Vísir - 30.01.1964, Blaðsíða 6
6
VlSIR . Fimmtudagur 30. janúar 1964.
Heímili vsagefinna 10 ára
Barnahcimili templara að Skála-
túni er 10 ára í dag. Nýbýlið
Skálatún, var keypt árið 1953,
og gert bannig úr garði, að þar
væri hægt að hlynna að vangetn
um bömum. Það var Jðn Gunn-
iaugsson stjórnarráðsfulltrúi
sem fyrstur kom með tillögu
þess efnis að Templarar hæfi
starfsemina, og var það árið
1952.
Fyrsti vistmaðurinn kom að
Skálatúni 30. jan. 1954, og var
heimilið svo orðið yfirfullt þrem
ur mánuðum síðar. Fyrstu
stjórn þess skipuðu: Jón Gunn-
laugsson, Páll Kolbeins, Þor-
steinn Þorsteinsson, Guðrún
Sigurðardóttir og María Al-
bertsdóttir. Árið 1958 hófust við
ræður miili heimilisstjórnarinn
ar, og styrktarfélags vangefinna
um að Templarar og styrktar-
félagið stæðu að rekstri heimilis
ins, og snemma á árinu 1960,
var samningur gerður. Stjórnin
var kjörin með nýju fyrirkomu
lagi, og er heimilið síðan sjálfs-
eignarstofnun. Aðalstjórn þess
er þannig skipuð.
Af hálfu Templara: Páll Kol-
beins og Guðrún Sigurðardóttir,
af hálfu Styrktarfélagsins: Ingi-
björg Stefánsdóttir og Gísli
Kristjánsson. Jón Sigurðsson
borgarlæknir var og tilnefndur
af landlækni.
Tekizt hefur að auka húsa-
kost heimilisins á síðustu þrem-
ur árum, fyrir framlag úr Styrkt
arsjóði vangefinna, og fyrir láns
fé, þannig að nú er þar rúm
fyrir allt að 30 börn, Tveir sjóð
ir eru heimilinu til aðstoðar.
Stofnendur þeirra eru: Þorsteinn
Þorsteinsson kaupmaður, sem
stofnaði sjóðinn til þess að hægt
væri að gleðja börnin með ferða
lögum eða öðru, og hinn sjóðinn
stofnuðu þau Ragnheiður Guð
mundsdóttir, og maður hennar
Magnús Kristinsson, fé úr hon-
um er varið lil föndur og leik-
tækjakaupa. Forstöðukona heim
ilsins er Gréta Bachmann, og
ráðsmaður á búinu Viggó Valdi-
marsson. Að lokum má geta
þess að fyrirhugaðar eru nýjar
byggingar, og hafa teikningar
þegar verið samþykktar.
Dágóð síldveiði í nótt
1 nótt rættist heldur úr með
síldveiðina á austurmiðunum. Þeg-
ar kluklcan um 8 í morgun voru 11
bátar búnir að tilkynna síldarleit-
arskipinu Þorsteini þorskabít afia
yfir 11.000 tunnur og siðar
bættust fleiKÍ við.
Talsverður sjór á suðvestan var
á miðunum, en vindur hægari.
Hafði hann snúizt til norðvesturs
og gekk bátunum sæmilega að at-
hafna sig. Aflinn fékkst að þessu
sinni á svipuðum slóðum og fyrir
nokkru eða 16 — 20 sjómflur suð-
vestur af vestri frá Ingólfshöfða.
§ þlm afla þessara’ báta er blað-
inu kunnugt: Gullborg 1100, Sigur-
páll 1250, Eiliði 400, Hafþór 700,
Askorun til
yfirvalda
I þjónustu sannleikans og sak-
leysisins sem í sálum iandsmanna
á nú í vök að verjast, gagnvart
spillingaröflunum og til eflingar
heilbrigðum vinnufriði og sér-
hverri heilbrigðri uppbygging, skora
ég á valdhafa íslenzka iýðveidis-
ins, að gefa út þá yfirlýsingu, í
síðasta lagi 30. janúar að
allir leigjendur húsnæðis, svo og
eigendur leiguíbúða, verði skaðlaus-
ir af því, að telja húsalciguna rétti
lega fram á skattaskýrslum og að
engum refsað fyrir þau Iögbrot,
sem f þessum efnum hafa átt sér
stað, ef þeir nú kappkosti að telja
réttilega fram í ölium greinum.
Aliir skattgreiðendur munu fresta
því, að skrifa húsaleiguna á skatta
skýrslur sfnar, þar til valdhafarnir
hafa látið frá sér heyra hér að
lútandi.
26. janúar 1964.
Guðrún Páisdóttir.
Pétur Sigurðsson 850, Ögri 1200, | Huginn 600 og Snæfell 1100. Þetta
Hrafn Sveinbjarnarson III 1500, eru 11 fyrstu bátarnir sem til-
Vonin 1500, Árni Magnússon 1000, | kynntu afla í morgun.
Umboðsmenn F.í.
