Vísir - 07.12.1963, Page 16

Vísir - 07.12.1963, Page 16
VÍSIR Laugardagur 7. desember 1963. Skreíi Aðfaranótt s.l. föstudags var tveimur skreiðarpökkum stolið úr jappakerru á bílastæði hér í Reykja vík. Með skreiðina hafði verið komið ofan af Akranesi á fimmtudaginn og var hún flutt í kerru aftan í bíl. Nóttina eftir voru bíllinn og kerr- an skilin eftir á bílastæðinu við Laugardalsvöllinn, en á föstudags- morgun hafði einhver fingralangur og svangur nælt sér í tvo skreiðar- pakka úr kerrunni. Þessa dagana er unnið að því að setja upp jóiatré viðsvegar um borgina. Eru það bæði borg- aryfirvöldin og einstakar stofn- anir, sem að því standa. Stærsta jólatréð, gjafatréð frá Osló, er væntanlegt með Gulifossi á sunnudag og verður það sett upp á sunnudag eins og venja er með Oslóartréð. Þar sem skipulagi Austurvallar hefur verið breytt hefur orðið að á- kveða trénu nýjan stað og var hann valinn í suð-austurhorni Austurvaliar, á móts við Dóm- kirkjuna. Reykjavíkurborg hefur keypt 8 tré, sem sett hafa verið upp víðsvegar um borgina fbúum til augnayndis. Þá hefur Skógrækt- in gefið tré, sem sett er upp í Bankastræti, útflytjendasam- band timburkaupmanna í Sví- þjóð hefur gefið tré, sem sett verður upp við Miklubraut inn- anverða. Þá setja einstakar stofnanir upp tré, t. d. Heilsu- verndarstöðin og Fæðingarheim ilið. Þegar eru komin ljós á nokk- ur tré, en kveikt verður á hin- um næstu daga. Má búast við, að ljós verði komin á flest trén upp úr helginni, nema að sjálf- sögðu Austurvallartréð, á þvl verður kveikt sfðar. Er Visir hafði í gær tal af Jóni Ólafssyni yfirverkstjóra, sem hefur umsjón með uppsetn ingu trjáanna, sagði hann að allmikið hefði borið á því f Réttarholtshverfi að tréð, sem sett er upp þar, hefði orðið fyrir átroðningi bama og ung- linga. Hefði svo verið undan- farin ár og f gær er verið var að setja tréð upp hefði það þegar orðið fyrir nokkrum skemmdum. Bað hann blaðið að koma þeim tilmælum áleiðis til bama og unglinga þar í hverf- inu að þau létu sér nægja að horfa á tréð, til þess væri það fyrst og fremst ætlað. FISKVEIÐIRÁÐSTEFNUNNI FRESTAÐ TIL 8. JANÚAR Fiskveiðiráðstefnunni, sem stað- ið hefir yfir í London undanfarna 4 d<y>a, var frestað í gær og ákveð- ið að hún komi saman að nýju 8. janúar n.k., sennilega einnig í Lon- «ten. Ólíkra sjónarmiða hefir gætt á ráðstefnunni og mismunandi til-, ur notaður til þess að athuga fram- Kært yfir sprengingum Lögreglan f Reykjavík vill leiða athygli unglinga, svo og foreldra þeirra, á þvf að algerlega er bann- að að sprengja „kínverja“ eða aðr- ar sprengjur á almannafæri. Undanfarið hefur talsvert borizt af kvörtunum og kærum yfir því að drengir geri sig seka um slíkar sprengingar á götum úti. Hvergi hefur þetta þó orðið að slysi svo lögreglan viti til, hins vegar geta þau hent þegar minnst vonum var- ir, og algerlega án þess að þeir ætlist til sem með sprengjurnar fara. Hitt er annað mál að þessar sprengingar em fólki til ónæðis úti sem inni, þær orsaka hávaða og Framh. á bls. 5 lögur komið fram frá hinum ýmsu þjóðum um landhelgisstærð og annað, sem rætt hefir verið, en 16 þjóðir eiga fulltrúa á þessari rað- stefnu. Tíminn fram