Vísir - 24.12.1963, Page 8
8
V1SIR . Þriöjudagur 24. desember 1963.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
1 lausasölu 5 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Á JÓLUM
Fullvel man ég fimmtfu ára sól
fullvel meir en hálfrar aldar jól,
man það fyrst er sviftur allri sút
sat ég bam með rauðan vasaklút.
|>annig kemst skáldmæringurinn Matthías Jochumson
að orði í einu hugljúfasta jólakvæðinu sem kveðið
hefir verið á íslenzka tungu. Hann rennir huganum
hálfa öld aftur í tímann, minnist þess þegar jólin komu
í föðurgarði hans við þröngan fjörð vestur á landi.
Þá opnaði jólakertið og einn lítill vasaklútur gleði-
heim hins unga hnokka.
Jslenzk böm fá nú ekki lengur einn rauðan klút að
gjöf á jólum. Þess í stað eru komnir kistlar fullir alls
nægta. Og í stað kolu og kertis eru komin þúsund
rafmagnsljós; hvergi skortir birtu og yl hið ytra. Óvíst
er þó hvort jólagleði barnanna, og einnig hinna eldri,
er meiri í dag en hún var á þeim tímum þegar „kertin
brunnu bjart í lágum snúð“. Því jólagleðin er ekki und-
ir efnum né allsnægtum komin. Hún skapast einungis
ef gengið er til móts við þá miklu hátíð með því hugar-
fari sem markaði líf og starf þess manns sem borinn
var á þessum degi fyrir tæpum tvö þúsundárum.Kjami
erindis hans hefir hvorki fyrnzt í tímans rás né úrelzt
i köldum sviptivindum hins pýja tíma. Boðskapurinn
um bróðurþel manna, óeigingirni og sáttfýsi er jafn
skír í dag og nokkru sinni fyrr.
Qkkur íslendingum er tamt að miklast af afrekum
okkar og atgervi. Varla er sú ræða haldin á manna-
móti að ekki sé vitnað til hinna miklu framfara,
sem hér hafa orðið sfðustu hálfa öldina, hve margar
brýr byggðar, hve mörg hús reist, hve mörg skip
keypt. OgTSÚ þjóð sem þetta geti hljóti að vera afbragð
annarra þjóða, farsæl, hamingjusöm og einskis vant.
En þetta er mikill misskilningur. Dansinn kringum
gullkálfinn'hefir að miklu blindað þessa atorkusömu
bjóð og brenglað mat hennar á þeim verðmætum sem
gefa lífinu gildi. Með hverju árinu magnast innbyrðis
sundrung og óeining milli stétta og þjóðfélagshópa.
Öfund og afbrýði sitja í fyrirrúmi og fyrst er spurt um
eigin hag. Síðan ef til vill þjóðarinnar.
þetta er harður dómur en í hljóði munu menn viður-
kenna að hann er sannur. Sú hátíð, sem rennur upp,
veitir tóm til þess að hugleiða það á hverjar villigötur
er hér stefnt.
Framtíðargæfa íslenzku þjóðarinnar er undir því
•mmin að sundrung og flokkadrættir dragi ekki úr
ienni lífsmáttinn, svo sem dæmi eru til fyrr og síðar
um aðrar þjóðir, heldur rækti hún með sér hugarfar
sáttfýsi og samvr nu, það hugarfar friðar, sem er aðal
hinnar helgu hátiðar.
Jólin um allt land
Hér sést Oslóarjólatré í höfuðborginni. Það stendur upplýst á
Austurvelli rétt hjá Dómkirkjunni.
Vísir hefur leitað tfl nokk-
urra fréttaritara sinna f ýmsum
byggðum landsins og beðið þá
að gefa örstutta Iýsingu á jóla-
undirbúningi sfns byggðarlags.
Þeim er gefið orðið:
AKRANES:
Á Akranesi hefur nú birt
upp eftir verkfallsölduna sem
dundi yfir og gerði skammdeg-
ið enn ömurlegra en áður.
Jólaskreytingar hafa aldrei
verið miklar á Akranesi og eru
það heldur ekki að þessu
sinni. Þó eru nokkur jólatré
sem bærinn hefur látið setja
upp á helztu opinberum svæð-
um. Margir einstaklingar
skreyta og hús sín.
Verzlun er mikil, en þó
minni en oft um jól áður og er
þar bæði verkfallinu um að
kenna, en einkum þó aflabresti.
Akurnesingar treystu á sfldina,
en hún hefur að heita má
brugðist og þar með einnig aðal
tekjulind fjölda verkafólks.
Það telst til jólatíðiTida á
Akranesi að nokkur hópur
starfsmanna Sementsverksmiðj-
unnar gaf sjúkrahúsi bæjarins
sjónvarp af vönduðustu gerð.
Er það hin fegursta jólagjöf til
sjúklinganna og einkar kær-
komin. Sjónvarpið var afhent f
gær.
í gærmorgun var öklasnjór á
Akranesi þegar íbúarnir komu á
fætur, en hláku gerði í gær og
er þvf vafasamt að Akurnes-
ingar fái hvít jól.
PATREKSFJÖRÐUR:
Það er jólalegra á Patrcks-
firði um þessi jól heidur "en
nokkru sinni áður. Skreytingar
hafa aldrei verið jafn miklar.
