Vísir - 15.01.1964, Page 3
V í SIR . Miðvikudagur 15. janúar 1964.
'
'i
Vörublfreiö affermir síld í porti Sfldarbræösiunnar,
en þaö var í þetta skipti nærri fullt af síld.
Loftskeytamennirnir £ Vest-
mannaeyjaradfó þurfa ekki aö
kvarta undan þvf aö hafa ekki
nóg aö gera. Um leiö og bátur
er farinn út af bylgjunni kem-
ur annar inn, sfmamir hringja
og þaö liggur viö aö þeir þurfi
stundum að tala í tvo sfma sam-
tfmis — Það er sama hvert
litið er, alls staðar er unnið af
miklum krafti og vinnudagurinn
vill stundum verða nokkuð
iangur hjá verkafólkinu f Vest-
mannaeyjum.
Kjartan í Vestmannaeyjaradíó hefur ætíð nóg að gera.
Þaö er mlkið aö gera í Vest-
mannaeyjum um þessar mundir
Gffurlega mikið magn af sfld
hefur borizt að og bátamir
koma ennþá drekkhlaðnir af
sfld. Síldarbræðslan hefur ekki
undan, portið hjá síldarbræösl-
unni er næstum fuilt, nokkuð
magn af síld er geymt á einni
bryggjunni og töluverðu magni
hefur verið ekið út í hraun til
geymslu. Þegar bátamir leggj-
ast drekkhlaðnir við bryggjurn-
ar era vörabílstjóramir mættir
og uppskipun hefst þegar f
stað. Strax og sfldinni hefur ver
ið skipað upp halda bátamir út
aftur. Þannig hefur sama sagan
endurtekið sig að undanförnu
og margir era bjartsýnir á að
þannig verði gangurinn næstu
tvo mánuðina. Á Sfðugranni
virðist vera mikii sfld, en þar
var byrjað að ausa upp sfld f
fyrra.
Myndirnar, sem era f Mynd-
sjánni f dag era teknar f Vest-
mannaeyjum fyrir skömmu og
gefa ofurlitla hugmynd um
hvað þar er um að vera þessa
dagana.
Línubátamir hafa einnig aflað ágætiega. Hér sést Kári leggjast að bryggju eftir velheppnaða veiöiferð.
SÍLD í
EYJUM
Landað úr Ólafi Magnússyni. Ljósm. Vísis B. G.