á faraldsfæti
Mikii mannaskipti og tilfærsl-
ur standa nú fyrir dyrum hjá
Flugfélag islands. Eru það eink
um fulltrúar félagsins erlendis
sem flytjast til á milli staða.
Birgir Þorgiisson mun koma
heim til Reykjavíkur frá Kaup
mannahöfn og taka við starfi
deildarstjóra millilandaflugsins,
en í hans stað í Höfn kemur
V lhjálmur Guðmundsson, sem
verið hefur í Osló. Til Osló kem
ur í stað Vilhjálms, Skarphéð-
inn Árnason, sem hefur undan-
farin ár verið í Hamborg, en
söluskrifstofan þar hefur verið
iögð niður.
Einar Helgason, sem hefur
verið 8 ár í Glasgow mun koma
heim og taka við starfi stöðvar-
Kono slasast
í gærkveldi seint slasaðist kona
allmikið er hún datt á hálku í
Bogahiið.
Kona þessi, Anna J. Jónsdóttir,
Hverfisgötu 112, var á gangi í
Bogahlíð en þá var komið snjóföl
á götur borgarinnar og flughált þar
sem troðizt hafði slóð. Anna var
flutt í sjúkrabifreið í slysavarð-
stofuna og þaðan 1 Landakots-
spítala.
Umferðarslys varð fyrir utan
Morgunblaðshúsið í Aðalstræti um
sjöleytið i gærkveldi, er 8 ára
drengur varð fyrir bíl. Drengurinn
meiddist lítiisháttar og var farið
með hann í slysavarðstofuna til at-
hugunar.
Hjartkær eiginmaður minn
JÓN SIGURÐSSON,
slökkviliðsstjóri,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 31. jan.
kl. 3 e. h.
Fyrir hönd bama og annarra vandamanna,
*
Karen Guðmundsdóttir.
stjóra á Reykjavíkurflugvelli, en
það er nýtt starf hjá Flugfélag-
inu. Ekki er enn ákveðið, hver
tekur við starfi Einars í Glas-
gow.
Bakirí —
Framh. af bls. 16.
verið baráttumál bakarastéttar nn-
ar. Að sögn formanns Landssam-
bands bakarameistara virðist nokk
ur áhugi vera að vakna á bak-
araiðninni, en um þessar mundir
eru fjórir bakaranemar í Iðnskól-
anum, þar á meðal ein stúlka.
Bakariið er til húsa á efstu hæð
Iðnskólans og er það t alla staði
hið vistlegasta. 1 bakaríinu eru öll
þau helztu tæki, sem í bakaríum
þekkjast og hafa bakarar sjálf r
lagt þau til ,en í því sambandi hafa
þeir notið aðstoðar nokkurra fyr-
irtækja. Iðnskólinn hefur hins veg
ar séð um uppsetningu tækjanna
og alla innréttingu. Verkleg
kennsla í bakaraiðn hefur löngum
verið baráttumál bakara og eru
þetta því merk timamót. 1 gær
mættu ’ fyrstu nemendurnir í
kennslustund uppi í hinu vistlega
bakaríi, en verklega kennslu ann-
ast Gísli Óiafsson, bakarameistari.
Þá mættu og nokkrir af stjórnar-
meðlimum Landssambands bakara
meistara til þess að skoða nýja
bakaríið.
Sá háttur verður hafður á að
kaffibrauð það. sem bakaranem-
arnir baka, verður selt í kaffi-
stofu skólans og fá því nemendur
Iðnskólans alveg nýbakað kaffi-
brauð fyrir vægt verð.
Tal vann
löndu sína
Tal vann í gærkvöldi skák
sína við heimsmeistara kvenna,
iöndu sína Nonu Gaprindasvili
og sýndi nú á sér nýja hlið,
hvernig þróa á stöðuyfirburði,
j þar til andstæðingurinn verður
Ræðn Bjarnn —
að láta lið af hcndi. Friðrik
gekk ekki sem bezt með Guð-
mund Pálmason og sömdu þeir
jafntefli eftir 35 leikja viður-
eign. Var það flókin skál: og vel
tefld af báðum. Áhættan, sem
hefði fylgt áframhaldandi tafl-
mennsku varð þó til þess að
þeir sömdu um jafntefli.
Af öðrum skákum vann Wade
Ingvar í frönsku tafli og kunni
vel að notfæra sér ónákvæmni
andstæðingsins. Gligoric vann
Inga R. sem féll á tíma f verri
stöðu. Var þetta harðasta skák
kvöldsins, og leit lengi vel út
fyrir Inga. En skyssa sem hann
gerði undir lokin varð til þess
að hann fékk tapaða stöðu. Arin
björn vann Freystein I nokkuð
gallaðri skák. Valt á ýmsu, en
þegar Freysteinn tapaði skipta-
mun var sýnt hvernig fara
mundi. Magnús vann Trausta í
kóngsindverskri vörn eftir all-
langa baráttu.
Biðskák varð hjá Jóni Krist-
inssyni og Jóhannessen og er
staðan heldur jafnteflisleg. Jón
hafði lengi vel frumkvæðið, en
slakaði á klónni undir lokin.
