Vísir - 09.12.1963, Qupperneq 8
Mánudagur 9. desember 1963.
stundir“ og er nær 300 bls. í
stóru broti. Svafa Þorleifsdóttir
islenzkaði.
Höfundur þessarar bókar er
kunnur í Vesturheimi og bækur
hennar hafa náð mikilli útbreiðslu
og vinsældum. Hún hefur næman
skilning á veiklyndi mannlegs Iífs,
tilfinningum fólks og hugarórum
og gerir því öllu skil á eðlilegan
en þó skáldlegan hátt. Bók henn-
ar „Unaðsstundir, er fyrst og
fremst ástarsaga, og inn í hana
felld örlög ungrar stúlku og
tveggja manna, sem fella báðir
ástarhug til hennar. Þarna tvinn-
ast saman ýmsir flóknir þættir,
en skáldkonan greiðir þær flækj-
ur á skemmtilegan og listrænan
hátt.
Spenn-
andi spæj-
arasaga
Erle Stanley Gardner er bóka-
höfundur nefndur, sem sérstak-
lega hefur getið sér frægð fyrir
snjallar og æsandi leynilögreglu-
sögur.
Fyrir nokkrum dögum er komin
út í íslenzkri þýðingu bók eftir
þenna höfund. Bókin heitir „For-
vitna brúðurin", þýðandinn er
Ingibjörg Jónsdóttir og útgefand-
inn Leiftur.
Aðalsöguhetjan I bókinni er
spæjari sem nefnist Perry Mason,
en um þenna leynilögreglumann
hefur Gardner skrifað margar
bækur hverja annarri ægilegri. Og
svo fræg er þessi lögreglupersóna,
að sjónvarp í Bandaríkjunum hef
ur þátt um hann í hverri viku,
og telur enginn sig geta af misst.
Ennfremur má geta þess að Perry
Mason-bækur Gardners hafa verið
þýddar á fjölmörg tungumál.
„Forvitna brúðurin" er tæpar
200 síður að stærð.
HAGPREH
Tökum að okkur hvers konai
prentverk.
ER FYRIRLIGGJANDl
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
Suðurlandsbraut 6
Vinningar verða að þessu sinni tvær litlar 3ja herb. fokheldar íbúðir að verðmæti kr. 225 þús.
hvor, auk þess 10 aukavinningar, frjálst vöruval fyrir 10 þúsund krónur hver.
Miðar eru seldir í innheimtu Landssímans, Landssímahúsinu, í Hafnarfirði í Bókaverzl. Olivers
Steins, á Akureyri og í Keflavík í afgreiðslu símstöðvanna.
Þeir Reykvíkingar, sem vilja fá miða sína heimsenda hringi I síma 10775 eða 12523
Símnotendur eiga rétt á að kaupa sín númer til 10. desember.
Dregið á Þorláksmessu, hver vill ekki slíkan jólaglaðning?
Drætti ekki frestað og hringt verður í vinningsnúmer á Þorláksmessu.
ÁGÓÐI AF HAPPDRÆTTINU fer til framkvæmda í Reykjadal.
TYRKJARÁNIÐ er
einn eftirminnilegasti
atburður íslandssög-
unnar. Sjóræningjar
frá Norður-Afríku taka
- ’.and, ræna byggðirnar
— Grindavík, Vest-
mannaeyjar og víðar
— hafa á brott með
sér á fjórða hundrað
manns. Jón Helgason,
ritstjóri, sem kunnur
er af bókunum „Öld-
in átjánda“ og „ís-
lenzk mannlíf“, rekur
hér sögu Tyrkjaráns-
ins og greinir frá örlög
)um fanganna eftir að
til Alsír kemur. Bókin
er myndskreytt af
Halldóri Péturssyni.
Kostar í fallegu bandi
kr. 275.00.
BÆKUR
Framhald af bls. 15
burði sem þeir geti ekki gleymt.
Nú er með suma höfundana þann
ig að þeir lýsa aldarfari, æsku
sinni eða hugleiðingum án þess
að draga nokkra einstaka atburði
öðrum fremur fram í sviðsljósið.
Meðal þessara höfunda eru Ját-
varður Jökull Júlíusson, Jórunn
Ólafsdóttir' Sigurður Nordal og
Stefán Ág. Kristjánsson. Nú eru
allir þessir þættir prýðilega skrif-
aðir, en þeir eiga ekki heima í
riti með þessii heiti.
Grein Vigfúsar Björnssonar,
„Að mér hafa svipir sótt“, er
ein rammasta draugasaga sem ég
hef lesið á síðustu árum og ætti
fyrst og fremst heima í þjóðsagna
bók, þótt hún geti einnig fallið
inn í ramma þessarar bókar Hún
minnir raunar stundum meir á
skáldsögu en bióðsögu „Hungur-
vaka“ Sveins Vikinns er eina frá-.
sagan, sem skrifuð er í gaman-
tón, og er að því leyti góð, enda
þótt tilefnið til eftirminnilegra
atburða sé næsta lítið. Aumust
ritsmíð í bókinni þykir ,mér grein
Egils Jónassonar, „Það munaði
mjóu“, sem telur það til minnis-
stæðra atburða í lífi sínu að lesa
blaðagrein með línubrengli. Niður
staðan varð sú að hann varð fúll
við konu sína í rúminu og þeirri
nótt fær hann ekki gleymt.
Þrátt fyrir misjöfn gæði þátt-
anna er bókin í heild læsileg og
víða með ágætum.
Þ. J.
Unaðs-
stundir
Bókaútgáfan Leiftur hefur gefið
út langa og mikla skáldsögu eftir
bandarísku skáldkonuna Kathleen
Norris. Bókin ber heitið „Unaðs-