Vísir - 07.02.1964, Síða 5
VlSIR . Föstudagur 7. febrúar 1964.
5
Fundur var fyrst settur í sam-
ein. þingi og teknar fyrir tvær
fyrirspurnir, hvort leyfðar
skyldu.
Þá hófust fundir í þingdeildum.
UM STOFNLÁNADEILD
L ANDBÚNAÐ ARIN S
Landbúnaðar-i
ráðherra, Ingólfl
ur Jónssonj
mælti fyrirl
stjórnarfrv. uml
breytingar á|
lögum um stofnl
lánadeild land-l
búnaðarins. íl
þvf er lagt til að óafturkræft
framlag til ræktunar á jörðum
verði framvegis miðað við 25 ha.,
en ekki 15, eins og verið hefur.
Þessi styrkur hefur smám saman
hækkað úr 5 ha. Það er þó ljóst,
að þetta er ekkert lokatakmark,
en gefur þó möguleika á sæmi-(
legum tekjum.
Síðan fór ráðherra nokkrum al
mennum orðum um þróun land-
búnaðarins, sagði m. a., að af
3000 bændum væru 1200 með 100
— 150 þús. kr. tekjur, 12 — 13
hundruð með 50—100 þús. kr.
tekjur og aðrir með minna, og
það verður aldrei hægt að hækka
svo búvöruverð, að þeir bændur
geti lifað af því.
Búvöruverð hlýtur að miðast
við framleiðslukostnað á meðal-
búi, enda eru lögin um verðlags-
dóm byggð á þessu sjónarmiði,
þótt samkomulag hafi ekki orðið
um hann.
Með þessum lögum er stefnt
að því að útrýma smábúunum, af
því m. a., að þau geti ekki staðið
undir kostnaði af vélakosti o. fl.
Einnig er lagt til í þessu frv. að
styrkur til landnáms í allt verði
aukinn upp í um 13 millj. króna,
og þeir sem hafi minna en 25
ha. tún, fái allt að 50% af rækt-
unarkostnaði greiddan og meira
ef um framræslu er að ræða.
Það munu verða milli 3500 —
3800 býli, sem njóta góðs af þess
um lögum. Býli alls í landinu
munu vera 5500 — 6000, svo hér
munar um minna.
Byggingarstyrkur til íbúðar-
húsa á jörðum hækkar nú úr
50.000 f 60.000 og nemur þessi
hækkun alls 1,4 millj. ef miðað
er við að byggð séu 40 nýbýli og
100 ný hús á jörðum.
Ennfremur gaf ráðherrann þær
upplýsingar, að um s. 1. áramót
Hefðu tún verið hér 850 ferkm.
Ræktanlegt land væri aftur á
móti talið vera um 25 þús. fer-
km., svo hér mætti mikið gera
enn. Að lokum sagði ráðherrann:
— Nú vinna við landbúnað um
15% af þjóðinni. Það getur verið
að þetta hlutfall eigi eftir að
raskast enn meir. Ef öll fjölgun
þjóðarinnar verður eingöngu i
kaupstöðunum, þá verða um alda
mótin aðeins 7% af henni, sem
stunda landbúnað, og það er frá-
leitt að sá hluti geti framleitt
nóg fyrir innlendan markað. Þess
vegna hlýtur straumurinn að
snúa við.
Eysteinn Jóns- ’
son (F) kvartaði ;
undan því að |fg
hér væri verið
að stela málum • J
frá Framsókn, ' ■*
sem hún væri
nýbúin að
leggja fram á_________
þinginu. Ennfremur sagði hann
landbúnaðinn vera í kreppu vegna
þess að á allan hátt hefði verið
þrengt að honum af hálfu rfkis-
valdsins á síðustu árum. Lána-
kjörin hefðu versnað mjög og
stofnkostnaður hækkað. Skattur-
inn til stofnlánadeildarinnar feng-
ist ekki tekinn inn í' verðlagið,
en væri hins vegar notaður til
að greiða gengistöp sjóðanna.
