Vísir - 07.02.1964, Qupperneq 2
t)
2 VÍSIR . Föstudagur 7. febrúar 1964.
Jakob Jakobsson
stud. odont.
Kveðja frá K.A.
Fyrir rúmri viku spurðust þau
hörmulegu tiðindi hingað til Akur-
eyrar, að Jakob Jakobsson stud
odont., Skipagötu 1, hefði farizt
af slysförum í Þýzkalandi. Snart
sú helfregn næman streng í mörgu
brjósti, því að Jakob átti velvild
og vinarhug allra þeirra, er honum
kynntust.
Jakob Jakobsson fæddist á
Grenivik 20. apríl 1937, sonur hjón
anna Matthildar Stefánsdóttur Stef
ánssonar útvegsbónda þar og
Jakobs skipasmiðs Gíslasonar frá
Ólafsfirði Jóhannessonar sjómanns
þar og barnakennara. Á fyrsta ári
fluttist Jakob með foreldrum sín-
um til Akureyrar og átti þar heima
siðan. Um fermingaraldur innrit-
aðist hann í Menntaskólann á Ak-
ureyri og lauk þaðan stúdentsprófi
úr stærðfræðideild 1957. Síðan
lagði hann stund á tannlækningar
í Erlangen í Þýzkalandi og var
kominn fast að lokaprófi, er hann
lézt.
tilþrif en hans, þegar honum tókst
bezt upp.
Með þessum kveðjuorðum viljum
við vinir hans og félagar í K. A.
votta minningu hans virðingu okk-
ar og þakka honum af alhug þann
vegsauka, sem hann ávann félagi
sínu, bæ sínum og föðurlandi. Veit
ég og, að ég mæli þau orð fyrir
munn allra þeirra, er meta kunna
afrekslund, drengskap og prúð-
mennsku.
Þá viljum við votta aðstandend-
um hans öllum, og þá einkum móð-
ur, föður og systkinum, sem þyngst
um harmi eru slegin við fráfall
hans, dýpstu samúð okkar. Sem
fyrr er okkur öllum óleysanleg
ráðgáta, þegar vaskir menn eru
burt kvaddir í blóma lífsins, „en
á bjartan orðstír aldrei fellur tím-
gjörðin er góðra drengja hjörtu“.
Góðan dreng, sem svo sviplega er
horfinn, kunnum við ekki betur að
kveðja en með þessum línum úr
harmljóði Tómasar Guðmundsson-
ar:
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar
nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum
I lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
Gísli Jónsson.
Jakob Jakobsson var ágætlega
iþróttum búinn, enda landskunnur
fyrir afburði sína í knattspyrnu.
Mátti og segja, að það væri ættar-
íþrótt, er faðir hans, bræður og
frændur eru kunnir afreksmenn á
því sviði. Hann tók mjög ungur
að iðka þá íþrótt í Knattspyrnufé-
lagi Akureyrar, og^aðeins 1.7 ára
gamall hóf hann að keppa I jneist-
araflokki. Bar öllum saman um, að
hann væri í hópi okkar allra beztu
knattspyrnumanna, enda jafnan í
úrvalsliði Akureyringa, þegar hann
gat því við komið vegna náms
síns. Árið 1957 var hann valinn í
landslið gegn Frökkum og Belgum,
en gat þá ekki háð þá keppni vegna
stúdentsprófs. Þá var hann síðan
varamaður í landsliði, og 1961 lék
hann í liði íslendinga í Iandskeppni
við Englendinga. Þá varð hann og
á skömmum tíma mjög snjall golf-
leikari. Hafði hann óvenjulega
næmt skyn á öllum knattleikum,
og var umfram allt vitur knatt-
spyrnumaður og prúður á leikvelli.
Ég minnist þess ekki að hafa séð
hér á íþróttavellinum öllu laglegri
reRÍrí rrrtfírtjAfTcc :
Um helgina verða haldin tvö
skíðamót í Skálafelli.
Á laugardaginn kl. 3 hefst af-
mælismót KR, sem er stórsvigsmót
með þátttakendum frá skíðadeild
Ármanns, ÍR, Víkings og KR.
Á sunnudaginn kl. 11 hefst Stef-
ánsmótið 1964 og er það svigmót
í öllum flokkum með þátttakendum
frá sömu félögum og í stórsvigi.
Mót þetta er minningamót um
Stefán heitinn Gíslason, einn af
brautryðjendum KR. Stefán dó fyr
ir mörgum árum, en félagar hans
úr KR halda árlega minningamót
um hinn látna félaga sinn.
Hinn þekkti skíðamaður Haukur
Sigurðsson mun leggja allar braut-
ir. Haukur starfar með KR-ingum
í vetur.
Stjórn skíðadeildar KR hefur séð
um undirbúning mótanna og ítrek
ar við alla gamla KR-inga að fjöl-
menna til starfa í Skálafelli um
helgina.
í hinum vistlega skála KR mun
um helgina verða greiðasá-la.
Ferðir í Skálafell eru um helg-
ina kl. 1 á laugardaginn (fyrir
keppendur og starfsmenn) og enn-
fremur kl. 2 á laugardaginn, og
fyrir Stefánsmótið á sunnudaginn
og fyrir þá, sem gista ekki i Skála
felli um nóttina, eru ferðir kl. 9
á sunnudagsmorgun.
Myndir frá
Þessar myndir eru frá Olymplu-
leikunum í Innsbruck, þar sem
hin stóra þróttahátíð hefur verið
haldin undflnfarna daga, en leik-'
unum lýkur nú ó sunnudaginn.
Þrídilka myndin er af Mc Der-
mett, bundaríska sigurvegaran-
Um í 500 m. skautahl. Hann er
Innsbruck
23 ára gamall og talinn eini sanni
áhugamaðurinn í hópi sigurvegara
á OL að þessu sinni. Sigur hans
kom mjög á óvart, en búizt hafði
verið við hreinu uppgjöri Rússa
og Bandaríkjamanna í þessari
grein. Myndin sýnir vini hans taka
á móti honum eftir hlaupið.
Myndin af konunni með ljós-
myndavélina er af Farah Diba,
en hún er þátttakandi í óopin-
berum „01ympfuleikum“, sem
fram fara á áhorfendapöllunum,
en þar er margt um heimsfrægt
fólk, eins og alltaf þegar Olym-
pluleikar fara fram.
Loks er mynd af rússnesku
göngukonunni Claudíu Bosjakin,
sem vann 10 km. gönguna.