Vísir - 25.02.1964, Síða 2
2
VÍSIR . Þriðjudagur 25. febrúar 1964.
Sonny Liston: „Ekki lengra Cassius Clay“.
USTON og CLAY keppa m
heimsmeisiaratignina í nótt
í nótt um 2 eftir ísl.
tíma munu þeir Sonny
Liston og Cassius Clay
keppa um heimsmeist-
aratignina í hnefaleik.
Liston er álitinn mjög
sennilegur sigurvegari í
þessari viðureign, en þó
eru talsvert margir sem
telja Clay eiga tækifæri
á að vinna titilinn af
Liston. Keppnin mun
fara fram í Miami Beach,
en hnefaleikar eru bann
aðir í Miami og munu
þeir sem að keppninni
standa sektaðir eftir
hana, líklega um 40-50
þús. krónur, sem er and-
virði 5 miða við hring-
inn. Ódýrustu miðar á
keppnina kosta 900
krónur.
Undanfarna daga hefur síð-
asti undirbúningur undir keppn
ina farið fram. Kappamir voru
vigtaðir sinn i hvoru lagi og
reyndist Clay 2 kílóum þyngri
eða 99 kíló og Liston 97. Sið-
ustu æfingar þeirra fóru fram
um helgina og auðvitað hélt
Clay mikinn blaðamannafund
eftir sina síðustu æfingu og
kom fram í rauðum sloppi
áietruðum „bjarnarveiðimaður“.
Liston hins vegar kemur fram
á óvanalegan hátt á sinum
blaðamannafundum og hefur
verið brosmildur og jafnvel
skemmtiiegur.
Sigrar íslenzka liðið fíug-
vallarliðið aftur?
Keppa annað kvöld á
Keflavíkurflugvelli
Körfuknattleikskeppni milli úr-
valsliðs Reykjavíkur og úrvalsliðs
Bandaríkjamanna á Keflavíkur-
flugvelli hefir staðið yfir í vetur
og lýkur henni n.k. miðvikudags-
kvöld í íþróttahúsi Keflavíkurflug-
vallar.
Alls hafa þessi lið keppt fjóra
leikí í vetur og hefir vart mátt í
milli sjá, hvort liðið er sterkara.
íslenzka liðið hefir þó haft yfir-
höndina, sigrað í þremur leikjum
af fjórum.
Sem dæmi um hörkuna í þessum
leikjum, má geta þess að fyrsta
leikinn unnu Bandaríkjamenn eftir
framlengdan leiktíma, okkar menn
unnu leik á Keflavíkurflugvelli
með stigatölunni 83:82 og síðasta
leikinn, sem fram fór á Háloga-
landi vann íslenzka úrvalið 56:53.
Allir hafa þessir leikir verið vel
leiknir og skemmtilegir.
Glæsilegur
verðlaunagripur.
Varnarliðsmenn hafa gefið glæsi
legan verðlaunagrip, sem sigur-
vegaranum í þessari keppni verður
afhentur við hátíðlega athöfn að
leik loknum í íþróttahúsinu á
Keflavíkurflugvelli á miðviku-(
dagskvöldið.
Aðgangur
fyrir íslendinga.
Körfuknattleikssambandið hefir
fengið leyfi til að selja aðgang að
þessum leik á Keflavíkurflugvelli.
Vcrða aðgöngumiðar til sölu I
Reykjavík, Keflavík og Njarðvík
— En fjöldi aðgöngumiða
verður takmarkaður og eru menn
þvi hvattir til að kaupa miða tim-
anlega. Sölustaðir verða auglýstir
t blöðum og útvar-í
Sætaferðir
frá Reykjavík.
Sætaferðir verða á iuikinn frá
Bifreiðastöð íslands og verður lagt
af stað kl. 18.30. Aðgöngumiðar á
leikinn gilda sem vegabréf á flug-
völlinn frá kl. 19 til 23 leikdaginn.
Leikmenn þeir sem keppa við
Fólk hefur aö undanförnu
flykkzt til Miami Beach og er
búizt við 6000 áhorfendum.
Miami býður um þessar mundir
upp á 23 stiga hita og fólkið
flatmagar á baðströndum.
Sérfræðingarnir telja að
bardaginn I kvöld snúist um
það hvort Clay tekst að halda
frá sér hinni hættulegu vinstri
hönd Listons, en fyrir henni
virðist Clay mjög opinn, ef
dæma má af æfingaleikjum
hans að undanförnu. Fari svo
að honum takist ekki að verjast
hinum mikla hrammi Listons,
getur spá Listons rætzt: „Hann
fær ekki að heyra allan þjóð-
sönginn hvað þá meira“. Og
takizt Liston að rota Clay verð-
ur heldur ekki úr áformi og Iof-
orði Clays: „Ef hann slær mig
út, sem auðvitað kemur aldrei
til greina, þá skal ég kyssa á
tær hans og segja: Þú er mest-
ur, mestur, mestur ..."
Cassius Clay
flugvallarúrvalið á miðvikudag-
inn, hafa allir verið valdir í lands-
liðið, sem keppir fyrir íslands hönd
á Polar Cup mótinu f Helsinki 20.-
22. marz n.k. Mun hér gefast sér-
stakt tækifæri til að sjá landsliðið
keppa, en liðið mun ekki leika
fleiri opinbera Ieiki fyrir utanför-
ina
Á undan leik meistaraflokkslið-
anna fer fram keppni milli pilta
úr 3. fl. ÍR og pilta úr Gagnfræða-
skóJanum á Keflavíkurflugvelli. —
Lið þessi hafa mætzt einu sinni
áður og sigruðu þá ÍR-ingar eftir
hörkuspennandi og jafnan leik.
Styrktarfélagar K.K.Í. fá afhenta
miða á leikinn gegn framvísun
styrktarfélagaskírteina í miðasölun-
um, en þær eru hjá B.S.Í. í
Reykjavík, verzluninni Kyndli í
Keflavik og í biðskýKnu í Njarðvík.
Ármann 75 áro
Glímufélagið Ármann minnist 75
ára afmælis síns með fjölþættri
afmælishátið í Háskólabiói næst-
komandi laugardag, 29. febrúar, og
hefst hún kl. 9 siðdegis. Þar koma
fram ýmsir íþróttaflokkar félags-
ins, m. a. þrír fimleikaflokkar og
svo glímumenn og judomenn. Auk
íþróttasýninganna verða mörg önn
ur vönduð skemmtiatriði, svo sem
kórsöngur Fóstbræðra, einsöngur
Guðmundar Guðjónssonar og einn-
ig skemmtir Svavar Gests og hljóm
sveit hans.
Nánar verður greint frá tilhögun
afmælishátíðarinnar eftir helgina.
Sala aðgöngumiða hófst í gær, í
bókabúðum Lárusar Blöndals á
Skólavörðustíg 2 óg i Vésturvéri.