Ekki væri nóg að hækka verð á
Iandbúnaðarvörum, heldur þyrfti
líka beina styrki, svo og væri
nauðsynlegt að lækka vexti af
lánum og hafa þau til lengri tíma.
Ingólfur Jónsson svaraði og
sagði, að Eysteinn gæti verið
ánægður með frv. að þvf leyti, að
það líktist frv. Framsóknar. í
umr. ’57, þegar takmarkið hefði
verið hækkað úr 5 í 10 ha., hefði
Framsókn þótt þar stigið stórt
spor, enda var hún þá í stjórn.
Sumir hefðu viljað hækka þetta
meira, en Hermann Jónasson ekki
talið það fært vegna of mikilla
útgjalda ríkissjóðs. Hér er þetta
þó hækkað helmingi meira.
Eysteinn segir aðstæður verri
nú en nokkru sinni áður. En hve-
nær hafa bændur átt stuðningi að
fagna af hans hálfu. Það er flest
um Ijóst, að hann hefur manna
mest beitt sér fyrir dýrtíðarvagn-
inn og það þýðir ekki að full-
yrða, að bændur hafi lifað sæid-
arlífi meðan hann var við völd.
Ríkisstjórnin skipti sér ekki af
verði á landbúnaðarafurðum, en
á s. 1. tveim árum hefði verð-
lagsgrundvöllurinn verið leiðrétt-
ur um 13%. Er hún þá að kúga
bændur?
Ennfremur ber Eysteinn fyrir
sig fullyrðingar bóndans í Árnesi,
að afurðirnar hafi ekki hækkað
nema um 34% frá ’58. Bezt gæti
ég haldið, að hann tryði þessum
tölum ekki sjálfur, a. m. k. vill
hann ekki gera þær að sínum
eigin. Sannleikurinn er sá, að
síðan ’58 hefur dilkakjöt hækkað
um 75%, ull um 85% og mjólkin
um 57%.
Hvað viðvíkur verðlagsgrund-
vellinum, þá skekktist hann ’54
og ’57, er Framsókn var við völd
og hefur aldrei verið fullkomlega
leiðréttur síðan.
Og nú orðið heyrist gjaldið til
stofnlánadeildarinnar ekki nefnt
lengur meðal bænda. Það er
Framsókn ein, sem reynir að
halda í þennan áróður. Eða
skyldu þeir hafa getað fengið lán
upp á 103 millj., ef ekki hefði
verið haldið svona á málum?
AÐRAR
ÞINGFRÉTTIR
Fundur var settur f samein.
þingi kl. 5. Þá flutti Páll Þor-
steinsson þáltill. um æskulýðs-
málaráðstefnu, ásamt nokkrum
öðrum þingmönnum Framsóknar-
flokksins.
Utanríkisráð-
herra, Guðmund
ur 1. Guðmunds
son, mælti fyrir
till; um aðild Is
lands að menn-
ingarmálastofn-
un Sameinuðu
þjóðanna, UN-
ESCO. Stofnunin veitir styrki til
menningar- og fræðslumála í að-
ildarlöndunum, og hvað íslandi
viðvíkur, mun það nema nokkru
meira en árgjaldinu, sem er
400.000 kr.
Sagði ráðherrann S.-Afríku og
Portúgal vera einu löndin utan
íslands f Samein. þjóðunum, sem
ekki ættu aðild að þessari stofn-
un. En fé hefði verið veitt til
þess arna á fjárlögum, og nú
væri þessu fylgt eftir.
Þá flutti Eggert Þorsteinsson
(A) till. um breytingar á sfma-
gjöldum á Suðurnesjum.
