Vísir - 14.03.1964, Page 15
V í SIR . Laugardagur 14. marz 1964.
75
— Það var fallegt af yður að
koma, sagði hún.
- pér haldið þó ekki, að mér
hafi ekki verið alvara?
— Nei, ég treysti yður.
Þau fóru að tala um íbúðina,
sem hann hafði leigt og hún gaf
í skyn, að það væri gaman að
sjá hvernig hann hefði hreiðrað
um sig þar, ög auðvitað sagði
hann, að hún gæti komið þegar
hún vildi.
— Ég hefði komið fyrr áðan,
sagði hún, en ég varð að doka-
við, ef assessorinn skyldi koma.
Hann heiðrar mig stundum með
heimsókn, þegar hann kemur úr
réttarsalnum, en svo nennti ég
ekki að bíða — og var sannast
að segja fegin að hann kom
ekki.
- Og nú eruð þér lausar og
liðugar?
— Til klukkan 9 í kvöld -
hann kemur alltaf klukkan 9,
nema þegar hann verður að vera
hjá móður sinni, skilst mér. Ég
verð að vera heima klukkan 9
— en, það er langt þangað til.
— Við gætum borðað miðdeg
isverð saman.
— Það gæti verið skemmti-
legt. Við gætum matazt hjá
Laperouse - það er rétt hjá,
þar sem ég á heima. Svo skrepp
ég upp í íbúðina mína tveimur
mínútum fyrir 9 og verði hann
ekki kominn, getum við farið
í gönguferð saman.
— Og þá yrði kannske tæki-
færi til að sjá íbúðina mína.
- Við sjáum nú til, sagði
Soffía brosandi.
Nú bættist maður í hóp þeirra
þriggja, sem sátu við næsta
borð:
— Það er mikið, að þú komst;
sagði einn þeirra þriggja, sem
fyrir voru.
- Ég get ekki að því gert.
Ég var á verði í sjúkrastofu
fangelsisins og það var nóg að
gera. í gærkvöldi komu þeir
með einn, sem hafði verið stung
inn rýtingi í slagsmálum. Það
hafði verið gerð lögregluinnrás
í Grýtuna við Hörpugötu og ef
lögreglan hefði ekki komið,
hefði þessi náungi vafalaust ver
ið drepinn. Ekki veit ég hver
hann er, en félagi hans kallaði
/ hann Baunastöngina, heyrði
ég-
Soffia' og René höfðu verið
farin að leggja við hlustirnar,
en þegar Soffía heyrði lækna-
kandidatinn nefna Baunastöng-
ina, kipptist hún við.
— Og lögreglan hefur áhuga
á honum. Já, hann virðist flækt
ur í eitthvert mikilvægt mál —
ég held morðið í hraðlest nr.
13.
Og nú var það René, sem ekki
síður fór að leggja við hlust-
imar.
— Það er sagt, að hann sé
að minnsta kosti meðsekur
morðingjanum.
— Vita menn þá hver morð-
inginn er?
— Já, það er búið að hand-
taka hann - hann heitir Oskar
Rigault.
Soffía rak upp vein - hún
gat ekki kæft það, svo mjög
brá henni. Hún snerti við hendi
læknakandidatsins:
— Afsakið, heyrði ég rétt, að
þér segðuð Oskar Rigault?
— Já, það er rétt. Svo sagði
að minnsta kosti lögreglumaður
sá, sem kom með særða mann-
inn; og þeir voru handteknir á
sömu stundu.
- Heyrið þér, haldið þér að
ég geti komið í sjúkraheimsókn
til Baunastangarinnar?
— Nei, sagði læknakandidat-
inn, sem var vinsamlegur, því
að hann kannaðist vel við Soff-
íu, eins og hinir stúdentarnir
flestir. Til þess þarf sérstakt
leyfi. Þar að auki er tvísýnt um
líf mannsins.
- Afsakið, sagði Soffía skelf
ingu lostin.
— Þekkið þér Baunastöngina?
spurði René alveg steinhissa.
Og af hverju brá yður svona?
- Ég skal segja yður það í
hreinskiini - ættarnafn mitt er
Rigault, og ég á bróður, sem
heitir Oskar.
René varð gripinn hræðslu og
þagði.
- Ég hlýt að vera eitthvað
rugluð, sagði Soffía. Bróðir
minn hefir verið í Afríku und-
angengin 3 ár Hann er skikk-
ar.legasti maður, er galgopi og
dálítið kærulaus, en hann mundi
ekki gera flugu mein. Og ég á
bágt með að skilja, að hann
skuli hafa flækzt inn í morð-
mál. Ég veit, að Oskar mundi
aldrei vega mann, en ég er grip
in ótta, eins og þér skiljið.
— Maðurinn gæti verið al-
nafni bróður yðar, sagði René
hughreystandi.