Þrjú stór jólatré hefur Ljóna-
klúbburinn látið reisa á al-
manna færi, öll á áberandi
stöðum. Eitt þeirra stendur á
aðaltorginu á Vatneyri, annað
á Geirseyri og það þriðja við
sjúkrahúsið. Þá stendur Ljóna-
klúbburinn einnig fyrir því að
kirkjan er flóðlýst að utan.
Fleiri einstaklingar skreyta hús
sín og garða en nokkru sinni
fyrr í sögu kauptúnsins. Barna-
skólinn er skreyttur með mis-
litum ljósaperum á framhlið.
Vöruþurrð var nokkur, orðin
á einstökum vörutegundum
vegna verkfallsins, en nú hefur
leystst úr þeim vanda og hvergi
skortur á neinu.
Veður hefur verið hlýtt undan-
farið og vegir færir í nærliggj-
andi byggðarlög og firði þótt
yfir fjallvegi sé að fara.
í gær hreytti úr éljum, svo að
Patreksfirðingar eiga von á
gráum — ef ekki hvítum jólum.
ÍSAFJÖRÐUR:
Meira er um jólaskreytingar
við verzlanir og þó einkum
heimahús heldur en verið hefur
um undanfarin jól. Að þessu
sinni var ekki ráðizt í það af
bæjarins hálfu að skreyta göt-
urnar vegna þess að undanfarið
hafa oft verið brögð að þvf að
skrautið hefur fallið niður f
hvassviðri. Aftur á móti hefur
kaupstaðurinn komið upp jóla-
trjám á nokkrum stöðum.
Veðurblfða hefur rfkt undan-
farna daga á isafirði og sam-
göngur góðar síðustu dagana.
Sjóföl gerði í fyrrinótt, en tók
að mestu eða öllu upp f gær,
svo búizt er frekar við rauðum
jólum.
SIGLUFJÖRÐUR:
Verkföll hafa sett sinn svip
á jólahald Siglfirðinga. Það var
ekki fyrr en í fyrrinótt að þau
leystust með samningum milli
atvinnurekenda og verkalýðsfé-
laganna þar sem samið var um
15% kauphækkun til 6 mán-
aða.
Áður en verkföllin hófust rfkti
eymd á Siglufirði sökum gæfta-
leysis. Hún jókst með verk-
föllunum. Um sama leyti og þau
hófust komu loks gæftir, en
það var ekki hægt að notfæra
sér þær.
Verzlun hefur haldizt nokk-
urn veginn allan tímann, en
vafalaus’t minna verzlað en oft
áður vegna kaupgetuleysis
fólks. Vöruþurrð var að byrja
að gera vart við sig, elnkum
á kaffi, smjöri og smjörlíki en
af öðrum vörubirgðum var yfir-
leitt nóg. I gær kom Hekla að
sunnan með vörubirgðir og
póst, en Drangur frá Akureyri
með vörur og jólarjómann.
Jólaskreytingar hafa að
mestu orðið útundan vegna
verkfallsins. Það var ekki fyrr
en í gær að byrjað var á þeim
af fullum krafti og er nú búið
að koma upp jólatré — vina-
bæjargjöf frá Danmörku — á
Ráðhústorgi, ennfremur búið að
koma upp skreytingum við
kirkjuna og sjúkrahúsið. Verzl-
anir hafa skreytt hjá sér og
sama gegnir um marga einstak-
linga.
Fjögur blöð eru gefin út á
Siglufirði og gefa þau öll út
jólablöð.
AKUREYRI:
í fyrradag var ausandi rign-
ing en f fyrrinótt breytti skyndi
leya um veðurlag og tók að
snjóa. Nú er snjór yfir öllu og
út.lit fyrir hvlt jól.
Jólaskreytingum /var komið
upp snemma í desember og eru
þær óvenjulega miklar í ár.
Sinn hluta í þeim eiga skreyt-
ingar sem Akureyrarbær átti
afgangs frá 100 ára afmælinu
í fyrra, og notaði nú til jóla-
skreytinga víðsvegar um bæinn.
Mest ber á skreytingum í verzl-
unarhverfinu en einnig mikið
skreytt við hús einstaklinga.
Akureyringar hafa aldrei
skreytt mikið með úti-jólatrjám.
Þó hefur jólatré, sem vinabær
á Norðurlöndum hefur árlega
sent, verið komið upp hjá
kirkjunni. Að þessu sinni gefur
þar ekki neitt jólatré að líta,
sem stafar af því að jólatré
það, sem Akureyrarbæ var gef-
ið, fékkst ekki skipað upp og
var sent til útlanda aftur.
Verzlun er greinilega minni
en verið hefur, enda þótt til
sé gnægð vara hverju nafni sem
nefnast.
SEYÐISFJÖRÐUR:
Almenningur er í jólaskapj
og þeim mun fremur sem vinnu
deilur eru leystar. Verkfallið
hafði heldur ekki mikil áhrif
á afkomu fólks hér. Flestar
jólavörur voru komnar hingað
áður en verkfallið skall á og
tókst að skipa þeim upp og
koma í verzlanir í tæka tfð.
Veitt var undanþága til að
pækla saltsíldina, sem annars
lá undir skemmdum. Sömuleiðis
var undanþága veitt I bæjar-
vinnu við jólaskreytingar í
kaupstaðnum. Má því segja að
flestir hafi haft meiri eða minni
vinnu og að verkfallið hafi
engin varanleg áhrif haft á
kaupgetu eða afkomu almenn-
ings.
Framh. á bls. 5
cta