Vísir - 15.01.1964, Side 6
VÍSIR . MJBvöcudagnr 15. janúar 1064.
Gunndóra Benjamínsdóttir
1 dag er Gunndóra Benjamfns-
dóttir kvödd hinztu kveðju hér á
jörð af vinum og vandamönnum.
Hún var fædd 15. júlí áriö 1881
að Lækjardal í Öxarfirði, dóttir
hjónanna Signýjar Jóhannsdóttur,
er var ættuð úr Suður-Þingeyjar-
sýslu og Benjamíns Þorvaldssonar
í frá Klifshaga í öxarfirði. Foreldr-
| ar Gunndóru hófu búskap að Lækj
j ardal vorið 1879, en eins og kunn
i ugt er voru árin kringum 1880
i mörgum þung í skauti, ekki sízt
Norðlendingum, vegna ills árferðis.
; Kom þetta ekki sízt illa við frum
| býlinga eins og þau hjónin á Lækj
| ardal. Græddist þeim því ekki fé I
i búskapnum, þó að bæði væru dug-
leg og vel verki farin og hlífðu
i sér lítt, enda fjölgaði brátt í fjöl-
i skyldunni, því að þeim fæddust
j fimm böm á árunum 1879 — 1891.
! Komust þau þó af án hjálpar. Var
Gunndóra næstelzt systkinanna og
mun snemma hafa þurft að rétta
móður sinni hjálparhönd við heim
ilisstörfin svo sem hún gat. Vorið
1892 veiktist Benjamln snögglega
af lungnabólgu og var látinn innan
nokkurra daga. Stóð þá ekkjan ein
uppi efnalítil með fimm böm 1
ómegð. Var þá eigi annarra kosta
völ fyrir hana en að bregða búi og
tvlstra barnahópnum, eins og al-
gengt var á þeim^iram. Fór Gunn-
dóra þá að Skinnastaö til Þórleifs
prests Jónssonar og konu hans Sess
elju Þórðardóttur. Dvaldist hún á
Skinnastað óslitið 5 — 6 næstu árin.
Mun Gunndóra jafftan siðan hafa
skoðað Sesselju sem aðra móður
sína og litið á dætur þeirra Skinna-
staðahjóna sem sér nákomnar.
Naut hún og sömu uppfræðslu sem
þær 1 hvívetna meðan þær dvöldu
allar samvistum.
Um 16 ára aldur réði Gunndóra
sig í vist fyrst að Skógum í öxar-
firði, er þá var mannmargt myndar
heimili og siðan á fleiri heimili þar
um slóðir. Dvaldi hún og á þess-
B&RÓTTIR —
Framh. af bls. 2.
þessa hafði ekki haft sig í frammi,
varði mjög vel hvað eftir annað.
Við þetta bættist það, að Herði
Kristinssyni var vlsað út I 2 mín.
fyrir brot og voru þá 4 mínútur
eftir af Ieik.
ÍR hélt tveggja marka forystu
og hafði 19—17 þegar nokkrar
sekundur v.oru eftir, en vítakast
færði Árm. 19:18 og enda þótt þeir
hefðu knöttinn þegar Ieik lauk og
hefðu fengið sér dæmt aukakast,
tókst ekki að skora markið sem
hefði fært þeim eitt stig, — fyrsta
stig sitt I mótinu.
1 IR-Iiðinu voru beztir Gunn-
Iaugur, Gunnlaugur, Gunnlaugur
og.........já, Gunnlaugur var
eini maður liðsins, sem eitthvað
kvað að. Hermann var sæmilegur
og hinn ungi markvörður kom inn
í á réttri stundu og á hann sinn
stóra þátt í að ÍR hélt báðum stig-
unum. Gylfi Hjálmarsson sýndi í
nokkur skipti I leiknum að hann
getur vel leikið inni á línunni.
Ármannsliðið horfir fram á mikla
baráttu á botninum. Nú er liðið
með 4 tapaða leiki og verður að
taka á sig mikla rögg eigi ekki
illa að fara. Lúðvík og Hans voru
beztir í gærkvöldi, en Hans þó of
skotbráður. Herði var haldið niðri
að mestu Ieyti, en gerði margt þó
vel.
