Vísir - 14.03.1964, Side 16
VISIR
Laugardagur 14. marz 1964.
Hæsti báturinn
með 211 tonn
Afli Stykkishólmsbáta hefir verið
fremur rýr það sem af er vertíð.
Þó hefur einstaka daga fengizt góð
ur afli. Hæsti bátur hinn 1. marz
var m.b. Þórsnes, sem hafði fengið
þá 211 tonn.
RáSszt á leigubílstjóra og
bíl hans rænt
Mikil leit gerð að bifreið og
árásartmnini í gær
1 gær réðist farþegi I stöðvar-
bifreið á bílstjórann, rændi síðan
bíl hans og ók honuni upp í Heið-
mörk. Þar fannst bifreiðin nokkru
síðar og árásarmaðurinn var svo
handtckinn laust fyrir kl. 9 og
geymdur bak við lás og slá.
Um klukkan 4 e. h. í gær var
hringt til lögreglunnar í Reykja-
vík ofan frá Eiliðavatni. Sá, sem
hringdi, var leigubílstjóri, sem
sagði sínar farir ekki sléttar.
Kvaðst hann nokkru áður hafa tek
ið farþega á Grandagarði, sagði
hann til heitis, en seinna kom þó
á daginn, að hann hafði gefið upp
rangt nafn.
Þegar inn í bílinn var komið,
Kaffisala hjá kvenna-
deild Slysavarna-
félagsins um helgina
TANINGAAST í Þióileikhúsmu
Eins og sjá má af þessari
mynd, sem ljósmyndari Vísis
I.M., tók á æfingu í gær, er
sviðsbúnaðurinn f TÁNINGA-
ÁST, næsta viðfangsefni Þjóð-
Ieikhússins á þessu leikári, hinn
sérkenniiegasti. Hljómsveitin,
undir forystu Jóns Sigurðsson'-
ar, spilar á upphækkuðum palli
og til hliðar við hann er komið
fyrir geysimiklum hringstiga,
sem hefur töluverðu hlutverki
að gegna í sýningunni. Aðalhlut
verkin eru Ieikin af þeim Her-
dísi Þorvaldsdóttur og Rúrik
Haraldssyni er bæði sjást hér
en önnur hlutverk Ieika Bryn-
dís Schram, Róbert Ámfinnsson
og Benedikt Árnason, sem jafn
framt er leikstjóri. TÁNINGA-
ÁST eftir Emst Bmun Olsen
hbfur slegið met í sögu Konung
lega leikhússins f Kaupmanna-
höfn — meira en 100 sýningar
hafa þegar verið sýndar fyrir
fullu húsi og aðsókn er cnn
gífurleg.
bað farþeginn bílstjórann að aka
fyrst inn að Álfabrekku. Þar fór far
þeginn út og kvaðst þurfa að
verkfæri til að gera við bfl, sem
væri einhvers staðar milli Rauð-
hóla og Jaðars, og skyldi þangað
ekið.
Þegar komið var langleiðina að
Jaðri, bað farþeginn að bíllinn
yrði stöðvaður, því þarna ætlaði
hann út. Gerði bílstjórinn það, en
þá greiddi farþeginn honum högg
mikið og þungt undir stýrinu. Bíl
stjórinn hraðaði sér út og kom til
átaka milli þeirra, sem lyktaði með
því að farþeginn hratt bílstjóran-
um frá sér, hljóp inn í bílinn og
ók með flughraða af stað.
Er málin höfðu skipazt þannig,
sá bílstjórinn sér þann kost vænst
an að fara fótgangandi heim að
Elliðavatni, hringja þaðan til lög-
reglunnar og skýra frá málavöxt-
um.
Frá Reykjavík voru strax send-
ir iögreglumenn á staðinn til að
leita bíls og manns, ennfremur var
haft samband við lögregluna í
Kópavogi og Hafnarf. og auk þess
við bifreiðar með talstöðvar. Voru
Framhald á bls. 5.
Kvennadeild Slysavamafélags-
ins heldur hina árlegu kaffisölu
sína nú um fíelgina. Kaffisalan
verður í Siysavamafélagshúsinu
á Grandagarði. Undanfarin ár
hefur kvennadeildin selt kaffi
á konudaginn, en í ár gat það
ekki orðið, af óviðráðanlegum
ástæðum. Án efa munu Reyk-
----------------$
Aðalfundur
Blaðamanna-
félagsins ann-
an sunnudag
Aðalfundur Blaðamannafélags |
íslands verður haldinn sunnu-
daginn 22. marz í Klúbbnum.