- En úr því verð ég að fá
skorið, sagði Soffía ákveðin —
þar skal assessorinn minn sann
arlega fá að hjálpa til. Jæja,
ég er búin að jafna mig, við
skulum fara að neyta miðdegis-
verðar og ekki hugsa um þetta
frekar.
Hann tók undir hönd hennar
og leiddi hana, og þau gengu
þannig og leiddust til matstofu
Laperouse, og René bað um mat
seðilinn og lét Soffíu velja rétt-
ina. Klukkan fimm mínútur í
9 setti Soffía á sig hattinn og
bað René að bíða sín hálfa
klukkustund, —. hún ætlaði að
fara og grennslast eftir hvort
assessorinn hefði komið. Klukk
an 20 mínútur yfir 9 kom hún
aftur. Assessorinn hafði ekki
látið sjá sig.
- Þér eruð þá frjáls sem
fuglinn — hvert eigum við að
fara?
- Ja, hvernig væri að fara
óg skoða íbúðina yðar? Hvað
segið þér um þá hugmynd?
- Mér finnst hún alveg ágæt,
sagði René, og svo stakk hún
hönd sinni undir handlegg hans
og þau leiddust til íbúðarinnar
í Nevers-götu.
22.
Næsta morgun gerði de Gev-
rey boð eftir lögfræðingnum, er
hafði með höndum erfðaskrá
Jacques Bernier. Þennan sama
morgun var honum tilkynnt að
búið væri aþ flytja Oskar Rig-
ault í Consciergerie-fangelsið,
og ætlaði hann að fara að gefa
fyrirskipun um að láta sækja
hann, er leynilögreglustjórinn
kom og sagði honum, að Bauna
stöngin væri enn í lífshættu og
því ekki hægt að yfirheyra
hann, en von væri um að lífi
hans yrði bjargað.
V!Ð SELJUM:
Rambler ’60 fyrsta flokks
Volkswagen '63 ’62 ’61 og
’60
Volkswagen ’59 rúgbrauð
með gluggum og sætum.
Sodiac ’59 úrvals bíll
Opal Caravan ’60
Taunus ’62 ’60, ’58 og ’57
Moskowitch ’59
Mercedes Benz ’57 190 úr-
vals bíll ný innfluttur.
Chervolet '60 ’59 ’57 ’56 ’55
Chervolet ’56 3100 sendi-
ferða með stöðvarplássi.
Látið bílinn standa hjá okk
ur og hann selst.
rauðarA 111)
SKÚLAGATA 65 — SÍIVU 15512
Bílasala
MATTHÍASAR
Seljum í dag:
Opel Rekord ’64.Ekinn 8000 km.
Chevy ’62, Ekinn 23000 km.
Chevrolet ’60 í góðu standi.
Opel Kapitan ’56 og ’62
Mercedes Benz ’59 og ’60 diesel
Opel Rekord ’62 lítið ekinn,
skipti á V.W. ’62-’64
Opel Caravan ’63 lítið ekinn,
Opel Caravan ’55 góður 1
Moskwitch ’57-’60
Volkswagen Pick up ’61 í 1. fl.
standi gott verð.
Volkswagen ’55-’64
Intemational ’59 vörubifreið £ 1.
fl. standi, gott verð
Mercedes Benz vörubílar ’55 ’56
’59 ’60 ’61 og ’63
Höfum mikið úrval af öllum
tegundum og árgerðum bifreiða.
Bílasalo
MATTHÍASAR
Höfðatúni 2, simi 24540 24541
Bifreiðaeigendur
Trefjaplast er nýjung til ryðbætinga. Trefjaplast er ó-
dýr hljóðeinangrun. Trefjaplast undir gólfmottur ver
gólfið ryði og hljóðeinangrar. Athugið verð og gæði.
Ryðverjum undirvagninn með feiti. Upplýsingar allan
daginn að Þinghólsbraut 39, Kópavogi.
TELL yOUR WOMAKI, TAKZAN, THIS
SECONP ME7ICINE IS VERY l/APOKTALT.
I MUST HURT HEE. A LITTLE... y
Tarzan, segir Naomi óttaslegin,
hvað ætlar hann að gera við mig
núna? Segðu henni að þetta sé
mjög áríðandi, segir svertinginn,
ég verð að meiða hana dálítið, en
bara lítið. En ég vil ekki að hún
finni til, svarar Tarzan, ekki einu
sinni lítið. Hún er hugrökk
stúlka, svarar hinn, og þetta verð
ur að gerast.
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flestar gerðir sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
; Ljósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLJ&R
Freyjugötu 15
Sími 20235
BÍLA OG
BÚVÉLA
SALAN
v/Miklatorg
Sími 2 3136
Fanný Benonýs
sími 16738
Vntteraðnr
nælonúlpur
Miklatorgi
D