í kvöld er 12. umferð og þá
tefla m. a. Friðrik og Tal.
Og hér kemur skák Tals og
Gaprindasvili í gærkvöldi:
Spánski leikurinn.
Hvítt: Tal
Svart: Gaprindasvili.
1. e4 — e5
2. Rf3 - Rc6
3. Bb5 - - a6
4. Ba4 - - Rf6
5. 0-0 - - Be7
6. Hel - - b5
7. Bb3 - • do
8. c3 - 0-0
9. h3 - Ra5
10. Bc2 - ■ c5
11. d4 - cxd4
12. cxd4 - - Dc7
13. Rbd2 - Bb7
14. Rfl - - Hac8
15. Bbl - - Hfe8
16. Rg3 - - g6
17. Bg5 - - Rc4
18. b3 - Rb6
19. Bd3 - - Rbd7
20. Hcl - - Dd8
21. Hxc8 — Dxc8
22. Dd2 - Bf8
23. Bbl - ■ Da8
24. Bh6 - - Bxh6
25. Dxh6 - He7
26. Hcl - - Df8
27. Dd2 - - d5
28. Rxe5 — Rxe5
29. dxe5 • — Rxc4
30. Bxei — dxe4
31. Df4 - - Db8
32. Hc5 - - Dd8
33. Rxe4 — Bxe4
34. Dxe4 - f6
35. Dc2, - - Dd4
36. Hc8f - Kf7
37. exf6 - - Dalt
38. Kh2 - - Dxf6
39. Hc6 - - Df4t
40. g3 - Df3
41. Hxa6 - Kg7
42. Db2t - Gefið,
Framhald af bls. 4.
frekari kauphækkana síðar. Af
þessu tilefni er rétt að það sé
enn rifjað upp, sem raunar öll-
um er um kunnugt, að í sam-
bandi við verkfallið var því
marg yfirlýst bæði hér á Alþingi
og við rétta aðila af hálfu rfk-
isstj., að ef verkfallinu lyki svo,
að ríkissjóður yrði að hlaupa
undir bagga að einhverju leyti
með atvinnuvegum, taka á sig
aukin útgjöld, þá yrði það ekki
gert nema með hækkun á tekj-
um ríkissjóðs og var söluskattur
þar beinlínis talfærður eins og
einnig nú nýlega hefur verið
rifjað upp af andstæðingum
stjórnarinnar, svo að slíkt get-
ur engum komið á óvart. Mér
er einnig nær að halda, að þeg-
ar kauphækkunin var ákveðin
svo mikil sem raun ber vitni,
þá hafi verið haft í huga það
sem allir vissu og urðu að gera
sér grein fyrir, að ýmsar hækk-
anir hlutu að leiða af kauphækk
uninni og m. a. hækkun á sölu-
skatti, ef ríkið þyrfti að sker-
ast í málið með þeim hætti, sem
ég áðuf drap á.
Óf mikil þensla
í framkvæmdum
Menn greinir að sjálfsögðu á
um, hverjar séu orsakir þess
vanda, sem við ökkur blasir nú.
Það er hluti af þeim almennu
stjórnmálaumr. sem háðar eru
daglega í blöðum og á mann-
fundum og hafa farið fram hvað
eftir annað hér á hv. Alþingi
í vetur, og skal ég því ekki
þreyta menn á því að fara út
í þá sálma, en um það eru þó
allir sammála, að of mikil
þensla sé nú í framkvæmdum
hér og hún eigi verulegan þátt
í vandanum. Til þess að fá við
hana ráðið, læknað meinsemd-
ina, er því höfuðnauðsyn, að
dregið verði úr þensiunni, kom-
ið í veg fyrir vöxt hennar og
reynt að koma á meira jafn-
vægi heldur en á s. I. ári ríkti.
Til þess að ríkið eigi hægara
með að beita sér fyrir aðgerð-
um í þá átt, eru ákvæðin I 6. ,
gr. frv. Það er engan veginn
sýnt né öruggt, að þeim ákvæð-
um þurfi að beita. Þar kemur
margt til álita, en vissulega á
ríkið hægara með að beita sér
gagnvart öðrum um að dregið
sé úr framkvæmdum, sem allar
hverjar með sínum hætti eru
nauðsynlegar, þó að nauðsynin
sé að vísu misjöfn, ef ríkið af
sinni hálfu vill einnig nokkuð
fram leggja og ekki einungis
krefjast af öðrum.
Því hefur verið haldið fram,
að þetta ákvæði, heimild til
þess að draga úr eða fresta
framkvæmdum, skerti rétt þings
ins, bryti á móti réttu þingræði
og annað slíkt, en þetta fær auð
vitað ekki staðizt. Slíkar heim-
ildir hafa verið i lögum áður
og engum umskiptum um þing-
ræði eða úrslitavald Alþingis
ráðið, svo þar er með öllu að
ástæðulausu verið að mála
Grýlu á vegg.
Hreinsum
apaskinn, rússkinn
og aðrar skinnvörur
5 E FN A LAUGIN BJÖRG
Sólvallagötu 74. Sími 13237
Barmahlíð 6. Sími 23337