Dómari var Daníel Benjamíns-
nn og dæmdi vel.
um árum eitthvað á Skmnastað,
sem I vitimd hennar mun haf a verið
hið eiginlega heimlli hennar, þótt
hún ætti oft annars staðar dvöl.
Rúmlega tvltug að aldri fór
Gunndóra til Seyðisfjarðar I þvl
skyni að læra karlmannafatasaum
hjá Guðrúnu Gísladóttur, er þá
rak saumastofu á Seyðisfirði og
kenndi mörgum ungum stúlkum.
Að loknum námstlma vann Gunn-
dóra svo áfram á saumastofu Guð-
rúnar um skeið, unz hún giftist
Tryggva Guðmundssyni, er þá rak
verzlun á Seyðisfirði, en flutti all-
mörgum árum síðar til Reykjavlkur
og tókst þar á hendur gjaldkera-
störf hjá Áfengisverzlun ríkisins.
Þau Tryggvi og Gunndóra eign-
uðust þrjú böm, en þau eru: ólaf-
ur, úrsmlðameistari, Nlna listmál-
ari, Viggó lögfræðingur.
Mann sinn missti Gunndóra árið
1942, en dvaldi áfram 1 íbúð sinni
að Bárugötu 7 allt til dauðadags,
þótt hún væri stundum neydd til að
liggja á sjúkrahúsi hin síðari ár
vegna vanheilsu eða slysa, er hún
varð fyrir. Var hún þama 1 skjóli
Viggós, yngri sonar síns, og konu
hans, Hrafnhildar Thoroddsen.
Gunndóra var fríð kona sýnum
og glæsileg. Klæddist hún jafnan
peysufötum, er henni sómdu mæta
vel.
Á uppvaxtarámm Gunndóra á
Skinnastað var þar oft allmann-
margt, gestkvæmt og oft „glatt á
Hjalla". Var þá sitt hvað sér til
gamans gert svo sem að geta gátur,
kveðast á o. fl. Kom þá fyrir, er
vísur þraut, að reynt var að bæta
úr með eigin skáldskap, er oft var
fá(!ækíögur,t"ííuk "þess sé^ ;r‘fyrir
kom, að reynt var að yrkja um
ýmislegt, er gerðist á staðnum.
En eitt var augljóst mál, það að
Gunndóru lét þessi list betur en
öðrum, er hana þreyttu, enda mun
hún alla ævi hafa gert sér það til
gamans og ef tii vilí hugarléttis
að varpa fram stökum, þó að hún
hirti eigi um að halda þeim saman
eða birta þær opinberlega. Getum
við, sem þekktum hagmæisku
Gunndóra eigi varizt því að harma
að vlsum hennar, þeim beztu var
ekki haldið til haga, en fátt eitt
af þeim munu menn kunna.
Sem húsmóðir sómdi Gunndóra
sér hið bezta. Bar heimili hennar
jafnan vott um hina stöku reglu-
semi og hreinlæti, sem segja má,
að henni hafi verið svo að segja í
blóð borið. Gestrisni mikil ríkti á
heimili þeirra Tryggva. Vora við-
Rómciri
Framh. af bls. 1.
við varnarliðið.
Enda þótt rannsókn málsins
sé enn á frumstigi virðist ljóst
að þarna er um umfangsmikil
fjársvik að ræða og eru það
bæði íslendingar og Bandaríkja-
menn, sem að þeim standa.
Mun það og að mestu ijóst orð-
ið hvaða menn það eru, sem
þarna hafa verið að verki. Voru
þeir áður starfandi á Keflavík-
urflugvelli, en eru það ekki
lengur, að því er lögreglust’ór-
inn á Keflavíkurflugvelli tjáð;
Vísi í morgun.
