritasafni Landsbókasafns- ins. Bókin er tæpar 150 síður í fremur litlu broti. Sjöunda bók Setbergs er skáld- saga „Morgunroði" eftir Ragnar Þorsteinsson rithöfund og bónda. Eftir Ragnar hafa áður komið út tvær bækur, Víkingablóð, 1951, og Ormur í hjarta 1961. Ragnar hefur valið sér hafið sem höf- uðviðfangsefni í skáldsögur sín- ar, enda er hann sjálfur alinn upp við sjó og hefur stundað sjó árum saman. „Morgunroði" er 190 bls. bók og er aðeins fyrri hluti sögunnar. Otgefandinn, Arnbjörn Krist- insson, kvaddi blaðamenn á fund sinn í gær og afhenti þeim fram- antaldar bækur. Um leið gat hann þess, að það væri misskilningur, sem ríkti meðal almennings, að bókaútgáfa hafi aukizt stórlega á íslandi með hverju árinu sem liði. Fyrir 17 árum voru fleiri bæk ur gefnar út heldur en gefnar voru út í fyrra. Þá var fjöldi út- gefinna bókatitla 574, en ekki Bók um þekkta aflamenn Höfundar bókarinnar „Aflamenn“. Komin er út hjá Heimskringlu bókin Aflamenn, þættir um nokkra aflakónga eftir 5 þekkta rithöfunda en ritstjórn bókarinn- ar hefur Jónas Árnason annazt Forstöðumenn Heimskringlu þeir Kristinn E. Andrésson, dr. Jakob Benediktsson og Sigfús Daðason skýrðu blaðamönnum frá hinni nýju bók í gær en við- staddir voru höfundar bókarinn- ar. 1 bókinni eru þessir þættir: Binni í Gröf eftir Ása í Bæ Á stund skyttunnar, þáttur um Jón- as Sigurðsson skólastjóra Stýri- mannaskólans, sem verið hefur skipstjóri og skytta á hvalveiði- skipi mörg sumur eftir Indriða G. Þorsteinsson. Pétur Hoffmann Salómonsson álaveiðimeistari, ár 1962, eftir Stefán Jónsson. Með kvíasmalanum úr Önundarfirði, Garðari Finnssyni aflakóngi á Höfrungi II. eftir Björn Bjarnason og Frá Hafnarnesi til Mangalore, þáttur af Guðjóni Illugasyni skip stjóra eftir Guðjón Iilugason. — Sem fyrr segir sá Jónas Árnason, rithöfundur um ritstjórn bókar- innar. Mikill fjöldi mynda prýðir bókina. Þá er ennfremur komin út hjá Heimskringlu bókin Borin frjáls eftir Joy Adamson. Er það heims fræg bók, sem þýdd hefur verið á mörg tungumál. Fjallar bókin nema 532 í fyrra. Fyrir 10 árum voru ekki gefnar út nema 427 bækur. Frændþjóðir okkar á Norð urlöndum gefa árlega út 3 —6 þús. titla. Ef bókum s.l. árs væri skipt niður í flokka, ber mest á skáld- Framhald ð bls 13. Ferðabók landkönn- uðar „Ferð í leit að furðulandi“ heit ir nýútkomin ferðabók eftir hinn kunna landkönnuð og rithöfund Ejnar Mikkelsen. í fyrra kom út á íslenzku ferða bók eftir sama höfund „Af hunda vakt á hundasleða", sem náði verulegum vinsældum meðal ís- lenzkra lesenda, enda er frásagn- argáfa höfundarins mikil og bæði er það að hann hefur lent í marg háttuðum ævintýrum og mann- raunum, en jafnframt það að hann gæðir frásögnina sérstöku lífi og fær í hana spennu eins og skemmtilegustu skáldsögu. Þessi nýja bók „Ferð í leit að furðulandi“ hefur alla kosti hinn ar fyrri bókar hans og er ævin- týraleg og skemmtileg aflestrar frá upphafi til enda. Bókin er röskar 180 síður að stærð, Her- steinn Pálsson íslenzkaði, en Skuggsjá í Hafnarfirði gaf út. um líf ljónynju meðal manna og dýra. Er hér um fyrsta bindi af þremur að ræða. Þá skýrði Sigfús Daðason blaða mönnum frá því, að væntanlegar væru á næstunni nokkrar bækur, þ. e. Leikfönp leiðans, smásögur eftir Guðberg Bergsson, Reikni- vélin, leikrit eftir Erling Halldórs son, Ritgerðir Mao Tse Tung 2. bindi, er inniheldur 14 ritgerðir hins kínverska leiðtoga, skrifaðar á árunum 1945 — 1949. Blómin anga, þýdd saga eftir sænsk- amerisku skáldkonuna Iru Morris en hún gerist í Hirosima og Um sumarkvöld, ný útgáfa af barna bók Ólafs Jóh. Sigurðssonar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.