Fram fara venjuleg aðalfundar-
störf.
víkingar fjölmenna, því um leið
og þeir fá sér góðan kaffisopa
með úrvais meðlæti styrkja þeir
gott málefni.
Frú Gróa Pétursdóttir form.
kvennadeildarinnar í Reykjavík
skýrði frá því á blaðamanna-
fundi s.l. fimmtudag að hinn ár-
legi fjársöfnunardagur deildar-
innar hefði gengið mjög vel og
hefðu alls safnazt rúmar eitt
hundrað þús. krónur. Af því fær
Slysavarnafélagið sjálft þrjá
fjórðu hluta þeirrar upphæðar,
en kvennadeildin afhenti félag-
inu alls 240 þús. á s.l. starfsári.
Á kaffisölunni nú um helgina
verður svokallað hlaðborð og
geta því allir borðað eins mikið
og þá lystir, og allir þekkja
gæði meðlætisins, sem Slysa-
varnafélagskonur hafa haft á
borðum sínum undanfarna kaffi-
söludaga.
Nú eru starfandi á öllu land-
inu um 25 kvennadeildir og af-
Framh. á 5. síðu.
Hópur menntamanna vill
loka fyrír sjónvarpið
Eftirfarandi áskorun til alþing-
is tslendinga undirrituuðu sex-
tíu alþingiskjósendur dagana 20.
febrúar — 12. marz, og var
hún send forseta sameinaðs al-
þingis 13. marz 1964. Að sjálf-
sögðu hafa þeir, sem undir skjal
ið rituðu gert það sem einstakl-
ingar, en ekki í embættisnafni
né fyrir hönd stofnana þeirra
eða samtaka, sem þeir starfa
fyrir.
Vér undirritaðir alþingiskjós-
endur teljum á ýmsan hátt var-
hugavert, auk þess sem það er
vansæmandi fyrir tslendinga
sem sjálfstæða menningarþjóð,
að heimila einni erlendri þjóð
að reka hér á landi sjónvarps-
stöð, er nái til meirihluta lands-
manna. Með stofnun og rekstri
islenzks sjónvarps teljum vér,
að ráðizt sé í svo fjárfrekt og
vandasamt fyrirtæki með örfá-
mennri þjóð, að nauðsynlegt sé,
að það mál fái þróazt í samræmi
------------------------------$>
við vilja og getu þjóðarinnar,
án þess að knúið sé fram með
óeðlilegum hætti.
Af framangreindum ástæðum
viljum vér hér með skora á
háttvirt alþingi að hlutast til
um, að heimild til rekstrar er-
lendrar sjónvarpsstöðvar á
Keflavíkurflugvelli sé nú þegar
bundin því skilyrði, að sjón-
varp þaðan verði takmarkað við
herstöðina eina.
Framhaid á bls. 5.
Samhandslaust við Hornhjargsvita
Það vakti ugg meðal fólks á fsa-
firði og víðar, þegar veðurskeyti
hættu að berast frá Hornbjargs-
xdta. Reynt var að kalla íbúana upp
í talstöð ,en allt kom fyrir ekki.
Vitavörðurinn, Jóhann Pétursson
skáld er staddur f Reykjavfk, en
heima er eiginkona hans og önnur
kona, sem dvelst þar, meðan Jó-
hann er að heiman.
Það var sl. þriðjudag, sem veður-
skeyti hættu að berast frá Horn-
bjargsvita. Var þá reynt að hafa
samband við konurnar í gegnum
talstöð, en þrátt fyrir ftrekaðar
tilraunir tókst það ekki. Vakti
þetta talsverðan ugg og kvíða
meðal ísfirðinga og víðar. Fenginn
var maður frá Dröngum til þess
að fara út að Hornbjargsvita og
kom hann til baka með þær fréttir
að talstöðin hefði bilað. Geta því
konurnar ekkert látið vita af sér,
og engin veðurskeyti eru því send
út. Áætlað er að senda varðskip
að Hornbjargsvita nú eftir helgina
og mun Jóhann vitavörður fara
með því.
Getraun
skólabarna
f gær var dregið um verðlaun
í 5. umferð Getraunar skóla-
barna. Hljóta verðlaunin, eintak
af íslenzkum þjóðháttum þau
Bjarni Ásgeirsson, 11 ára bekk
Landakotsskóla, og Anna Sofffa
Jóhannsdóttir, 5. bekk Barna-
skóla Sandgerðis.