Vísi hefur ekki tekizt að aflr
upplýsinga um það, hvað hér er
um miklar fjárhæðir að ræðr
né heldur hvað aðilarnir eru
margir, sem að fjársvikunum
standa.
tökurnar sllkar, að gestinum lá við
að líta svo á, að hann væri að gera
þeim stóran greiða með þvl að
gista heimili þeirra. Var Gunndóra
og ætfð hugstætt að halda lifandi
sambandi við vini slna og gerði
þeim þá heimsókn, ef henni þótti
dragast um of, að þeir kæmu til
hennar.
Síðustu æviárin var Gunndóra
svo farin að heilsu, að burtförin
hefur án efa verið henni kærkomin.
Far þú I friði
friður guðs þig blessi.
S. Þ.
Sígareffur —
Framh. af bls. 1.
Hér á landi eru nær eingöngu
reyktar amerískar sígarettur og
langsamlega mest af Camel. S.I.
ár námu reyktar Camel-síga-
rettur hér á landi 143 milljón-
um, og fjölgaði um 21.5 milljón
stykkja á því ári. Næst á
neyzlulistanum kemur tegundin
Roy, 22 milljónir, og sést af
því að Camel er hér yfirgnæf-
andi. Þriðja 1 röðinni er teg-
undin Ohesterfield, 20 milljónir
stykkja, og fjórða er Wings, 18
milljónir. Allar þessar tegundir
eru amerískar og engar af þess-
um sígarettum eru ,filteraðar“.
Reyktóbaksnotkun mun hafa
verið svipuð s.I. ár og árið áður,
svo og vindlareykingar.
Agiista —i
Framh. af bls. 1.
aftan og hverfa slðan lóðrétt
1 sjóinn.
Þessa einstæðu Ijósmynd tók
einn skipverjanna á Ágústu,
Austurríkismaðurinn Emst Ketl
er frá vélbátnum Elliða.
Ágústa stakkst svo að segja
lóðrétt I hafið. Myndln er tekin
á þvf augnabliki, þegar mest all
ur framhluti Ágústu er kominn
I kaf og stendur aðeins skutur-
inn uppúr. Ekki var farið að
blrta og beindu Elliði og Þor-
steinn þorskabitur ljóskösturum
síum á hið sökkvandi skip.
Skömmu áður hafði áhöfn
Ágústu barizt við að bjarga skip
inu — en án árangurs. TVær
véldælur voru settar I gang og
byrjað var einnig að dæla með
handdælu. Skipverjar reyndu
að ausa úr lúkarnum. Allri slld
var rutt af þilfarinu og I sjó-
inn. — En allt kom fyrlr ekkl
— Sjórinn streymdi stöðugt
fram úr Iestinni og Inn I véla-
rúmið og vélstjórinn yflrgaf
ekkl vélarrúmið fyrr en hann
stóð upp undir mitti 1 sjó. Skip-
verjar urðu að yfirgefa skip sltt
og þegar myndin var tekin stóðu
þeir á þilfari Elliða og horfðu á
Ágústu hverfa I grelpar Ægis.
7 bátar —
Framh. af bls. 16.
við festum nótina f Hringversnót-
inni, en það fór svo betur en á
horfðist. — Landhelgisgæzlan þarf
endilega f svona tilfellum að muna
eftir að tilkynna eða helzt setja
bauju við svona neétur, sagði Val-
týr.
Vísir hafði I morgun samband
við síldarbræðslurnar í Neskaup-
stað og Eskifirði. Báðar eru sfldar-
bræðslurnar tilbúnar að taka á
móti sfld, en í morgun hafði eng-
inn bátur tilkynnt komu slna þang-
að. Verksmiðjan á Eskifirði afkast
ar 800—900 málum á sólarhring,
en síldarbræðslan 1 Neskaupstað
hátt I 4 þús. mál á sólarhring.
Skók —
Framh. af bls. 16.
Skákir Gaprindahvili og Trausta
Björnssonar og Ingvars og Arin-
bjamar fóra I bið.
Hér á eftir birtist ein fjör-
ugasta og skemmtilegasta skák-
in frá því I gær, sú fnilli Frið
riks og Freysteins.
Friðrik hvltt.
Freysteinn svart
Nimso-inbversk vöra.