© ©
Líklegt er, að Öryggisráð SÞ
komi saman til fundar um Kýp-
ur. Svo alvarlega þykir horfa
varðandi ástandið þar, að U
Thant framkvæmdastjóri SÞ
hætti skyndilega við Afríkuheim
sóknir sfnar og hélt heimleiðis
til þess að geta gefið sig að
Kýpurmálunum, en reynt er að
finna leið til þess, að gæzlulið
er sent verði til Kýpur verði á
einhvern hátt tengt SÞ, þar sem
Makarios erkibiskup hefir raun
verulega hafnað tillögunum um
gæzlulið frá löndum NATO,
sem ekki væri ábyrgt gagnvart
SÞ, þótt hann hafi í grundvall-
aratriðum fallizt á, að æskilegt
væri og nauðsynlegt að hafa
þar alþjóðagæzlulið um stundar-
sakir.
I brezk-bandarísku tiílögun-
um er gert ráð fyrir 10.000
manni liði frá löndum NATO
undir brezkri yfirstjórn. Inonu
forsætisráðherra Tyrklands
sagði í gær, að raunverulega
hefði Makarios hafnað tillög-
unum, og af Tyrklands hálfu var
tekið fram, að það áskildi sér
allan rétt til einhliða aðgerða
til verndar tyrkneska þjóðar-
brotinu, nema samkomulag
tryggði að slíkar aðgerðir væru
óþarfar.
Brezka stjórnin kom saman á
fund í fyrrad. og DuncanSandys
samveldisráðherra ræddi við
r I "1 > • CV •
lresmiðir —
verkamenn
Trésmiðir og verkamenn óskast nú þegar. —
Mikil og löng vinna.
Uppl. í síma 16298 kl. 5—7 e. h.
BYGGINGARFÉLAGIÐ BRÚ h.f.
Kiprianu utanríkisráðherra Kýp
ur án þess samkomulag næðist.
Reynt verður að finna leið til
tengsla gæzluliðs og SÞ þann-
ig, að Rússar fái ekki aðstöðu
til framtíðarafskipta af Kýpur.
Um 1200 bandarískar konur
og börn vilja burt frá Kýpur
vegna ótryggs. ástands og er
flutningur loftleiðis hafinn á
þessu fólki. I fyrrakvöld var bú-
ið að flytja 500 konur og börn
til Beirut í Libanon og frestað
að flytja fleira í bili.
Kveikt var í tveimur bifreið-
um bandarískra sendiráðs-
manna í fyrradag í Nicosia og í
Paposhéraði blossuðu upp á ný
bardagar milli tyrkneskra
manna og grískra og var a.m.k.
einn maður drepinn en margir
særðust.
SEINUSTU FRÉTTIR:
Til blóðugra bardaga kom 1
gær á Kýpur og féllu 25 tyrkn
esku mælandi og 11 grísku mæl
andi menn. Gerðist þetta um 20
kílómetrum suður af Nicosia
(höfuðborginni). Brezkt herlið
gat að lokum stillt til friðar —
án þess hleypt væri af einu ein
asta skoti úr byssu brezkra her-
manna. — Við erum hér til að
vernda friðinn, ekki til að
berjast, sagði fyrirliði þeirra.
REST-BEZT
KODDAR í fjórum stærðum.
DÚN- OG FIÐURHREINSUNIN
Vatnsstíg 3 Sími 18740.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að leggja hitaveitu í Faxa-
skjól, Sörlaskjól, Granaskjól og hluta af
Kaplaskjólsvegi og Nesvegi.
Útboðsgagna skal vitja í skrifstofu vora,
Vonarstræti 8, gegn 3.000 króna skilatrygg-
ingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Happdrætti
ísimés
Á mánudag verður dregið í 2. flokki.
Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja
2.000 vinningar að fjárhæð 3.680.000 krónur.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
2. flokkur.
2 á 200.000 kr. 400.000 kr.
2 - 100.000- 200.000 -
40 - 10.000 - 400.000 -
172 - 5.000- 860.000 -
1.780 - 1.000- 1.780.000 -
Aukavinningar:
4 á 10.000 kr. 40.000 kr.
2.000 3.680.000 kr.