yfir áramót verð- komnar tillögur og þau sjónarmið, sem fram hafa komið. í fréttatil- kynningu af fundinum segir, að sérstaklega hafi verið rætt um möguleika á setningu reglna um rétt til fiskveiða á fiskibönkunum. að til starfa Vetrarhjálpin í Reykjavík tek- ur til starfa eftir helgina. Mun hún eins og undanfarin ár taka við og síðan deila út fatnaði, matvælum og fleiru til þeirra, sem bágstaddir eru. Gert er ráð fyrir að veitt verði aðstoð um 700 heimilum og einstaklingum, en það er svipað og verið hefur undan- farin ár. Verður þessu fólki veitt ávísun á matvörur fyrir tiltekna fjárupphæð, sem nægja á til að fólkið geti gert sér dagamun í mat. Hefur þessi upphæð undanfarið numið um 200 krónum á einstakling, en hún mun líklega verða eitthvað hækkuð í ár. Þá er úthlutað dálitlu af kolum og einnig er úthlutað mjólk. Ótalin er ein stærsta hjálpin, en það eru fatagjafirnar. Er fatnaði úthlutað í samráði við Mæðrastyrksnefnd og verður fötum veitt móttaka og úthlut- að að Fríkirkjuvegi 11. Auk Framh á bls 5 Þakkir Bandaríkjaforseta Forseti Bandaríkjanna, Lyndon B. Johnson, hefur falið mér að votta ríkisstjórn Islands og ís- lenzku þjóðinni alúðar þakkir hans og allrar amerísku þjóðar- innar fyrir hjartnæma hluttekn- ingu og samúðarkveðjur vegna fráfalls John F. Kennedys for- seta. Ameríkumönnum var sérstök virðing sýnd, og var þeim mikið gleðiefni, er Alþingi íslendinga heiðraði minningu hins látna for seta, félög og félagssamtök létu í ljós sérlega hluttekningu, svo og samúðin, sem Iýsti sér sam- stundis hjá þúsundum einstakra íslendinga víðs vegar á íslandi. Johnson forseti sagði: „Það hefur verið okkur léttir í harmi okkar og missi að vita, að millj- ónir manna á heimilum sínum og á götum borga og bæja um víða veröld hafa í hjarta sér fundið svo mjög til með okkur á sorgarstundu. Þessi vitneskja hefur styrkt þá ákvörðun okkar sem Ameríkumanna og heims- borgara að veita stuðning mál- stað friðarins og frelsis frá skorti, málstaðnum, sem John Fitzgerald Kennedy helgaði líf sitt. í samúð yðar finnum við hvatningu til aukinna dáða í áframhaldandi baráttu að stefnu marki Kennedys forseta". James K. Penfield. H AAAAAAAAAAAAAAAAAA/SA/NA/W AAAAA. Ævisagade Gaulle Þorsteinn Thorarensen — Það var kannski tilviljun að ég tók að rita ævisögu de GauIIe, fremur en ævisögu einhvers annars mikilmennis — sagði Þorsteinn Thorarensen fréttastjóri í viðtali sem blaðamenn áttu við hann og útgefanda bókarinnar um de Gaulle nú fyrir skemmstu. En Þorsteinn kvaðst hafa verið feginn því að hafa valið einmitt de Gaulle. Þar væri mikilmenni svo ekki yrði um villzt. Það hafi sagan þegar sýnt. Viljastyrkur þessa manns er óbifandi, samfara mikilli yfirsýn í heimsvandamálun- um, en umfram allt þó vandamál- um Frakklands. Ævisaga de Gaulle eftir Þorstein Thorarensen er mikið rit og dregur fram í dagsljósið, ekki aðeins ævi- atriði hans, heldur og persónuein- Framh á bls 6 AUGL ÝSINGADEILD VISIS Tekið verður á móti auglýsingum í mánudagsblað Vísis í Ingólfsstræti 3, auglýsingadeild, á inorgun (sunnudag). Opið frá kl. 2—5 e.h. Símar 1-16-61 og 1-16-63. . . a JJJu,aaa

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.