1. d4, Rf6.
2. c4, e6.
3. Rc3, Bb4.
4. Rf3, c5.
5. e3, O—O.
6. Bd3, d5.
7. O—O, dxc4.
8. Bxc4, Rbd7.
9. De2, a6.
10. a3, Cxd4.
11. axb4, dxc3.
12. bxc3, Dc7.
13. e4, e5.
14. Bd2, Rb6.
15. Ba2, Bg4.
(ef 15. - Be6. þá 16. Bxe6 og
sfðan Rg5 með yflrburðastöðu
fyrir hvítan)
16. c4, Bxf3.
17. gxf3, Rh5.
18. Khl, Hd8.
19. Hgl, g6.
20. c5, Rc8.
21. Hg5, Hfe8.
(svörtum sést greinilega yflr
fóm Friðrlks)
22. Hxh5! gxh5.
23. Hglf, Kf8.
24. Bh6ý, Ke7.
25. Bg5+, f6
(Ef Kf8 þá drottning e3 og svart
ur óverjandi mát).
26. Dc4, Hd7.
27. Df7t, Kd8.
28. Bxf6t, Re7
29. Bd5! (gefið).
í kyöld munu tefla saman
Friðrik og Gaprindashvili, Tal
og Ingi R, Gligoric og Wade,
Arinbjöm og Johannessen.
/ NÓTT FENGU 23 BÁT-
AR 28.350 TUNNL'R
Áframhald var á ágætri veiði sl.
nótt í Meðallandsbugtinni. Fengu
23 bátar samtals 28.350 tunnur.
Sigurkarfi var hæstur með 2400
tunnur. Afli bátanna var sem hér
segir: Ásbjörn 1850, Reynir 1100,
Lómur 1450, Faxi 1800, Hamravík
1600, Huginn 700, Kristbjörg 900,
Sigurður Bjarnason 1500, Marz
1300, Helgi Flóventss'on 1900, Eng-
ey 1000, S.gurkarfi 2400, Þorgeir
1100, Kópur 1100, Sigfús Berg-
mann 500, Ólafur Magnússon EA
1100, Meda 1150, Bára 700, Jón á
Stapa 1400, Árni Geir 800, Guð-
mundur Pétursson 1200, Pétur Sig-
urðsson 1100, Ársæll Sigurðsson
II. 700.
Mikið er nú talað um, að bátar
fari að sigla til Austfjarðahafna,
með síld í bræðslu, því að þangað
er styttri sigling'af miðunum, og
mn
Framh. af bls. 16.
ás og setti hann tvær dælur í
gang, en það dugði lítið. Bráð-
lega stóð vélstjóri í vatni upp
í mitti. Skipverjar reyndu og
að ausa úr lúkar með fötum,
en lekinn var svo mikill, að við
ekkert varð ráðið.
í dag fara fram sjópróf yfir
skipverjum af Hringveri.
Framh. af bls. 1.
opinberum stöðum og þá með
banni ef ekki er annað ráð til.
tækilegt.
Ráðuneytið hóf aðgeðir í
þessu máli og var m. a. Áfengis
verzluninni heimilað að greiða
Krabbameinsfélaginu 25 aura af
hverjum seldum sígarettupakka
með fjárlögum ársins 1963.
er sagt, að viðbúnaður sé til að
taka á móti síld á Eskifirði og I
Neskaupstað.
Af línu og
oftur ú síld
Tveir Akranesbátar, sem voru
byrjaðir á línu hafa nú verið
kallaðir heim I höfn til þess að
setja á land „línukramið“, eins
og það var orðað I frétt til Vísis
I morgun — og fara austur í
sfldina.
Þetta voru tveir af stóru bát-
unum Haraldur og Höfrungur
II. Hvort tveggja er, að afli á
línuna er ekkert sérlegur —
þetta 6—10 í tveimur seinustu
róðrum, og svo kæmi sé vel að
fá verkefni i verksmiðjuna, þar
sera nokkuð af góðri síld veiðist
innan um, þótt megnið fari I
bræðslu.