Vísir - 30.01.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 30.01.1964, Blaðsíða 5
VÍSIR . Fimmtudagur 30. janúar 1964. utlönd í morgun útlönd £ morgun útlönd í morgun útlönd í morgun NÝ BYLTINGISUBUR- VICTNAM Ný bylting hefir verið hafin í Suður-Vietnam. Nákvæmar upplýsingar eru ekki enn fyrir hendi, en vitað er, að hér er um byltingu innan hersins að rseða, eins og var, er Diem var steypt. McNamara landvarnaráð- -------------------------------- herra Bandarikjanna sagði fyrir aðeins þremur dögum, að kommúnistar hefðu verið að vinna á í Suður-Vietnam að undanförnu, en þó mætti ekki mála horfurnar með of dökkum litum, því að þess sæjust mörg merki, að vinsæidir byltingar- stjórnarinnar, sem tók við eftir Diemstjórninni eða „fjölskyldu- stjóminni“, væru vaxandi með- al almennings, og með vaxandi þjóðarfyigi mundi takast að sigrast á kommúnistum. Vildi hann því mæla með, að Banda- ríkin veittu áfram stuðning í baráttunni gegn kommúnistum í Suður-Vietnam. Ekki vék ráðherrann að því, að hætta af völdum nýrrar bylt- ingartilraunar væri fyrir hendi. Sá hann ekki fyrir hættuna? McNamara ræðir við fanga úr liði kommúnista á vígstöðvum f S.V. Þyngsti gervihnötturinn ■H til þessa kominn á loft I y <$>- Bandaríkjamenn stapda nú miklu bqtur að, Vígi ’ en áður að verða fyrstir til að senda mannað geimfar til tunglsins. Vísindamenn telja þá komna fram úr Rússum í eldflaugafram- leiðslu eftir að þeim' tókst f gær að skjóta á loft þyngsta gervi- hnetti, sem til þessa hefir komizt á braut kringum jörðu, en hann vegur 19 lestir, og var skotið á loft frá Kennedyhöfða á Floridaskaga kl. 15.25 f gær. Eldflaugin, Saturnus I. notar fljót andi vetni og súrefni fyrir elds- neyti, og er aflmesta flaug, sem framleidd hefir verið. Hún er 50 metra há og vegur 56.2 lestir. — Saturnus lyftist frá jörðu með fer- Svar tóbaksframleiðenda í sígarettustríðinu: VIDARKOL Sala á sígarettum hefur að undanförnu minnkað talsvert, ekki hvað sfzt i Bandaríkjunum. Hefur þetta valdið framleiðend- um talsverðum áhyggjum eins og gefur að skilja. Þegar skýrsla bandarísku rannsóknarnefndarinnar var birt, hófst geysileg auglýsinga- starfsemi Ligget & Myers fyrir- tækisins mikla á nýrrl síga- rettutegund, sem rannsóknar- stofur firmans hafa unnið að undanfarln ár og heitir hún Larks. Sfgarettur þessar eru með reyksíum (filter), sem hafa verið endurbættar frá fyrri gerðum. Eru siurnar i þrennu lagi með korkyfirlagi. Siurnar eru búnar venjulegum filter nema hvað i þeim er millilag úr viðarkolum og binda tóbaksframleiðendur miklar vonir við þessar nýju gerð af síum. Er ekki að sökum að spyrja að sígarettur af Larkstegund hafa rutt sér inn á markaðinn á skömmum tíma og eru þegar í röð vinsælustu sígarettuteg- unda. Larks mun ekki enn fást í verzlunum hér að sögn tó- bakskaupmanna og ekki vitað hvort hún er væntanleg. leguní gný ’o^ eftir 10% mfhútu Var gervihnötturinri kominn á braut kringum jörðu og fer fjærst henni 751 km. og næst 260. Fer gervi- hnötturinn kringum jörðu með 25.000 km. hraða á 94,8 mínútum. Gervihnötturinn er búinn rniklu fleiri rannsókna- og mynda- og sjónvarpstækjum en dæmi eru til um nokkurn gervihnött fyrr eða síðar. Ekki er búizt við að gervihnött- urinn verði á braut kringum jörðu nema viku til mánaðartíma, en von- ir standa til að miklar upplýsingar fáist á þessum stutta stíma. iýjar fréttir í stuttu múli ► Bandarikjamenn hafa mótmælt sem miskunnarlausu og hrotta- legu athæfi, að bandarísk þjálf- unarflugvél, óvopnuð, var skot- in niður yfir Austur-Þýzkalandi, og biðu flugmennirnir, sem f henni voru, 3 talsins, þegar bana. — Rússar segja flugmennina ekki hafa skeytt um viðvaranir og neita að taka við mótmælun- um. ^ Fastaráð Norður-Atlantshafs- bandalagsins kom saman til fundar í gær. Til umræðu er að senda alþjóðalið til Kýpur. Bandaríkjatilkynning segir málið enn á umræðustigi. Allt virðist nú velta á afstöðu Kýpurstjórnar sjálfrar. Hún er sögð vilja held- ur alþjóðalið sem er á ábyrgð Sameinuðu þjóðanna. ► Frakkar og Rússar hafa náð með sér samkomulagi um aukin viðskipti D’estaing fjármálaráð- herra, sem fór til Kænugarðs til viðræðna við Krúsév, segir Rússar hafa áhuga á að kaupa efnavörur og vélar frá Frakk- landi. Frakkar munu kaupa meira magn af olíu frá Sovétríkjunum en áður. $> Landbúnaðarmál sammarkaðs- landanna vcrða á dagskrá á ný. Ráðherrafundur þeirra verður haldinn f Briissel i næstu viku. ► Byltingarstjórnin í Zansibar hef- ir viðurkennt Austur-Þýzkaland sem sjálfstætt ríki. — Vestur- Þýzkaland viðurkenndi Iýðveldið í Zansibar er það var sett á stofn í desember, en ekki byltingar- stjórnina — og gerir sennilega ekki, þar sem hún viðurkennir ekki ríkisstjórnir sem viður- kenna Austur-Þýzkaland. Sovét- ríkin eru þar þó undantekning. BINDINDiSMENN! TRYGGIÐ BÍLINN HJÁ ÁBYRGÐ - ÞAÐ BORGAR SIG! L.átið ekki blekkjast. Kjörin eru ekki allsstaðar þau sömu. Þau eru hagkvæmust hjá: áBYRGÐ h/f. TRYGGINGAFÉLAG BINDINDISMANNA Laugavegi 133 — Símar 17455 og 17947. £' .ims&r

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.