Vísir


Vísir - 03.01.1964, Qupperneq 10

Vísir - 03.01.1964, Qupperneq 10
STRANDHÚS - Framhald af bls. 7 þeir benda jafnframt á að þetta fyrirkomulag miðist fremur við þá sem hafa sjaldan gesti og hugsa sér ibúðina þannig, að allir, jafnt börn og fullorðnir, geti notið hennar allrar hindr- unarlaust. Aðrir myndu segja, að skilveggir milli barnaher- bergja væru allt of veikir, og að milli herbergja bærist of mik ið af tali og hávaða. Auðvitað berst eitthvað á milli ,en ekki meira en svo, að börnin vita hæfilega mikið af því. Húsið er raunverulega i tveim ur hlutum. Aftari hluti hússins með baðherbergi, geymslum, þvottahúsi o. s. frv., er hlaðinn úr steyptum steinum, eins og fyrr er getið. Fremri hlutinn er byggður úr léttari efnum, timbri, gleri og stáli. Lofthæð aftari hlutans er minni en fremri hlutans, en það skiptir talsverðu máli í þessu tilfelli. Sá, sem gengur inn I fremri hluta húss- ins, íveruhlutann, sér útsýnið opnast fyrir sér, stærra og við- áttumeira, eftir því sem hann gengur lengra inn. Komið er inn í setustofuna. Milliveggurinn, sem að henni snýr ásamt þeim mismun, sem á lofthæðum er, eykur á tilfinning þess sem inn gengur fyrir viðáttu útsýnisins. Fyrst þegar komið er inn, lok- ar milliveggurinn að verulegu leyti fyrir það, nema það sem má sjá beint framundan sér, en eftir því sem framar er gengið, verður hann minni fyrir aug- unum og loks opnast útsýnið al- veg. Gluggastærðir miðast við að allir, sem inni eru, geti notið útsýnisins. 1 öðru húsinu eru engin giuggatjöld, heldur sér- stakar rúllugardínur, sóltjöld, vafin upp á rúllu með gormi, og eru aðeins notuð þegar skin sói- arinnar verkar truflandi. í hinu húsinu eru notuð venjuleg gluggatjöld, sem eru dregin til hliðar. Ýmislegt fleira má sjá í þess um húsum, sem ekki sést víða annars staðar i húsum á íslandi. T. d. er ekki hægt að opna nema einn glugga. Loftræsting fer fram með öðrum hætti en venju lega. (Sjá mynd). Burðarstoðir eru af nýrri og einfaldari gerð en víðast tíðkast. (Sjá mynd). í öðru húsinu eru ekki notaðar rafmagnshelluri í eldhúsi, heldur tenglar, sem eru tengdir pottum og pönnum. (Sjá mynd). Þannig má lengi telja. Húsin eru björt, umgangur um Ibúðina mjög frjálslegur og auðveldur. Það er létt yfir þeim, fjarri þvl að um innilokunartil- finningu sé að ræða, þá til- finningu, sem margir finna til í sterklega byggðum steinkum- böldum okkar. En rétt er að taka fram, að hús sem þessi njóta sín alis ekki I venjulegum íbúðarhverfum, á litlum ióðum, með hús allt I kring, sem þrengja að þeim og byrgja fyrir útsýni. Hér er loftræstingin í húsi Manfreðs. Hún fer eins og áð ur sagði ekki fram um glugga. Bak við plötuna eru flatir rimlar, sem hallast á þann veg að engin hætta er á að vatn berist með þeim. Þegar Manfreð vill fá loft inn í herbergið, tekur hann í snúru efst til vinstri og platan eða hlerinn opnast inn og loftið getur streymt óáreitt. Hjarir eru neðan á hleranum. lilll wmzm VANDERVELL _ Véialequr^ Þ JONSSON &CO| BRAUTARHOLTI 6 - SIMI /9215 n □ □ VINNA Vélhrein- gerning og teppa- hreinsun ÞÖRF. - Simi 20836 □ □ □ □ □ □ □ D □ □ □ □ □ □ n a □ Hreingerningar < glugga- hreiiisun. — Fagmaður I hverju starfi. Þórður og Geir Símar 35797 og 51875 □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ VÉLAHREINGERNING Vanir menn. Þægiieg Fljótleg. Vönduð vinna. ÞRIF. - Sími 21857. Vélahreingern- ing og húsgagna- Vanir og vand menn Fljótleg og rifaleg vinna ÞVEGILLINN Sími 34052. TePpa- og húsgagnahreinsunin Simi 34696 á daginn Simi 38211 á kvöldir. og um helgar V f SIR . Föstudagur 3. janúar 1964. j , horgin í dag gg Slysavarðstofan Útvarpið Opið allan sólarhringinn. Sími 21230. Nætur- og helgidagslækn- ir í sama slma. Föstudagur 3. janúar. Fastir liðir eins og venjulegc. 7.00 Morgunútvarp. Lyfjabúðir 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 „Við vinnuna“. Tónleikar. 14a0 „Við, sem heima sitjurn". Næturvakt I Reykjavík vikuna 15.00 Síðdegisútvarp. 28. des. til 4. janúar er I Ingólfs- 18.00 Merkir erlendir samtíðar- Apóteki. menn: Séra Magnús Guð- Hafnarfirði frá kl. 17. 3. jan. til mundsson talar um Stanley kl. 8 4. jan. Kristján Jóhannesson, Jones. sími 50056. 18.30 Lög leikin á strengjahljóð- færi. Blöðum flett Yfir hljóðum daladrögum dagurinn fór að settum lögum, áleiðis að vesturvegi viðburðina tók með sér. Niður I dýpi drafnar fer. Drungi rikir yfir legi. Er sem hálfa sögu segi særinn út við flæðisker. Guðmundur Friðjónsson. Sumarið 1858 komu hingað tveir brezkir náttúrufræðingar þeirra erinda að ná I geirfugl, ef rekkur fyrirfyndist þá enn. Reit Grímur Thomsen á Bessastöðum þeim meðmælabréf til Ketils Jónssonar, bónda I Kotvogi og dvöldust þeir I Höfnum lengi sumars, að þeim byrjaði út I Eldey — en aldrei gaf, enda þá ekki fært að leggja að eynni nema I mestu stillum. Mann sendu þeir austur I Múlasýsiur að svipast um eftir geirfugli, guldu honum 600 kr. fyrir ferð- ina — sem áreiðaniega var ríf- legt kaup I þann tíð — og hétu honum 200 krónum fyrir hvern geirfugl að auki. Ekki varð sendi- maður þó feitur á því fé, því að engan fann hann geirfuglinn austur þar, og urðu brezku nátt- úrufræðingarnir að snúa heim aftur fogllausir. Heimildir: Minnisblöð Finns á Kjörseyri. fram að snúast eins og það gerir og hefur gert; það er víst svo sem engin hætta á þvf að tfm- inn fari I verkfall, fyrst manni er frekar þægð í því en hitt — þegar maður er kominn á þennan aldur ... Eina sneið... ... 1964 ... stjörnuspámenn segja fyrir merkisár eins og venjulega, og kannski verður þetta Iíka merkisár — maður veit það aldrei ... kannski senda Rússar menn til tunglsins, kann- ski sættast þeir við Kínverja, kannski gera þeir eins konar bandalag við Bandarlkjamenn, kannski verður betra samkomu- Iag með Bandaríkjamönnum og Kínverjum, það er aldrei að vita ... kannski kemur á daginn nýtt hneykslismál I sambandi við kvennafar brezkra ráðherra, eða ráðherra I öðrum löndum . . . kannski verða stjórnarskipti á Frakklandi, stjórnarbyltingar I Suður-Ameríku, verkföll hér á Iandi, kannski rakar Castró af sér skeggið og kannski safnar Krústjoff alskeggi ... þannig má lengi telja, ef maður vill láta sem maður sé spámannlega vax- inn, en þó er maður engu nær ... eitt er þó víst, að þetta ár Iíður eins og öll undanfarin ár og árið 1965 tekur við af þvl og menn halda áfram að spá og verða þó engu nær I Sumir halda því fram, að það sé ekkert að marka þessi ára- mót lengur ... ekki síðan nýja árgerðin af bílunum fór að koma á markaðinn löngu fyrir hin eig- inlegu áramót ... Tóbaks korn ... undarlegt hvað maður verð ur lítið var við þessi áramót — beljurnar baula og rollurnar jarma öldungis eins eftir þau og fyrir; maður skyldi þó halda að skepnurnar fyndu slíkt á sér eins næmar og þær eru fyrir öllu I náttúrunni ... væri það ekki fyrir hann Vilhjálm minn Þ. og kirkjuklukkurnar, þá færu þessi tímamót sennilega framhjá okk- ur, mannskepnunum, líka og satt bezt að segja, þá veit ég ekki hvernig fer með áramótin, þegar útvarpsstjóri er allur ... en ••'tanlega heldur þetta allt á- Kaffitár ... það er nú alltaf rómantlskt við þessi áramót — þegar mað- ur lítur um öxl og horfir yfir far- inn veg og allt það ... annars kvíði ég alltaf hálfpartinn fyrir áramótunum ... eiginmennirnir verða alltaf svo viðskotaillir fyrstu dagana á eftir, að þeir geta varla kallast viðmælandi; það mætti segja mér að þessir blóðtappar, sem alla eru lifandi að drepa nú orðið, ættu yfirleitt rætur sínar að rekja til áramót- anna og að sóttkveikjurnar að þeim væri að leita hjá skattstof- unni ... Streetis vagnshnoð Hið nýja ára segir: „Fram úr sæng þinni — og gakk! Nú er fargjaldið fjórar krónur, takk ...“ h

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.